Ég held ég reyni ekkert að bæta upp fyrir allt sluxið hér á síðunni með langri og yfirgripsmikilli færslu. Best bara að gleyma fortíðinni og horfa fram á við. Núna er ég vöknuð til lífsins eftir langt og heilt á litið frekar óhollt sumar, en þó mjög yndislegt að öðru leyti. Ég hef þó tekið upp á ýmsum hollum nýjungum í sumar og það má líklega segja að steel cut morgunmaturinn standi upp úr. Stálslegnir hafrar, eða steel cut eins og við köllum þá, eru heilir hafrar sem hafa verið skornir gróft niður. Þetta líkist örlítið byggi en er þó aðeins fíngerðara. Grauturinn er grófari og allt öðruvísi undir tönn en annar hafragrautur. Mín reynsla er sú að maður getur ekki snúið aftur í gamla hafragrautinn eftir að maður byrjar á þessum.
Aðal kostirnir við steel cut hafrana eru eftirfarandi:
-Þeir eru mun minna unnir en aðrir malaðir hafrar sem yfirleitt eru hitaðir upp og síðan unnir í misgrófar flögur. Við það tapast talsvert magn af trefjum og eru steel cut hafrar því trefjaríkari en aðrir meira unnir hafrar.
-Eru járnríkari, og líklega næringarríkari af fleiri næringarefnum, en malaðir hafrar
-Eru glúteinlausir á meðan malaðir hafrar eru það yfirleitt ekki.
Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér kostunum við að fæðutegundir séu glútenlausar. Fyrir þá sem ekki vita er glúten prótein sem finnst í hveiti, byggi, höfrum, spelti og fleiri korntegundum. Mark Hyman skrifar litla kafla í bókina hennar Kris Carr, Craxy Sexy Diet, þar sem hann hvetur fólk eindregið til að hætta að borða glúten, og þá sérstaklega þeir sem eru með viðkvæman ristil og meltingu. Hann skrifaði líka góða grein um þetta á Huffington Post – endilega kíkið á hana hér (kannski pínu öfgakenndur titill en greinin er góð engu að síður). Hann talar um tvær fræðigreinar í umfjöllunum sínum sem báðar eru birtar í mjög virtum læknatímaritum, annars vegar í Journal of the American Medical Association [greinin] og hins vegar í New England Journal og Medicine [greinin].Í greinunum kemur fram að neysla glútenríkra matvæla geti aukið líkurnar talsvert á að fá alvarlega sjúkdóma eins og hjartasjúkdóma og krabbamein. Í síðarnefndri greininni eru taldir upp 55 sjúkdómar sem geta komið til vegna neyslu glútens – magnað að mínu mati. Mark nefnir einnig að stór hluti fólks eigi erfitt með að melta glúten án þess að vera meðvitað um það og því hvetur hann fólk eindregið til að minnka neyslu glútens eða stöðva hana alfarið.
Fyrsta skrefið í átt að minni glútenneyslu gæti verið að byrja að borða steel cut hafragraut í morgunmat. Ég geri hann þannig að ég set hafrana upp að kvöldi til – læt suðuna koma upp, slekk undir, set lokið á pottinn og læt grautinn kólna yfir nótt. Að morgni kveiki ég svo aftur undir, bæti smá vatni út í og læt hann sjóða í nokkrar mínútur. Þá er grauturinn tilbúinn. Ég strái síðan yfirleitt yfir hann fræjum og borða hann með eplum eða berjum. Um helgar og þegar ég vil vera sérstaklega góð við sjálfan mig þá set ég eins og matskeið af 100% hreinu maple sírópi út á grautinn. Maple síróp er annað sem ég hef verið talsvert mikið að kynna mér og áttaði mig fljótt á að ég hef í gegnum tíðina alls ekki verið að nota alvöru maple síróp. Gamla góða Steves maple sírópið, og önnur “maple síróp” eins og Canada’s Best og fleiri, eru uppfullt af sykri og innihalda oft einungis maple bragðefni. Alvöru maple síróp hefur fullt fullt af góðum eiginleikum fyrir heilsuna og er sérstaklega næringarríkt Ég rakst meira að segja á talsvert af fréttagreinum á netinu sem fjölluðu um rannsóknir sem benda til þess að maple síróp vinni gegn krabbameini. Eftir miklar pælingar er mín niðurstaða sú að maple sírópið frá Rapunzel sé það allra besta. Það er lífrænt, dökkt og flokkast í flokk C sem þýðir að það er bragðmeira og ekki eins sætt og flokkur A og B. En yfir í uppskriftina.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Kornmeti: hafrar
Ávextir: epli/ber/mangó
Fræ: hörfræ/hampfræ/graskersfræ – hveitikím (ekki glútenlaust)
1 bollu stálslegnir hafrar (e. steel cut oats frá Bobs Red Mill – fæst í Kosti)
3 bollar vatn
1 epli/mangó/ber eða annar litríkur ávöxtur
smá 100% hreint maple síróp
örlítið salt
1 tsk. bee pollen á hvern disk (má sleppa)
1 msk. hampfræ/hörfræ/graskersfræ eða annað ofurhollt á hvern disk
1 tsk. hveitikím (inniheldur glúten)
smá sletta af uppáhalds mjólkinni þinni (má sleppa)
Setjið vatn og hafra í pott að kvöldi og látið suðuna koma upp. Slökkvið undir – setjið lokið á pottinn og látið standa yfir nótt. Kveikið undir að morgni og sjóðið í nokkrar mínútur – bætið vatni út í eftir smekk. Stráið fræjum og öðrum toppingum á og berið fram.
Filed under: bláber, chia fræ, epli, goji ber, graskersfræ, Greinar, hafrar, hörfræ, hemp fræ, hveitikím, kanill, mangó, möndlur, Morgunmatur, Uppáhalds, Vegan













