Þetta er mildur indverskur fiskréttur sem flestum ætti að finnast góður. Hneturnar og fræin mýkja hann og gefa honum ákveðna fyllingu. Tómatarnir og kóríanderið mynda svo ferskleika sem léttir réttinn mikið. Ég notaði steinbít. Mér finnst steinbítur mjög góður, ekki feitur og í þurrari kantinum. Það er þó algjörlega undir hverjum og einum komið hvaða fiskur notaður er. Fyrir þá sem eru hrifnir af þorski þá væri hann örugglega frábær í þennan rétt, einnig koli, smálúða og ef til vill risarækjur. Ég á líka örugglega eftir að gera þennan rétt einhvern tíma með tófu. Þegar sojaafurðir eru notaðar saman með túrmeriki aukast krabbameinshamlandi áhrifin mikið. Sama er að segja um túrmerik þegar það fer saman með svörtum pipar (sjá grein hér).
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítróna
Grænmeti: tómatar
Krydd og kryddjurtir: engifer, hvítlaukur, chili, túrmerik, svartur pipar, garam masala ( kardimommur, negulnaglar, svartur pipar, kóríander)
Hnetur og fræ: kasjúahnetur, sólblómafræ
Uppskrift:
fyrir 4-6
600 gr. steinbítur
2 tsk engifer maukað
2 hvítlauksgeirar maukaðir
1 tsk sítrónusafi
1 tsk salt
1/2 tsk chili krydd
1 dós kókosmjólk
20 stk kasjúahnetur
3 msk sólblómafræ
2 tsk kókosolía
1 stór hvítlauksgeiri maukaður
1/2 tsk túrmerik
nýmalaður pipar
1 tsk malað kúmin
1 tsk paprikukrydd
1 msk tómatmauk
2 stórir þroskaðir tómatar maukaðir í matvinnsluvél eða smátt saxaðir
1 1/2 tsk garam masala
1/4 bolli ferskt kóríander smátt saxað
salt eftir smekk
Sneiðið fiskinn niður í bita og setjið í skál með sítrónusafa, engiferi, hvítlauk, chilikryddi og salti. Blandið vel og látið liggja í marineringu í 30-40 mínútur.
Hellið 1 bolla af kókosmjólk í matvinnsluvél. Bætið kasjúahnetum og sólblómafræjum út í og blandið þar til hneturnar hafa maukast.
Hitið kókosolíu á pönnu og steikið hvítlaukinn á miðlungshita í 2-3 mínútur. Bætið þá túrmeriki, smá nýmöluðum pipar, möluðu kúmini, paprikukryddi á pönnuna og steikið í 1-2 mínútur til viðbótar. Bætið þá tómatmauki og maukuðum tómötum út í og steikið í 2-3 mínútur í viðbót. Bætið kókosmjólkurblöndunni á pönnuna og blandið vel. Látið suðuna koma upp. Bætið þá fiskinum út í og blandið vel. Bætið því næst garam masala, fersku kóríander og afganginum af kókosmjólkinni út í. Sjóðið í nokkrar mínútur, eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Saltið aukalega eftir smekk. Berið fram með hrísgrjónum og naan brauði.
Filed under: chili, engifer, Fiskur, hvítlaukur, kasjúahnetur, negulnaglar, sítrus ávextir, sólblómafræ, svartur pipar, túrmerik, Uppskriftir, chili, engifer, Ferskt kóríander, Fiskur, garam masala, hvítlaukur, kasjúahnetur, kókosmjólk, kóríander, kúmin, paprika, sólblómafræ, tómatur, túrmerik











