Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Engifermúffur

Ég held ég sé hálfpartinn að missa mig í þessu engiferæði. Fyrir nokkrum mánuðum síðan fór ég í Maður Lifandi í Borgartúni og sá þar eitthvað sem kallast Crystalized Ginger Slices. Þetta varð ég að smakka. Ég gerði mér vonir um það að hér væri á ferð gott snakk, svona í skólann og þegar maður liggur yfir bókunum en ég verð að viðurkenna að þótt ég sé engiferaðdáandi nr. 2 þá gat ég ekki borðað þetta eintómt í stórum stíl. Dóttir mín, sem er klárlega engiferaðdáandi nr. 1 gat heldur ekki borðað þetta eintómt, þannig að eitthvað varð ég að finna til að gera við þetta þó góða hráefni, sem ég taldi hafa mikla möguleika. Í jólafríinu var ég staðráðin í því að baka piparkökur með þessum bitum, en ekkert varð úr því. Síðustu vikur hef ég svo verið að setja svona eins og 1 tsk. í teketilinn á morgnanna með morgunte-inu mínu. Það er virkilega gott, gefur smá sætt bragð og engiferkeim. Mæli með því. Read the rest of this entry »

About these ads

Filed under: engifer, hveitikím, kanill, sætindi, , , , , , , ,

Chia búðingur með hindberjum og hemp hjörtum

Um daginn fór ég á hráfæðisnámskeið sem Solla á Gló hélt þar sem Kate Magic kenndi listir sínar. Kate Magic er þekkt nafn í hráfæðisheiminum og hefur hún gefið út þrjár bækur auk þess að halda úti ferskri og skemmtilegri heimasíðu með allskyns fróðleik og uppskriftum. Námskeiðið var virkilega fræðandi og skemmtilegt. Þar lagði hún að sjálfsögðu mikla áherslu á jákvæða þætti þess að vera hráfæðisæta og kenndi okkur ýmis undirstöðuatriði.  Einn af þeim réttum sem hún galdraði fram var chia búðingur. Chia er, eins og ég hef áður fjallað um, algjört ofurfæði, stútfullt af omega 3 fitusýrum og virkilega orkugefandi. Á námskeiðinu bjó hún til búðing sem innihélt möndlumjólk, epli og rúsínur (uppskrift á síðunni hennar finnst hér). Ég þarf hins vegar alltaf að hugsa um þá útgáfu sem líklegast er að þóknist lítilli tveggja ára draumarós og þess vegna ákvað ég að hafa möndlumjólk og hindber í vökvanum og strá síðan hemp fræjum yfir áður en ég bar búðinginn fram. Ég verð þó að viðurkenna að ungfrúin hafði ekki mikla lyst á búðingnum enda dálítið skrítinn undir tönn. Mig langaði þó að birta þessa uppskrift til þess að vekja athygli á þessum möguleika, sérstaklega fyrir þá sem eru að reyna að auka inntöku á omega 3, því þetta er algjör omega 3 bomba. Til þess að nýta afganginn af búðingnum hef ég bara laumað honum í smootie-ana okkar á morgnana og það finnst litlu fínt. Ég hvet fólk til þess að kíkja á síðuna hennar Kate Magic og prófa uppskriftirnar hennar. Þær eru margar hverjar mjög spennandi.

Auk þess að vera gífurlega rík af omega 3 innihalda chia fræ einnig efnin kaempferol, quercetin og myricetin sem rannsóknir hafa sýnt að geti unnið gegn krabbameini. Kaempferol er auk þess m.a. að finna í spergilkáli og te-i. Quercetin er að finna í grænmeti (í sérstaklega miklu mæli í rauðlauk) og ávöxtum en einnig í miklu mæli í grænu te-i. Myricetin er svo einnig að finna í ávöxtum, grænmeti og te-i (heimild).

Að lokum verð ég að segja ykkur frá því að á námskeiðinu fékk ég æðislegar fréttir. Solla lýsti því yfir að fljótlega myndi hún fara að selja hemp fræin/hjörtun í línunni sinni. Þetta gladdi mig mikið, enda er ég einstakur hemp hjörtu/fræja aðdáandi. Þá get ég líka farið að birta fleiri uppskriftir með hemp hjörtum án samviskubits, því nú hafið þið fljótlega öll greiðan aðgang að þessu einstaka ofurfæði.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: hindber
Hnetur og fræ: chia fræ, möndlur, hemp fræ

Uppskrift
gerir 3-4 bolla af búðingi

1/2 bolli chia fræ
2 bollar möndlumjólk
1 bolli hindber (frosin eða fersk)
1 msk. hlynsíróp
2 msk. hemp fræ/hjörtu

Blandið öllu nema hemp fræjunum saman í skál og látið standa á borði, eða í ísskáp í að minnsta kosti 40 mínútur þannig að chia fræjin nái að bólgna vel út og mynda búðinginn. Berið fram með ávöxtum, t.d. niðurskornum banana, eða eitt og sér.

Filed under: chia fræ, hemp fræ, hindber, möndlur, , , , , , , , , , ,

Gestgjafinn og ofurfæði

Janúarhefti Gestgjafans hefur yfirskriftina Ofurfæði og er margt skemmtilegt í því að finna. Í blaðinu er fullt af fínum uppskriftum sem og upplýsingum um hollar og næringarríkar fæðutegundir. Ég keypti blaðið á föstudaginn og sé til dæmis að þar er verið að fjalla um engiferæðið sem ég hef einnig haft orð á hér. Það fer víst ekki framhjá neinum. Read the rest of this entry »

Filed under: döðlur, goji ber, granata epli, sætindi, spínat, spergilkál, Tímarit

Helgarhafragrautur

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: epli, döðlur
Kornmeti: hafrar
Krydd: kanill
Hnetur og fræ: sólblómafræ

Uppskrift
fyrir 3

1 bolli tröllahafrar
1/2 bolli fínmalaðir hafrar
1 grænt epli smátt skorið
1/2 tsk salt
1/2 tsk kanill
1 bolli létt mjólk
3 bollar vatn

Blandið öllu saman í pott og sjóðið þar til grauturinn er orðinn hæfilega þykkur fyrir ykkar smekk. Berið fram með niðurskornum döðlum og sólblómafræjum.

Filed under: döðlur, epli, haframjöl, kanill, Morgunmatur, sólblómafræ

Pasta með klettasalati, basil og sítrónuolíu

Þetta pasta”salat” er einstaklega einfalt og fljótlegt. Ég er mjög hrifin af pasta þegar það er framreitt svona. Pasta er í eðli sínu frekar þungt í maga og krefst talsverðrar orku til að melta. Þess vegna finnst mér betra að nota spelt pasta eða heilhveiti pasta, það er auðmeltanlegra og næringarmeira. Hér eru svo öll hin innihaldsefnin til þess fallin að gerir salatið léttara. Klettasalat er sérstaklega hollt og gott í maga sem og ferska basilið. Parmesanosturinn er svakalega góður á bragðið þannig að það var nú varla hægt að sleppa honum en fyrir plöntuætur sé ég fyrir mér að væri fínn kostur að blanda nutritional yeast saman við olíuna áður en henni er dreypt yfir salatið. Nutritional yeast, eða næringarger, er einstaklega hollt og sérstaklega ríkt af b-vítamínum. Það bragðast mjög svipað og parmesan ostur og hentar því vel í staðin fyrir ost í brauð, buff, pottrétti, salöt og til að strá yfir popp eins og vinkona mín í Vancouver gerir alltaf. Mæli með því að fólk prófi það.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: trönuber/kirsuber
Grænmeti: klettasalat
Krydd: basil

Uppskrift
fyrir 4

400 gr. heilhveiti pennepasta
1 bolli parmesan gróft rifinn
1/2 bolli þurrkuð trönuber eða þurrkuð kirsuber
4 msk. ristaðar furhnetur
5 msk. sítrónuolía
1/2 poki klettasalat
1 bakki ferskt basil niðurskorið eða rifið
Salt og pipar eftir smekk

Sjóðið pastað í potti eftir leiðbeiningum. Hellið því í sigti og látið kalt vatn renna yfir það.

Blandið öllu nema olíunni saman í skál. Dreypið olíunni yfir salatið og hrærið vel saman við. Bætið við olíu ef þið teljið þess þurfa. Saltið og piprið eftir smekk. Skreytið með furuhnetum og þurrkuðum trönuberjum/kirsuberjum og berið fram.

Filed under: basil, kirsuber, klettasalat, trönuber

Amerískar engiferpönnukökur

Engiferæði ríkir nú á landinu og í tilefni þess ákvað ég að prófa að gera svona “hollari” týpuna af amerískum pönnukökum. Amerískar pönnukökur verða nú kannski aldrei algjört hollustufæði en maður verður jú að leyfa sér smá sætindi af og til. Í þessari uppskrift notaði ég bæði spelt og hveiti, en fyrir þá sem eru algjörlega á móti hveiti þá er eflaust hægt að nota eingöngu spelt. Speltið er jú talsvert næringarríkara og er auðmeltanlegra en hveitið. En það sem gerir þessa uppskrift heilsusamlega eru kryddin sem hér eru notuð, þ.e.a.s. engifer, kanill og negull. Auk þess er ekkert smjör í þessari uppskrift, frekar en öðrum uppskriftum hér á síðunni, heldur kókosolía sem gerir pönnukökurnar einnig talsvert hollari.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Krydd: engifer, kanill, negull
Annað: ab mjólk

Uppskrift
fyrir 4-6

1 bolli hveiti
1 bolli spelt
1 msk. vínsteinslyftiduft
1 tsk. kanill
1 tsk. malað engifer
1/8 tsk. negull
1 tsk. salt
2 brún egg eða omega egg
2 bollar ab-mjólk
1/4 bolli agave síróp
1/4 bolli kókosolía bráðnum

Sigtið þurrefnin í skál og blandið saman. Blandið afgangnum saman í aðra skál og hellið rólega saman við þurrefnin og hrærið saman við. Steikið á pönnu við miðlungshita í u.þ.b. 3-4 mínútur á fyrri hliðinni og 1-2 mínútur á seinni hliðinni eða þar til pönnukökurnar eru orðnar brúnaðar.

Berið fram með hágæða hlynsírópi og ávöxtum.

Filed under: engifer, kanill, negulnaglar, sætindi

Tælenskur rækjuréttur með rauðu karrý

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir
Grænmeti: laukur
Krydd: hvítlaukur, cumin, kóríander, basil

Uppskrift
fyrir 4

500 gr. risarækjur
1 msk. kókosolía
2 tsk. cumin fræ
8 stór hvítlauksrif gróft söxuð
4 skarlottulaukar saxaðir
2 msk. rautt karrýmauk
1 dós kókosmjólk
2 msk. fiskisósa
1 msk. sojasósa
2 tsk. hrásykur
safi úr einni límónu
1/2 bakki ferskt kóríander
1/3 bakki ferskt basil

Byrjið á því að saxa hvítlaukinn og látið hann anda. Hitið olíuna á pönnu (helst wok) og steikið hvítlaukinn, skarlottulaukinn og cumin fræin við miðlung hita í um 3 mínútur. Bætið þá karrý maukinu saman við og steikið í 2 mínútur til viðbótar. Bætið því næst kókosmjólk, fiskisósu, hrásykri, basil og límónusafa út í og látið suðuna koma upp. Lækkið undir og látið malla í 4-5 mínútur. Bætið rækjum og kóríander út í og látið malla í aðrar 3-4 mínútur. Berið fram með brúnum hrísgrjónum og naan brauði.

Filed under: basil, Fiskur, hvítlaukur, Karrý, kóríander, kúmin, laukur, Uppáhalds

Engifer- og gojisafi

Þessa dagana virðist fólk vera með algjört æði fyrir bæði engifersafa og gojisafa. Það er að sjálfsögðu mjög gott mál og þess vegna ákvað ég að setja inn uppskriftina að þeim safa sem drukkinn er á þessu heimili. En fyrst smá um krabbameinshamlandi áhrif engifers.

Engifer inniheldur virka efnið gingerol sem er bólguhamlandi og andoxandi. Ég hef lengi ætlað mér að skrifa smá færslu um andoxunarefni og hvað í raun felst í orðinu andoxun. Til að skýra það í stuttu máli er andoxunarefni efni sem gerir sindurefni stöðug (e. free radicals) með því að veita þeim þær aukarafeindir sem á vantar til að fylla ysta hvel þeirra. Áhrif sindurefna hafa verið tengd við fjölmarga sjúkdóma, s.s. krabbameins, sykursýki, hjartasjúkdóma og Parkinsons sjúkdóm. Andoxunarefni geta þannig komið í veg fyrir skemmdir á frumum og stökkbreytingar á DNA vegna sindurefna, sem getur verið upphafið að krabbameinsmyndun. Ýmis efni teljast andoxunarefni s.s. C-vítamín, A-vítamín og E-vítamín og er því auðvelt að finna fæðu sem er rík af andoxunarefnum.

Rannsóknir benda til þess að neysla engifers geti haft hamlandi áhrif á myndun krabbameins og þá sér í lagi í maga og ristli (sjá t.d. þessa grein). Mér hefur þótt mjög gott að byrja daginn á litlu glasi af þessum safa, ef til vill með safa úr hálfri límónu. Hann er líka mjög góður, ef ekki betri, heitur beint úr pottinum, sérstaklega á köldum vetrardögum.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: goji ber
Krydd:
engifer, cayenne pipar

Uppskrift
gerir um 1,5 lítra

2 lítrar vatn
Ferskt engifer (12-15 cm) afhýtt og skorið i bita
4 msk. goji ber
1/4 tsk. cayenne pipar (má sleppa)
1-2 tsk. agave síróp eða eftir smekk

Setjið allt saman í pott og látið suðuna koma upp. Sjóðið við vægan hita í 45 mínútur. Slökkvið þá undir og látið standa í pottinum áfram í nokkrar klst. Hellið þá í blender og blandið saman. Sigtið því næst hratið frá og hellið í könnu. Drekkist heitt eða kalt.

Filed under: Drykkir, engifer, goji ber, , , , , , , , , , , , ,

Hrásalöt

Síðustu daga hef ég verið að prófa mig áfram í hrásalatsgerð. Hvítkál og rauðkál eru bæði mjög holl, góð og ódýr. Þau fara vel í salöt, eru stökk og gróf, en vinna vel með ávöxtum og öðru sætu og safaríku. Ég gerði annars vegar hvítkálssalat með appelsínum og valhnetum og hins vegar rauðkálssalat með jarðaberjum, eplum og kasjúahnetum. Bæði salötin komu vel út, en hvítkálssalatið hafði þó að mínu mati vinninginn. Hvítkál er ekki alveg jafn rammt og rauðkálið og appelsínurnar passa einstaklega vel með því.

Hvítkál og rauðkál inniheldur mikið af C og K vítamíni auk þess að innihalda efnið sinigrin. Krabbameinshamlandi áhrif þessa efnis hefur vakið athygli fræðimanna sem telja það umbreytast í efni sem kallast glucosinolates sem talið er að geti unnið gegn krabbameini, og þá sér í lagi í maga og ristli. Sama er að segja um aðrar fæðutegundir sem falla undir flokk brassica grænmetis, s.s. rósakál, rófur, grænkál, spergilkál og blómkál. [sjá nánar: heimild]

Hrásalat með hvítkáli, appelsínum og valhnetum

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir
Grænmeti: hvítkál, rauðlaukur
Hnetur: valhnetur
Krydd: sinnep
Annað: jógúrt

Uppskrift
fyrir 4 með mat

1/2 hvítkálshaus niðurskorinn í þunnar ræmur
1 bolli valhnetur
2 appelsínur niðurskornar

Dressing:
200 gr. grískt jógúrt
1 tsk. safi úr límónu
1 msk. hunangs dijon sinnep
1 msk. maukaður rauðlaukur (eða rifinn á rifjárni)
1 tsk. agave síróp
salt og pipar

Blandið niðurskorna hvítkálinu, valhnetunum og appelsínunum saman í skál. Blandið öllum innihaldsefnum í dressinguna saman og hellið yfir salatið. Blandið öllu saman og berið fram. Read the rest of this entry »

Filed under: epli, jarðaber, Jógúrt, kasjúahnetur, kál, laukur, Meðlæti, Salöt, sítrus ávextir, valhnetur, , , , ,

Nýársfærsla

Ég hef aðeins verið að veigra mér við það að setjast niður og skrifa þessa færslu. Einfaldlega vegna þess að það ár sem við vorum að kveðja var einstaklega viðburðarríkt og stefnumarkandi fyrir mitt líf. Það má eiginlega segja að árið 2010 hafi verið ár áhugamálanna hjá mér. Ég fann mér svo ótrúlega mörg áhugamál sem ég er einstaklega þakklát fyrir að geta stundað. Ég ákvað í mars að opna þessa síðu í kringum stærsta áhugamálið og miðla þeirri þekkingu sem ég afla mér um áhrifamátt mataræðis á vöxt og myndun krabbameins í líkamanum til þeirra sem áhuga hafa á efninu. Áhugi fólk á þessu efni virðist vera að aukast mikið og ég finn fyrir aukinni trú fólks á áhrif heilbrigðs mataræðis á heilsu þess og andlega líðan. Read the rest of this entry »

Filed under: avokadó, bananar, Bækur, chia fræ, Fæðutegundir, Jógúrt, kíwí, Morgunmatur, Rannsóknir, sítrus ávextir, sojabaunir, Tófú, , , , , , , , , , , , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: