Í gær gerðum við okkur glaðan dag. Ég rölti út í Melabúð og keypti hlýra, ferskan aspas og nóg af brakandi fersku klettasalati í matinn. Ég er enginn sérstakur talsmaður þess að borða mikið grillaðan mat en stóðst ekki mátið í fallega veðrinu í gær. Ég held líka að svo lengi sem maður passar að maturinn brenni ekki á grillinu ætti þessi munaður að vera í lagi stöku sinni. En þessi umfjöllun er nokkuð góð um krabbameinsvaldandi áhrif grillaðs matar. Samkvæmt henni er mun betra að grilla fisk, og langbest að grilla grænmeti, og mikilvægt að hafa hitann ekki of háan og gott að halda áfram að pensla með marineringu eftir að grillun hefst.
Ég horfði fyrir tilviljun á þáttinn Grillað í sjónvarpinu í gær og þar var einn kokkanna að grilla fisk með misó marineringu. Þar sem ég er sérstakur aðdáandi misó varð ég að sjálfsögðu að prófa þetta strax. Ég notað svo afganginn af marineringunni yfir steikta aspasinn. Það kom mjög vel út.
En af því ég ætla ekki að skrifa mikinn fróðleik í þessari færslu þá ætla ég að pósta þessu myndskeiði sem er frábært. David Servan-Schreiber var algjörlega magnaður maður. Hann skrifaði bókina Anti Cancer sem ég hef svo oft fjallað um áður og breytti algjörlega mínu viðhorfi til matar og annarra umhverfisþátta. Hann lést í fyrra úr krabbameini en hafði þá lifað í um 20 ár eftir að greinast í annað skiptið með heilaæxli. Eftir að hann lést kom út bókin Not the Last Goodbye sem segir frá tímanum frá því að krabbameinið tók sig upp í þriðja skiptið og þar til hann lést. Hann er líklega besta dæmið um það að þrátt fyrir allt er stundum ekki hægt að stöðva mjög erfið og aggressív krabbamein. Hann fór alla leið í hefðbundnum meðferðum sem og óhefðbundnum. Ég er þó algjörlega sannfærð um það eftir að lesa bækurnar hans að hann hefði ekki lifið í öll þessi ár nema af því hann lagði sig fram á öllum vígstöðvum – þ.e. borðaði rétt, var í mikilli líkamsrækt og passaði að lágmarka snertingu sína við krabbameinsvaldandi efni og aðra umhverfiþætti sérstaklega vel.
En yfir í uppskriftina
Grillaður hlýri
500 gr. hlýri
Marinering:
3 msk. ljóst mísó
2 msk. tamari sósa eða soja sósa
2 msk. mirin
2 msk. hrísgrjónaedik
1 msk. hunang
1 msk. chili olía eða repjuolía
Öllu blandað saman í matvinnsluvél eða á annan hátt. Fisknum velt uppúr marineringunni og hann látinn marinerast í 1-2 klst.
Grillið í 3-4 mínútur á hvorri hlið, eða eftir þykkt bitanna.
Ferskur aspas
1 búnt ferskur aspas
2 msk. repjuolía eða önnur bragðlítil olía
1 msk. sesamolía
salt og pipar
Hitið olíuna á pönnu og steikið aspasinn í um 4 mínútur. Saltið og piprið og berið fram.
Salat
1 poki klettasalat
5 kirsuberjatómatar niðurskornir
1/4 rauðlaukur smátt skorinn
2-3 msk. þurrkuð trönuber
2-3 msk. ristaðar furuhnetur
Öllublandað saman í skál.
Dressing
4 msk. sýrður rjómi (10 %)
2-3 msk. dijon sinnep
1 msk. hunang
2 msk. lime safi
3 msk. góð extra virgin ólífuolía – ég notaði A deo1 msk. söxuð steinselja
salt og pipar
Blandið öllu saman í skál og hellið yfir salatið – eða hafið til hliðar fyrir hvern sem er til að hella yfir eftir vild.
Filed under: aspas, Bækur, Fiskur, klettasalat, laukur, Meðlæti, Myndskeið, Rannsóknir, Salöt, sítrus ávextir, Sósur, sesamfræ, steinselja, svartur pipar, trönuber, Uppáhalds, Anti Cancer, aspas, David Servan-Schreiber, grillaður fiskur, hlýri, miso marinering, Myndskeið, not the last goodbye









