Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Færðu nauðsynlega næringu úr fæðunni?

Ég er á fjölda póstlista og fæ því aragrúa af tölvupóstum um heilsutengd málefni.  Ég renni svona í gegnum póstana og sé hvort eitthvað bitastætt er í þessu. Einn af þessum póstlistum er frá Læknaskóla Harvard háskóla og fyrir nokkrum viku kom póstur frá þeim sem fjallaði um það hvort við erum að fá öll þau næringarefni úr fæðunni sem við þurfum á að halda. Þessu hef ég oft velt fyrir mér og geri ráð fyrir að flest ykkar hafi einnig gert það. Ég hallast að því að best sé að fá næringarefnin úr fæðunni frekar en taka þau í pilluformi. Rannsóknir styðja þetta sjónarmið. En hvað þurfum við að borða til þess að fá öll næringarefnin? Read the rest of this entry »

About these ads

Filed under: Greinar

D-vítamínskortur og auknar líkur á krabbameini

D-vítamínskortur hefur verið talsvert í umræðunni að undanförnu og af þeirri ástæðu ákvað ég að lesa mig aðeins til um efnið. Hingað til hefur mikilvægi d-vítamíns alltaf komið upp af og til í lestri mínum tengdum forvörnum gegn krabbameini og sérstaklega brjóstakrabbameini og krabbameini í blöðruhálskirtli. Ég verð einnig mikið vör við umfjöllun um d-vítamínskort í bókum og greinum sem fjalla um krabbamein því d-vítamínskortur er einstaklega algengur og þá sérstaklega á norðlægum slóðum.

Mark Hyman skrifaði grein um D-vítamín á Huffington Post í maí á síðasta ári sem er virkilega fróðleg. Ég hef gaman af því að lesa greinarnar hans því þær eru hæfilega fræðilegar fyrir minn smekk og svo hef ég trú á vitneskju hans á efninu. Hyman er læknir og starfar sem slíkur en hefur mikla trú á forvarnargildi fæðu sem og annarra heilbrigðra lifnaðarhátta þegar kemur að sjúkdómum. En í þetta skiptið fór ég dýpra í efnið og las grein sem birtist í The New England Journal of Medicine (NEJM) sem er eitt virtasta læknatímarit í Bandaríkjunum. Greinin heitir Vitamin D deficiency og birtist í júlí 2007 (sjá nánar undir greinar). Hér ætla ég að fara yfir helstu atriði þessarar góðu greinar. Read the rest of this entry »

Filed under: Greinar, Rannsóknir, , , , ,

Dásemdardjúsar

Djúsar og detox virðist vera aðalmálið þessa dagana. Það byrjuðu margir árið á nokkurra daga detoxi þar sem drukkið var mikið af nýpressuðum söfum. Ég er lítil kúramanneskja og hef því aldrei prófa að drekka bara djúsa í nokkra daga. Ég verð þó að viðurkenna að mig langar pínulítið að prófa það, meira forvitninnar vegna heldur en það að ég þurfi endilega á hreinsuninni að halda. Ég held því fram að maður geti vel haldið sé “hreinum” með vægari hreinsunaraðgerðum en þessum, t.d. með því að drekka vel af rauðrófusafa, sérstaklega á fastandi maga. Mér finnst ótrúlega gott að setja 2-3 msk. af eplaediki út í rauðrófusafann minn og svo vel af klökum. Þannig drekk ég hann yfirleitt og fæ held ég nokkuð góða hreinsun með því.

Ég hef þó aðeins verið að fikra mig áfram með djúsana. Mér finnst ég einnig heyra mikið talað um súrt og basískt fæði og bólguhvetjandi áhrif súra fæðisins. Eins og ég hef oft fjallað um hér á síðunni þá er myndast krabbamein mjög gjarnan í bólgum og er þetta efni því viðeigandi hér. Djúsarnir eru yfirleitt basískir og þannig bólguhamlandi og því er gott að drekka talsvert af þeim. Ég hef reynt að nota steinselju og aðrar ferskar kryddjurtir í mína djúsa vegna þess hve mikið af öflugum plöntuefnum er að finna í þeim. Steinseljan er ótrúlega öflug og ferska kóríanderið líka. Read the rest of this entry »

Filed under: Bækur, engifer, epli, gulrætur, sítrus ávextir, sellerí, steinselja, , , , , , , ,

Súpersmoothie

Þessi smoothie er voða góður. Hann er ríkur af súpernæringarríkum efnum eins og bee pollen og hemp fræjum. Bee pollen má í raun segja að sé fullkomin fæða, því það inniheldur “allt” sem líkaminn þarf til að starfa eðlilega. Hemp fræin fæ ég ekki nóg af að tala um, þau eru ofurofurfæðið í mínum huga, uppfull af fitusýrum í góðu jafnvægi auk þess að vera gríðarlega rík af öðrum mikilvægum og lífsnauðsynlegum næringarefnum. Hemp fræin fást því miður ekki enn, en ég get bent ykkur á að ég keypti hemp protein um daginn í heilsubúðinni á horninu á Klapparstíg og Grettisgötu. Ég myndi samt ekki mæla með því að setja mikið af því í þennan drykk, frekar setja chia fræ, hörfræ eða sólblómafræ (eða blöndu) í staðin fyrir hemp fræin. Þið getið líka notað hemp fræin með skurninni sem fást í flestum heilsubúðum en þá er mikilvægt að leggja þau í bleyti áður. Besta aðferðin til að nota þau er að leggja 2 msk. af fræjum í vatn í nokkrar klukkustundir og búa svo til hemp mjólk með því að setja 1/2 líter af vatni og fræin í blender og sigta hratið svo frá. Þegar það er gert er vel hægt að nota hemp mjólkina í staðin fyrir jógúrtið og þá er uppskriftin líka orðin vegan.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: bananar, hindber
Fræ: hemp fræ
Annað:
jógúrt

1 lífrænt kókosjógúrt frá bíóbú
1 msk. bee pollen (eða minna fyrir óvana)
1 msk. hemp hjörtu/fræ
1 tsk. acai duft
1 banani
lítil handfylli af frosnum hindberjum
smá vatn og klakar

Allt sett saman í blender og drukkið með bros á vör.

Filed under: bananar, hemp fræ

Kókosmúslí með hveitikími og appelsínuberki

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir
Kornmeti:
hafrar, hveitikím
Hnetur og fræ
: sesamfræ, graskersfræ

Uppskrift
gerir um 10 bolla

4 bollar tröllahafrar
1 bolli hveitikím
1 1/2 bolli kókosflögur
1/2 bolli sesamfræ
1/2 bolli graskersfræ
1/2 bolli kókosolía fljótandi
1/2 bolli hunang
rifinn börkur af 2 lífrænt ræktuðum appelsínum
1 tsk. himalaya salt
2 bollar þurrkaðir ávextir að eigin vali

Hitið ofninn upp í 150 gráður.

Blandið þurrefnunum í skál. Látið kókosolíuna bráðna í potti við lágan hita og bætið appelsínuberkinum saman við og loks hunangi og salti. Blandið vel saman við þurrefnin. Komið fyrir í ofnskúffu eða eldföstum mótum. Ristið 4 sinnum í 10 mínútur í senn. Takið út á milli og hrærið vel í svo að allt ristist jafnt. Látið kólna. Blandið þurrkuðum ávöxtum saman við og berið fram með jógúrti og ferskum ávöxtum. Geymist í loftþéttum umbúðum.

Filed under: graskersfræ, haframjöl, hveitikím, Morgunmatur, sítrus ávextir, sesamfræ, Vegan,

Crazy Sexy Diet

Þessa dagana er ég alveg á bólakafi í nýju æðislegu Crazy Sexy Diet bókinni minni eftir Kris Carr. Ég er einstakur aðdáandi Kris Carr enda er hún alveg geislandi af orku, heilbrigði, fegurð og hamingju. Ég hef fjallað nokkrum sinnum um hana hér á síðunni og því ætti hún að vera lesendum kunnug (ef ekki, kíkið þá t.d. á þessa færslu). Eins og við var að búast er bókin algjör gullmoli, full af upplýsingum, uppskriftum og góðum ráðum. Það má eiginlega segja að það hafi lítið sem ekkert pláss farið til spillis í bókinni, hún er það troðin af fróðleik. Kris fær til liðs við sig fremstu sérfræðinga á sviði forvarna gegn krabbameini, s.s. Dean Ornish, Alejandro Junger og Mark Hyman sem allir setja sín sjónarmið fram á skýran og greinargóðan hátt. Read the rest of this entry »

Filed under: Bækur, , , ,

Divine Chocolate

Dagurinn í dag hófst eins og hver annar dagur, vakna, keyra litlu á leikskólann, fara í skólann og svona hið hefðbundna, en svo dró heldur betur til tíðinda þegar ég ákvað að renna við í heilsubúðinni á horninu á Klapparstíg og Njálsgötu. Þegar ég gekk inn og sá það sem blasti við mér þá tók hjartað í mér aukaslag, án gríns. Þeir eru farnir að selja besta súkkulaði sem ég hef nokkurn tíma smakkað. Þegar við bjuggum úti í Vancouver þá var þetta algjört sparinammi sem fékkst í alveg sérstakri búð. Tegundin sem sést hér á myndinni er í algjöru uppáhaldi hjá mér en auk þess keypti ég dökkt súkkulaði með engifer- og appelsínubragði sem ég hef aldrei smakkað en er sannfærð um að er líka æðislegt. Látið þetta eftir ykkur! Fullt af andoxunarefnum og hamingju í hverjum bita.

Filed under: sætindi

Núðlur með grænu og góðu

Ég er einstaklega hrifin af núðluréttum og þessi heppnaðist sérstaklega vel. Það er einhvern vegin allt í þessum rétti sem gerir góðan núðlurétt, spergilkál, engifer, spínat, sesamfræ, sojasósa og tófú. Þetta eru allt fæðutegundir sem eru í miklu uppáhaldi hjá mér og vonandi hjá ykkur líka því þær eru sérstaklega hollar. Áður en ég held áfram með umfjöllunina um núðlurnar langar mig að skrifa nokkrar línur til að koma mér af stað í umhverfisspjallinu sem ég lofaði í nýársfærslunni. Ég er að spá í að skrifa eins og eina málgrein (sem verða örugglega alltaf þrjár) af og til um það hvernig við getur dregið úr mengun og þannig aukið gæði andrúmsloftsins í kringum okkur. Ég ætla hins vegar ekki að fjalla um það að kaupa íslenskt í þessari færslu því það tónar ekkert sérlega vel við þessa uppskrft, því miður. Það er hrikalegt hallæri í búðunum þessa dagana þegar kemur að íslensku grænmeti. Ég fór í Bónus í dag og það eina sem var íslenskt í grænmetisdeildinni voru gulrætur, án gríns. Enn hvað um það.

Það er oft erfitt að átta sig á því hvað við íslendingar getum gert til að draga úr mengun, því við erum jú svo heppin að nánast öll okkar raforka kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Þegar maður les sig til um þessi mál er rafmagnssparnaður yfirleitt eitthvað sem mikil áhersla er lögð á, því annarstaðar í heiminum er rafmagn oft á tíðum búið til með brennslu jarðefnaeldsneytis (kola), sem er mjög mengandi. En hvaðan kemur mengunin hér á landi? Hér kemur mynd sem gefur svar við því (heimild bls. 30).

Af myndinni sjáum við að iðnaðarferlar eru sá geiri sem mengar mest, þ.e. stórfyrirtækin. Ég ætla mér nú lítið að ræða um þau hér, því það er á annarra forræði að stjórna og takmarka útblástur stórfyrirtækjanna hér á landi. En af myndinni sýnist mér að almenningur geti aðallega haft áhrif á þrjá flokka, þ.e. samgöngur, landbúnað og úrgang. Þetta eru samtals 40% af útblæstri gróðurhúsalofttegunda og því nokkuð stór hluti. En hvernig höfum við áhrif? Hér eru nokkur atriði sem gætu komið ykkur af stað: Read the rest of this entry »

Filed under: chili, engifer, núðlur, sesamfræ, spínat, spergilkál, Tófú, Umhverfismál, Uppáhalds, Vegan

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: