Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Ristaðar möndlur og valhnetur með jólakryddum

Þá er þessi yndislegi tími senn á enda. Ég ætla nú samt að ná að setja inn eina jólauppskrift til viðbótar. Við systkinin hittumst á annan í jólum og spiluðum en þar sem allar búðir voru lokaðar þurfti ég að vinna úr því sem til var í skápunum. Það var nú ekki margt og þá sérstaklega ekki margt sem hentaði sem möns yfir fimbulfambi. Ég átti þó möndlur og valhnetur og ákvað því að reyna að gera eitthvað gott úr þeim. Úr varð bara mjög skemmtilegt jólasnakk, jól í munnbita eins og einhver sagði. Það frábæra við þetta snakk er að það er svona nánast eins hollt og snakk getur orðið. Ég vildi óska þess að ég gæti sleppt hrásykrinum, en hann heldur þessu öllu saman, þannig að hann er ómissandi.

Valhnetur eru ríkar af omega 3 fitusýrum, sem koma sér vel eftir allt bólguhvetjandi reykta kjötið sem flestir borðuðu yfir hátíðirnar. Ég verð þó að viðurkenna að ég slapp einstaklega vel þetta árið, fékk hreint út sagt frábærar rjúpur á aðfangadagskvöld og svo verður kalkúnn á gamlárskvöld þannig að það var lítið um reykt og saltað á mínum bæjum. En aftur að valhnetunum. Rannsóknir sýna að valhnetur geta hægt á vexti krabbameins, bæði i brjósti og blöðruhálskirtli, og er það bólguhemjandi þátturinn sem hefur áhrif sem og þær tegundir af próteinum sem finnast í valhnetum auk annarra næringarefna. Í valhnetum er að finna efni sem kallast phytosterol, sem binst estrogen viðtökum og þannig hægir á myndun estrogentengdra meina.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Hnetur og fræ: valhnetur
Krydd: kardimommur, negull, cayenne pipar, kanill

Uppskrift
gerir rúmlega 2 bolla

2 msk. hrásykur
1 tsk. kókosolía eða góð ólífuolía
1 tsk. kanill
1/4 tsk. malaðar kardimommur
1/4 tsk. negull
1/4 tsk. cayenne pipar
1 tsk. maldon salt (minna ef notað er venjulegt salt)
1 bolli möndlur
1 bolli valhnetur

Blandið sykri og kryddum saman í skál. Bræðið kókosolíuna á pönnu og hellið kryddblöndunni saman við. Látið sykurinn bráðna saman við olíuna og bætið þá valhnetum og möndlum á pönnuna. Passið að hafa hitann ekki of háan, því þá brennur allt við. Ristið á pönnunni í nokkrar mínútur, eða þar til hneturnar hafa ristast léttilega og kryddin náð að setjast á þær. Látið kólna og berið fram.


About these ads

Filed under: kanill, kardimommur, möndlur, negulnaglar, sætindi, Smáréttir, valhnetur, Vegan

Súkkulaðismoothie

Þessi smoothie er sérstaklega vinsæll á þessu heimili. Hráar kakóbaunir, eða raw cacao nibs, eru virkilega hollar bæði fyrir hjartað og heilann og innihalda mikið magn andoxunarefna. Kakóbaunin inniheldur, eins og allt súkkulaði, koffín og er því gott að skipta kaffinu út fyrir súkkulaðismoothie á morgnanna. Þessi veitir manni meiri orku, næringu og vellíðan en kaffibollinn, þó svo að hann geti stundum verið algjörlega ómótstæðilegur.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: banani, avókadó
Kornmeti: hafrar

Uppskrift
fyrir 1

1 bolli haframjólk eða möndlumjólk
1 msk. cacao nibs (fæst í heilsubúðum)
1 tsk. malað hreint kakó
1 banani
½ avókadó
klakar
örlítið agavesíróp

Blandið saman í blender og drekkið með bros á vör.

Filed under: avokadó, bananar, Drykkir, haframjöl, Morgunmatur, Vegan, , , , , ,

Jólamúslí

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: döðlur, epli
Kornmeti: bygg, hafrar
Hnetur og fræ: hörfræ, sólblómafræ, sesamfræ
Krydd: kanill

Uppskrift
gerir um 9 bolla

3 bollar byggflögur
2 bollar tröllahafrar
3 msk. hörfræ + ½ bolli
15 stórar döðlur + 1 bolli niðurskornar
½ bolli eplamauk
3 msk. hlynsíróp
2 tsk. kanill
1 tsk. maldonsalt
100 gr. kókosolía
1 bolli sólblómafræ
1 bolli sesamfræ

Hitið ofninn upp í 160°C.

Maukið 15 döðlur, eplamauk, 3 msk. af hörfræjum, hlynsíróp, kanil og salt í matvinnsluvél og leggið til hliðar. Bræðið kókosolíuna í potti og blandið saman við maukið.

Blandið byggflögunum, tröllahöfrunum, ½ bolla af hörfræjum, sólblómafræjum og sesamfræjum í skál. Hellið maukinu yfir og blandið vel saman. Komið fyrir í ofnskúffu og ristið í 30 mínútur í ofni. Takið út og hrærið í á 10 mínútna fresti. Látið múslíið kólna og blandið þá niðurskornu döðlunum saman við. Berið fram með hreinu jógúrti eða ab mjólk og ferskum ávöxtum.

Filed under: bygg, döðlur, haframjöl, hörfræ, kanill, Morgunmatur, sólblómafræ, sesamfræ, Vegan

Pasta með pestó, spergilkáli og goji berjum

Þá er maður loksins sloppinn úr prófageðveikinni og farinn að lifa eðlilegu lífi. Ótrúlegt hvernig maður lætur í próflestri, gleymir öllu sem tengist manns eigin vellíðan og heilbrigði og einbeitir sér eingögnu að lestri og utanbókarlærdómi. En nú tekur heilbrigt líferni við með öllu tilheyrandi, jóga, te drykkju, hollum mat og hvíld.

En fyrir svona mánuði síðan, áður en törnin byrjaði, fór ég í æðislega afmælisveislu hjá þriggja ára frænku minni. Þar var á boðstólnum pastasalat sem ég hugsaði um í marga daga á eftir og setti saman uppskriftir að í huganum. Salatið var með grænu pestó, spergilkáli og goji berjum. Alveg frábær blanda.

Svona til að bæta smá fróðleik inn í færsluna þá rakst ég á þessa grein á síðunni Food for Breast Cancer og í henni er fjallað um þann mat sem konur sem greinast með ákveðna tegund brjóstakrabbameins ættu að borða. Þar er spergilkál meðal annars tiltekið sem og basil. Ég geri ráð fyrir að sama gildi um aðra einstaklinga sem vilja vera heilbrigðir og koma í veg fyrir sjúkdóma.

Hér kemur svo mín útgáfa af salatinu góða.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: goji ber
Grænmeti: spergilkál, spínat
Krydd og kryddjurtir: hvítlaukur, basil

Uppskrift
fyrir 4-6

500 gr. penne pasta

Pestó
1/2 stykki parmesan ostur
1 bakki ferskt basil
1 dl. extra virgin ólífuolía+2-3 msk pistasíuolía (má sleppa)
1 poki ristaðar furuhnetur (70 gr.)
2 hvítlauksrif
1/2 tsk salt

1 stór spergilkálshaus brotinn í bita
1/2-1 poki spínat (magn eftir smekk)
1 dl. goji ber
Salt og nýmalaður pipar eftir smekk

Sjóðið pastað í samræmi við leiðbeiningar. Kælið niður í stofuhita.

Hitið vatn í potti með smá salti. Hellið spegilkálsbitunum út í þegar suðan er komin upp og látið sjóða í 2-3 mínútur. Hellið vatninu af spegilkálinu, bætið goji berjunum saman við og hrærið. Látið kólna. Á þennan hátt mýkjast gojiberin.

Setjið öll innihaldsefnin í pestóinu í matvinnsluvél og maukið vel. Bætið smá aukaolíu við ef pestóið er of þurrt. Það á ekki að vera fljótandi, en þó ekki algjört mauk, s.s. hæfilega mjúkt.

Blandið pasta, pestói, spergilkáli, gojiberjum og spínati saman í skál. Gott er að láta pastað kólna aðeins í ísskáp, í 10-15 mínútur. Skreytið með goji berjum og berið fram.

Filed under: basil, goji ber, hvítlaukur, Pasta, Pestó, Salöt, spínat, spergilkál, Uppskriftir, , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: