Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Hafragrautur með mórberjum, sólblómafræjum og hörfræjum

Gleðilega páska kæru lesendur. Mér fannst alveg nauðsynlegt að setja inn eina holla uppskrift í dag með örlitlu nammi útí. Þessi hafragrautur er líklega sá besti sem ég hef smakkað. Mórber eru algjört nammi og ekki skemmir fyrir hve einstaklega holl þau eru. Þau innihalda efnið resveratrol sem rannsóknir hafa endurtekið sýnt að geti unnið gegn krabbameini. Efnið er bólguhamlandi og vinnur gegn krabbameinsmyndun. Resveratrol finnst einnig í talsverðu mæli í rauðum vínberjum og er þar af leiðandi efnið sem gerir rauðvín “hollt”. Read the rest of this entry »

About these ads

Filed under: hörfræ, mórber, Morgunmatur, sólblómafræ, Uppáhalds, , , , , ,

Páskamúslí með þurrkuðum eplum, trönuberjum og hveitikími

Það var orðinn mjög alvarlegur múslískortur hér á heimilinu í gær og ég bara varð að gefa mér tíma til þess að mixa einn skammt af múslí. Lífrænt bíóbú jógúrt með kókos eða létt AB mjólk með heimatilbúnu múslí og ávöxtum er algjörlega fastur liður hjá mér á hverjum einasta degi. Í þeirri máltíð fæ ég mikið af þýðingarmiklum næringarefnum. Yfirleitt sker ég niður kíwi og borða með. Kiwi er algjör C-vítamínbomba og því góð fyrir stressaða lestrarhesta í próflestrinum. C-vítamín hefur auk þess mjög víðtæka virkni sem fræðimenn hafa mikið fjallað um í gegnum tíðina. Sigmundur Guðbjarnarson fjallaði um Linus Pauling og rannsóknir hans á blogginu sínu um daginn. Linus Pauling var einn helsti talsmaður aukinnar C-vítamínneyslu og gagnlegra eiginlega þess. Grein Sigmundar er að finna hér. Endilega kíkið á það.

En yfir í múslíið. Þetta múslí er frekar hefðbundið. Það er ekki ósvipað því múslí sem ég hef gert áður. Ég var að spá í að taka einhverjar æfingar og prófa að poppa amaranth í potti og bæta því svo út í múslíið. Það á víst að vera voða gott. En svo vildi ég ekki taka neina sénsa. Mig bara vantaði gott múslí og gott múslí varð það að vera.

Ég ákvað að nota þurrkuð epli. Ég verð að vísu að viðurkenna að þetta tókst ekki alveg eins vel upp og ég hafði hugsað mér. Ég var að vonast til þess að eplin yrðu stökk við það að ristast í ofninum, en þau urðu það bara alls ekki. Urðu eiginlega bara frekar seig. Auk þess varð ég nánast að standa við ofninn til að passa að þau myndu ekki brenna við. Af þessari ástæðu myndi ég mæla með því að bæta þurrkuðu eplunum bara út í eftir að búið er að rista múslíið, ef þið nennið ekki að standa við ofninn í hálftíma og fylgjast með múslíinu á meðan það ristast.

En það sem ég hafði ætlað mér að fjalla um í sambandi við múslíið var maple sírópið. Ég las frétt um daginn sem fjallaði um rannsókn sem sýndi bólguhamlandi og andoxandi áhrif maple síróps. Í greininni kom fram að í maple sírópi er efni sem líkist efnum sem einnig finnast í grænu te-i og bláberjum. Þessi efni eru talin geta unnið gegn krabbameini, hjartasjúkdómum og sykursýki. Í rannsókninni voru 54 efni greind sem eiga að hafa góð áhrif á heilsuna og 5 þeirra hafa ekki áður fundist í náttúrunni. Frétt um rannsóknina er að finna hér. Það er þó vert að minnast á það að mikilvægt er að kaupa gæða maple síróp. Ég myndi mæla með maple sírópi úr heilsuhillunni annars vegar eða hins vegar tók ég eftir því úti í Melabúð um daginn að þeir selja hágæða Kanadískt maple síróp sem ég man að var eitt af þeim allra bestu sem fengust þegar við vorum úti í Vancouver. Kanadamenn leggja mikið uppúr því að hafa maple sírópið sitt gott.

En nú ætla ég ekki að hafa þetta lengra. Gleðilega páska elsku lesendur og munið að stilla páskaeggsátinu í hóf. Í því samhengi langar mig að benda öllum á grein sem birtist í New York Times og fjallar um sykur. Þessi grein er algjör skyldulesning. Ég mun þó mjög líklega reyna að gefa mér tíma til að fara yfir helstu atriði greinarinnar hér á síðunni á næstunni. Greinina er að finna hér og einnig undir greinar.

Hér kemur svo uppskriftin að páskamúslíinu.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: epli, trönuber
Krydd:
 kanil
Kornmeti: hafrar, hveitkím
Hnetur og fræ: heslihnetur, sesamfræ, sólblómafræ,


Uppskrift
gerir u.þ.b. 12 bolla

4 bollar tröllahafrar
1 bolli hveitikím
2 bollar heslihnetuflögur
1 bolli sólblómafræ
1 bolli sesamfræ
2 bollar söxuð þurrkuð epli
1 bolli bráðnuð kókosolía
2 msk. dökkur púðursykur
1/2 bolli maple síróp
1 msk. og 1 tsk. kanill
1/2 tsk. vanilluduft eða 1 tsk. vanilludropar
1/2-1 tsk. salt
1 bolli þurrkuð trönuber

Hitið ofninn í 160°C

Blandið höfrum, hveitikími, heslihnetum, sólblómafræjum, sesamfræjum og þurrkuðum eplum í skál. Bræðið kókosolíu í potti, bætið púðursykri , vanillu, salti, maple sírópi, og kanil saman við og hrærið vel. Blandið rólega saman við þurrefnin þar til allt hefur blandast vel saman. Komið fyrir í stórum eldföstum mótum og ristið í 30 mínútur í ofni. Takið út á 5-10 mínútna fresti og hrærið í. Látið kólna. Blandið þurrkuðu trönuberjunum saman við. Geymið í lofttæmdum umbúðum.

 

Filed under: epli, haframjöl, heslihnetur, hveitikím, kanill, kíwí, Morgunmatur, Rannsóknir, sólblómafræ, sesamfræ, trönuber, Vegan, , ,

Helgarhafragrautur

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: epli, döðlur
Kornmeti: hafrar
Krydd: kanill
Hnetur og fræ: sólblómafræ

Uppskrift
fyrir 3

1 bolli tröllahafrar
1/2 bolli fínmalaðir hafrar
1 grænt epli smátt skorið
1/2 tsk salt
1/2 tsk kanill
1 bolli létt mjólk
3 bollar vatn

Blandið öllu saman í pott og sjóðið þar til grauturinn er orðinn hæfilega þykkur fyrir ykkar smekk. Berið fram með niðurskornum döðlum og sólblómafræjum.

Filed under: döðlur, epli, haframjöl, kanill, Morgunmatur, sólblómafræ

Jólamúslí

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: döðlur, epli
Kornmeti: bygg, hafrar
Hnetur og fræ: hörfræ, sólblómafræ, sesamfræ
Krydd: kanill

Uppskrift
gerir um 9 bolla

3 bollar byggflögur
2 bollar tröllahafrar
3 msk. hörfræ + ½ bolli
15 stórar döðlur + 1 bolli niðurskornar
½ bolli eplamauk
3 msk. hlynsíróp
2 tsk. kanill
1 tsk. maldonsalt
100 gr. kókosolía
1 bolli sólblómafræ
1 bolli sesamfræ

Hitið ofninn upp í 160°C.

Maukið 15 döðlur, eplamauk, 3 msk. af hörfræjum, hlynsíróp, kanil og salt í matvinnsluvél og leggið til hliðar. Bræðið kókosolíuna í potti og blandið saman við maukið.

Blandið byggflögunum, tröllahöfrunum, ½ bolla af hörfræjum, sólblómafræjum og sesamfræjum í skál. Hellið maukinu yfir og blandið vel saman. Komið fyrir í ofnskúffu og ristið í 30 mínútur í ofni. Takið út og hrærið í á 10 mínútna fresti. Látið múslíið kólna og blandið þá niðurskornu döðlunum saman við. Berið fram með hreinu jógúrti eða ab mjólk og ferskum ávöxtum.

Filed under: bygg, döðlur, haframjöl, hörfræ, kanill, Morgunmatur, sólblómafræ, sesamfræ, Vegan

Indverskur fiskréttur með fersku kóríander og kasjúahnetum

Þetta er mildur indverskur fiskréttur sem flestum ætti að finnast góður. Hneturnar og fræin mýkja hann og gefa honum ákveðna fyllingu. Tómatarnir og kóríanderið mynda svo ferskleika sem léttir réttinn mikið. Ég notaði steinbít. Mér finnst steinbítur mjög góður, ekki feitur og í þurrari kantinum. Það er þó algjörlega undir hverjum og einum komið hvaða fiskur notaður er. Fyrir þá sem eru hrifnir af þorski þá væri hann örugglega frábær í þennan rétt, einnig koli, smálúða og ef til vill risarækjur. Ég á líka örugglega eftir að gera þennan rétt einhvern tíma með tófu. Þegar sojaafurðir eru notaðar saman með túrmeriki aukast krabbameinshamlandi áhrifin mikið. Sama er að segja um túrmerik þegar það fer saman með svörtum pipar (sjá grein hér).

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítróna
Grænmeti: tómatar
Krydd og kryddjurtir: engifer, hvítlaukur, chili, túrmerik, svartur pipar, garam masala ( kardimommur, negulnaglar, svartur pipar, kóríander)
Hnetur og fræ:
kasjúahnetur, sólblómafræ

Uppskrift:
fyrir 4-6

600 gr. steinbítur
2 tsk engifer maukað
2 hvítlauksgeirar maukaðir
1 tsk sítrónusafi
1 tsk salt
1/2 tsk chili krydd
1 dós kókosmjólk
20 stk kasjúahnetur
3 msk sólblómafræ
2 tsk kókosolía
1 stór hvítlauksgeiri maukaður
1/2 tsk túrmerik
nýmalaður pipar
1 tsk malað kúmin
1 tsk paprikukrydd
1 msk tómatmauk
2 stórir þroskaðir tómatar maukaðir í matvinnsluvél eða smátt saxaðir
1 1/2 tsk garam masala
1/4 bolli ferskt kóríander smátt saxað
salt eftir smekk

Sneiðið fiskinn niður í bita og setjið í skál með sítrónusafa, engiferi, hvítlauk, chilikryddi og salti. Blandið vel og látið liggja í marineringu í 30-40 mínútur.

Hellið 1 bolla af kókosmjólk í matvinnsluvél. Bætið kasjúahnetum og sólblómafræjum út í og blandið þar til hneturnar hafa maukast.

Hitið kókosolíu á pönnu og steikið hvítlaukinn á miðlungshita í 2-3 mínútur. Bætið þá túrmeriki, smá nýmöluðum pipar, möluðu kúmini, paprikukryddi á pönnuna og steikið í 1-2 mínútur til viðbótar. Bætið þá tómatmauki og maukuðum tómötum út í og steikið í 2-3 mínútur í viðbót.  Bætið kókosmjólkurblöndunni á pönnuna og blandið vel. Látið suðuna koma upp. Bætið þá fiskinum út í og blandið vel. Bætið því næst garam masala, fersku kóríander og afganginum af kókosmjólkinni út í. Sjóðið í nokkrar mínútur, eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Saltið aukalega eftir smekk. Berið fram með hrísgrjónum og naan brauði.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: chili, engifer, Fiskur, hvítlaukur, kasjúahnetur, negulnaglar, sítrus ávextir, sólblómafræ, svartur pipar, túrmerik, Uppskriftir, , , , , , , , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: