Þessi súpa er mjög vel næringarfræðilega samsett. Hún inniheldur próteinríkar, trefjaríkar, fólínsýruríkar og járnríkar kjúklingabaunir, a vítamínríkar sætar kartöflur og gulrætur, prótínríkt gæðahnetusmjör, tómatarnir eru svo ríkir af lycopene og í rauða chilipiparnum er að finna capsaicin sem talið er vinna gegn krabbameini m.a. í blöðruhálskirtli. Hún er bragðmikil og matarmikil en í senn létt í maga og auðmeltanleg. Hún inniheldur einnig heila kanilstöng sem látin er sjóða í súpunni allan tímann og svo tekin úr áður en súpan er maukuð. Kanill er öflugt krydd sem er blóðsykurjafnandi og rannsóknir sýna einnig að vinni gegn ýmsum tegundum krabbameins (sjá t.d. hér).
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, gulrætur, sætar kartöflur, tómatar
Krydd og kryddjurtir: engifer, rautt chili, hvítlaukur, kóríander, kúmin, ferskt kóríander, kanill
Hnetur: jarðhnetur
Uppskrift
fyrir 4-6
2 msk. kókosolía
2 laukar niðurskornir
1 msk ferskt engifer saxað
4 hvítlauksgeirar marðir
1 stór rauður chili niðurskorinn
1 kanilstöng
1 ½ tsk malað kúmin
1 ½ tsk malað kóríander
1 tsk salt
4 tómatar niðurskornir
2 meðalstórar sætar kartöflur niðurskornar
3 meðalstórar gulrætur niðurskornar
5 bollar vatn
4 msk gróft hnetusmjör
1 dós kjúklingabaunir
3 msk ferskt saxað kóríander
Hitið olíuna í potti og steikið laukinn í 5-7 mínútur eða þar til hann er farinn að brúnast. Bætið þá hvítlauk, engiferi, chili, kanilstöng, kúmini, möluðu kóríander og salti í pottinn og steikið áfram í um 3 mínútur. Bætið næst tómötunum út í og steikið áfram í 2-3 mínútur. Bætið þá sætum kartöflum, gulrótum og vatni út í og látið suðuna koma upp. Sjóðið súpuna í 40 mínútur við vægan hita eða þar til allt grænmetið er orðið mjúkt. Maukið þá með töfrasprota eða í blandara. Komið aftur fyrir í potti á hellunni og bætið hnetusmjöri saman, kjúklingabaunum og kóríander saman við. Látið allt blandast vel saman á vægum hita. Smakkið og bætið við salti og nýmöluðum pipar eftir smekk. Skreytið með fersku kóríander og berið fram með góðu brauði.
Filed under: chili, engifer, gulrætur, hvítlaukur, kanill, kartöflur, Kartöflur, kóríander, kúmin, Kjúklingabaunir, laukur, Súpur, svartur pipar, tómatar, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, capsaicin, engifer, fólínsýruríkt, kjúklingabaunir, próteinrík, rauður chili, trefjaríkt





