Brómber eru bestu ber sem ég veit um. Þegar við fjölskyldan bjuggum í Vancouver borðuðum við þau, sem og önnur ber, í ómældu magni á sumrin og haustin þegar allar ávaxta- og grænmetisbúðirnar voru fullar af nýtíndum berjum. Það var yndislegt að búa á stað þar sem þrjá mánuði ári var hægt að kaupa ber í kílóavís á lítinn pening og borða með nánast hverju sem er.
Brómber eru einstaklega dökk á lit og stafar það af öflugum plöntuefnum sem finnast í berjunum. Ég keypti fyrir nokkrum mánuðum matreiðslubók sem heitir Color Me Vegan þar sem þema bókarinnar er litríkur matur og næringargildi hans sem og læknandi áhrif. Bókin er alveg æðisleg, hún er full af góðum uppskriftum og á hverri blaðsíðu eru litlir fróðleiksmolar um efnin í matnum sem gera okkur hraust og kát eða annað sem tengist uppskriftunum. Þar er kafli sem fjallar um bláar og fjólubláar fæðutegundir. Brómber falla tvímælalaust undir þann flokk og er það efnið anthocyanin sem gefur þeim þennan fallega dökkfjólubláa lit.
Anthocyanin finnst í berjum, eplum, grape-aldin, rauðkáli, og maís. Anthocyanin er talið vinna gegn ýmsum sjúkdómum, t.d. hjartasjúkdómum, sykursýki, gigt og krabbameini og eru það andoxandi og bólgueyðandi eiginleikar anthocyanins sem talið er að hafi þessi áhrif. Annar eiginleiki anthocyanins sem talinn er hafa hamlandi áhrif á myndun krabbameins er svokallaður kerfisbundinn frumudauði (e. apoptosis) sem gegnir veigamiklu hlutverki við takmörkun á vexti fruma og er oft óeðlilegur í krabbameinsfrumum [Heimild]. En nóg um það í bili og yfir í bökuna.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: epli, brómber
Kornmeti: hafrar
Hnetur og fræ: möndlur
Uppskrift
fyrir 4-6
4 græn epli niðurskorin
2 bollar brómber frosin eða fersk
1 tsk. vanilludropar
½ bolli hlynsíróp
1 bolli grófmalað spelt
4 msk. hunang
4 msk. kókosolía
½ bolli tröllahafrar
½ bolli möndluflögur
salt á hnífsoddi
Hitið ofninn upp í 180°C.
Blandið niðurskornum eplum, brómberjum, vanilludropum og hlynsírópi saman í skál og setið í botninn á eldföstu móti.
Setjið spelt, hunang, kókosolíu, tröllahafra og salt saman í matvinnsluvél og blandið vel saman. Hrærið möndluflögunum varlega saman við og hellið yfir epla blönduna. Bakið í 30-35 mínútur eða þar til kakan er farin að brúnast vel. Berið fram með lífrænum vanilluís frá Bíóbú.
Filed under: brómber, epli, möndlur, sætindi, Uppskriftir, anthocyanin, apoptosis, brómber, epli, grape-aldin, rauðkál



