Þetta salat er eitt af mínum uppáhalds. Upphaflega fann ég það í bók eftir Madhur Jaffrey, sem ég elda mikið úr, en með tíð og tíma hefur uppskriftin breyst lítillega eftir mínu höfði. Salatið passar fullkomlega með bragðsterkum indverskum pottréttum og er rosalega fljótlegt, hollt og einfalt. Allar fæðutegundirnar í salatinu hafa eiginleika sem vinna gegn krabbameini. Tómatarnir innihalda lycopene sem ég hef áður talað um hér á síðunni. Ferskt kóríander hefur eiginleika sem hjálpa líkamanum að losa sig við þungamálma. Það hefur einnig bólguhemjandi áhrif á líkamann auk þess að vera gott fyrir meltinguna. Að lokum langar mig að nefna það að ferskt kóríander hefur eiginleika sem jafna/stilla(e. regulate) NF-kB í líkamanum. NF-kB er prótein samstæða sem þjónar grundvallarhlutverki þegar líkaminn bregst við sýkingum og hefur einnig verið tengt við myndun krabbameins, þ.e. þegar um óeðlilega virkni NF-kb eða stillingu þess er að ræða (sjá nánar um þetta hér). Ég ætla hins vegar ekki að hætta mér dýpra ofan í þessi mjög svo flóknu fræði. Hér kemur uppskriftin að þessu skemmtilega salati.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir
Grænmeti: tómatar, laukur
Krydd og kryddjurtir: ferskt kóríander, cayenne pipar
Uppskrift
fyrir 4-6 með mat
2 öskjur kirsuberjatómatar skornir í tvennt
2-3 msk. ferskt kóríander saxað
1 laukur smátt skorinn
1/2 tsk. salt
1/8 tsk. cayenne pipar
2 msk. sítrónusafi
1 msk. extra virgin ólífuolía
Blandið öllu saman í skál og berið fram með mat.
Filed under: kóríander, laukur, Salöt, sítrus ávextir, tómatar, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, cayenne pipar, Ferskt kóríander, laukur, Lycopene, meðlæti, NF-kB stilling, tómatar





