Þegar ég stofnaði þessa síðu setti ég mér ákveðnar óformlegar grunnreglur. Til að mynda var ég ákveðin í því að skrifa ekki um það sem má ekki, þ.e.a.s. vera ekki með áróður um það að fólk verði að hætta að borða hitt og þetta til þess að koma í veg fyrir að það fái krabbamein. Ég setti mér einnig nokkrar reglur um þær uppskriftir sem ég ætlaði að birta á síðunni. Ein af þeim reglum var sú að ekki mætti vera reyktur matur í uppskriftunum. Ástæðan fyrir því er sú að mikil neysla reykts matar er talið auka líkurnar á krabbameini í vélinda, maga og ristli. Þegar ég var að vafra um á netinu fyrir nokkru síðan og lesa mig til um áhrif reykts matar á líkurnar á að fá krabbamein rambaði ég niður á gamla grein frá 1958 sem birtist í British Journal of Cancer. Í greininni (sem finnst hér á síðunni undir greinar) kemur fram að há tíðni magakrabbameins á Íslandi, á árum áður, var hægt að rekja til mataræðis þess tíma, sem samanstóð að miklu leyti á reyktu kjöti og reyktum fisk auk þess að innihalda lítið af ávöxtum og grænmeti.
Fyrrgreinda reglu verð ég þó að brjóta í þetta sinn. Það eru tvær ástæður fyrir því, annars vegar að þetta er reyktur lax, sem inniheldur mikið magn af omega 3 fitusýrum sem eru hvað áhrifaríkasta vörnin gegn krabbameini, þ.e.a.s. með því að vinna á bólgum í líkamanum og koma því í veg fyrir að krabbamein myndist í bólguvefjum, eins og algengt er. Hin ástæðan er einfaldlega sú að stundum eru hlutirnir það góðir að maður þarf að leyfa sér að njóta þeirra, þótt sjaldan sé. Það á við um þennan rétt. Hann er þó ekki alslæmur heilsulega séð. Hann inniheldur graslauk, capers, þistilhjörtu, rauða pariku og klettasalat sem ættu að geta unnið á móti þeim reykta laxi sem uppskriftin inniheldur. Allt snýst þetta jú um jafnvægið.
Tilvist þessarar uppskriftar má rekja til heimsóknar okkar fjölskyldunnar á stað í Vancouver sem heitir Medina og er á Beatty street. Þetta er æðislegur staður til að fara í hádegismat á, eða í brunch á laugardegi eða sunnudegi. Medina er staðsettur við hliðina á stað sem heitir Chambar og er líka alveg frábær. Hann er þó töluvert fínni og dýrari, en algjörlega þess virði þegar tilefnið er við hæfi. Við fórum í hádegismat á Medina og pöntuðum m.a. Ciaböttu með rjómaostsblöndu sem samanstóð af reyktum laxi, capers og þistilhjörtum. Okkur fannst graslaukurinn passa virkilega vel með og svo smá sítrónusafi til að kalla fram bragð og búa til ferskleika.
Hér kemur okkar uppskrift:
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir,
Grænmeti: klettasalat, laukur, þistilhjörtu, paprika
Uppskrift
gerir 8-10 snittur
1 1/2 bolli reyktur lax smátt skorinn
3 msk capers
200 gr. rjómaostur (philadelphia eða sambærilegur)
2 msk þistilhjörtu í marineringu/olíu smátt skorin
1 msk ferskur graslaukur niðurskorinn
safi úr 1/2 sítrónu
nýmalaður svartur pipar
1 rauð paprika niðurskorin
2 bollar klettasalat
1 súrdeigsbaguettebrauð niðurskorið
Blandið saman laxi, rjómaosti, capers, þistilhjörtum, graslauk, sítrónusafa og svörtum pipar í skál. Skerið baguettebrauðið í sneiðar og berið laxamaukið á hverja sneið. Setjið klettasalatið ofan á laxamaukið og á endanum paprikubitana. Berið fram.
Filed under: Þistilhjörtu, Fiskur, klettasalat, laukur, paprika, sítrus ávextir, Smáréttir, svartur pipar, Uppáhalds, Uppskriftir, Þistilhjörtu, C-vítamín ríkt, Laxamauk, omega 3, parika, Reyktur lax, Smáréttir, Snittur

