Kafli 8 í bókinni Anti Cancer, A New Way of Life heitir The Anti Cancer Foods og fjallar um mat sem vinnur gegn krabbameini. Mikilvægur punktur sem ítrekaður er á forsíðu bókarinnar er sá að allt fólk er með einhverjar krabbameinsfrumur í líkamanum, bara mismikið, og ekki er víst að þessar frumur myndi mein sem getur orðið líkamanum lífshættulegt.
Á bls. 104 í kafla 8 er fjallað um kryddið túrmerik. Þetta krydd nota Indverjar mikið í sinni matargerð, en flestir á vesturlöndum þekkja það sem gula litinn í karrýblöndunum okkar. Í kaflanum kemur fram að hver Indverji innbirgði að meðaltali 1,5 til 2 grömm (1/4 – 1/2 tsk) af túrmeriki á dag. Krydd kemur af rót túrmerikjurtarinnar og er einnig mikið notað í óhefðbundnum lækningum vegna þess hve virkt það er í að vinna gegn bólgu í líkamanum. Virka efnið í túrmeriki kallast kúrkúma og gengur kryddið í sumum tilvikum undir því nafni.
Sýnt hefur verið fram á að kúrkúma getur unnið gegn fjölmörgum tegundum krabbameina, t.d. krabbameini í ristli, lifri, maga, brjóstum, eggjastokkum, heila og hvítblæði. Rannsóknir á músum hafa sýnt að kúrkúma getur komið í veg fyrir myndun æxla í kjölfar langvarandi notkunar á krabbameinsvaldandi efnum s.s. vegna reykinga. Í því samhengi er vert að benda á að tíðni lungnakrabbameins á Indlandi er 8 sinnum lægri en á vesturlöndum, tíðni ristilkrabbameins er 9 sinnum lægri, tíðni brjóstakrabbameins 5 sinnum lægri og tíðni krabbameins í nýrum 10 sinnum lægri. Þetta er staðreynd þrátt fyrir að magn krabbameinsvaldandi efna í andrúmslofti Indlands sé í mörgum tilfellum mun meira en á vesturlöndum.
Það sem er einnig mjög athyglisvert varðandi virkni túrmeriks er það að þegar vísindamenn í Tævan fóru að meðhöndla krabbamein með túrmeriki í hylkjum var það mjög vanmáttugt og upptaka þess sérlega takmörkuð í meltingarfærunum (sjá nánar bls 105 í Anti Cancer). Þá kom í ljós að þegar túrmerik er ekki notað samhliða svörtum pipar í matargerð (eins og er venjan í Indlandi) þá nær líkaminn ekki að vinna túrmerik þannig að það hafi bólguhemjandi áhrif. Svartur pipar rúmlega tvöþúsundfaldar virkni túrmeriks í líkamanum og er því mikilvægt að nota þessi krydd saman þegar eldað er. Einnig er mikilvægt að túmerik blandist saman við olíu þegar það er notað í matargerð. Þess vegna er venjan í indverskri matargerð að steikja fyrst laukinn upp úr olíu og bæta því næst kryddunum, þ.á.m. túrmeriki og svörtum pipar, út í og láta kryddin blandast olíunni og lauknum áður en lengra er haldið.
Það er því ekki tilviljun að fyrsta fæðutegundin sem fjallað er um hér á síðunni sé túrmerik. Máttur þess hefur verið staðfestur með tugum ef ekki hundruðum rannsókna og er því talinn óumdeildur.
Ég mæli sérstaklega með eftirtöldum uppskriftum sem innihalda túrmerik:
Indversk linsubaunasúpa
Tælenskt rautt karrý með tófú og ferskum aspas
Karrýpottréttur með kjúklingabaunum og sætum kartöflum
Filed under: túrmerik, Anti Cancer, Bólga, Kúrkúma, túrmerik, The Anti Cancer Foods






