Dóttir mín verður þriggja ára á morgun og við héldum uppá afmælið hennar núna um helgina. Mér finnst mjög gaman að baka og hef lengi reynt að baka sykurlausar, smjörlausar og allslausar kökur sem ekki hafa fengið sérlega góðar viðtökur. Ég hef því tekið þá stefnu að fara ákveðinn milliveg þegar kemur að bakstri og hafa að leiðarljósi að kökurnar séu næringarríkar þó svo að þær innihaldi eitthvað af þessu slæma líka.
Afmæliskakan var gulrótakaka sem er orðin algjör skyldubakstur fyrir afmæli hér. Hún inniheldur fullt fullt af næringarríkum fæðutegundum, s.s. gulrætur, valhnetur, ananas, döðlur og kókos, en kremið inniheldur það mikið af flórsykri að maður getur varla kallað kökuna í heild sinni holla. Ég er ekkert sérlega hrifin af flórsýkri en það virðist vera frekar erfitt að finna krem á kökur sem inniheldur engan flórsykur. Verkefni ársins er því að útfæra gott krem á gulrótaköku sem ekki inniheldur haf af flórsykri. Ef þið hafið einhverjar hugmyndir endilega sendir mér póst.
Auk þess gerði ég hnetusmjörskökur með súkkulaðibitum, heilsukókoskúlur með hamp fræjum og granólabita með aprikósum, jarðhnetum og trönuberjum. Þetta kom allt virkilega vel út og þetta gúmmilaði var allt mjög næringarríkt. Hér kemur uppskriftin að granólabitunum.
Uppskrift
passar í 20×20 kökuform
1 2/3 bolli tröllahafrar
1/2 bolli hrásykur
1/3 bolli byggflögur
1/2 tsk. salt
1/2 tsk. kanill
1 bolli þurrkaðar aprikósur niðurskornar
1 bolli þurrkuð trönuber
1 bolli blanda af jarðhnetum, sesamfræjum og hörfræjum
1/3 bolli hnetusmjör
1 tsk. vanilludropar
5 msk. kókosolía
1/4 bolli hunang
Hitið ofninn í 180 °C.
Blandið öllum innihaldsefnum vel saman í skál. Best er að nota hendurnar til að allt blandist vel saman. Komið fyrir í bökunarformi og bakið í 25-30 mínútur eða þar til granólað er farið að brúnast að ofan. Látið kólna í ísskáp og skerið í bita.
Svo var ég með fullt af ristuðum hnetum og fræjum sem komu vel út. Ég ákvað að tæma skápana mína og notaði öll fræin og hneturnar sem ég átti. Ég myndi segja að þetta hafi verið milli 4 og 5 bollar af hnetum og fræjum (blanda af möndlum, pekanhnetum, sesamfræjum, sólblómafræjum, hörfræjum og valhnetum). Ég blandaði þeim saman í eldföstu móti og hellti um það bil hálfum bolla af maple sírópi yfir og blandaði vel saman. Síðan setti ég um eina og hálf teskeið af garam masala saman við og rúmlega hálfa teskeið af salti. Þetta ristaði ég í ofni við 150 gráður í 10-15 mínútur eða þar til allt var búið að ristast. Mikilvægt er að muna að taka þetta út á nokkurra mínútna festi og hræra vel í til að það efsta brenni ekki og það neðsta ristist líka. Þegar þetta kom út úr ofninum þá lét ég allt kólna áður en ég blandaði súkkulaðidropum saman við. Ég notaði hvíta súkkulaðidropa í kremið fyrir gulrótakökuna þannig að afgangurinn á þeim fór í hentumixið. Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég hins vegar keypt dökkt súkkulaði því það er langsamlega hollast. Endilega prófið. Þetta er frábært heilsuhnakk.
Filed under: aprikósur, bygg, döðlur, graskersfræ, haframjöl, hörfræ, hemp fræ, hnetur, kanill, möndlur, pekanhnetur, sætindi, sesamfræ, Uppáhalds, valhnetur, Vegan








