Það var orðinn mjög alvarlegur múslískortur hér á heimilinu í gær og ég bara varð að gefa mér tíma til þess að mixa einn skammt af múslí. Lífrænt bíóbú jógúrt með kókos eða létt AB mjólk með heimatilbúnu múslí og ávöxtum er algjörlega fastur liður hjá mér á hverjum einasta degi. Í þeirri máltíð fæ ég mikið af þýðingarmiklum næringarefnum. Yfirleitt sker ég niður kíwi og borða með. Kiwi er algjör C-vítamínbomba og því góð fyrir stressaða lestrarhesta í próflestrinum. C-vítamín hefur auk þess mjög víðtæka virkni sem fræðimenn hafa mikið fjallað um í gegnum tíðina. Sigmundur Guðbjarnarson fjallaði um Linus Pauling og rannsóknir hans á blogginu sínu um daginn. Linus Pauling var einn helsti talsmaður aukinnar C-vítamínneyslu og gagnlegra eiginlega þess. Grein Sigmundar er að finna hér. Endilega kíkið á það.
En yfir í múslíið. Þetta múslí er frekar hefðbundið. Það er ekki ósvipað því múslí sem ég hef gert áður. Ég var að spá í að taka einhverjar æfingar og prófa að poppa amaranth í potti og bæta því svo út í múslíið. Það á víst að vera voða gott. En svo vildi ég ekki taka neina sénsa. Mig bara vantaði gott múslí og gott múslí varð það að vera.
Ég ákvað að nota þurrkuð epli. Ég verð að vísu að viðurkenna að þetta tókst ekki alveg eins vel upp og ég hafði hugsað mér. Ég var að vonast til þess að eplin yrðu stökk við það að ristast í ofninum, en þau urðu það bara alls ekki. Urðu eiginlega bara frekar seig. Auk þess varð ég nánast að standa við ofninn til að passa að þau myndu ekki brenna við. Af þessari ástæðu myndi ég mæla með því að bæta þurrkuðu eplunum bara út í eftir að búið er að rista múslíið, ef þið nennið ekki að standa við ofninn í hálftíma og fylgjast með múslíinu á meðan það ristast.
En það sem ég hafði ætlað mér að fjalla um í sambandi við múslíið var maple sírópið. Ég las frétt um daginn sem fjallaði um rannsókn sem sýndi bólguhamlandi og andoxandi áhrif maple síróps. Í greininni kom fram að í maple sírópi er efni sem líkist efnum sem einnig finnast í grænu te-i og bláberjum. Þessi efni eru talin geta unnið gegn krabbameini, hjartasjúkdómum og sykursýki. Í rannsókninni voru 54 efni greind sem eiga að hafa góð áhrif á heilsuna og 5 þeirra hafa ekki áður fundist í náttúrunni. Frétt um rannsóknina er að finna hér. Það er þó vert að minnast á það að mikilvægt er að kaupa gæða maple síróp. Ég myndi mæla með maple sírópi úr heilsuhillunni annars vegar eða hins vegar tók ég eftir því úti í Melabúð um daginn að þeir selja hágæða Kanadískt maple síróp sem ég man að var eitt af þeim allra bestu sem fengust þegar við vorum úti í Vancouver. Kanadamenn leggja mikið uppúr því að hafa maple sírópið sitt gott.
En nú ætla ég ekki að hafa þetta lengra. Gleðilega páska elsku lesendur og munið að stilla páskaeggsátinu í hóf. Í því samhengi langar mig að benda öllum á grein sem birtist í New York Times og fjallar um sykur. Þessi grein er algjör skyldulesning. Ég mun þó mjög líklega reyna að gefa mér tíma til að fara yfir helstu atriði greinarinnar hér á síðunni á næstunni. Greinina er að finna hér og einnig undir greinar.
Hér kemur svo uppskriftin að páskamúslíinu.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: epli, trönuber
Krydd: kanil
Kornmeti: hafrar, hveitkím
Hnetur og fræ: heslihnetur, sesamfræ, sólblómafræ,

Uppskrift
gerir u.þ.b. 12 bolla
4 bollar tröllahafrar
1 bolli hveitikím
2 bollar heslihnetuflögur
1 bolli sólblómafræ
1 bolli sesamfræ
2 bollar söxuð þurrkuð epli
1 bolli bráðnuð kókosolía
2 msk. dökkur púðursykur
1/2 bolli maple síróp
1 msk. og 1 tsk. kanill
1/2 tsk. vanilluduft eða 1 tsk. vanilludropar
1/2-1 tsk. salt
1 bolli þurrkuð trönuber
Hitið ofninn í 160°C
Blandið höfrum, hveitikími, heslihnetum, sólblómafræjum, sesamfræjum og þurrkuðum eplum í skál. Bræðið kókosolíu í potti, bætið púðursykri , vanillu, salti, maple sírópi, og kanil saman við og hrærið vel. Blandið rólega saman við þurrefnin þar til allt hefur blandast vel saman. Komið fyrir í stórum eldföstum mótum og ristið í 30 mínútur í ofni. Takið út á 5-10 mínútna fresti og hrærið í. Látið kólna. Blandið þurrkuðu trönuberjunum saman við. Geymið í lofttæmdum umbúðum.
Like this:
Like Loading...
Filed under: epli, haframjöl, heslihnetur, hveitikím, kanill, kíwí, Morgunmatur, Rannsóknir, sólblómafræ, sesamfræ, trönuber, Vegan, maple síróp, múslí, Trönuber