Síðustu daga hef ég verið að prófa mig áfram í hrásalatsgerð. Hvítkál og rauðkál eru bæði mjög holl, góð og ódýr. Þau fara vel í salöt, eru stökk og gróf, en vinna vel með ávöxtum og öðru sætu og safaríku. Ég gerði annars vegar hvítkálssalat með appelsínum og valhnetum og hins vegar rauðkálssalat með jarðaberjum, eplum og kasjúahnetum. Bæði salötin komu vel út, en hvítkálssalatið hafði þó að mínu mati vinninginn. Hvítkál er ekki alveg jafn rammt og rauðkálið og appelsínurnar passa einstaklega vel með því.
Hvítkál og rauðkál inniheldur mikið af C og K vítamíni auk þess að innihalda efnið sinigrin. Krabbameinshamlandi áhrif þessa efnis hefur vakið athygli fræðimanna sem telja það umbreytast í efni sem kallast glucosinolates sem talið er að geti unnið gegn krabbameini, og þá sér í lagi í maga og ristli. Sama er að segja um aðrar fæðutegundir sem falla undir flokk brassica grænmetis, s.s. rósakál, rófur, grænkál, spergilkál og blómkál. [sjá nánar: heimild]
Hrásalat með hvítkáli, appelsínum og valhnetum
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir
Grænmeti: hvítkál, rauðlaukur
Hnetur: valhnetur
Krydd: sinnep
Annað: jógúrt
Uppskrift
fyrir 4 með mat
1/2 hvítkálshaus niðurskorinn í þunnar ræmur
1 bolli valhnetur
2 appelsínur niðurskornar
Dressing:
200 gr. grískt jógúrt
1 tsk. safi úr límónu
1 msk. hunangs dijon sinnep
1 msk. maukaður rauðlaukur (eða rifinn á rifjárni)
1 tsk. agave síróp
salt og pipar
Blandið niðurskorna hvítkálinu, valhnetunum og appelsínunum saman í skál. Blandið öllum innihaldsefnum í dressinguna saman og hellið yfir salatið. Blandið öllu saman og berið fram. Read the rest of this entry »
Filed under: epli, jarðaber, Jógúrt, kasjúahnetur, kál, laukur, Meðlæti, Salöt, sítrus ávextir, valhnetur, Brassica grænmeti, C-vítamínríkt, glucosinolates, K vítamínríkt, Sinigrin


