Filed under: Bækur, Myndskeið, a new way of life, Anti Cancer, Bækur, David Servan-Schreiber, Video
mars 30, 2010 • 9:59 PM Comments Off
Filed under: Bækur, Myndskeið, a new way of life, Anti Cancer, Bækur, David Servan-Schreiber, Video
mars 30, 2010 • 12:56 PM Comments Off
Þetta er mín grunnuppskrift að hummus. Hann á ég yfirleitt alltaf til og bæti svo út í hann því sem ég er í skapi fyrir á hverjum tíma. Ég læt kjúklingabaunirnar liggja í bleyti í að minnsta kosti 4 klukkutíma og sýð þær svo í um 1 klukkustund með 1 tsk af matarsóda. Lykillinn er svo að láta matvinnsluvélina ganga í þrjár mínútur svo að hummusinn verði léttur og mjúkur. Þessi uppskrift er stór, en hummus geymst vel í ísskáp í loftþéttum umbúðum í tæpa viku.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítróna
Hnetur: sesam fræ (tahini)
Uppskrift
gerir um 4 bolla
4 bollar soðnar kjúklingabaunir
½-1 bolli vatn
1/3 bolli nýkreistur sítrónusafi
1/3 bolli tahini
1 ¼ tsk salt
Blandið ½ bolla af vatni, sítrónusafanum, tahinii og salti saman í matvinnsluvél og blandið vel saman. Bætið kjúklingabaunum út í og byrjið að þeyta. Bætið vatni út í þar til hummusinn hefur náð þeirri þykkt sem ykkur líkar við. Látið svo matvinnsluvélina ganga í þrjár mínútur þannig að hummusinn blandist gjörsamlega og verði léttur og mjúkur.
Filed under: Ídýfur, Hummus, sítrus ávextir, sesamfræ, Uppáhalds, Hummus, kjúklingabaunir, Sítróna, Sesam fræ, tahini
mars 29, 2010 • 12:35 PM Comments Off
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: ananas
Grænmeti: spínata
Uppskrift
fyrir 2
1 bolli kókosvatn
1 bolli ferskur ananas skorinn í bita
2 troðnir bollar spínat
Setjið allt saman í blender og blandið þar til orðinn er til grænn og girnilegur súperholl hreinsisafi. Bætið klökum við eftir smekk.
Filed under: ananas, Drykkir, Morgunmatur, spínat, Uppskriftir, ananas, kókosvatn, spínat
mars 28, 2010 • 2:15 PM Comments Off
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: klettasalat, laukur
Ávexti: vínber
Uppskrift
Fyrir 4 með mat
1 poki klettasalatsblanda
1/2 rauðlaukur smátt skorinn
20-30 rauð vínber, skorin í tvennt
1/2 agúrka niðurskorin
3 msk geitaostur
Dressing:
3-4 þurrkaðar fíkjur, smátt saxaðar
2 msk ólifuolía
2 tsk balsamik edik
1 tsk fljótandi hunang
nýmalað salt og pipar
Blandið saman klettasalati, rauðlauk, agúrku og vínberjum í skál. Bætið geitaostinum út í í litlum smáskömmtum.
Setjið smátt söxuðu fíkjurnar í litla skál og bætið ólífuolíu, balsamik ediki og hunangi saman við og blandið vel. Látið standa í um 15 mínútur. Bætið salti og pipar út í eftir smekk. Hellið yfir salatið og berið fram.
Filed under: klettasalat, laukur, Uppáhalds, vínber, klettasalat, rauð vínber, rauðlaukur
mars 28, 2010 • 2:09 PM Comments Off
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Krydd: chili, kóríander, fennel, kardimommur, negulnaglar, túrmerik, kanill
Uppskrift
Gerir um 1/3 bolla
4 þurrkaðir rauðir chili
1 msk kóríander fræ
1 msk cumin fræ
1 msk fennel fræ
½ tsk kardomommufræ innan úr heilum kardimommum (tekið innan úr kardimommunum sjálfum)
½ tsk negulnaglar
1 msk túrmerik
½ tsk kanill
Setjið chiliið, kóríander fræin, cumin fræin, fennel fræin, kardimommufræin og negulnaglana á þurra pönnu og hitið töluvert. Ristið fræin á pönnunni í 2-3 mínútur eða þar til þau eru farin að gefa frá sér góðan ilm. Passið að brenna fræin ekki. Hellið fræjunum í kaffikvörn, mortel (gæti þó verið erfitt) eða matvinnsluvél og malið fínt. Hellið kryddinu í skál og bætið túrmeriki og kanil saman við. Sigtið frá bita ef eitthverjir eru.
Filed under: chili, fennel, kanill, kardimommur, Karrý, kóríander, negulnaglar, Uppáhalds, Uppskriftir, chili, cumin fræ, fennel fræ, kanill, kardomommufræ, kóríander fræ, negulnaglar, rauðir chili, túrmerik
mars 28, 2010 • 2:07 PM Comments Off
Maður Lifandi birti fyrir nokkru umfjöllun á facebook um goji ber. Það vill svo til að ég keypti goji ber fyrir nokkrum vikum og hef ekki vitað hvað ég á að gera við þau. Ég las umfjöllunina og fannst hún virkilega skemmtileg og fróðleg. Ég hef því ákveðið að birta hana hér í heilu lagi þannig að þeir sem eru ekki vinir Maður Lifandi eða eru ekki á facebook, geta lesið hana hér:
,,Goji ber eru Hamingjuber
Þessi eldrauðu og krafmiklu ber hafa verið notuð um aldir í austurlenskum lækningum. Goji berin eru upprunalega frá Tíbet og eru ræktuð þar í miklum mæli, og einnig eru þau ræktuð um allt sunnanvert Kína og norðanvert Indland. Berin eru ræktuð á sígrænum runna sem vex í 1-3metra hæð eftir vaxtaskilyrðum. Þegar berin eru fullþroska eru þau mjög mjúk og eru hrist af trjánum til að koma veg fyrir að þau springi. Það er margra alda hefð hjá íbúum Himalya fjalla og Tíbet að fagna uppskerutíma Goji berja og er þau kölluð hamingjuber vegna áhrifa þeirra á heilsu og heilbrigði, andlega og líkamlega.
Goji-berin hafa mjög háan andoxunarstuðul og andoxunarefnið, polysaccharides í Goji berjunum er talið sérlega afkastamikið, styrki frumurnar hratt og örugglega og styrki þar með ónæmiskerfið á undrahraða. Einnig eru þau talin gefa mikla orku og draga úr þreytueinkennum, auka á almenna vellíðan og eru sögð draga úr matarlyst og ofáti.
Þau auka á framleiðslu svokallaðra T-fruma og hvetja hvítu blóðkornin til hreinsunarstarfa. Þau eru talin mjög góð fyrir sjónina, vernda lifrina, styrkja blóðrásina , auka kynhvöt, örva sæðismyndun hjá karlmönnum, viðhalda æsku og lífsþrótti.og eru talin stuðla að betri svefni.
Goji berin innihalda flest þau næringarefni sem við þurfum til að halda góðri heilsu. Þau innihalda 500 sinnum meira C-vítamín en appelslínur, mjög hátt magn af karótíni og fjölda B-og E vítamína. Einnig innihalda þau a.m.k. 18 amínósýrur og mikið mafn af steinefnum, s.s. sink, járn, kopar, kalk, selen og fosfór.
Mælieiningin ORAC stendur fyrir “oxygen radical absorbance capacity” og mælir heildar andoxunarmælikvarða bætiefna og annarra fæðutegunda. Goji berin mælast á ORAC skalanum með 25.300 einingar á meðan bláber hafa 2.400, jarðarber 1.540, spinat 1.540, appelsínur 750. Það er því óhætt að segja að þessi vara er óvenjuleg.
Goji berjasafinn smakkast mjög vel og er mælt með því að taka 1-2 matsk. af honum á dag. Það er líka sniðugt að blanda honum í morgundrykkinn sinn. Af berjum er mælt með ca. 20-40 berjum á dag og er hægt að nota þau líka í matreiðslu ýmiss konar, s.s. í salöt og súpur.
Safi úr Goji berjum er mjög vinsæll meðal íbúa Austurlanda og víðast í Evrópu má nú sjá Goji ber og Goji safa í hillum heilsuverlana og nú fást einnig bæði ber og Goji safi á Íslandi í heilsuvöruverlunum og í sumum apótekum.
Þetta er því rétti tíminn til að hressa upp á líkama og sál með einni af heimsins mestu hollustu afurð.”
Ég vaknaði svo í morgun og bjó til hafragraut með goji berjum. Hann var virkilega góður. Ég notaði þurrkuð goji ber og sauð þau allan tímann með grautnum. Mæli með því að fólk prófi það.
Filed under: goji ber, Greinar, Morgunmatur, B-vítamín, C-vítamín, E-vítamín, Goji ber, Hár andoxunarstuðull, Járn, Kalk
mars 28, 2010 • 2:05 PM Comments Off
Í þessari uppskrift nota ég sérstakt karrý sem ég bý til sjálf. Það inniheldur frekar margar tegundir af kryddum sem eru ristuð og svo möluð. Þetta gerir það að verkum að maður fær sérstaklega gott karrý. Það er þó ekki nauðsynlegt að nota heimatilbúna karrýið. Ég mæli þó eindregið með því. Það er vel hægt að nota karrý eins og Hot Madras Curry frá Rajah eða þess vegna Mild Madras Curry frá Rajah. Þetta eru indversk karrý og gefa þau því aðeins annað bragð. Ég myndi þó mæla með því að bæta smá cayenne pipar út í ef notað er milt eða venjulegt karrý frá Pottagaldri, svona eins og 1/4-1/2 tsk, allt eftir smekk. Ég setti sjálf 1/4 tsk af cayenne pipar út í uppskriftina með heimatilbúna karrýinu, þannig að ef að fólk er mikið fyrir sterkan mat þá er það mjög gott. Annars er þetta frekar léttur karrý réttur sem auðvelt er að leika sér með útfærslur á.
Uppskriftina að karrýinu er að finna hér.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: Laukur, tómatar
Ávextir: Epli
Krydd: Chili, ferskt kóríander, hvítlaukur, túrmerik, sinnep, fennel, fenugreek fræ, kardimommur, negulnaglar, kanill, svartur pipar.
Uppskrift
Fyrir 4
2 msk ólífuolía
1 rauðlaukur
3 hvítlauksrif
2 tómatar
½ bolli ferskt kóríander
1 tsk grófkorna Dijon sinnep
1 gult epli
1 msk kókosolía
Nokkur fenugreek fræ (má sleppa)
1 msk og 1 tsk heimatilbúið karrý frá Sri Lanka
1/2 bolli sjóðandi vatn
1 tsk salt eða eftir spekk
Nýmalað salt og pipar
8-9 kjúklingaleggir eða heill kjúklingur í bitum
Setjið ólífuolíu, rauðlauk, tómata, kóríander og hvítlauk í matvinnsluvél og maukið vel. Skolið kjúklinginn undir köldu vatni og skerið frá sem mesta húð og fitu. Setjið kjúklinginn í skál og kryddið með maldon salti og svörtum pipar. Hellið blöndunni úr matvinnsluvélinni yfir kjúklinginn og hrærið saman við. Bætið grófkorna sinnepinu út í og hrærið vel. Setjið plastfilmu yfir og látið standa í að minnsta kosti tvær klukkustundir.
Setjið karrýið í skál og hellið sjóðandi vatni út og hrærið saman við. Hitið því næst kókosolíu og nokkur fenugreek fræ í potti þar til olían er orðin vel heit. Bætið þá karrývökvanum út í pottinn, lækkið undir, og steikið þar til karrýið er orðið vel þykkt á pönnunni. Bætið þá kjúklingnum ásamt marineringunni út í og hrærið vel.
Setjið þá saltið út í og hrærið saman við. Hækkið aftur undir. Bætið 2 og 1/2 bolla af vatni út og látið suðu koma upp. Sjóðið í 30-40 mínútur. Þegar 10-15 mínútur eru eftir af suðutímanum er eplunum bætt út í og þau soðin með afganginn af tímanum.
Hentar vel með hrísgrjónum og léttu salati.
Filed under: chili, epli, fennel, fenugreek, hvítlaukur, kanill, kardimommur, Karrý, kóríander, laukur, negulnaglar, sinnep, svartur pipar, tómatar, túrmerik, Uppskriftir, epli, fennel, fenugreek fræ, Ferskt kóríander, hvítlaukur, kanill, kardimommur, laukur, negulnaglar, sinnep, svartur pipar, tómatar, túrmerik
mars 28, 2010 • 1:59 PM Comments Off
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávexti: banana, aprikósur
Kornmeti: hveiti, haframjöl
Uppskrift
Um 30 stk
1 bolli hveiti
1 tsk lyftiduft (helst vínsteinslyftiduft)
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
2 tsk mjúkt smjör
1/2 bolli sykur
1/2 bolli púðursykur
1 egg
1/4 bolli maukaður banani
1 tsk vanilludropar
1 og 1/3 bolli gróft haframjöl
1/2 bolli þurrkaðar aprikósur niðurskornar
Hitið ofninn upp í 180 gráður.
Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti.
Þeytið í annarri skál smjörið og hvíta sykurinn saman. Bætið svo púðursykrinum, egginu, banananum og vanilludropunum saman við. Blandið þurrefnunum saman við og að lokum haframjölinu og aprikósunum.
Notið teskeið við að setja kökurnar á bökunarplötu (á bökunarpappír) og passið að hafa bil og milli þeirra. Bakið í 10-12 mínútur eða þar til kökurnar eru orðnar “golden” á litinn, en eru ennþá mjög mjúkar.
Filed under: aprikósur, bananar, korn, aprikósur, Banani, haframjöl, korn
mars 28, 2010 • 1:55 PM Comments Off
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: jarðaber
Grænmeti: klettasalat, laukur,
Uppskrift
fyrir 4
4 kjúklingabringur
1 bolli bbq sósa
1 poki klettasalatsblanda
1 agúrka niðurskorin í þríhyrninga
1 stór rauðlaukur smátt skorinn
1 askja jarðaber, skorin í bita
hálf stór dolla kotasæla
salt og pipar
Hitið ofninn upp í 180 gráður. Marinerið kjúklingabringurnar í bbq sósunni og bakið í eldföstu móti í ofni í 30 mínútur. Skerið í bita og leggið til hliðar
Hellið klettasalatsblöndunni í skál. Blandið lauk, agúrku og jarðaberjum saman við. Saltið og piprið örlítið. Bætið kjúklingnum út í og hellið kotasælunni yfir í smáskömmtum, eins og 1 msk í einu. Berið fram.
Filed under: jarðaber, Kjúklingur, klettasalat, laukur, Salöt, jarðaber, Kjúklingur, klettasalat, laukur
mars 28, 2010 • 1:52 PM Comments Off
Þetta salat er eitthvað alveg nýtt fyrir mér, spagetti, epli, sólþurrkaðir tómatar, maís og laukur í grunninn og svo hellt yfir það sósu sem hljómar ansi furðulega en passar einhvern vegin fullkomlega með eplunum og lauknum. Það er alltaf svo gaman þegar maður lærir að blanda eitthverju nýju saman í matargerðinni.
Þetta salat er tilvalið sem hádegismatur eða léttur kvöldverður. Þó svo að það sé spagetti í salatinu þá gera eplin og maísinn það frekar létt og brakandi.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: epli, límóna
Grænmeti: maís, laukur, tómatar,
Krydd: hvítlaukur, sinnep, ferskt kóríander, svartur pipar
Uppskrift
Fyrir 4-6
450 gr spagetti
2 tsk ólífuolía
8 stk sólþurrkaðir tómatar skornir í litla bita
350 gr maís
3 græn epli niðurskorið
1 rauðlaukur smátt skorinn
2 msk ferskt kóríander smátt saxað
Nýmalað salt og pipar
Sósan:
1/4 bolli majones
1/4 bolli sýrður rjómi
2 msk grófkorna dijon sinnep
2 msk safi úr límónu
1 og 1/4 tsk chili krydd
1 og 1/4 tsk malað cumin krydd
Sjóðið spagettíið í samræmi við leiðbeiningar á pakka. Skolið spagettíið með köldu vatni þegar búið er að sjóða það svo það haldið ekki áfram að eldast. Færið í salatskál.
Blandið saman innihaldefnum í sósuna og geymið í ísskáp þar til salatið er tilbúið.
Hellið ólífuolíunni yfir pastað og blandið saman við. Bætið sólþurrkuðu tómötunum, maísnum, eplunum, lauknum og kóríanderinu saman við og blandið vel. Saltið og piprið eftir smekk. Hellið sósunni yfir í smá skömmtum og blandið saman við. Skreytið með fersku kóríander og berið fram.
Filed under: epli, hvítlaukur, kóríander, laukur, maís, Pasta, Salöt, sítrus ávextir, sinnep, svartur pipar, tómatar, Uppskriftir, epli, hvítlaukur, kóríander, laukur, límóna, maís, sinnep, svartur pipar, tómatar