Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Hafragrautur með hnetusmjöri og mórberjum

Ég er einstaklega mikil hafragrautmanneskja og get auðveldlega borðað hafragraut í kvöldmat á laugardagkvöldi, eins og ég reyndar gerði síðastliðið laugardagskvöld. En fyrst það var nú laugardagskvöld fannst mér alveg ástæða til að gera aðeins meira úr grautnum. Þess vegna ákvað ég að prófa saman hnetusmjör, mórber, kanil og banana. Þetta kom rosalega vel út.

Mig langar aðeins og fjalla um trefjar þar sem ég hef tekið eftir mikilli umræðu og áherslu á djúskúra og detox þar sem einungis eru drukknir nýpressaðir ávaxta- og grænmetissafar. Þessir kúrar eru mjög góðir og gagnlegir í stuttan tíma og hjálpa líkamanum að hreinsa sig og bæta, án þess að þurfa að melta mikið magn af trefjum. Öll orkan sem líkaminn fær úr þessum næringarríku söfum er þannig nýtt í að bæta líkamann og efla heilsu og vellíðan. En þrátt fyrir að kúrar sem þessir séu gott frí fyrir meltinguna þá hef ég líka miklar trú á mikilvægi trefja og er því sannfærð um hollustueiginleika gamla góða hafragrautsins. Þegar ég var að undirbúa mig fyrir námskeið sem ég hélt hjá Krabbameinsfélaginu fyrir stuttu renndi ég í gegnum margar af þeim bókum sem ég á um krabbameinsforvarnir og áhrif fæðu á vöxt og myndun krabbameins og í bókinni Life Over Cancer fjallar Keith Block talsvert um trefjar. Þar segir m.a. –,,Fiber dilutes, binds, inactivates and removes carcinogens, cholesterol, bile acids and various toxic substances.” – Í lauslegri íslenskri þýðingu minni þýðir þetta: Trefjar útþynna, binda, gera óvirk og fjarlægja krabbameinsvaldandi efni, kólesterol, gallsýru og önnur eiturefni úr líkamanum. Höfum þetta í huga!

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Ávextir: banani, mórber
Krydd: kanill
Kornmeti: hafrar
Hnetur: jarðhnetur

Uppskrift
fyrir 2-3

1 bolli tröllahafrar
2 bollar vatn
2 msk. mórber
1-2 msk. gróft hnetusmjör
örlítið salt
1 banani niðurskorinn
hunang
kanill

Sjóðið saman tröllahafra, vatn, hnetusmjör, mórber og salt þar til grauturinn er orðinn þykkur og hafrarnir hafa dregið í sig vatnið. Hellið í skálar. Skerið niður bananana og dreifið yfir grautinn ásamt kanil og örlitlu hunangi. Berið fram.

About these ads

Filed under: bananar, haframjöl, hnetur, kanill, mórber, Morgunmatur, Vegan,

Linsubaunasúpa með appelsínum og engiferi

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Ávextir: appelsínur
Grænmeti: 
rauðlaukur,
Krydd: karrý, kanill
Hnetur og fræ: 
valhnetur
Baunir: linsubaunir

Uppskrift
fyrir 4-6

1-2 msk. repjuolía
3 rauðlaukar – litlir
2 litlar appelsínur niðurskornar
2 tsk. hot madras karrý + svartur pipar
1,5 lítrar vatn
2 msk. grænmetiskraftur frá himneskri hollustu
2 tsk. maldon salt (minna ef maður notar venjulegt salt)
5 cm langur bútur af fersku engiferi, niðurskorið (eða eftir smekk
1 bolli rauðar linsubaunir
kanill á hnífsoddi

Grískt jógúrt
Hunangsristaðar valhnetur

Steikið laukinn upp úr repjuolíunni í 3-5 mínútur eða þar til hann hefur linast vel. Bætið þá karrýi, engiferi, kanil og appelsínum saman við og steikið í 1-2 mínútur. Hellið vatninu saman við og bætið krafti og salti saman við. Látið suðuna koma upp og lækkið undir. Látið malla í 25 mínútur. Maukið og berið fram með grísku jógúrti og hunangsristuðum valhnetum.

Filed under: Jógúrt, kanill, laukur, Rauðar linsubaunir, Rauðar linsubaunir, sítrus ávextir, Súpur, svartur pipar, túrmerik, Uppskriftir, valhnetur, , , , , ,

Kínóasalat með rauðrófum og valhnetum

Ég var svo heppin að eiga leið aftur til Vancouver núna í ágúst. Það var yndislegt að koma aftur til þessarar fallegu borgar og njóta hennar í þetta skiptið með allir fjölskyldunni. En það sem var líka æðislegt var að ég komst í uppáhaldsbókabúðina mína. Hún heitir Banyen Books and Sounds og er algjör draumastaður fyrir manneskju eins og mig. Þegar ég bjó í Vancouver var þetta staðurinn sem ég fór á þegar ég fékk alveg að ráða, eins og á afmælinu mínu. Ég gæti eytt dögum ef ekki vikum þarna inni. En nóg um það. Ástæðan fyrir því að ég fór að tala um Banyen er að ég keypti mér bók þar um Kínóa. Ég hef alltaf verið í hálfgerðu basli við að elda kínóa, hef prófað ýmislegt en einhvern vegin ekki komist upp á lagið með það. Mér finnst það fínt í súpur, ágætt í hafragraut svona til að bæta smá hnetukenndum keim í grautinn og einnig fínt í buff. En í bókinni eru hátt í tvöhundruð uppskriftir að réttum með kínóa sem eru hver öðrum girnilegri. Ég ákvað hins vegar að byrja á að gera eitthvað eftir mínu eigin höfði, eða næstum því.

Ég fékk hugmyndina að þessum rétti á stað sem við fórum á í Portland. Staðurinn heitir Yoga Pearl og er í Pearl District í Portland. Þetta er sem sagt jógastúdíó og veitingastaður. Við vorum svo hrifin af veitingastaðnum að við fórum á hann tvo daga í röð og fengum í bæði skiptin frábæran mat. Í fyrra skiptið fékk ég mér salat með kínóa, rauðrófum, spínati, rúsínum og dressingu. Mér fannst dressingin það eina sem var ekki fullkomið svo ég ákvað að gera annars konar dressingu núna. Svo ákvað ég að bæta við alfalfa spírum, taka rúsínurnar út og bæta inn þurrkuðum trönuberjum og hunangsrista valhnetur til að bæta við smá omega 3.

En það er nú varla hægt að halda lengra án þess að fjalla um ofureiginleika kínóa. Kínóa er fræ  sem kemur frá Suður Ameríku og var áður fyrr mikilvægur hluti af fæðu Inka. Það sem gerir Kínóa sérstakt er að það er einstaklega næringarríkt (sumir segja súperfæði), það er glúteinlaust og mjög próteinríkt. Það er einnig ríkt af magnesíumi, járni og fleiri steinefnum. Hvað krabbameinsforvarnir varðar þá mælir Keith Block í bókinni sinni Life Over Cancer sérstaklega með kínóa sem próteingjafa og þá sérstaklega vegna þess að þetta er mjög fitusnauður próteingjafi og auk þess næringarríkur og glúteinlaus.

En meira um það síðar og yfir í uppskriftina. Ég verð að viðurkenna að uppskriftin virðist vera mjög mikið vesen. En hún er það í rauninni ekki. Það þarf að sjóða rauðrófurnar og láta þær kólna, sjóða kínóað og láta það kólna líka og búa til dressinguna. Þetta er lítil vinna en tekur dálítinn tíma. Dressingin er mín útfærsla af mísódressingunni hennar Gwyneth. Bókin hennar Gwyneth er vægast sagt að gera mikla lukku þessa dagana.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Ávextir: trönuber,
Grænmeti:
spínat, rauðrófur, rauðlaukur
Hnetur og fræ:
kínóa, valhnetur
Baunir: sojabaunir (mísó)

Uppskrift
fyrir 4

1 bolli Kínóa
1 poki spínat
2 rauðrófur
1 bakki alfalfaspírur
½ bolli þurrkuð trönuber
1 bolli valhnetur
1 msk. hunang

Mísódressing

¼ rauðlaukur
3 msk. hvítt miso (fæst í heilsubúðum)
2 msk. ristuð sesamolía
2. msk. mirin
2 msk.  tamari sósa
2 msk. japanskt hrísgrjónaedik
2 msk. vatn
¼ bolli extra virgin ólífuolía
1 tsk. maldon salt
svartur pipar

Sjóðið rauðrófurnar í potti í 45 mínútur. Látið kólna, skrælið og skerið í bita.

Komið kínóa fyrir í potti með 2 bollum af vatni. Hitið þar til suðan kemur upp, lækkið þá hitann og látið sjóða í 10 mínútur. Slökkvið undir og látið standa í 4 mínútur. Opnið pottinn og hrærið með gaffli. Látið kólna.

Blandið öllum innihaldsefnum í dressingunni saman í matvinnsluvél.

Ristið valhneturnar á pönnu. Þegar búið er að rista valhneturnar í 2-3 mínútur, hellið þá hunaginu yfir og hrærið vel. Stráið örlitlu salti yfir og látið kólna.

Setjið spínat, alfalfa spírur, rauðrófur, kínóa, trönuber og valhnetur í skál og hellið dressingunni yfir. Berið fram.

Filed under: Bækur, kínóa, laukur, Salöt, sojabaunir, spínat, trönuber, Uppáhalds, valhnetur, Vegan

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: