Síðastliðnar vikur hefur verið mikið að gera bæði í skóla og leik og því hef ég ekki haft mikinn tíma til að skrifa hér á síðuna, né elda, ef út í það er farið. Ég hef því verið dugleg við að búa til einfaldar og fljótlegar súpur. Ein þeirra var þessi blómkálsúpa með fennel og hvítkáli. Ég verð að viðurkenna að ég er ansi gjörn á að reyna að copera góðar súpur sem ég fæ á veitingastöðum og þetta var ein þeirra. Ég fór á Happ um daginn og fékk þar mjög skemmtilega blómkáls- og fennel súpu. Ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig ég eigi að nota fennel í matargerð og lengi ætlað að prufa mig áfram með það í súpugerð. Fennel er þó einnig mjög gott niðurskorið í salöt, með t.d. appelsínum og góðu grænu salati. Í Vancouver keyptum við líka stundum salat í Capers sem var með rauðrófum og fennel. Það var sérstaklega gott. Ég ætla einhvern tíman að reyna að copera það, á minn hátt.
En þrátt fyrir að ég hafi verið að reyna að líkja eftir forláta súpunni sem ég fékk á Happ um daginn, þá kom þessi alls ekki eins út. Þessi er mildari og talsvert minna fennel bragð af henni. Ef fólk er sérstaklega hrifið af fennel skal það ekki hika við að bæta meira fennel út í þessa súpu, það gerir súpuna örugglega bara betri, bragðmeiri og að sjálfsögðu hollar. Fennel er nefnilega einstaklega hollt, ótrúlega ríkt af öflugum andoxunarefnum og einnig mjög bólguhamlandi. Og þegar búið er að segja saman blómkál, hvítkál, hvítlauk, chili og fennel er maður komin með algjöran hollustukokteil. Svo fannst mér mjög flott hvernig súpan var borin fram á Happ, með alfalfa spírum og graskerum, þannig að ég splæsti í alfalfa og gerði það sama við mína súpu.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: blómkál, fennel, hvítkál
Krydd: hvítlaukur, paprika, fennel, chili, engifer
1 blómkálshaus niðurskorinn
1 stór fennelhaus niðurskorinn
1/3 hvítkálshaus niðurskorinn
6 hvítlauksgeirar
1 grænn chili fræhreinsaður og niðurskorinn
2 msk. ólífuolía eða repjuolía
1,5 l. kjúklinga- eða grænmetissoð + u.þ.b. 500 ml.
2 tsk. paprikuduft
1/2-1 tsk. malað engifer
1/2 tsk. fennel fræ
1/2 tsk. chili flögur
salt og pipar eftir smekk
alfalfa spírur eftir smekk
Byrjið á að merja hvítlaukinn og látið hann standa á meðan afgangurinn af grænmetinu er skorið niður.
Hitið olíu í potti og steikið grænmetið við miðlungshita þar til það hefur mýkst, í um 5 mínútur. Bætið þá paprikukryddi og möluðu engiferi saman við og hrærið vel. Hellið soðinu út í og látið suðuna koma upp. Látið sjóða í um 15 mínútur eða þar til allt grænmetið er orðið mjúkt. Maukið með töfrasprota. Þynnið súpuna eftir vild. Kryddið með fennelfræjum, chili flögum, salti og pipar eftir smekk.
Setjið handfylli af alfalfa spírum í skál. Hellið súpunni yfir og skreytið með paprikukryddi og chili flögum. Berið fram með nýbökuðu brauði.
Filed under: blómkál, chili, engifer, fennel, hvítlaukur, Súpur, Vegan





