Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Barnaafmæli og næringarríkt gúmmelaði

Dóttir mín verður þriggja ára á morgun og við héldum uppá afmælið hennar núna um helgina. Mér finnst mjög gaman að baka og hef lengi reynt að baka sykurlausar, smjörlausar og allslausar kökur sem ekki hafa fengið sérlega góðar viðtökur. Ég hef því tekið þá stefnu að fara ákveðinn milliveg þegar kemur að bakstri og hafa að leiðarljósi að kökurnar séu næringarríkar þó svo að þær innihaldi eitthvað af þessu slæma líka.

Afmæliskakan var gulrótakaka sem er orðin algjör skyldubakstur fyrir afmæli hér. Hún inniheldur fullt fullt af næringarríkum fæðutegundum, s.s. gulrætur, valhnetur, ananas,  döðlur og kókos, en kremið inniheldur það mikið af flórsykri að maður getur varla kallað kökuna í heild sinni holla. Ég er ekkert sérlega hrifin af flórsýkri en það virðist  vera frekar erfitt að finna krem á kökur sem inniheldur engan flórsykur. Verkefni ársins er því að útfæra gott krem á gulrótaköku sem ekki inniheldur haf af flórsykri. Ef þið hafið einhverjar hugmyndir endilega sendir mér póst.

Auk þess gerði ég hnetusmjörskökur með súkkulaðibitum, heilsukókoskúlur með hamp fræjum og granólabita með aprikósum, jarðhnetum og trönuberjum. Þetta kom allt virkilega vel út og þetta gúmmilaði var allt mjög næringarríkt. Hér kemur uppskriftin að granólabitunum.

Uppskrift
passar í 20×20 kökuform

1 2/3 bolli tröllahafrar
1/2 bolli hrásykur
1/3 bolli byggflögur
1/2 tsk. salt
1/2 tsk. kanill
1 bolli þurrkaðar aprikósur niðurskornar
1 bolli þurrkuð trönuber
1 bolli blanda af jarðhnetum, sesamfræjum og hörfræjum
1/3 bolli hnetusmjör
1 tsk. vanilludropar
5 msk. kókosolía
1/4 bolli hunang

Hitið ofninn í 180 °C.

Blandið öllum innihaldsefnum vel saman í skál. Best er að nota hendurnar til að allt blandist vel saman. Komið fyrir í bökunarformi og bakið í 25-30 mínútur eða þar til granólað er farið að brúnast að ofan. Látið kólna í ísskáp og skerið í bita.

Svo var ég með fullt af ristuðum hnetum og fræjum sem komu vel út. Ég ákvað að tæma skápana mína og notaði öll fræin og hneturnar sem ég átti. Ég myndi segja að þetta hafi verið milli 4 og 5 bollar af hnetum og fræjum (blanda af  möndlum, pekanhnetum, sesamfræjum, sólblómafræjum, hörfræjum og valhnetum). Ég blandaði þeim saman í eldföstu móti og hellti um það bil hálfum bolla af maple sírópi yfir og blandaði vel saman. Síðan setti ég um eina og hálf teskeið af garam masala saman við og rúmlega hálfa teskeið af salti. Þetta ristaði ég í ofni við 150 gráður í 10-15 mínútur eða þar til allt var búið að ristast. Mikilvægt er að muna að taka þetta út á nokkurra mínútna festi og hræra vel í til að það efsta brenni ekki og það neðsta ristist líka. Þegar þetta kom út úr ofninum þá lét ég allt kólna áður en ég blandaði súkkulaðidropum saman við. Ég notaði hvíta súkkulaðidropa í kremið fyrir gulrótakökuna þannig að afgangurinn á þeim fór í hentumixið. Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég hins vegar keypt dökkt súkkulaði því það er langsamlega hollast. Endilega prófið. Þetta er frábært heilsuhnakk.

About these ads

Filed under: aprikósur, bygg, döðlur, graskersfræ, haframjöl, hörfræ, hemp fræ, hnetur, kanill, möndlur, pekanhnetur, sætindi, sesamfræ, Uppáhalds, valhnetur, Vegan

Smoothie – Pure Ebba og sætuefni

Ég er voða hrifin af pure Ebbu og hef gaman af að horfa á þættina hennar á mbl sjónvarpi. Í einu myndbrotinu hennar þá gerir hún goji sjeik með kasjúahnetum og fleira góðgæti. Ég er að sjálfsögðu búin að prófa að gera hann og ég get ekki sagt annað en að hann hafi vakið mikla lukku á mínun heimili. Dóttir mín fékk að fara með sinn í bað og drakk hann upp til agna. Mér finnst æðislegt að setja tahini í hann. Loksins finnur maður leið til að nota þetta næringarríka mauk sem ég hef hingað til einungis notað í hummus og einstaka salatdressingu.Ég hef svo aðeins þróað þennan sjeik eftir mínu höfði. Ég er rosalega hrifin af hamp fræjunum og nota þau eins mikið og ég mögulega get. Þess vegna setti ég 2 msk. af hamp fræjum í staðin fyrir kasjúahneturnar. Þetta gerði mér lífið aðeins auðveldara þar sem ekki þarf að leggja flysjuð hamp fræ í bleyti. Síðan gerði ég uppskriftina nánast alveg eins og Pure Ebba nema ég bætti 1 tsk. af macha te-i út í hann, til að gera hann enn meira ofurfæði og gefa mér smá kickstart fyrir daginn því ég átti langan dag framundan.

Mín útgáfa af sjeiknum er þá ríkur af bæði omega 3 og omega 6, en í góðum hlutföllum þökk sé hamp fræjunum. Hann inniheldur mjög mikið af andoxunarefnum bæði vegna goji berjanna og mangósins en ekki síður vegna macha te-sins. Mér finnst alltaf gott að setja smá matcha te út í sjeika sem innihalda vanillu og mangó. Eins og ég hef fjallað um áður þá er macha te hreinasta tegundin af grænu te-i sem fyrirfinnst. Matcha te kemur í fíngerðu dufti og er talið innihalda margfalt meira magn andoxunarefna en venjulegt grænt te. Ég panta mitt græna te hjá Mountain Rose Herbs en það á hefur hins vegar fengist í Te og kaffi og einhverjum heilsubúðum hér á landi.

Í þriðja skiptið sem ég gerði þennan sjeik þá setti ég líka golden berries út í hann. Þau eru súr og mjög rík af a-vítamíni. Ég er hrifin af súru þannig að mér fannst þau gera sjeiknum gott. Ég prófaði líka að setja stevíu í staðin fyrir yacon duftið en ég var ekki sérlega hrifin af því. Ég hef lítið notað stevíu en er aðeins að prófa mig áfram með hana. Mér finnst eiginlega hálfgert gervibragð af henni og svo verð ég eiginlega að viðurkenna að allt sem hljómar of gott til að vera satt er eitthvað spúkí að mínu mati. Stevía á að vera 100-200 sinnum sætari en sykur og hækka blóðsykurinn ekki neitt. Ótrúlega magnað ef að það er rétt og ef þessi jurt hefur engin önnur áhrif á líkamann til hins verra. Ég held ég haldi mig samt bara við hunangið, maple sírópið og döðlurnar í bili. Er kannski pínu íhaldsöm þegar kemur að sætuefnum en maple sírópið er í mestu uppáhaldi hjá mér vegna þess hve næringarríkt það er. Ég reyni alltaf að borða mat með það í hug að ég sé að næra líkama minn. Þettta lærði ég í Vancouver, þar sem fólk hugsar meira um að nærast en að mettast. Maple síróp og hunang eru líklega næringarríkustu sætuefnin. Mig langar að mæla sérstaklega með einu hunangi sem heitir Guardian Angel Honey og er frá fyrirtækinu Sonnentor. Þetta hunang er rosalega næringarríkt. Það inniheldur bæði bee pollen og royal jelly sem eru hvor um sig alveg sérstaklega næringarrík. Bee pollen á að innihalda öll þau næringarefni sem líkaminn þarf til að starfa eðlilega. Royal jelly er síðan efnið sem býflugnadrottningar lifa á og gerir þær sérstaklega frjósamar. Royal jelly er sérstaklega ríkt af b-vítamínum og amínósýrum. Royal jelly er talið vinna gegn fjölda sjúkdóma, m.a. krabbameini, vera sérstaklega gott við ófrjósemi og fyrirtíðarspennu. Royal jelly er bólgueyðandi og má því ætla að sá þáttur hafi einnig áhrif á fyrirbyggjandi virkni þess gegn krabbameinsmyndun.

Þessi færsla verður nú seint kölluð lífleg en ég mun bæta úr því von bráðar með færslum með uppskriftum og myndum. Þangað til, borðum hollt og brosum.

Filed under: Drykkir, goji ber, mangó, matcha grænt te, sætindi, Vegan

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: