Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Pasta með klettasalati, basil og sítrónuolíu

Þetta pasta”salat” er einstaklega einfalt og fljótlegt. Ég er mjög hrifin af pasta þegar það er framreitt svona. Pasta er í eðli sínu frekar þungt í maga og krefst talsverðrar orku til að melta. Þess vegna finnst mér betra að nota spelt pasta eða heilhveiti pasta, það er auðmeltanlegra og næringarmeira. Hér eru svo öll hin innihaldsefnin til þess fallin að gerir salatið léttara. Klettasalat er sérstaklega hollt og gott í maga sem og ferska basilið. Parmesanosturinn er svakalega góður á bragðið þannig að það var nú varla hægt að sleppa honum en fyrir plöntuætur sé ég fyrir mér að væri fínn kostur að blanda nutritional yeast saman við olíuna áður en henni er dreypt yfir salatið. Nutritional yeast, eða næringarger, er einstaklega hollt og sérstaklega ríkt af b-vítamínum. Það bragðast mjög svipað og parmesan ostur og hentar því vel í staðin fyrir ost í brauð, buff, pottrétti, salöt og til að strá yfir popp eins og vinkona mín í Vancouver gerir alltaf. Mæli með því að fólk prófi það.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: trönuber/kirsuber
Grænmeti: klettasalat
Krydd: basil

Uppskrift
fyrir 4

400 gr. heilhveiti pennepasta
1 bolli parmesan gróft rifinn
1/2 bolli þurrkuð trönuber eða þurrkuð kirsuber
4 msk. ristaðar furhnetur
5 msk. sítrónuolía
1/2 poki klettasalat
1 bakki ferskt basil niðurskorið eða rifið
Salt og pipar eftir smekk

Sjóðið pastað í potti eftir leiðbeiningum. Hellið því í sigti og látið kalt vatn renna yfir það.

Blandið öllu nema olíunni saman í skál. Dreypið olíunni yfir salatið og hrærið vel saman við. Bætið við olíu ef þið teljið þess þurfa. Saltið og piprið eftir smekk. Skreytið með furuhnetum og þurrkuðum trönuberjum/kirsuberjum og berið fram.

About these ads

Filed under: basil, kirsuber, klettasalat, trönuber

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: