Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Heimatilbúið múslí

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Hnetur og fræ: pekanhnetur, sesam fræ, hörfræ
Kornmeti: haframjöl

Uppskriftin
gerir um 5 bolla af múslí

4 bollar gróft haframjöl
1/4 bolli kókosolía
3/4 bolli hunang
1 bolli rúsínur
1 bolli þurrkuð trönuber
1 og 1/2 bolli pekanhnetur
1/2 bolli sólblómafræ
5 msk sesamfræ
5 msk hörfræ
börkur af einni appelsínu (passa að rífa ekki of djúpt í appelsínuna, þá kemur beiskt bragð)

Hitið ofninn upp í 150 gráðum og hafið tilbúnar tvær bökunarplötur með bökunarpappír.

Bræðið kókosolíuna í potti og bætið hunanginu út og látið blandast vel saman. Hrærið haframjöli, hnetum, fræjum og appelsínuberki saman í stóra skál og bætið svo hunangsblöndunni saman við og hrærið vel, þar til allt haframjölið hefur dregið í sig smá af hunangsblöndunni.

Dreifið blöndunni á bökunarplöturnar og bakið í ofni fjórum sinnum í 10 mínútur. Takið s.s. út úr ofninum á 10 mínútna fresti og hrærið í. Blandið rúsínunum og trönuberjunum saman við þegar á eftir að baka blönduna í 10 eða 20 mínútur, eða sleppið og bætið við þegar búið er að rista alveg.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

About these ads

Filed under: haframjöl, hörfræ, Morgunmatur, pekanhnetur, sítrus ávextir, sesamfræ, Uppskriftir, , , ,

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: