Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Heilafóður…

grænn smoothie

Þessa dagana er ég að berjast, og þá meina ég berjast, í gegnum regluverk Evrópusambandsins á einkaleyfum í líftækniiðnaði og það eina sem hjálpar mér er grænn smoothie. Ég ætla þess vegna að gefa mér smá tíma frá bókunum og skrifa örlítið um þennan smoothie og fleira skemmtilegt sem ég hef komist í kynni við síðan ég skrifaði síðast. Fyrst ber líklega að nefna nýju bókina hennar Kris Carr. Hún kom út í lok október og ég gat auðvitað ekki beðið þar til ég færi næst til Bandaríkjanna, og pantaði bókina á Amazon (fyrir ykkur sem fallið líka fyrir freistingum – hér). Bókin er eins falleg og upplífgangi eins og annað sem komið hefur frá Kris Carr í gegnum tíðina. Hún fékk til liðs við sig Chad Sarno, og saman töfra þau fram einfaldar og góðar uppskriftir. Það er þó þess virði að taka fram að allar uppskriftirnar eru án allar dýraafurða, sem er að sjálfsögðu hið besta mál, en fyrir þá sem eru nýir á þeirri braut getur bókin virst á köflum flókin. Uppáhaldið mitt í bókinni er misó- og engiferdressing sem ég gæti líklega borðað í heilan mánuð án þess að fá leið á. Hún er ekki ósvipuð misó dressingunni sem ég birti með kínóasalatinu á sínum tíma, nema með engifer og appelsínusafa í staðin fyrir mirin.

Hvað annan lestur varðar hef ég því miður ekki verið afkastamikil. Það eru tvær nýjar kokkabækur í hillunni hjá mér þessa dagana sem ég fletti mikið í gegnum, les og dáist af myndunum í. Önnur þeirra er íslensk og kom út fyrir jólin og mér finnst ég knúin til að fjalla aðeins um, því hún er hreint listaverk. Hún heitir Eldað og bakað í ofninum heima, góður matur – gott líf og er eftir hjónin Ingu Elsu Bergþórsdóttur og Gísla Egil Hrafnsson. Þvílíkt sem þetta fólk er myndalegt og smekklegt. Bókin er algjörlega til fyrirmyndar hvað auðvitað fegurð og útfærslu varðar þó svo að uppskriftirnar séu kannski ekki allar alveg á minni línu. En girnilegar eru þær þó og alveg klárt mál að margar verða prófaðar hér á hátíðisdögum.

Hin bókin heitir Dinner, a love story og er eftir Jenny Rosenstrach. Ég keypti hana þegar ég var í New York núna í janúar en það má segja að myndskeiðið inni á Amazon af höfundinum hafi alveg náð að selja mér bókina.  Bókin segir frá því hvernig höfundinum tekst að vera útivinnandi tveggja barna móðir sem samt sem áður tekst að elda alltaf kvöldmat fyrir fjölskylduna og virkja börnin í að hafa áhuga á matargerðinni. Þetta hljómaði allt eins og verkefni sem mig langaði heldur betur að tileinka mér. Ég hef enn ekkert eldað upp úr henni og verð að viðurkenna að uppskriftirnar eru ekki þannig að ég hleyp út í búð til að kaupa í þær, en það kemur vonandi að því. Ég er ekki frá því að kjúklingur í apríkósu og sojamarineringu verði á boðstólnum á mínu heimili á morgun.

En hvað græna smoothie-inn varðar þá er þetta mín leið til að stæla grænu þrumuna í Lifandi Markaði. Ég verð þó alveg að viðurkenna að það væri voða þægilegt að losna við uppvaskið á bæði djúsvélinni og blendernum, en útkoman er þó þess virði. Ég hef lagt það í vana minn að gera töluvert ríflega að djúsnum og setja í flösku inn í ísskáp sem ég geymi, stundum til morguns, en drekk þó yfirleitt þegar líður á daginn. Maður þarf aðeins að hafa í huga að næringargildið rýrnar þegar djúsinn oxast. Þetta tekur drottning grænu djúsanna, Kris Carr, endurtekið fram. Ég fór á frábæran stað í New York sem heitir Organic Avenue og keypti mér grænan djús. Þeir eru seldir í sérlega fallegum glerflöskum sem eru tilvaldar til þess að geyma djús í inni í ísskáp, flaskan er ekki of stór og lokast vel. Mikilvægt er þó að reyna að fylla hana sem mest þannig að sem minnst súrefni sé í flöskunni við geymslu.

organic avenue

Og svona lítur flaskan út í ísskápnum hjá mér. En smoothie-inn geri ég á eftirfarandi hátt:

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: mangó, límóna, döðlur
Grænmeti: avókadó, spínat/klattasalat, sellerí
Hnetur og fræ: chia fræ, hampfræ (hamp prótein)
Krydd: engifer, cayenne pipar (chili)
Annað: macha te

Í djúsvél set ég:

2-3 epli – má líka vera 2 epli og 1 pera eða mögulega ananas
3 sellerístilkar
Engiferbútur
1/2 agúrka
1 límóna

Helmingurinn af djúsnum fer yfir í blenderinn með:

lúku af spínati/klettasalati
1/2-1 tsk. af macha te-i
1 tsk. hemp prótein
1 tsk. chia fræjum
4 mjúkum döðlum
frosnu mangó
smá cayenne pipar.

Síðan blanda ég þessu vel saman. Að lokum blanda ég saman við þetta avokadó. Best er að blanda því bara í stutta stund saman við, en þó nægilega lengi til að ekki verið kekkir í drykknum. Avokadó getur orðið dálítið leiðinlegt ef það blandast of lengi.

En ætli sé ekki best að ég blandi mér einn í hvelli og leggist svo aftur yfir bækurnar.

About these ads

Filed under: avokadó, Bækur, chia fræ, chili, döðlur, Drykkir, engifer, epli, hemp fræ, klettasalat, mangó, matcha grænt te, pera, sítrus ávextir, sellerí, spínat, Uppáhalds, Vegan

Meiri steel cut hafrar – nú með kínóa

Mig langar að halda aðeins áfram með stálslegnu hafrana sem eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Í dag fékk ég mér graut í hádegismat. Fyrir þá sem ekki vita get ég borðað hafragraut í öll mál með bros á vör. En af því ég er aðeins að reyna að minnka kolvetnin í mínu mataræði og bæta inn próteinum úr jurtaríkinu hef ég verið að minnka hafrarna í grautnum og setja kínóa og amaranth í staðinn.

Kínóa er algjört ofurfæði – próteinríkt og stútfull af bólguhamlandi plöntuefnum sem og ríkt af fjöldanum öllum af öðrum næringarefnum. Í bókinni Life over cancer fjallar Keith I. Block, MD, um mikilvægi þess að borða próteinríka fæðu á meðan á krabbameinsmeðferð stendur. Í bókinni segir m.a. ,,Nutritionists have long recognized that during times of physical stress (and chemotherapy, radiation, and surgery certainly count as stress), the body’s need for energy and protein increases. Protein is especially crucial, since during cancer treatment you are likely to experience tissue breakdown and stress on both your immune system and your liver’s chemical detoxification system; all of these can be stabilized and reversed by boosting your protein consumption”. Í lauslegri þýðingu segir Block að þegar líkaminn er að ganga í gegnum streitu þurfi hann á aukinni orku og próteinum að halda. Hann telur prótein sérstaklega mikilvægt þar sem á meðan á krabbameinsmeðferð stendur séu auknar líkur á niðurbroti vefja, áhrifum á ónæmiskerfið og hæfni lifrarinnar til afeitrunar – og próteinneysla geti minnkað eða komið í veg fyrir þessi áhrif [sjá Life over cancer bls. 122].

Það sem ég gerði í dag var að minnka hlutfall hafra í grautnum um helming og setja kínóa á móti. Þegar grauturinn var tilbúinn blandaði ég 1 tsk. af hnetusmjöri saman við hann og hálfum banana. Einfalt og gott!

Filed under: bananar, Bækur, hafrar, jarðhnetur, kínóa, Morgunmatur, Vegan

Grillaður hlýri með ferskum aspas og salati

Í gær gerðum við okkur glaðan dag. Ég rölti út í Melabúð og keypti hlýra, ferskan aspas og nóg af brakandi fersku klettasalati í matinn. Ég er enginn sérstakur talsmaður þess að borða mikið grillaðan mat en stóðst ekki mátið í fallega veðrinu í gær. Ég held líka að svo lengi sem maður passar að maturinn brenni ekki á grillinu ætti þessi munaður að vera í lagi stöku sinni. En þessi umfjöllun er nokkuð góð um krabbameinsvaldandi áhrif grillaðs matar. Samkvæmt henni er mun betra að grilla fisk, og langbest að grilla grænmeti, og mikilvægt að hafa hitann ekki of háan og gott að halda áfram að pensla með marineringu eftir að grillun hefst.

Ég horfði fyrir tilviljun á þáttinn Grillað í sjónvarpinu í gær og þar var einn kokkanna að grilla fisk með misó marineringu. Þar sem ég er sérstakur aðdáandi misó varð ég að sjálfsögðu að prófa þetta strax. Ég notað svo afganginn af marineringunni yfir steikta aspasinn. Það kom mjög vel út.

En af því ég ætla ekki að skrifa mikinn fróðleik í þessari færslu þá ætla ég að pósta þessu myndskeiði  sem er frábært. David Servan-Schreiber var algjörlega magnaður maður. Hann skrifaði bókina Anti Cancer sem ég hef svo oft fjallað um áður og breytti algjörlega mínu viðhorfi til matar og annarra umhverfisþátta. Hann lést í fyrra úr krabbameini en hafði þá lifað í um 20 ár eftir að greinast í annað skiptið með heilaæxli. Eftir að hann lést kom út bókin Not the Last Goodbye sem segir frá tímanum frá því að krabbameinið tók sig upp í þriðja skiptið og þar til hann lést. Hann er líklega besta dæmið um það að þrátt fyrir allt er stundum ekki hægt að stöðva mjög erfið og aggressív krabbamein. Hann fór alla leið í hefðbundnum meðferðum sem og óhefðbundnum. Ég er þó algjörlega sannfærð um það eftir að lesa bækurnar hans að hann hefði ekki lifið í öll þessi ár nema af því hann lagði sig fram á öllum vígstöðvum – þ.e. borðaði rétt, var í mikilli líkamsrækt og passaði að lágmarka snertingu sína við krabbameinsvaldandi efni og aðra umhverfiþætti sérstaklega vel.

En yfir í uppskriftina

Grillaður hlýri

500 gr. hlýri

Marinering:

3 msk. ljóst mísó
2 msk. tamari sósa eða soja sósa
2 msk. mirin
2 msk. hrísgrjónaedik
1 msk. hunang
1 msk. chili olía eða repjuolía

Öllu blandað saman í matvinnsluvél eða á annan hátt. Fisknum velt uppúr marineringunni og hann látinn marinerast í 1-2 klst.

Grillið í 3-4 mínútur á hvorri hlið, eða eftir þykkt bitanna.

Ferskur aspas

1 búnt ferskur aspas
2 msk. repjuolía eða önnur bragðlítil olía
1 msk. sesamolía
salt og pipar

Hitið olíuna á pönnu og steikið aspasinn í um 4 mínútur. Saltið og piprið og berið fram.

Salat

1 poki klettasalat
5 kirsuberjatómatar niðurskornir
1/4 rauðlaukur smátt skorinn
2-3 msk. þurrkuð trönuber
2-3 msk. ristaðar furuhnetur

Öllublandað saman í skál.

Dressing
4 msk. sýrður rjómi (10 %)
2-3 msk. dijon sinnep
1 msk. hunang
2 msk. lime safi
3 msk. góð extra virgin ólífuolía – ég notaði A deo1 msk. söxuð steinselja
salt og pipar

Blandið öllu saman í skál og hellið yfir salatið – eða hafið til hliðar fyrir hvern sem er til að hella yfir eftir vild.

Filed under: aspas, Bækur, Fiskur, klettasalat, laukur, Meðlæti, Myndskeið, Rannsóknir, Salöt, sítrus ávextir, Sósur, sesamfræ, steinselja, svartur pipar, trönuber, Uppáhalds, , , , , , , ,

Lifrin – okkar besti vinur

Bókin sem ég er að lesa núna heitir „Say no to cancer“ og byrjar að mínu mati nokkuð vel. Ég rakst á þessa bók í Eymundsson í Austurstræti fyrir nokkrum vikum síðan og verð að lýsa ánægju minni yfir því að bók sem þessi skuli nú fást hér á landi.

Ég er nú ekki komin langt. Ég er að vísu farin að hraðspóla aðeins yfir ýmislegt sem ég hef lesið áður en stoppaði og las ítarlega kafla 7 (byrjar á bls. 48) sem heitir „Why your liver is your best friend“. Áhugi minn á starfsemi lifrinnar hefur verið að aukast mikið og var ég því ánægð að þessi kafli skyldi vera staðsettur svona snemma í bókinni. Hann var mjög athyglisverður og þess vegna langar mig að deila með ykkur helstu atriðum hans.

Kaflinn byrjar á umfjöllun um mikilvægi varnarkerfis líkamans og hæfni hans til þess að hreinsa burt eiturefni úr líkamanum. Lifrin gegnir stóru hlutverki við þessa hreinsun og þannig við uppbyggingu á heilbrigðu ónæmiskerfi. Þessi eiginleiki lifrinnar hefur gerir það m.a. að verkum að þrátt fyrir að við komumst í tæri við talsvert mikið magn eiturefna getur líkaminn komið í veg fyrir krabbameinsmyndun upp að vissu marki. Þegar þessi eiturefni eru hins vegar komin upp fyrir það stig að lifrin sé hætt að geta hreinsað þau út úr líkamanum er voðinn vís. Aðferð líkamans við að „pakka“ og losa sig við eiturefni kallast conjugation. Ef þessi starfsemi lifrinnar er á einhvern hátt óvirk eða ef lifrin er undir of miklu álagi, oft vegna of mikillar áfengisneyslu eða sykurneyslu, er líkaminn varnalausari fyrir krabbameinsvaldandi efnum og þannig meiri líkur á myndun krabbameins.

Eitt af þeim genum sem talin eru hafa grundvallaráhrif á það hvort krabbameinsmyndun á sér stað í líkamanum framleiðir ensím sem kallast glutathione transferase. Ekki spyrja mig hvað þetta þýðir en samkvæmt bókinni þá hafa verið gerðar rannsóknir á músum þar sem virkni þessa gens er stöðvuð og viðkomandi mýs í framhaldinu komið í tæri við tóbaksreyk og við það hefur krabbamein myndast mjög hratt. Fræðimenn hafa reynt í framhaldinu að finna leið til að virkja umrætt gen í þeim tilvikum sem virkni þess raskast en í bókinni er einnig bent á að hægt sé að virkja framleiðslu glutathions með því að borða ákveðnar fæðutegundir og taka tiltekin bætiefni.  Glutathion er að sjálfsögðu aðeins eitt af ensímunum sem hafa áhrif á hreinsun á eiturefnum úr líkamanum. Í bókinni er eftirfarandi listi yfir efni sem aðstoða lifrina við hreinsun líkamans:

-Glutathione og/eða N-acetyl-cysteine sem finnast í lauk og hvítlauk.
-Coenzyme C10 sem finnst í feitum fiski, spínati, hráum fræjum og hnetum.
-C-vítamín sem finnst m.a. í fjölmörgum ávöxtum, spergilkáli og papriku.
-Selen sem finnst í hráum fræjum, hnetum og fiski
-Beta karótín sem finnst í gulrótum, ferskjum, sætum kartöflum, vatnsmelónum og graskerum.

Mikilvægt atriði þessu tengdu er að þessi efni vinna saman og þess vegna er nauðsyn fyrir öll þeirra til að lifrin starfi eðlilega. Þetta er ótrúlega mikilvægt atriði sem er algjörlega gegnumgangandi í allri umfjöllun um áhrif mataræðis á starfsemi líkamans og þá sér í lagi myndun og vöxt krabbameins. Maður verður oft var við rannsóknir þar sem talað er um að ákveðin efni geti ekki unnið gegn myndun krabbameins en þá er rannsóknin oft á tíðum framkvæmd þannig að efnid er einangrað og rannsakað eitt og sér. Þess vegna mæli ég alltaf frekar með því að borða matinn sjálfan, í stað þess að taka bætiefni, vegna þess að í bætiefnunum er búið að einangra ákveðna þætti en í matnum sjálfum er hann ein heild sem vinnur saman. Til að taka dæmi þá eru yfir 200 virk efni í tómötum. Oft er bara talað um lycopene, sem efni sem getur unnið gegn blöðruhálskirtilskrabbameini, en ekki talað um hin efnin í tómatvörum sem magna upp virknina og mögulega gerir það að verkum að lycopene hefur þau áhrif sem það hefur.

En ég held ég þurfi að skipta þessari færslu upp í nokkra parta. Það er varla hægt að ætlast til þess að nokkur haldi einbeitingu í gegnum mikið lengri færslu um efni sem þetta. En takk fyrir að lesa…og þar til næst. Lifið heil og njótið myrkursins.

Filed under: Bækur, Greinar, hvítlaukur, laukur

Kínóasalat með rauðrófum og valhnetum

Ég var svo heppin að eiga leið aftur til Vancouver núna í ágúst. Það var yndislegt að koma aftur til þessarar fallegu borgar og njóta hennar í þetta skiptið með allir fjölskyldunni. En það sem var líka æðislegt var að ég komst í uppáhaldsbókabúðina mína. Hún heitir Banyen Books and Sounds og er algjör draumastaður fyrir manneskju eins og mig. Þegar ég bjó í Vancouver var þetta staðurinn sem ég fór á þegar ég fékk alveg að ráða, eins og á afmælinu mínu. Ég gæti eytt dögum ef ekki vikum þarna inni. En nóg um það. Ástæðan fyrir því að ég fór að tala um Banyen er að ég keypti mér bók þar um Kínóa. Ég hef alltaf verið í hálfgerðu basli við að elda kínóa, hef prófað ýmislegt en einhvern vegin ekki komist upp á lagið með það. Mér finnst það fínt í súpur, ágætt í hafragraut svona til að bæta smá hnetukenndum keim í grautinn og einnig fínt í buff. En í bókinni eru hátt í tvöhundruð uppskriftir að réttum með kínóa sem eru hver öðrum girnilegri. Ég ákvað hins vegar að byrja á að gera eitthvað eftir mínu eigin höfði, eða næstum því.

Ég fékk hugmyndina að þessum rétti á stað sem við fórum á í Portland. Staðurinn heitir Yoga Pearl og er í Pearl District í Portland. Þetta er sem sagt jógastúdíó og veitingastaður. Við vorum svo hrifin af veitingastaðnum að við fórum á hann tvo daga í röð og fengum í bæði skiptin frábæran mat. Í fyrra skiptið fékk ég mér salat með kínóa, rauðrófum, spínati, rúsínum og dressingu. Mér fannst dressingin það eina sem var ekki fullkomið svo ég ákvað að gera annars konar dressingu núna. Svo ákvað ég að bæta við alfalfa spírum, taka rúsínurnar út og bæta inn þurrkuðum trönuberjum og hunangsrista valhnetur til að bæta við smá omega 3.

En það er nú varla hægt að halda lengra án þess að fjalla um ofureiginleika kínóa. Kínóa er fræ  sem kemur frá Suður Ameríku og var áður fyrr mikilvægur hluti af fæðu Inka. Það sem gerir Kínóa sérstakt er að það er einstaklega næringarríkt (sumir segja súperfæði), það er glúteinlaust og mjög próteinríkt. Það er einnig ríkt af magnesíumi, járni og fleiri steinefnum. Hvað krabbameinsforvarnir varðar þá mælir Keith Block í bókinni sinni Life Over Cancer sérstaklega með kínóa sem próteingjafa og þá sérstaklega vegna þess að þetta er mjög fitusnauður próteingjafi og auk þess næringarríkur og glúteinlaus.

En meira um það síðar og yfir í uppskriftina. Ég verð að viðurkenna að uppskriftin virðist vera mjög mikið vesen. En hún er það í rauninni ekki. Það þarf að sjóða rauðrófurnar og láta þær kólna, sjóða kínóað og láta það kólna líka og búa til dressinguna. Þetta er lítil vinna en tekur dálítinn tíma. Dressingin er mín útfærsla af mísódressingunni hennar Gwyneth. Bókin hennar Gwyneth er vægast sagt að gera mikla lukku þessa dagana.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Ávextir: trönuber,
Grænmeti:
spínat, rauðrófur, rauðlaukur
Hnetur og fræ:
kínóa, valhnetur
Baunir: sojabaunir (mísó)

Uppskrift
fyrir 4

1 bolli Kínóa
1 poki spínat
2 rauðrófur
1 bakki alfalfaspírur
½ bolli þurrkuð trönuber
1 bolli valhnetur
1 msk. hunang

Mísódressing

¼ rauðlaukur
3 msk. hvítt miso (fæst í heilsubúðum)
2 msk. ristuð sesamolía
2. msk. mirin
2 msk.  tamari sósa
2 msk. japanskt hrísgrjónaedik
2 msk. vatn
¼ bolli extra virgin ólífuolía
1 tsk. maldon salt
svartur pipar

Sjóðið rauðrófurnar í potti í 45 mínútur. Látið kólna, skrælið og skerið í bita.

Komið kínóa fyrir í potti með 2 bollum af vatni. Hitið þar til suðan kemur upp, lækkið þá hitann og látið sjóða í 10 mínútur. Slökkvið undir og látið standa í 4 mínútur. Opnið pottinn og hrærið með gaffli. Látið kólna.

Blandið öllum innihaldsefnum í dressingunni saman í matvinnsluvél.

Ristið valhneturnar á pönnu. Þegar búið er að rista valhneturnar í 2-3 mínútur, hellið þá hunaginu yfir og hrærið vel. Stráið örlitlu salti yfir og látið kólna.

Setjið spínat, alfalfa spírur, rauðrófur, kínóa, trönuber og valhnetur í skál og hellið dressingunni yfir. Berið fram.

Filed under: Bækur, kínóa, laukur, Salöt, sojabaunir, spínat, trönuber, Uppáhalds, valhnetur, Vegan

My fathers daughter og bláberjamúffurnar hennar Gwyneth

Nýjasta kokkabókin í safnið mitt er bókin My fathers daughter eftir Gwyneth Paltrow. Ég hef fylgst með síðunni hennar, Goop, í talsverðan tíma og veit að hún hugsar mikið um heilsuna. Mér finnst hún líka bara eitthvað svo ótrúlega sæt að ég varð að kaupa mér bókina hennar. Þetta er falleg bók með mikið af girnilegum uppskriftum. Margar hverjar eru þetta uppskriftir að klassískum réttum sem hún hefur skipt út óhollustu fyrir hollari innihaldsefni. Það er ekkert eitt þema sem er gegnumgangandi í bókinni heldur virðast uppskriftirnar vera svona sitt lítið af hverju, en eiga það sameiginlegt að tengjast allar föður hennar á einhvern hátt.

Í inngangi bókarinnar fjallar Gwyneth um pabba sinn og þeirra samband. Þau virðast hafa verið afskaplega náin og tengd feðgin og hennar áhugi á mat sprettur frá ástríðu föður hennar fyrir mat og víni. Hún fjallar um veikindi hans, en hann greindist með krabbamein í hálsi árið 1998. Þegar faðir hennar veiktist varð hún sannfærð um að hann gæti læknast með réttu mataræði og óhefðbundnum lækningum. Hún las sig mikið til um tengsl mataræðis og krabbameins og aðferðir til þess að vinna gegn krabbameini. Hún tileinkaði sér svokallaða macrobiotic diet sem í raun má segja að sé vestræn útgáfa af japönsku mataræði. En henni tókst þó ekki að hafa áhrif á föður sinn sem vissi ekkert betra en pylsur og kínverskan mat. Þetta varð hins vegar til þess að hún sjálf breytti algjörlega sínu eigin mataræði. Hún sneri blaðinu algjörlega við og keypti eingöngu, lífrænan mat, beint af býli, borðaði samkvæmt macrobiotic mataræðinu og sniðgekk mjólkurafurðir, sykur, kjöt, áfengi og glúten. Þessu mataræði hélt hún í talsverðan tíma, eða þar til hún varð ófrísk. Núna fer hún hinn gullna meðalveg sem ég er svo hrifin af. Hún leggur mikið upp úr jafnvæginu og hefur allt það óholla í hófi. Kona að mínu skapi.

Í þessu samhengi langar mig aðeins að fjalla um macrobiotic mataræðið. Í bókinni Life Over Cancer er fjallað talsvert mikið um þetta mataræði, kosti þess og galla.  Þar kemur fram að macrobiotic mataræðið leggi mikla áherslu á grófmeti, grænmeti (mikið um grænmeti af cruciferous tegund líkt og spergilkál og blómkál), fiski og takmarka neyslu ávaxta. Höfundur bókarinnar fjallar um það að hann hafi komist yfir mígreni og magasár á þessu mataræði og í kjölfarið hafi hann farið að skoða áhrif þess á myndun krabbameins. Hann hefur lengi notað ákveðna þætti mataræðisins í ráðgjöf sinni en segir hins vegar að í gegnum tíðina hafi hann áttað sig á því að þessi tegund mataræðis innihaldi ekki næstum allar þær fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini og geti í raun í sumum tilvikum leitt til næringarskorts hjá krabbameinssjúklingum.

En aftur að Gwyneth og bókinni hennar. Ég vaknaði snemma í morgun og bakaði bláberjamúffur fyrir dóttur mína og frábæru pössunarpíurnar hennar. Uppskriftina er að finna í bókinni hennar Gwyneth nema ég gerði nokkrar breytingar á henni. Þetta voru virkilega góðar múffur, góðar með morgunkaffinu, lausar við hvítan sykur, hvítt hveiti og egg. Það eina sem þarf að taka út úr minni uppskrift til að gera hana vegan er AB mjólkin. Ég er voða hrifin af AB mjólk í múffum og brauðum en Gwyneth notaði sojamjólk í sínar þannig að ég prófa það örugglega næst. Hér kemur uppskriftin.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: bláber

Uppskrift
gerir um 12 múffur

½ bolli ólífuolía
1 bolli AB mjólk
½ bolli maple síróp
¼ bolli agave síróp
1 bolli fínmalað spelt
1 bolli grófmalað spelt
2 tsk. vínsteinslyftiduft
½ tsk. salt
2 bollar frosin/fersk bláber

Hitið ofninn í 180°C.

Blandið þurrefnum saman í skál og vökvanum í aðra skál. Bætið vökvanum hægt og rólega saman við þurrefnin og hrærið. Blandið að lokum bláberjunum saman við. Komið fyrir í múffuformum og bakið í 25-30 mínútur eða þar til múffurnar eru bakaðar í gegn.

Filed under: Bækur, bláber, Morgunmatur, sætindi, Uppskriftir, , , , ,

10 árum yngri á 10 vikum og 4 smoothie-uppskriftir

Um helgina las ég nýju bókina hennar Þorbjargar Hafsteinsdóttur sem allt virðist ganga út á þessa dagana. Þetta er falleg bók, flott uppsett og mjög gott innlegg í það fátæklega úrval bóka sem fjalla um heilsutengd málefni á íslensku. Það má hins vegar í raun segja að ég hafi eiginlega spænt bókina í mig, hún er alveg ofboðslega fljótlesin og talsvert mikið um endurtekningar. Meginþemað í lífstíl Þorbjargar er svipað og hjá mörgum þeim aðilum sem ég les eftir í sambandi við krabbameinsforvarnir, þ.e. fæða sem er laus við sykur og hvítt hveiti. Þorbjörg leggur einnig mikla áherslu á holla fitu og próteinríkan mat. Þetta fellur vel að Life Over Cancer prógramminu sem ég fjallaði um fyrir nokkrum vikum og þá sérstaklega fyrir aðila sem eru vannærðir og eru að ganga í gegnum krabbameinsmeðferð eða að byggja sig upp eftir slíka meðferð. Til að gera langa sögu stutta þá má eiginlega segja að ég mæli með bókinni fyrir alla þá sem vilja breyta um lífstíl og taka róttækt skref í átt að heilbrigðara líferni. Fyrir lengra komna er bókin að sjálfsögðu líka fín, en mér fannst kannski á einstaka stað vanta dýpri umræðu, en þó er eitthvað um tilvísanir í heimildir og svo er ágætur listi aftast í bókinni yfir bækur og fleira sem hún mælir með.

En í hvert skipti sem maður les bók eins og þessa þá bæði lærir maður eitthvað nýtt og tekur örlítið nýja stefnu, þó svo að stundum sé það aðeins tímabundið. Hjá mér var það hörfræjaolían sem ég ákvað að bæta inn hjá mér. Ég hef alltaf verið mikill talsmaður omega-3 ríkrar fæðu en yfirleitt notað fræin frekar en olíurnar. Ég nota chia fræ, hamp fræ og hörfræ mikið í smoothie-ana mína og mæli klárlega með því. En eftir að lesa bókina ákvað ég að byrja að nota hörfræjaolíuna líka í smoothie-ana. Þorbjörg leggur einnig mikla áherslu á próteinríka fæðu þannig að ég hef verið að passa að setja hamp duftið út í smoothieana líka. Ég er hrifnari af hamp prótíni heldur en mysupróteininu og nota það þess vegna. Hamp fæ ég aldrei nóg af því að tala vel um. Vonandi fara flysjuðu hamp fræin bara að fást á Íslandi.

Mig langar að enda umræðuna um bókina 10 árum yngri á 10 vikum á því að nefna að bókin inniheldur talsvert mikinn fróðleik um hórmónajafnvægi kvenna og sérstök vandamál tengd bæði óreglulegum blæðingum og breytingaskeiðinu. Þar leggur Þorbjörg mikla áherslu á neyslu hollrar fitu og það hve mikilvægt er að sniðganga sykurinn og hveitið. Þessa upplýsingar tel ég að geti hjálpað mörgum konum að vinna gegn bæði andlegum sem líkamlegum kvillum sem tengjast hórmónaójafnvægi í líkamanum.

Ég hef núna í tvo daga verið að búa mér til smoothie-a tvisvar á dag og ég held að prótínið og fitan í hörfræjaolíunni sé að verða til þess að ég helst södd lengur en áður. Ég verð vel södd og líður vel eftir að drekka þá. Hér koma uppskriftir að smoothie-unum sem ég hef drukkið síðastliðna tvo daga. En fyrst ein falleg mynd sem tekin var á toppi Snæfellsjökuls um helgina.

Uppskriftirnar inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir
: jarðaber, banani, límóna, hindber, döðlur, brómber, rifsber, acai ber
Krydd:
 cayenne pipar
Hnetur og fræ: 
hemp fræ, hörfræ,

Mettandi morgunsmoothie
fyrir 1-2

1 banani
1 bolli sojamjólk frá Provamel
1 tsk. bee pollen
1 ½ msk. hemp duft
1 ½ tsk. hörfræ
hindber (tæplega 1 bolli)
1 msk. hörfræolía
klakar

Allt sett í blender og drukkið með bros á vör. Gott er að setja hörfræjaolíuna út í þegar allt hefur blandast vel saman og blanda henni saman við í örstutta stund.

Súkkulaðiparadís
fyrir 1-2

¾ bolli sojamjólk (frá Provamel)
½ bolli vatn
2 ½ tsk. lecitin granules
1 msk. hamp duft
½ tsk. acai duft
2 tsk. hrátt kakó
5 ferskar döðlur
1 stór frosinn banani
1 msk. hörfræjaolía

Allt sett í blender og drukkið með bros á vör. Gott er að setja hörfræjaolíuna út í þegar allt hefur blandast vel saman og blanda henni saman við í örstutta stund.

Dúllusmoothie
fyrir 1-2

1 bolli sojamjólk
1 banani
1 msk. bee pollen
1 msk. hamp duft
1 msk. hörfræ
1 msk. hörfræolía
1 bolli frosin jarðaber
safi úr ½ límónu
cayenne pipar á hnífsoddi
smá klakar

Allt sett í blender og drukkið með bros á vör. Gott er að setja hörfræjaolíuna út í þegar allt hefur blandast vel saman og blanda henni saman við í örstutta stund.

Skógarberjasmoothie
fyrir 1-2

¾ bolli sojamjólk frá Provamel
½ bolli vatn
1 msk. hamp duft
1 msk. lecithin granules
1 banani
1 bolli skógarberjablanda
klakar
1 msk. hörfræolía

Allt sett í blender og drukkið með bros á vör. Gott er að setja hörfræjaolíuna út í þegar allt hefur blandast vel saman og blanda henni saman við í örstutta stund.

Njótið!

Filed under: acai ber, bananar, Bækur, brómber, chili pipar, döðlur, hörfræ, hemp fræ, hindber, jarðaber, Morgunmatur, sítrus ávextir, sojabaunir, Uppáhalds, Vegan,

Life over cancer og uppbyggjandi smoothie

Þessa dagana er ég að lesa einstaklega athyglisverða og fræðandi bók sem heitir Life over Cancer og er eftir Keith I. Block, MD. Bókin kom út árið 2010 og fjallar um þær aðferðir sem Block og starfsfólk hans í Block Center for Integrative Cancer Treatment notar í meðferðum gegn  krabbameini. Block leggur mikla áherslu á heildarjafnvægi líkamans, þ.e. andlegt og líkamlegt, og kemur mataræði þar mikið við sögu. Hann fjallar mikið um ástand sem nefnist cachexia og þýðir ástand þar sem einstaklingur tapar umtalsverðri líkamsþyngd án þess að vera að reyna að léttast. Þetta ástand er algengt meðal krabbameinssjúklinga og leiðir í mörgum tilvikum til þess að viðkomandi verður alvarlega vannærður og er afleiðingin oft á tíðum verri útkoma úr meðferðinni. Í bókinni kemur fram að krabbameinssjúklingar eru næstalgengasti hópurinn til þess að upplifa næringarskort meðal sjúklinga, á eftir alnæmissjúklingum. Block leggur miklar áherslu á að neyta hollrar fæðu til að vinna gegn ástandi sem þessu og þá sérstaklega bólguhamlandi fæðu sem er rík af omega 3, andoxunarefnum og forðast fæðu sem inniheldur mikið magn af omega 6. Hann mælir sérstaklega með efnum sem finnast í góðri ólífuolíu, te-i og granata epli. Einnig leggur hann miklar áherslu á próteinríka fæðu, og þá að próteinin komi úr jurtum, feitum fiski, lífrænum kjúklingi eða eggjum. Read the rest of this entry »

Filed under: acai ber, bananar, Bækur, Drykkir, granata epli, hemp fræ, jarðaber, Morgunmatur, sojabaunir, Vegan, , , , , , , ,

Dásemdardjúsar

Djúsar og detox virðist vera aðalmálið þessa dagana. Það byrjuðu margir árið á nokkurra daga detoxi þar sem drukkið var mikið af nýpressuðum söfum. Ég er lítil kúramanneskja og hef því aldrei prófa að drekka bara djúsa í nokkra daga. Ég verð þó að viðurkenna að mig langar pínulítið að prófa það, meira forvitninnar vegna heldur en það að ég þurfi endilega á hreinsuninni að halda. Ég held því fram að maður geti vel haldið sé “hreinum” með vægari hreinsunaraðgerðum en þessum, t.d. með því að drekka vel af rauðrófusafa, sérstaklega á fastandi maga. Mér finnst ótrúlega gott að setja 2-3 msk. af eplaediki út í rauðrófusafann minn og svo vel af klökum. Þannig drekk ég hann yfirleitt og fæ held ég nokkuð góða hreinsun með því.

Ég hef þó aðeins verið að fikra mig áfram með djúsana. Mér finnst ég einnig heyra mikið talað um súrt og basískt fæði og bólguhvetjandi áhrif súra fæðisins. Eins og ég hef oft fjallað um hér á síðunni þá er myndast krabbamein mjög gjarnan í bólgum og er þetta efni því viðeigandi hér. Djúsarnir eru yfirleitt basískir og þannig bólguhamlandi og því er gott að drekka talsvert af þeim. Ég hef reynt að nota steinselju og aðrar ferskar kryddjurtir í mína djúsa vegna þess hve mikið af öflugum plöntuefnum er að finna í þeim. Steinseljan er ótrúlega öflug og ferska kóríanderið líka. Read the rest of this entry »

Filed under: Bækur, engifer, epli, gulrætur, sítrus ávextir, sellerí, steinselja, , , , , , , ,

Crazy Sexy Diet

Þessa dagana er ég alveg á bólakafi í nýju æðislegu Crazy Sexy Diet bókinni minni eftir Kris Carr. Ég er einstakur aðdáandi Kris Carr enda er hún alveg geislandi af orku, heilbrigði, fegurð og hamingju. Ég hef fjallað nokkrum sinnum um hana hér á síðunni og því ætti hún að vera lesendum kunnug (ef ekki, kíkið þá t.d. á þessa færslu). Eins og við var að búast er bókin algjör gullmoli, full af upplýsingum, uppskriftum og góðum ráðum. Það má eiginlega segja að það hafi lítið sem ekkert pláss farið til spillis í bókinni, hún er það troðin af fróðleik. Kris fær til liðs við sig fremstu sérfræðinga á sviði forvarna gegn krabbameini, s.s. Dean Ornish, Alejandro Junger og Mark Hyman sem allir setja sín sjónarmið fram á skýran og greinargóðan hátt. Read the rest of this entry »

Filed under: Bækur, , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: