Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Kartöflusúpa með balti karrý

Ég er alveg sérstaklega hrifin af kartöflum, hvort sem það eru venjulegar kartöflur eða sætar. Ég næ þó yfirleitt að halda mig frá frönsku kartöflunum, enda algjör óþarfi að drekkja kartöflum í óhollri rjúkandi olíu til að gera þær góðar. En í þetta skiptið gerði ég kartöflusúpu. Þó svo að veðrið sé búið að vera einstaklega gott síðustu daga þá er voða gott að fá heita og saðsama súpu þegar farið er að dimma svona mikið. Ég hef haft lítinn tíma uppá síðkastið til að elda og dúlla mér í eldhúsinu svo að súpa eins og þessi var alveg kjörin, ótrúlega fljótlega og einföld. Ég notaði karrý mauk sem ég keypti í Lifandi markaði og heitir Organic Balti Curry Paste og er indverskt karrýmauk. Þar reyndist mjög gott og mæli ég því sérstaklega með því.

Ég skoða alltaf samsetningu kryddanna í því karrý sem ég kaupi. Mig langar að lista upp samsetninguna í þessari tegund til þess að varpa ljósi á hve margar krabbameinshamlandi tegundir er að finna í henni. Þetta eru öll efnin sem finnast í maukinu:

  • Tómatmauk – inniheldur mikið magn af lycopene sem er eitt öflugasta og mest rannsakaða krabbameinshamlandi efnið sem finnst í plöntum. Lycopene gefur tómötum rauða litinn og magn þess er margfalt meira í unnum og elduðum tómatvörum en í hráum tómötum.
  • Hvítlauksmauk – inniheldur diallyldisulfide sem hamlar vexti og útbreiðslu margra tegunda krabbameins, m.a. brjósta- og ristilkrabbameins, og ýtir undir frumudauða (e. apoptosis). [heimild] Virkni hvítlauks eykst við það að leyfa honum að anda áður en hann er notaður í matargerð, þannig að ráðlagt er að merja hvítlaukinn og láta hann standa í 2-3 mínútur áður en hann er notaður í matargerð.
  • Engifermauk – inniheldur efnið gingerol sem hefur andoxandi áhrif, er bólguhamlandi og hindrar framleiðslu á cox-2, sem er aðalensímið sem krabbameinsfrumur nota til að mynda bólgur [heimild: Bragð í baráttunni bls. 88 og hér].
  • Túrmerik – Mjög öflugt og mikið rannsakað krabbameinshamlandi efni sem yfir 3000 birtar rannsóknir sýna fram á virkni þess til að vinna gegn bólgum og vexti og myndun krabbameins [heimild]
  • Garam masala – inniheldur kóríander, kanil, engifer og negul – allt krabbameinshamlandi kryddtegundir
  • Chili, cumin, túrmerik, kóríander negul og kanil – allt krabbameinshamlandi kryddtegundir. Sjá nánar hér sem og undir greinar.
  • Auk þess: sólblómaolíu og hvítvínsedik

En aftur yfir í kartöfluumræðuna. Kartöflur eru ein þeirra fæðutegunda sem rannsóknir sýna að hafi krabbameinshamlandi áhrif. Raunar eru það ekki kartöflurnar sjálfar, heldur hýðið sem hefur krabbameinshamlandi áhrif. Svo ég hvet alla til að borða hýðið af kartöflunum. Í súpu eins og þessari er ekkert mál að hafa hýðið með. Þegar súpan er maukuð í lokinn maukast hýðið með og maður tekur ekkert eftir því. Í bókinni Bragð í baráttunni er fjallað um krabbameinshamlandi áhrif kartöfluhýðis og þar segir eftirfarandi:

,,Allur matur úr jurtaríkinu er mjög mikilvægur í krabbameinsforvörnum og án vafa eitt beittasta vopnið gegn öllum tegundum krabbameins, sérstaklega í meltingarfærum. Sumar jurtir geta jafnvel komið okkur á óvart! Til dæmis hin hógværa kartafla, sér í lagi mjölvamiklar tegundir. Henni er oft raðað í flokk með fæðu sem hefur ekki mikið næringargildi en miklu síður litið á hana sem mikilvæga krabbameinsforvörn! Við könnuðum samt möguleika hennar á að hafa áhrif á vöxt einangraðra magakrabbameinsfrumna. Þó svo að kartaflan sjálf hafi ekki sýnt nein krabbameinshamlandi áhrif tókum við eftir því að kartöfluhýðið reyndist hafa öflug, hamlandi áhrif á vöxt krabbameinsfrumna (mynd 15 [sjá bls. 53 í bókinni]. Þessi óvænta niðurstaða sýnir hversu krabbameinshamlandi sameindir eru sterkur eðlisþáttur fæðu úr jurtaríkinu og mikilvægi þess að neyta sem allra flestra tegunda fæðu úr þessum flokki til að koma í veg fyrir krabbamein.“

Þetta er ótrúlega merkilegt. Kartöfluhýðið inniheldur sem sagt mikið af krabbameinshamlandi efnum og myndin sem birtist með þessum texta sýnir þetta á skýran hátt. Merkilegt!

En áður en ég fer í uppskriftina langar mig að benda öllum á sérblað um umhverfismál og umhverfisvænar vörur í Fréttablaðinu í dag. Fullt af góðum upplýsingum um mikilvægt málefni.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: mangó
Grænmeti: kartöflur, púrrulaukur
Krydd: engifer, hvítlaukur, chili, túrmerik, cumin, kóríander, negull, kanill, steinselja
Annað: jógúrt

Uppskrift
fyrir 4

2 msk. repjuolía eða ólífuolía
6 stórar kartöflur niðurskornar með hýðinu
1 lítri vatn
2 msk. balti curry paste
1 tsk. herbamare original
¼ tsk. túrmerik + svartur pipar
½ púrrulaukur niðurskorin
3 hvítlauksrif niðurskorin
1 lítri af vatni
1 dós kókosmjólk
1 grænmetisteningur
2 msk. sætt mangó chutney
steinselja smátt söxuð (má líka vera ferskt kóríander)
Sýrður rjómi (má sleppa)

Skerið púrrulauk og hvítlauk niður og látið anda í nokkrar mínútur.  Hitið olíuna í potti og steikið laukinn í nokkrar mínútur við vægan hita. Bætið karrý mauki, túrmeriki og svörtum pipar saman við og haldið áfram að steikja í 1-2 mínútur. Bætið kartöflum saman við, vatni og kókosmjólk og látið suðuna koma upp. Bætið herbamare og grænmetisteningi saman við og látið sjóða í 30-40 mínútur eða þar til kartöflurnar eru mauksoðnar. Maukið súpuna með töfrasprota. Bætið mangó chutney og steinselju saman við og berið fram. Dropið smá sýrðum rjóma yfir eftir smekk.

About these ads

Filed under: chili, chili pipar, engifer, Greinar, hvítlaukur, kanill, kartöflur, kóríander, kúmin, laukur, negulnaglar, Rannsóknir, Súpur, steinselja, svartur pipar, Tímarit, túrmerik, Umhverfismál, Uncategorized, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , , ,

Kínóagrautur með bláberjum og chia fræjum

Eins og ég hef fjallað um svo oft áður þá eru chia fræ í miklu uppáhaldi, stútfull af omega 3 fitusýrum og þannig bólguhamlandi. En chia fræin innihalda líka talsvert rík af öðrum næringarefnum. Hlutfallslega eru þau próteinrík, en einnig rík af kalki og magnesíumi. Ég nota chia fræin í smoothie-a, út á jógúrt og í grauta. Mér finnst voða gott að blanda saman jógúrti múslí, frosnum berjum og chia fræjum og láta standa í ísskápnum í svona klukkustund áður en ég borða það, þá eru chia fræin aðeins búin að draga vökvann í sig og orðin skemmtilegri undir tönn.

En ástæðan fyrir því að ég gerði þennan graut er að ég horfði á viðtalið við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur á mbl. Þar fjallar hún um hitt og þetta, aðallega það að íslendingar séu of feitir, og leggur mikla áherslu á það að viðaukum próteinneyslu okkar, sérstaklega á morgana. Þetta er fínt viðtal og svona af því ég er nýbúin að kaupa mér uppskriftabókina hennar þá vil ég mæla eindregið með henni. Ég sit og skrifa þessa færslu og drekka steinseljuþeyting úr bókinni sem er alveg ótrúlega góður. Steinselja er svo einstaklega mikið ofurfæði og frábært að ná að dæla í sig tveimur lúkum af steinselju í bragðgóðum smoothie.

En eftir að horfa á viðtalið  þá ákvað ég að byrja að borða próteinríkari morgunmat og gerði í framhaldinu þennan graut. Hann inniheldur kínóa sem er sérstaklega próteinríkt fræ. Ég hef nokkrum sinnum gert kínóagraut sem inniheldur eingöngu kínóa og mér hefur ekki fundist það nægilega gott, þannig að ég ákvað að hafa þennan líka með höfrum og þá fínum hafraflögum. Bláberin fannst mér passa vel með en auk þess las ég fyrir stuttu um nýútgefna rannsókn á bláberjum og áhrifum þess á krabbameinsmyndun. Niðurstaða rannsóknarinnar, sem gerðar voru á músum (eins og svo oft er), voru þær að bláberjaduft sem notað var í rannsókninni hafði krabbameinshamlandi áhrif á tiltekna tegund brjóstakrabbameinsfruma (MDA-MB-231 triple negative breast cancer (TNBC) cells)  og minnkaði líkurnar á meinvörpum [heimild]. Þessi rannsókn er að sjálfsögðu bara ein af fjölmörgum rannsóknum sem hafa sýnt fram á krabbameinshamlandi áhrif bláberja sem og annarra berja. Meira um það síðar. En yfir í grautinn.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: bláber
Kornmeti og fræ: 
hafrar, kínóa, chia fræ
Annað: jógúrt

Uppskrift
fyrir 1

2/3 bolli vatn
3 msk. kínóa
2 msk. fínar hafraflögur
2 tsk. maple síróp
1 tsk. chia fræ
2-3 msk. frosin bláber
3 msk. kókos- eða hrein jógúrt frá BíóBú

Setjið vatn og kínóa saman í pott og hitið þar til suðan kemur upp. Sjóðið í 10 mínútur með lokið á pottinum. Lækkið undir. Bætið þá haframjöli saman við. Hrærið vel og látið hafrana draga afganginn af vatninu í sig. Blandið þá maple sírópi og frosnum berjum saman við. Hrærið vel saman. Slökkvið undir. Hrærið chia fræjum saman við. Hellið í skál og berið fram með jógúrti.

Filed under: bláber, chia fræ, haframjöl, Morgunmatur, Uppáhalds

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: