Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Hindberjamúffur með sítrónu

Það er ekki hægt að segja annað en að þessar múffur séu hollari týpan. Ég vann uppskriftina upp úr annarri uppskrift sem átti þó að vera í hollari kantinum en innihélt samt hvítt hveiti og hvítan sykru, sem ég reyni að forðast eftir fremsta megni. Ég hef verið að prófa mig áfram með kókospálmasykur og finnst hann alveg frábær. Hann er líka næringarríkur og hefur mikið minni áhrif á blóðsykurinn heldur en venjulegur sykur og púðursykur. Kókospálmasykur er líka ríkur af járni, magnesíumi, sinki og hinum ýmsu b-vítamínum. Auk þess lyktar hann og bragðast ótrúlega vel. Til að gera þær enn hollari mætti skipta hrásykrinum út fyrir hágæða maple síróp, en þá þarf líklega að bæta örlítið meira spelti við. Ég prófa það næst. Þessar múffur er tilvaldar með eftirmiðdagskaffinu eða með morgunmatnum á sunnudögum.

Image

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: hindber, sítróna
Kornmeti: spelt
Annað: ab mjólk

börkur af 1 sítrónu

¼ bolli kókospálmasykur
¼ bolli hrásykur
3 msk. kókosolía
2 egg
1 bolli ab mjólk
1 tsk vanilla
1 bolli grófmalað spelt
1 bolli fínmalað spelt
2 tsk. vínsteinslyftiduft
1 tsk. matarsódi
¼ tsk. salt
1 ½ bolli frosin hindber

Hita ofninn í 180°C.

Blanda saman sykri og berki af sítrónu, bæta svo ab mjólk út í og hræra. Bæta eggi og kókosolíu saman við og hræra.

Blanda spelti, lyftidufti, matarsóda og salti saman. Blanda þurrefnum saman við blautefni. Blanda hindberjum saman við. Skiptið deiginu í 12 form og bakið í 20 mínútur.

About these ads

Filed under: hindber, Rannsóknir, sætindi, sítrus ávextir,

Hindberjaskonsur

Hvað er betra en hindberjaskonsur? Fátt held ég bara. Þessar eru með kókosfeiti í staðin fyrir smjör og agave sírópi í staðin fyrir sykur. Ég fékk uppskriftina í bók sem heitir Babycakes og er bók sem inniheldur uppskriftir að vegan kökum. Það er nánast allt ofurgirnilegt í bókinni en þessi uppskrift æpti eitthvað sérstaklega á mig. Ég bætti svo örlitlu twisti í hana eftir mínu höfði. Ég gerði út um vegan-stimpilinn með því að bæta ab-mjólk út í hana. Það er alls ekkert nauðsynlegt. Mér finnst ab mjólk bara alltaf passa vel í bæði brauð og skonsur – en það er mjög líklega bara hægt að bæta örlítið meira vatni út í þær ef að fólk er viðkvæmt fyrir mjólkurafurðum.

Þessar skonsur eru sérstaklega fljótlegar og mjög einfaldar – tilvalin uppskrift á sunnudegi til að bæta einhverju örlítið sætu en sykurlausu við afslöppunina.

Uppskrift
gerir 9-12 skonsur 

2 bollar heilhveiti
1 msk. lyftiduft
1/4 tsk. malaðar kardimommur
1/2 tsk. salt
1/3 bolli kókosolía
1/3 bolli agave síróp
1 msk. vanilludropar
1/4 bolli heitt vatn
1/4 bolli ab mjólk
1 bolli frosin eða fersk hindber

Hitið ofninn upp í 180°C.

Hrærið saman þurrefnum. Bætið  því næst kókosolíu, agave sírópi og vanilludropum saman við og síðan vatni og ab mjólk. Blandið vel saman. Hrærið hindberjunum varlega saman við. Mótið kúlur á bökunarpappír og bakið við 180°C í 14-15 mínútur.

Filed under: hindber, kardimommur, sætindi

Unaðslegur chia morgunverður með möndlum og berjasósu

Mér finnst fátt huggulegra en að vakna útsofin um helgar og búa til hollan og góðan morgunmat fyrir mig og mína. Þessi morgunmatur krefst örlítils undirbúnings þar sem mikilvægt er að leggja hafrarna og chia fræin í bleyti í eplasafa yfir nótt. Þetta tekur engan stund og ætti ekki að vefjast fyrir neinum. Þegar maður vaknar er morgunmaturinn síðan nánast tilbúinn. Eina sem maður þarf að gera er að hita berin með maple sírópi í potti og dreifa öllu saman í skál. Einfaldara verður það varla. Ég hvet fólk því til að prófa þessa góðu uppskrift um páskana. Alveg tilvalið að vakna á páskadagsmorgun og borða hollan morgunmat áður en maður fer að belja sig út af óhollustunni.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: brómber, hindber
Hnetur og fræ:
chia fræ, möndlur
Kornmeti: 
hafrar

Uppskrift
fyrir 4

Chia hafragrautur

1 bolli tröllahafrar
1 bolli hágæða eplasafi
3 msk. chia fræ

Blandað saman í skál og geymt í ísskáp yfir nótt.

Berjasósa

1 bolli berjablanda – hindber/brómber/rifsber/bláber
1 msk. maple síróp

Allt hitað saman í potti í 3-4 mínútur þar til allt er orðið mjúkt og vel blandað saman.

Annað:

2 bollar Hreint jógúrt/ab mjólk/hrís mjólk/soja mjólk
1/2 bolli möndlur eða eftir smekk

Dreifið chia grautnum í 4 skálar. Hellið smá hreinu jógúrti/ab mjólk (eða hrísmjólk/sojamjólk) í skálina. Dreifið möndlum yfir og því næst hellið berjasósunni yfir. Berið fram og njótið.

Filed under: brómber, chia fræ, haframjöl, hindber, möndlur, Morgunmatur, Uppáhalds

10 árum yngri á 10 vikum og 4 smoothie-uppskriftir

Um helgina las ég nýju bókina hennar Þorbjargar Hafsteinsdóttur sem allt virðist ganga út á þessa dagana. Þetta er falleg bók, flott uppsett og mjög gott innlegg í það fátæklega úrval bóka sem fjalla um heilsutengd málefni á íslensku. Það má hins vegar í raun segja að ég hafi eiginlega spænt bókina í mig, hún er alveg ofboðslega fljótlesin og talsvert mikið um endurtekningar. Meginþemað í lífstíl Þorbjargar er svipað og hjá mörgum þeim aðilum sem ég les eftir í sambandi við krabbameinsforvarnir, þ.e. fæða sem er laus við sykur og hvítt hveiti. Þorbjörg leggur einnig mikla áherslu á holla fitu og próteinríkan mat. Þetta fellur vel að Life Over Cancer prógramminu sem ég fjallaði um fyrir nokkrum vikum og þá sérstaklega fyrir aðila sem eru vannærðir og eru að ganga í gegnum krabbameinsmeðferð eða að byggja sig upp eftir slíka meðferð. Til að gera langa sögu stutta þá má eiginlega segja að ég mæli með bókinni fyrir alla þá sem vilja breyta um lífstíl og taka róttækt skref í átt að heilbrigðara líferni. Fyrir lengra komna er bókin að sjálfsögðu líka fín, en mér fannst kannski á einstaka stað vanta dýpri umræðu, en þó er eitthvað um tilvísanir í heimildir og svo er ágætur listi aftast í bókinni yfir bækur og fleira sem hún mælir með.

En í hvert skipti sem maður les bók eins og þessa þá bæði lærir maður eitthvað nýtt og tekur örlítið nýja stefnu, þó svo að stundum sé það aðeins tímabundið. Hjá mér var það hörfræjaolían sem ég ákvað að bæta inn hjá mér. Ég hef alltaf verið mikill talsmaður omega-3 ríkrar fæðu en yfirleitt notað fræin frekar en olíurnar. Ég nota chia fræ, hamp fræ og hörfræ mikið í smoothie-ana mína og mæli klárlega með því. En eftir að lesa bókina ákvað ég að byrja að nota hörfræjaolíuna líka í smoothie-ana. Þorbjörg leggur einnig mikla áherslu á próteinríka fæðu þannig að ég hef verið að passa að setja hamp duftið út í smoothieana líka. Ég er hrifnari af hamp prótíni heldur en mysupróteininu og nota það þess vegna. Hamp fæ ég aldrei nóg af því að tala vel um. Vonandi fara flysjuðu hamp fræin bara að fást á Íslandi.

Mig langar að enda umræðuna um bókina 10 árum yngri á 10 vikum á því að nefna að bókin inniheldur talsvert mikinn fróðleik um hórmónajafnvægi kvenna og sérstök vandamál tengd bæði óreglulegum blæðingum og breytingaskeiðinu. Þar leggur Þorbjörg mikla áherslu á neyslu hollrar fitu og það hve mikilvægt er að sniðganga sykurinn og hveitið. Þessa upplýsingar tel ég að geti hjálpað mörgum konum að vinna gegn bæði andlegum sem líkamlegum kvillum sem tengjast hórmónaójafnvægi í líkamanum.

Ég hef núna í tvo daga verið að búa mér til smoothie-a tvisvar á dag og ég held að prótínið og fitan í hörfræjaolíunni sé að verða til þess að ég helst södd lengur en áður. Ég verð vel södd og líður vel eftir að drekka þá. Hér koma uppskriftir að smoothie-unum sem ég hef drukkið síðastliðna tvo daga. En fyrst ein falleg mynd sem tekin var á toppi Snæfellsjökuls um helgina.

Uppskriftirnar inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir
: jarðaber, banani, límóna, hindber, döðlur, brómber, rifsber, acai ber
Krydd:
 cayenne pipar
Hnetur og fræ: 
hemp fræ, hörfræ,

Mettandi morgunsmoothie
fyrir 1-2

1 banani
1 bolli sojamjólk frá Provamel
1 tsk. bee pollen
1 ½ msk. hemp duft
1 ½ tsk. hörfræ
hindber (tæplega 1 bolli)
1 msk. hörfræolía
klakar

Allt sett í blender og drukkið með bros á vör. Gott er að setja hörfræjaolíuna út í þegar allt hefur blandast vel saman og blanda henni saman við í örstutta stund.

Súkkulaðiparadís
fyrir 1-2

¾ bolli sojamjólk (frá Provamel)
½ bolli vatn
2 ½ tsk. lecitin granules
1 msk. hamp duft
½ tsk. acai duft
2 tsk. hrátt kakó
5 ferskar döðlur
1 stór frosinn banani
1 msk. hörfræjaolía

Allt sett í blender og drukkið með bros á vör. Gott er að setja hörfræjaolíuna út í þegar allt hefur blandast vel saman og blanda henni saman við í örstutta stund.

Dúllusmoothie
fyrir 1-2

1 bolli sojamjólk
1 banani
1 msk. bee pollen
1 msk. hamp duft
1 msk. hörfræ
1 msk. hörfræolía
1 bolli frosin jarðaber
safi úr ½ límónu
cayenne pipar á hnífsoddi
smá klakar

Allt sett í blender og drukkið með bros á vör. Gott er að setja hörfræjaolíuna út í þegar allt hefur blandast vel saman og blanda henni saman við í örstutta stund.

Skógarberjasmoothie
fyrir 1-2

¾ bolli sojamjólk frá Provamel
½ bolli vatn
1 msk. hamp duft
1 msk. lecithin granules
1 banani
1 bolli skógarberjablanda
klakar
1 msk. hörfræolía

Allt sett í blender og drukkið með bros á vör. Gott er að setja hörfræjaolíuna út í þegar allt hefur blandast vel saman og blanda henni saman við í örstutta stund.

Njótið!

Filed under: acai ber, bananar, Bækur, brómber, chili pipar, döðlur, hörfræ, hemp fræ, hindber, jarðaber, Morgunmatur, sítrus ávextir, sojabaunir, Uppáhalds, Vegan,

Chia búðingur með hindberjum og hemp hjörtum

Um daginn fór ég á hráfæðisnámskeið sem Solla á Gló hélt þar sem Kate Magic kenndi listir sínar. Kate Magic er þekkt nafn í hráfæðisheiminum og hefur hún gefið út þrjár bækur auk þess að halda úti ferskri og skemmtilegri heimasíðu með allskyns fróðleik og uppskriftum. Námskeiðið var virkilega fræðandi og skemmtilegt. Þar lagði hún að sjálfsögðu mikla áherslu á jákvæða þætti þess að vera hráfæðisæta og kenndi okkur ýmis undirstöðuatriði.  Einn af þeim réttum sem hún galdraði fram var chia búðingur. Chia er, eins og ég hef áður fjallað um, algjört ofurfæði, stútfullt af omega 3 fitusýrum og virkilega orkugefandi. Á námskeiðinu bjó hún til búðing sem innihélt möndlumjólk, epli og rúsínur (uppskrift á síðunni hennar finnst hér). Ég þarf hins vegar alltaf að hugsa um þá útgáfu sem líklegast er að þóknist lítilli tveggja ára draumarós og þess vegna ákvað ég að hafa möndlumjólk og hindber í vökvanum og strá síðan hemp fræjum yfir áður en ég bar búðinginn fram. Ég verð þó að viðurkenna að ungfrúin hafði ekki mikla lyst á búðingnum enda dálítið skrítinn undir tönn. Mig langaði þó að birta þessa uppskrift til þess að vekja athygli á þessum möguleika, sérstaklega fyrir þá sem eru að reyna að auka inntöku á omega 3, því þetta er algjör omega 3 bomba. Til þess að nýta afganginn af búðingnum hef ég bara laumað honum í smootie-ana okkar á morgnana og það finnst litlu fínt. Ég hvet fólk til þess að kíkja á síðuna hennar Kate Magic og prófa uppskriftirnar hennar. Þær eru margar hverjar mjög spennandi.

Auk þess að vera gífurlega rík af omega 3 innihalda chia fræ einnig efnin kaempferol, quercetin og myricetin sem rannsóknir hafa sýnt að geti unnið gegn krabbameini. Kaempferol er auk þess m.a. að finna í spergilkáli og te-i. Quercetin er að finna í grænmeti (í sérstaklega miklu mæli í rauðlauk) og ávöxtum en einnig í miklu mæli í grænu te-i. Myricetin er svo einnig að finna í ávöxtum, grænmeti og te-i (heimild).

Að lokum verð ég að segja ykkur frá því að á námskeiðinu fékk ég æðislegar fréttir. Solla lýsti því yfir að fljótlega myndi hún fara að selja hemp fræin/hjörtun í línunni sinni. Þetta gladdi mig mikið, enda er ég einstakur hemp hjörtu/fræja aðdáandi. Þá get ég líka farið að birta fleiri uppskriftir með hemp hjörtum án samviskubits, því nú hafið þið fljótlega öll greiðan aðgang að þessu einstaka ofurfæði.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: hindber
Hnetur og fræ: chia fræ, möndlur, hemp fræ

Uppskrift
gerir 3-4 bolla af búðingi

1/2 bolli chia fræ
2 bollar möndlumjólk
1 bolli hindber (frosin eða fersk)
1 msk. hlynsíróp
2 msk. hemp fræ/hjörtu

Blandið öllu nema hemp fræjunum saman í skál og látið standa á borði, eða í ísskáp í að minnsta kosti 40 mínútur þannig að chia fræjin nái að bólgna vel út og mynda búðinginn. Berið fram með ávöxtum, t.d. niðurskornum banana, eða eitt og sér.

Filed under: chia fræ, hemp fræ, hindber, möndlur, , , , , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: