Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Uppáhalds morgunmaturinn minn – stálslegnir hafrar

Ég held ég reyni ekkert að bæta upp fyrir allt sluxið hér á síðunni með langri og yfirgripsmikilli færslu. Best bara að gleyma fortíðinni og horfa fram á við. Núna er ég vöknuð til lífsins eftir langt og heilt á litið frekar óhollt sumar, en þó mjög yndislegt að öðru leyti. Ég hef þó tekið upp á ýmsum hollum nýjungum í sumar og það má líklega segja að steel cut morgunmaturinn standi upp úr. Stálslegnir hafrar, eða steel cut eins og við köllum þá, eru heilir hafrar sem hafa verið skornir gróft niður. Þetta líkist örlítið byggi en er þó aðeins fíngerðara. Grauturinn er grófari og allt öðruvísi undir tönn en annar hafragrautur. Mín reynsla er sú að maður getur ekki snúið aftur í gamla hafragrautinn eftir að maður byrjar á þessum.

Aðal kostirnir við steel cut hafrana eru eftirfarandi:

-Þeir eru mun minna unnir en aðrir malaðir hafrar sem yfirleitt eru hitaðir upp og síðan unnir í misgrófar flögur. Við það tapast talsvert magn af trefjum og eru steel cut hafrar því trefjaríkari en aðrir meira unnir hafrar.
-Eru járnríkari, og líklega næringarríkari af fleiri næringarefnum, en malaðir hafrar
-Eru glúteinlausir á meðan malaðir hafrar eru það yfirleitt ekki.

Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér kostunum við að fæðutegundir séu glútenlausar. Fyrir þá sem ekki vita er glúten prótein sem finnst í hveiti, byggi, höfrum, spelti og fleiri korntegundum. Mark Hyman skrifar litla kafla í bókina hennar Kris Carr, Craxy Sexy Diet, þar sem hann hvetur fólk eindregið til að hætta að borða glúten, og þá sérstaklega þeir sem eru með viðkvæman ristil og meltingu. Hann skrifaði líka góða grein um þetta á Huffington Post – endilega kíkið á hana hér (kannski pínu öfgakenndur titill en greinin er góð engu að síður). Hann talar um tvær fræðigreinar í umfjöllunum sínum sem báðar eru birtar í mjög virtum læknatímaritum, annars vegar í Journal of the American Medical Association [greinin] og hins vegar í New England Journal og Medicine [greinin].Í greinunum kemur fram að neysla glútenríkra matvæla geti aukið líkurnar talsvert á að fá alvarlega sjúkdóma eins og hjartasjúkdóma og krabbamein. Í síðarnefndri greininni eru taldir upp 55 sjúkdómar sem geta komið til vegna neyslu glútens – magnað að mínu mati.  Mark nefnir einnig að stór hluti fólks eigi erfitt með að melta glúten án þess að vera meðvitað um það og því hvetur hann fólk eindregið til að minnka neyslu glútens eða stöðva hana alfarið.

Fyrsta skrefið í átt að minni glútenneyslu gæti verið að byrja að borða steel cut hafragraut í morgunmat. Ég geri hann þannig að ég set hafrana upp að kvöldi til – læt suðuna koma upp, slekk undir, set lokið á pottinn og læt grautinn kólna yfir nótt. Að morgni kveiki ég svo aftur undir, bæti smá vatni út í og læt hann sjóða í nokkrar mínútur. Þá er grauturinn tilbúinn. Ég strái síðan yfirleitt yfir hann fræjum og borða hann með eplum eða berjum. Um helgar og þegar ég vil vera sérstaklega góð við sjálfan mig þá set ég eins og matskeið af 100% hreinu maple sírópi út á grautinn. Maple síróp er annað sem ég hef verið talsvert mikið að kynna mér og áttaði mig fljótt á að ég hef í gegnum tíðina alls ekki verið að nota alvöru maple síróp. Gamla góða Steves maple sírópið, og önnur “maple síróp” eins og Canada’s Best og fleiri, eru uppfullt af sykri og innihalda oft einungis maple bragðefni. Alvöru maple síróp hefur fullt fullt af góðum eiginleikum fyrir heilsuna og er sérstaklega næringarríkt Ég rakst meira að segja á talsvert af fréttagreinum á netinu sem fjölluðu um rannsóknir sem benda til þess að maple síróp vinni gegn krabbameini. Eftir miklar pælingar er mín niðurstaða sú að maple sírópið frá Rapunzel sé það allra besta. Það er lífrænt, dökkt og flokkast í flokk C sem þýðir að það er bragðmeira og ekki eins sætt og flokkur A og B. En yfir í uppskriftina.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Kornmeti: hafrar
Ávextir: epli/ber/mangó
Fræ: hörfræ/hampfræ/graskersfræ – hveitikím (ekki glútenlaust)

1 bollu stálslegnir hafrar (e. steel cut oats frá Bobs Red Mill – fæst í Kosti)
3 bollar vatn
1 epli/mangó/ber eða annar litríkur ávöxtur
smá 100% hreint maple síróp
örlítið salt
1 tsk. bee pollen á hvern disk (má sleppa)
1 msk. hampfræ/hörfræ/graskersfræ eða annað ofurhollt á hvern disk
1 tsk. hveitikím (inniheldur glúten)
smá sletta af uppáhalds mjólkinni þinni (má sleppa)

Setjið vatn og hafra í pott að kvöldi og látið suðuna koma upp. Slökkvið undir – setjið lokið á pottinn og látið standa yfir nótt. Kveikið undir að morgni og sjóðið í nokkrar mínútur – bætið vatni út í eftir smekk. Stráið fræjum og öðrum toppingum á og berið fram.

About these ads

Filed under: bláber, chia fræ, epli, goji ber, graskersfræ, Greinar, hafrar, hörfræ, hemp fræ, hveitikím, kanill, mangó, möndlur, Morgunmatur, Uppáhalds, Vegan

Kínóagrautur með bláberjum og chia fræjum

Eins og ég hef fjallað um svo oft áður þá eru chia fræ í miklu uppáhaldi, stútfull af omega 3 fitusýrum og þannig bólguhamlandi. En chia fræin innihalda líka talsvert rík af öðrum næringarefnum. Hlutfallslega eru þau próteinrík, en einnig rík af kalki og magnesíumi. Ég nota chia fræin í smoothie-a, út á jógúrt og í grauta. Mér finnst voða gott að blanda saman jógúrti múslí, frosnum berjum og chia fræjum og láta standa í ísskápnum í svona klukkustund áður en ég borða það, þá eru chia fræin aðeins búin að draga vökvann í sig og orðin skemmtilegri undir tönn.

En ástæðan fyrir því að ég gerði þennan graut er að ég horfði á viðtalið við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur á mbl. Þar fjallar hún um hitt og þetta, aðallega það að íslendingar séu of feitir, og leggur mikla áherslu á það að viðaukum próteinneyslu okkar, sérstaklega á morgana. Þetta er fínt viðtal og svona af því ég er nýbúin að kaupa mér uppskriftabókina hennar þá vil ég mæla eindregið með henni. Ég sit og skrifa þessa færslu og drekka steinseljuþeyting úr bókinni sem er alveg ótrúlega góður. Steinselja er svo einstaklega mikið ofurfæði og frábært að ná að dæla í sig tveimur lúkum af steinselju í bragðgóðum smoothie.

En eftir að horfa á viðtalið  þá ákvað ég að byrja að borða próteinríkari morgunmat og gerði í framhaldinu þennan graut. Hann inniheldur kínóa sem er sérstaklega próteinríkt fræ. Ég hef nokkrum sinnum gert kínóagraut sem inniheldur eingöngu kínóa og mér hefur ekki fundist það nægilega gott, þannig að ég ákvað að hafa þennan líka með höfrum og þá fínum hafraflögum. Bláberin fannst mér passa vel með en auk þess las ég fyrir stuttu um nýútgefna rannsókn á bláberjum og áhrifum þess á krabbameinsmyndun. Niðurstaða rannsóknarinnar, sem gerðar voru á músum (eins og svo oft er), voru þær að bláberjaduft sem notað var í rannsókninni hafði krabbameinshamlandi áhrif á tiltekna tegund brjóstakrabbameinsfruma (MDA-MB-231 triple negative breast cancer (TNBC) cells)  og minnkaði líkurnar á meinvörpum [heimild]. Þessi rannsókn er að sjálfsögðu bara ein af fjölmörgum rannsóknum sem hafa sýnt fram á krabbameinshamlandi áhrif bláberja sem og annarra berja. Meira um það síðar. En yfir í grautinn.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: bláber
Kornmeti og fræ: 
hafrar, kínóa, chia fræ
Annað: jógúrt

Uppskrift
fyrir 1

2/3 bolli vatn
3 msk. kínóa
2 msk. fínar hafraflögur
2 tsk. maple síróp
1 tsk. chia fræ
2-3 msk. frosin bláber
3 msk. kókos- eða hrein jógúrt frá BíóBú

Setjið vatn og kínóa saman í pott og hitið þar til suðan kemur upp. Sjóðið í 10 mínútur með lokið á pottinum. Lækkið undir. Bætið þá haframjöli saman við. Hrærið vel og látið hafrana draga afganginn af vatninu í sig. Blandið þá maple sírópi og frosnum berjum saman við. Hrærið vel saman. Slökkvið undir. Hrærið chia fræjum saman við. Hellið í skál og berið fram með jógúrti.

Filed under: bláber, chia fræ, haframjöl, Morgunmatur, Uppáhalds

My fathers daughter og bláberjamúffurnar hennar Gwyneth

Nýjasta kokkabókin í safnið mitt er bókin My fathers daughter eftir Gwyneth Paltrow. Ég hef fylgst með síðunni hennar, Goop, í talsverðan tíma og veit að hún hugsar mikið um heilsuna. Mér finnst hún líka bara eitthvað svo ótrúlega sæt að ég varð að kaupa mér bókina hennar. Þetta er falleg bók með mikið af girnilegum uppskriftum. Margar hverjar eru þetta uppskriftir að klassískum réttum sem hún hefur skipt út óhollustu fyrir hollari innihaldsefni. Það er ekkert eitt þema sem er gegnumgangandi í bókinni heldur virðast uppskriftirnar vera svona sitt lítið af hverju, en eiga það sameiginlegt að tengjast allar föður hennar á einhvern hátt.

Í inngangi bókarinnar fjallar Gwyneth um pabba sinn og þeirra samband. Þau virðast hafa verið afskaplega náin og tengd feðgin og hennar áhugi á mat sprettur frá ástríðu föður hennar fyrir mat og víni. Hún fjallar um veikindi hans, en hann greindist með krabbamein í hálsi árið 1998. Þegar faðir hennar veiktist varð hún sannfærð um að hann gæti læknast með réttu mataræði og óhefðbundnum lækningum. Hún las sig mikið til um tengsl mataræðis og krabbameins og aðferðir til þess að vinna gegn krabbameini. Hún tileinkaði sér svokallaða macrobiotic diet sem í raun má segja að sé vestræn útgáfa af japönsku mataræði. En henni tókst þó ekki að hafa áhrif á föður sinn sem vissi ekkert betra en pylsur og kínverskan mat. Þetta varð hins vegar til þess að hún sjálf breytti algjörlega sínu eigin mataræði. Hún sneri blaðinu algjörlega við og keypti eingöngu, lífrænan mat, beint af býli, borðaði samkvæmt macrobiotic mataræðinu og sniðgekk mjólkurafurðir, sykur, kjöt, áfengi og glúten. Þessu mataræði hélt hún í talsverðan tíma, eða þar til hún varð ófrísk. Núna fer hún hinn gullna meðalveg sem ég er svo hrifin af. Hún leggur mikið upp úr jafnvæginu og hefur allt það óholla í hófi. Kona að mínu skapi.

Í þessu samhengi langar mig aðeins að fjalla um macrobiotic mataræðið. Í bókinni Life Over Cancer er fjallað talsvert mikið um þetta mataræði, kosti þess og galla.  Þar kemur fram að macrobiotic mataræðið leggi mikla áherslu á grófmeti, grænmeti (mikið um grænmeti af cruciferous tegund líkt og spergilkál og blómkál), fiski og takmarka neyslu ávaxta. Höfundur bókarinnar fjallar um það að hann hafi komist yfir mígreni og magasár á þessu mataræði og í kjölfarið hafi hann farið að skoða áhrif þess á myndun krabbameins. Hann hefur lengi notað ákveðna þætti mataræðisins í ráðgjöf sinni en segir hins vegar að í gegnum tíðina hafi hann áttað sig á því að þessi tegund mataræðis innihaldi ekki næstum allar þær fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini og geti í raun í sumum tilvikum leitt til næringarskorts hjá krabbameinssjúklingum.

En aftur að Gwyneth og bókinni hennar. Ég vaknaði snemma í morgun og bakaði bláberjamúffur fyrir dóttur mína og frábæru pössunarpíurnar hennar. Uppskriftina er að finna í bókinni hennar Gwyneth nema ég gerði nokkrar breytingar á henni. Þetta voru virkilega góðar múffur, góðar með morgunkaffinu, lausar við hvítan sykur, hvítt hveiti og egg. Það eina sem þarf að taka út úr minni uppskrift til að gera hana vegan er AB mjólkin. Ég er voða hrifin af AB mjólk í múffum og brauðum en Gwyneth notaði sojamjólk í sínar þannig að ég prófa það örugglega næst. Hér kemur uppskriftin.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: bláber

Uppskrift
gerir um 12 múffur

½ bolli ólífuolía
1 bolli AB mjólk
½ bolli maple síróp
¼ bolli agave síróp
1 bolli fínmalað spelt
1 bolli grófmalað spelt
2 tsk. vínsteinslyftiduft
½ tsk. salt
2 bollar frosin/fersk bláber

Hitið ofninn í 180°C.

Blandið þurrefnum saman í skál og vökvanum í aðra skál. Bætið vökvanum hægt og rólega saman við þurrefnin og hrærið. Blandið að lokum bláberjunum saman við. Komið fyrir í múffuformum og bakið í 25-30 mínútur eða þar til múffurnar eru bakaðar í gegn.

Filed under: Bækur, bláber, Morgunmatur, sætindi, Uppskriftir, , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: