Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Gamaldags matur með hollri viðbót

Stundum fær dóttir mín að ráða. Frekar oft á sumum sviðum. Sjaldnar á öðrum. Þegar kemur að mat þá fær hún yfirleitt að ráða þegar við erum bara tvær í kotinu og oftast verður fiskur þá fyrir valinu. Ég kaupi þá yfirleitt silungsflök og við borðum þau með krydduðum sætum kartöflum. Það finnst okkur mjög gott. En það er þó ekkert betra að hennar mati en steiktur fiskur í raspi. Svo að síðast þegar við vorum tvær hér heima þá borðuðum við fisk í raspi uppá gamla mátann. Mér finnst það ágætt stundum en ég reyni þó alltaf að bæta örlítilli aukahollustu við þennan þjóðarrétt okkar. Í þetta skiptið steikti ég lauk og tómata með túrmeriki, svörtum pipar og tandoori kryddi. Þannig náði ég að bæta fullt fullt af hollustu í kvöldmatinn okkar. Túrmerik er eins og ég hef áður fjallað um algjört undrakrydd. Það var áður fyrr kallað saffran fátæka fólksins í Indlandi en er nú kallað gullnáma Indland, þar sem lækningarmáttur þess er svo gífurlega mikill og fjölbreyttur. Virka efnið í túrmeriki, kúrkúma, verður margfalt öflugra ef að túrmerik kemst í tæri við olíu og svartan pipar. Þess vegna er mælt með að elda túrmerik á sama hátt og gert er í Indlandi þegar búið er til masala. Þá er laukur og hvítlaukur steiktur fyrst upp úr olíu og kryddunum síðan blandað saman við. Því næst er tómötum yfirleitt blandað saman við og þá er komin hin hefðbundna masala sósa. Þessi steikti laukur ber því keim af hefðbundinni indverskri matargerð og ber að sama skapi lækningarmátt hennar.

Þetta kom mjög vel út og passaði vel með fiskinum. Endilega prófið.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, tómatar
Krydd og kryddjurtir: túrmerik, svartur pipar

Uppskrift
fyrir 2 svanga

1 stór laukur
6 konfekttómatar niðurskornir
1 tsk. túrmerik
½ tsk. tandoori krydd
salt og nýmalaður svartur pipar
ólífuolía eða repjuolía til steikingar

Hitið olíuna á pönnunni, bætið lauknum við og því næst kryddunum. Steikið í 3-4 mínútur við vægan hita og bætið þá tómötunum saman við. Steikið þar til tómatarnir eru orðnir mjúkir.

About these ads

Filed under: laukur, Meðlæti, svartur pipar, tómatar, túrmerik, Vegan, , , ,

Donald Abrams

Fyrir mig var ótrúlegt að horfa á þetta myndskeið. Það má eiginlega segja að þetta myndskeið dragi saman allt sem ég hef nokkurn tíman fjallað um á þessari síðu og svo miklu meira.

Það kemur mjög sjaldan fyrir að ég horfi á myndskeið eða lesi bók sem ég er alveg fullkomlega sammála að öllu leyti. Það er yfirleitt þannig að manni finnst bækurnar annað hvort ganga of langt eða kannski ekki alveg nógu langt, þær mæla með of mikið af þessu eða hinu sem maður sjálfur myndi kannski ekki gera að öllu leyti.

Donald Abrams er yfirkrabbameinslæknir á San Francisco General spítalanum í San Francisco. Hann er fræðimaður á Háskólanum í Kaliforníu, San Francisco (UCSF) og lærði hjá Andrew Weil í háskólanum í Arizona þau fræði sem hann kennir þar og kallast Integrative medicine. Integrative medicine er hvorki hefðbundnar né óhefðbundnar lækningar heldur samblanda af hvoru tveggja. Í framhaldinu stofnaði Donald Abrams stofu þar sem hann tekur við sjúklingum og meðhöndlar þá á þennan hátt.

Það gerir mig sérstaklega glaða að finna myndskeið eins og þetta og ég mæli því eindregið með því að allir taki sér tíma til að horfa á þetta einstaklega fræðandi myndskeið. Góða skemmtun og lifið vel!

Filed under: Myndskeið,

Nærandi miso súpa með byggi

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: gulrætur, spínat
Krydd og kryddjurtir: hvítlaukur
Baunir og kornmeti: bygg, sojabaunir (misó)
Sjávarfang: söl

Uppskrift
fyrir 4

1 bolli bygg
3 bollar vatn

1 bolli niðurskornar gulrætur
1 heill hvítlaukur (sirka 9 rif) smátt saxaður
1 msk. ólífuolía
5 bollar vatn
4 msk. miso
1 grænmetisteningur (notaði Rapunzel)
1-2 msk. tamari sósa
2-3 msk. kryddlegin söl frá Íslenskri hollustu

100 gr. spínat (hálfur poki)
chili flögur eða chili olía eftir smekk

Sjóðið bygg í samræmi við leiðbeiningar á bakka – 1 bolli bygg á móti 3 bollum af vatni í 45 mínútur.

Hitið olíuna í potti og steikið hvítlauk og gulrætur við vægan hita í um 5 mínútur. Bætið þá vatni, misó og teningi saman við og látið sjóða í 5-10 mínútur. Blandið afgangnum af innihaldefninum saman við og látið blandast vel saman. Bætið að lokum soðna bygginu saman við og berið fram.

Filed under: bygg, chili, gulrætur, hvítlaukur, Söl, Súpur, spínat, Vegan

Núðlusúpa með kjúklingi, karrý og kókos

Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni er ég sérstaklega hrifin af súpum. Þegar við bjuggum í Vancouver fannst okkur sérstaklega gaman að fá okkur ramen súpur en auk þeirra hef ég gert ýmsar útfærslur af öðrum núðlusúpum. Þessi fellur líklega í indverska flokkinn þrátt fyrir að sítrónugrasið geri hana nokkuð tælenska líka.

Mér finnst sítrónugras gefa mjög skemmtilegt bragð. Í mínum huga gefur það sítrónukeim sem er þó aðeins mildari og sætari en safi úr venjulegri sítrónu. Sítrónugras er mikið notað bæði í S-Ameríku og í Tælandi og Víetnam. Sítrónugras er talið hafa róandi áhrif á fólk, aðstoða við svefn og auka blóðflæði í líkamanum. Einnig á sítrónugras að mýkja særindi í hálsi, lækka hita og hafa góð áhrif á sykursýki 2 Ástæðan fyrir þessari miklu virkni sítrónugrassins er talin sú að það inniheldur olíu sem hefur andoxunaráhrif og kallast citral. Þetta efni er talið bólguhamlandi, bakteríudrepandi og vinna gegn sveppum [heimild bls. 153]. Rannsóknir sýna einnig að þetta efni getur haft hamlandi áhrif á vöxt og myndun krabbameins [heimild og heimild].

Þessi súpa er virkilega næringarrík og inniheldur mikið af kröftugum kryddum sem hafa góð áhrif á heilsuna. Ég notaði eggjanúðlur í þetta skiptið, einungis vegna þess að ég átti þær til. Ég myndi hins vegar mæla sérstaklega með udon núðlum í svona súpu. Udon núðlur eru japanskar hrísgrjónanúðlur sem henta mjög vel í súpur. Þær eru glútenlausar og fara því vel í maga og flestir ættu að þola þær vel. Á síðastliðnum mánuðum hef ég rekist mjög mikið á umfjallanir um glúten og mikilvægi þess að lágmarka neyslu þess. Ég hef því ákveðið að leggja mig meira fram um að minnka glútenneyslu mína. Næst mun ég því gera þessa súpu með udon núðlum eða soba núðlum.

Uppskrift
fyrir 4

Eggjanúðlur eða udon núðlur
4 kjúklingabringur niðurskorinn í litla bita
1 msk. saxað engifer
1 rauðlaukur
2 hvítlauksgeirar
3 stilkar af sítrónugrasi
1 msk. olía
1,2 lítrar grænmetissoð (notaði rapunzel teninga)
1 dós kókosmjólk
1 tsk. þurrkaður eða saxaður ferskur chili
1 msk. fiskisósa
2-3 msk. sojasósa
1 msk. hunang
1 msk. balti karrý eða annað madras karrýmauk
1 tsk. salt.
1 bakki baunaspírur
safi úr 1 líme
ferskt kóríander yfir – má sleppa

Sjóðið núðlurnar í potti og látið svo renna kalt vatn yfir þær svo þær haldi ekki áfram að eldast þegar búið er að hella vatninu af þeim.

Hitið olíu í potti og steikið lauk og hvítlauk. Blandið engiferi, sítrónugrasi, og karrýi+svörtum pipar saman við og steikið áfram í nokkrar mínútur. Hellið soðinu saman við og látið sjóða í 15-20 mínútur. Bætið þá kjúklingi, kókosmjólk, chili, fiskisósu, sojasósu, hunangi og lime saman við og sjóðið áfram í 10 mínútur. Blandið fersku kóríander saman við.

Setjið núðlur í skál, hellið súpunni yfir. Skreytið með baunaspírum og fersku kóríander. Berið fram.

Filed under: chili, chili pipar, engifer, hvítlaukur, Karrý, laukur, sítrus ávextir, Súpur, svartur pipar, Uppskriftir

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: