Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Verum jákvæð og borðum hnetusósu!

Ég hef  verið ákaflega annars hugar síðastliðnar vikur og því ekki skrifað mikið né eldað. Það er nóg að gera í skólanum, endaspretturinn að fara í gang, vorið að koma, hugleiðingar um sumarið og framtíðina taka mikið headspace. Og svo auðvitað Icesave. Ég ætla alveg að hlífa lesendum við mínum skoðunum á því máli en hins vegar vonast ég til þess að fólk láti þetta mál ekki hafa of mikil áhrif á sig, horfi á Þingvelli hér að ofan og björtu hliðarnar í lífinu, brosi, verði jákvætt, hreyfi sig, borði hollt og andi með nefinu, eins og einhver sagði. En yfir í matinn. Read the rest of this entry »

About these ads

Filed under: blómkál, chili, engifer, gulrætur, hnetur, hrísgrjón, hvítlaukur, kínóa, laukur, núðlur, sítrus ávextir, Sósur, spergilkál, Uppáhalds, Vegan, , , , , , ,

Blómkálssúpa með hvítkáli og fennel

Síðastliðnar vikur hefur verið mikið að gera bæði í skóla og leik og því hef ég ekki haft mikinn tíma til að skrifa hér á síðuna, né elda, ef út í það er farið. Ég hef því verið dugleg við að búa til einfaldar og fljótlegar súpur. Ein þeirra var þessi blómkálsúpa með fennel og hvítkáli. Ég verð að viðurkenna að ég er ansi gjörn á að reyna að copera góðar súpur sem ég fæ á veitingastöðum og þetta var ein þeirra. Ég fór á Happ um daginn og fékk þar mjög skemmtilega blómkáls- og fennel súpu. Ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig ég eigi að nota fennel í matargerð og lengi ætlað að prufa mig áfram með það í súpugerð. Fennel er þó einnig mjög gott niðurskorið í salöt, með t.d. appelsínum og góðu grænu salati. Í Vancouver keyptum við líka stundum salat í Capers sem var með rauðrófum og fennel. Það var sérstaklega gott. Ég ætla einhvern tíman að reyna að copera það, á minn hátt.

En þrátt fyrir að ég hafi verið að reyna að líkja eftir forláta súpunni sem ég fékk á Happ um daginn, þá kom þessi alls ekki eins út. Þessi er mildari og talsvert minna fennel bragð af henni. Ef fólk er sérstaklega hrifið af fennel skal það ekki hika við að bæta meira fennel út í þessa súpu, það gerir súpuna örugglega bara betri, bragðmeiri og að sjálfsögðu hollar. Fennel er nefnilega einstaklega hollt, ótrúlega ríkt af öflugum andoxunarefnum og einnig mjög bólguhamlandi. Og þegar búið er að segja saman blómkál, hvítkál, hvítlauk, chili og fennel er maður komin með algjöran hollustukokteil. Svo fannst mér mjög flott hvernig súpan var borin fram á Happ, með alfalfa spírum og graskerum, þannig að ég splæsti í alfalfa og gerði það sama við mína súpu.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: blómkál, fennel, hvítkál
Krydd: hvítlaukur, paprika, fennel, chili, engifer


Uppskrift
fyrir 4-6

1 blómkálshaus niðurskorinn
1 stór fennelhaus niðurskorinn
1/3 hvítkálshaus niðurskorinn
6 hvítlauksgeirar
1 grænn chili fræhreinsaður og niðurskorinn
2 msk. ólífuolía eða repjuolía
1,5 l. kjúklinga- eða grænmetissoð + u.þ.b. 500 ml.
2 tsk. paprikuduft
1/2-1 tsk. malað engifer
1/2 tsk. fennel fræ
1/2 tsk. chili flögur
salt og pipar eftir smekk
alfalfa spírur eftir smekk

Byrjið á að merja hvítlaukinn og látið hann standa á meðan afgangurinn af grænmetinu er skorið niður.

Hitið olíu í potti og steikið grænmetið við miðlungshita þar til það hefur mýkst, í um 5 mínútur. Bætið þá paprikukryddi og möluðu engiferi saman við og hrærið vel. Hellið soðinu út í og látið suðuna koma upp. Látið sjóða í um 15 mínútur eða þar til allt grænmetið er orðið mjúkt. Maukið með töfrasprota. Þynnið súpuna eftir vild. Kryddið með fennelfræjum, chili flögum, salti og pipar eftir smekk.

Setjið handfylli af alfalfa spírum í skál. Hellið súpunni yfir og skreytið með paprikukryddi og chili flögum. Berið fram með nýbökuðu brauði.

 

Filed under: blómkál, chili, engifer, fennel, hvítlaukur, Súpur, Vegan

Blómkálssúpa með smjörbaunum

Þessi súpa er ekkert nema bara hollusta. Allt sem að í hana fór var hollt og nærandi fyrir líkamann auk þess að vera einnig gott. Þetta er hins vegar ekki hin hefðbundna blómkálssúpa sem þið þekkið og hafið fengið áður. Þessi er bragðmikil og virkileg matarmikil.

Mig langar að fjalla aðeins um blómkál og næringargildi þess. Blómkál flokkast sem eitt af hinu svokallaða cruciferous grænmeti sem eru þær grænmetistegundir sem alltaf er talað um í sambandi við forvarnir gegn krabbameini. Spergilkál hefur þá yfirleitt fengið hvað mesta athygli, en blómkálið er ekki síður gott og næringarríkt. Blómkál inniheldur mikið af C-vítamíni, K-vítamíni og fólínsýru auk þess að innihalda fjöldann allan af öðrum næringarefnum sem eru góð fyrir líkamann. Það inniheldur omega 3 í formi ALA fitusýru og vinnur það með K-vítamíninu gegn bólgum í líkamanum. Túrmerikið vinnur svo auk þess líka gegn bólgum og má því segja að þessi súpa sé eiginlega alveg sérstök þegar litið er til samspils innihaldsefnanna og áhrifa þeirra á líkamann.

Ég er svolítið gjörn að meta næringargildi matar út frá litum vegna þess að litsterkur matur er yfirleitt sérstaklega hollur fyrir líkamann. Sumir vilja helst ekki nota rauðrófur, tómatvörur eða túrmerik af því það er gjörsamlega vonlaust að ná þeim blettum úr fötum, en þetta eru hins vegar þær fæðutegundir sem innihalda hvað mest af plöntuefnum (phytochemicals) sem eru svo ótrúlega mikilvæg fyrir varnir líkamans gegn ýmsum kvillum, t.d. krabbameini. Til dæmis er plöntuefnið sem finnst í tómötum, þ.e. lycopene, sérstaklega virk forvörn gegn blöðruhálskirtilskrabbameini og yfirleitt er hvað mest af lycopene í unnum tómatvörum, þ.e. tómatmauk og sólþurrkuðum tómötum. Ég mun fljótlega birta grein hér sem ég er að vinna í sem fjallar um plöntuefnin og mismunandi tegundir þeirra.

En þrátt fyrir að blómkálið sé nánast litlaust þá er það langt frá því að vera næringarsnautt. Sama er að segja um hvítlaukinn og laukinn sem er ekki sparaður í þessari uppskrift og gera einstakt bragð. Ekki hafa áhyggjur af því að kæfa næsta mann eftir þessa máltíð, vegna þess að hvítlaukurinn er það mikið eldaður að hann á ekki að finnast mikið. Smjörbaunirnar eru svo algjört ofurfæði, einstaklega ríkar af trefjum, járni, magnesíum, fólínsýru og fleiri mikilvægum næringarefnum. Smjörbaunir eru fitusnauðar og kólesteróllækkandi og því góðar fyrir þá sem eru með hátt kólesteról sem og þá sem eru með sykursýki. Það ættu allir að reyna að komast upp á lagið með að elda úr smjörbaunum. Þær eru heppilegar í buff, súpur, pottrétti og margt fleira.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: mangó
Grænmeti: blómkál, laukur
Krydd: hvítlaukur, túrmerik, svartur pipar, cumin, paprika, chili, steinselja
Braunir og kornmeti: smjörbaunir


Blómkálssúpa
6-8 manns

2 blómkálshausar
2 laukar
1 heill hvítlaukur
3 msk. kókosolía
2 msk. grænmetiskraftur frá Himneskri hollustu
2 tsk. salt – herbamare með kryddjurtum
½ tsk. túrmerik + svartur pipar
½ tsk. cumin
1 tsk. paprikukrydd
1,5 l vatn
½ – 1 tsk. þurrkaðar chiliflögur
2 dósir smjörbaunir – skolaðar
2 msk. mangó chutney
salt og pipar eftir smekk
fersk steinselja til skrauts (má sleppa)

Merjið hvítlaukinn og látið anda. Hitið olíuna í stórum potti og steikið laukinn og hvítlaukinn í 2-3 mínútur. Bætið þá túrmeriki, svörtum pipar og chiliflögum á pönnuna og steikið í aðrar 2 mínútur. Bætið blómkálinu næst í pottinn og svo vatninu, grænmetiskraftinum og saltinu. Látið suðuna koma upp og sjóðið í um 10 mínútur eða þar til blómkálið er orðið mjúkt í gegn. Maukið súpuna þá með töfrasprota og kryddið með paprikukryddi,cumini og mangó chutney. Bætið að lokum smjörbaunum saman við og látið þær hitna í gegn. Skreytið með paprikukryddi og ferskri steinselju. Berið fram með nýbökuðu brauði.

Filed under: blómkál, chili, hvítlaukur, laukur, mangó, paprika, Súpur, smjörbaunir, smjörbaunir, steinselja, svartur pipar, túrmerik, , , , , , , , , , , , ,

Blómkálssúpa með púrrulauk og chili

Ég á mér nokkur uppáhalds matarblogg. Það er mikið um matarblogg á netinu og þau eru að sjálfsögðu jafn misjöfn og þau eru mörg. Ég hef gaman að því að skoða vel uppsett, falleg blogg sem innihalda hollar og frumlegar uppskriftir. Síðan Green Kitchen Stories inniheldur öll þessi atriði. Ég hef einnig mikinn áhuga á umhverfismálum og allt sem leggur áherslu á umhverfisvernd rek ég augun í og les af áhuga.

Mig langar aðeins að fjalla um ferska steinselju í sambandi við þessa uppskrift. Fersk steinselja er bólguhamlandi og hefur andoxunar áhrif á líkamann. Andoxunarefni vinna gegn sindurefnum í líkamanum. Sindurefni (e. free-radicals) auka líkurnar á óeðlilegum frumubreytingum sem geta leitt til krabbameinsmyndunar. Andoxunarefni gera sindurefni stöðug og koma því í veg fyrir skaðlega virkni þeirra. Auk þess er fersk steinselja rík af K vitamíni og inniheldur einnig talsvert magn af C vítamíni og A vítamíni. Meira um krabbameinhamlandi áhrif steinselju hér.

Þessa uppskrift fann ég á Green Kitchen Stories og lagaði hana aðeins að anti-cancer markmiðum síðunnar. Súpan kom vel út og verður án efa búin til fljótlega aftur.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir
Grænmeti:
laukur, blómkál,
Krydd og kryddjurtir: hvítlaukur, chili, steinselja, svartur pipar
Fræ: graskersfræ

Uppskrift
fyrir 4

1 msk. kókosolía
1 rauðlaukur niðurskorinn
4 hvítlauksgeirar marðir
1 ferskur grænn chili smátt skorinn
1 blómkálshaus niðurskorinn
2 púrrulaukar niðurskornir
½ l. vatn
½ l. grænmetissoð
1 sítróna, bæði safinn og rifinn börkurinn (bara ysta lagið)
2 msk fersk steinselja söxuð
salt og pipar eftir smekk
graskersfræ, steinselja, ristaðar möndluflögur og sýrður rjómi (má sleppa) til skrauts

Hitið olíuna í potti og steikið rauðlauk, hvítlauk og chili þar til laukurinn er farinn að brúnast örlítið. Bætið blómkáli og púrrulauk út í og steikið áfram í nokkrar mínútur. Bætið vatni og soði saman við og látið suðuna koma upp. Lækkið undir og látið sjóða við vægan hita þar til blómkálið er orðið mjúkt, u.þ.b. 10-15 mínútur. Maukið með töfrasprota eða í blender. Bætið sítrónusafa, berki, steinselju, salti og pipar saman við. Skreytið hverja skál með ferskri steinselju, sýrðum rjóma (má sleppa) ristuðum möndluflögum og graskersfræjum og berið fram.

Filed under: blómkál, chili, graskersfræ, hvítlaukur, laukur, sítrus ávextir, Súpur, steinselja, svartur pipar, Uppskriftir, Vegan, , , , , , ,

Blómkál með engifer og gulum maísbaunum

Þessi réttur er frábært meðlæti með fiskréttum, kjúklingaréttum eða nánast hverju sem er. Blómkál inniheldur mikið magn af C-vítamíni, talsvert magn af K-vítamíni, fólínsýru og trefjum auk annarra vítamína og steinefna.

Hér er að finna athyglisverða grein sem fjallar um fyrirbyggjandi áhrif blómkáls, spergilkáls og annarra cruciferous tegunda af grænmeti. Í greininni kemur fram að ,,The American Cancer Society estimates that more than two-thirds of cancer may be prevented through lifestyle modification, and nearly one-third of these cancer occurrences can be attributed to diet alone.” Það hlutfall sem hér er rætt um er gífurlega hátt og undirstrikar mikilvægi umræðu og meðvitundar almennings á þessu sviði.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, blómkál, gular maísbaunir
Krydd og kryddjurtir: engifer, túrmerik, cayenne pipar, kóríander
Baunir: gular maísbaunir

Blómkál með engifer og gulum maís
fyrir 6 með mat

1 blómkálshaus niðurskorinn
2 msk. ólífuolía
1 tsk. kúminfræ
1 msk. ferskt engifer smátt saxað
¼ tsk. túrmerik
¼ tsk. cayenne pipar
2 litlir laukar niðurskornir
½ bolli vatn
1 dós gular maísbaunir
1 tsk. salt
3-4 msk. ferskt kóríander saxað

Hitið olíuna á wok-pönnu og bætið kúminfræjum, engifer, túrmeriki og svörtum pipar á pönnuna. Steikið í 1-2 mínútur og bætið svo lauknum á pönnuna. Steikið í 2-3 mínútur eða þar til laukurinn hefur linast. Bætið þá blómkáli, cayenne pipar og salti á pönnuna og hrærið saman við. Bætið því næst vatni og setjið lokið á pönnuna. Látið lokið vera á í 5 mínútur svo að blómkálið nái að mýkjast. Takið lokið af og bætið gulum baunum og kóríander saman við. Látið malla í aðrar 5 mínútur. Berið fram með mat.

Filed under: blómkál, engifer, laukur, maís, Meðlæti, svartur pipar, túrmerik, Vegan, , , , , , ,

Mild blómkálssúpa með sætri kartöflu og selleríi

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: trönuber
Grænmeti: laukur, blómkál, sæt kartafla, sellerí
Hnetur: pekan hnetur
Krydd: kóríander fræ, fennel fræ, chili, sinnepsfræ, svartur pipar, fenugreek fræ, túrmerik, karrýlauf, kanill

Uppskrift
fyrir 4-5

1 laukur niðurskorinn
1 lítill blómkálshaus bútaður niður
4 sellerístilkar niðurskornir
1 sæt kartafla niðurskorin
2 msk ólífuolía
1 tsk sterkt madras karrý
1/4 tsk malað cumin
1/4 tsk malað kóríander
1/4 tsk túrmerik
1/8 tsk kanill
Salt og svartur pipar
6 bollar gott grænmetissoð
nokkur þurrkuð trönuber í hverja skál
nokkrar ristaðar pekan hnetur í hverja skál

Hitið olíuna í potti og steikið laukinn þar til hann er orðinn mjúkur. Bætið þá sætu kartöflunum, blómkálinu, selleríinu, karrýinu, túrmerikinu, kóríanderinu, kúmininu og kanilinum út í og hrærið vel. Steikið í 3-4 mínútur við miðlungshita.  Bætið því næst soðinu saman við og hrærið. Nái upp suðunni og látið malla í um 15-20 mínútur eða þar til blómkálið og sætu kartöflurnar eru orðnar mjúkar í gegn. Hellið í blender/matvinnsluvél (eða notið töfrasprota) og maukið súpuna. Hellið aftur út í pottinn og saltið og piprið eftir smekk. Látið malla í nokkrar mínútur. Skreytið hverja skál með nokkrum þurrkuðum trönuberjum og ristuðum pekan hnetum. Berið fram með nýbökuðu brauði.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: blómkál, fennel, fenugreek, kanill, Karrý, karrýlauf, kartöflur, kóríander, laukur, pekanhnetur, Súpur, sellerí, svartur pipar, svört sinnepsfræ, túrmerik, trönuber, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: