Mér finnst fátt huggulegra en að vakna útsofin um helgar og búa til hollan og góðan morgunmat fyrir mig og mína. Þessi morgunmatur krefst örlítils undirbúnings þar sem mikilvægt er að leggja hafrarna og chia fræin í bleyti í eplasafa yfir nótt. Þetta tekur engan stund og ætti ekki að vefjast fyrir neinum. Þegar maður vaknar er morgunmaturinn síðan nánast tilbúinn. Eina sem maður þarf að gera er að hita berin með maple sírópi í potti og dreifa öllu saman í skál. Einfaldara verður það varla. Ég hvet fólk því til að prófa þessa góðu uppskrift um páskana. Alveg tilvalið að vakna á páskadagsmorgun og borða hollan morgunmat áður en maður fer að belja sig út af óhollustunni.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: brómber, hindber
Hnetur og fræ: chia fræ, möndlur
Kornmeti: hafrar

Uppskrift
fyrir 4
Chia hafragrautur
1 bolli tröllahafrar
1 bolli hágæða eplasafi
3 msk. chia fræ
Blandað saman í skál og geymt í ísskáp yfir nótt.
Berjasósa
1 bolli berjablanda – hindber/brómber/rifsber/bláber
1 msk. maple síróp
Allt hitað saman í potti í 3-4 mínútur þar til allt er orðið mjúkt og vel blandað saman.
Annað:
2 bollar Hreint jógúrt/ab mjólk/hrís mjólk/soja mjólk
1/2 bolli möndlur eða eftir smekk
Dreifið chia grautnum í 4 skálar. Hellið smá hreinu jógúrti/ab mjólk (eða hrísmjólk/sojamjólk) í skálina. Dreifið möndlum yfir og því næst hellið berjasósunni yfir. Berið fram og njótið.
Filed under: brómber, chia fræ, haframjöl, hindber, möndlur, Morgunmatur, Uppáhalds
