Jæja, þá er nýtt ár gengið í garð. Ég er með mikið samviskubit eftir erfiða ritstíflu. Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég fékk algjört ógeð á tölvunni minni þann 14. desember síðastliðinn, þegar ég skilaði ritgerðinni minni, og hef bara nánast ekki tekið hana fram síðan þá. En með nýju ári hef ég hug á að vera duglegri en nokkru sinni fyrr, því að nú eru námsbækurnar ekki lengur að þvælast fyrir mér fram eftir nóttu og um allar helgar. Það má eiginlega segja að árið 2011 hafi verið ár stöðnunar hjá mér. Þegar ég lít yfir árið þá finnst mér ég hafa lært ansi fátt nýtt þegar kemur að heilsu og efni þessarar síðu. Það er að sjálfsögðu ekki rétt því ég las margar góðar bækur og borðaði margt nýtt og ljúffengt. Auk þess jókst fjöldi lesenda mikið og vonandi fleiri vaknað til meðvitundar um mikilvægi þess að borða holla fæðu.
Í fyrra skrifaði ég lista yfir helstu nýjungarnar sem ég kynntist á árinu. Ég hef hugsað mér að gera það líka núna. Svo í framhaldinu langar mér að benda ykkur á nokkrar góðar bækur sem ég mæli sérstaklega með. En við skulum byrja á nýjungunum.
Það sem kemur fyrst upp í hugann er mísó. Þrátt fyrir að hafa notað mísó aðeins í Vancouver má eiginlega segja að ég hafi uppgötvað misó á nýjan hátt á þessu ári. Gwyneth Paltrow hafði nokkuð með það að gera þar sem mísó dressingin hennar er alveg æðisleg. Hana hef ég gert ansi oft á þessu ári og sett mitt handbragð á hana eins og sjá má í rauðrófusalatinu sem ég birti hér fyrir nokkrum mánuðum. Eini ókosturinn við misó er að það er ansi dýrt, og kvarta ég nú sjaldan yfir verði á mat svo lengi sem gæðin eru til staðar. Það furðulega við það er að í Vancouver er misó mjög ódýrt en þegar ég bjó þar kunni ég ekki að nota það. Kínóa er hins vegar mjög dýrt í Vancouver en á nokkuð viðráðanlegu verði hér á landi, þökk sé Sollu snillingi. Þannig að önnur nýjungin á árinu verð ég að segja að sé kínóa. Kínóa er algjört ofurfæði, sem hægt er að nota í óteljandi rétti. En það sem ég hef mest notað það í eru salöt, grautar og súpur. Á nýja árinu ætla ég mér hins vegar að þróa gott kínóanammi og fleira úr þessu einstaka undrafræi.
Hvað bætiefni varðar langar mig að nefna grænt duft sem ég byrjaði að taka á árinu. Það kallast pHion Green Superfood og inniheldur gríðarlega mikið magn af þurrkuðum fræjum, grænmeti, spírum, höfrum o.fl. sem inniheldur ógrynni af krabbameinshamlandi plöntuefnum. Þessi vara held ég að sé algjörlega einstök hvað gæði og innihald varðar. Ég hef yfirleitt blandað einni teskeið út í safa eða smoothie á morgana og drukkið. Annað bætiefni sem mig langar að nefna en ég hef þó tekið í nokkur ár er Chlorella. Þegar kemur að forvörnum gegn krabbameini og bætiefnum í meðferð hef ég tekið eftir því að Chlorella er mjög oft nefnd. Chlorella er grænn þörungur sem inniheldur mikið magn andoxunarefna á borð við C-vítamín og Beta karótín. Chlorella inniheldur einnig mjög mikið magn blaðgrænu, sem er grundvöllur ljóstillífunar í plöntum. Auk þess benda rannsóknir til þess að chlorella bindist við efni sem geta valdið krabbameini og komi í veg fyrir eða minnkað virkni þeirra (heimild). Þriðja bætiefnið sem ég ætla að nefna og var nýjung á árinu 2011 var Royal Jelly. Royal Jelly er afurð býflugna og inniheldur gríðarlega mikið magn næringarefna og amínósýra. Rannsóknir benda til þess að Royal Jelly sé bólguhamlandi og geti haft hamlandi áhrif á vöxt krabbameins. Ég fann að vísu ekkert mjög mikið af efni um þetta en endilega googlið og lesið ykkur til um þetta merkilega bætiefni. Að lokum vil ég benda ykkur á bætiefni sem heitir Liver blend og er frá Solaray. Bækur sem fjalla um mataræði og forvarnir gegn krabbameini leggja yfirleitt mikla áherslu á neikvæð áhrif sykurs á vöxt og myndun krabbameins. Í því sambandi er yfirleitt alltaf talað um mikilvægi lifrinnar þegar kemur að því að vinna úr sykri í líkamanum (endilega skoðið frábæra grein um þetta sem birtist á heimasíðu New York Times, sjá hér). Þetta bætiefni er frábært fyrir þá sem detta stundum í sykurinn (eða áfengið) og aðstoðar líkamann þá við að vinna úr honum. Liver blend er blanda af mjólkurþistli (milk thistle) og fíflum (dandelion), en einnig eru jurtirnar burdock, ætiþistlar, þari og piparmynta í blöndunni. Ég mæli með smá lifrardetoxi núna eftir jólatörnina og þá er þessi blanda alveg tilvalin.
En mig langar einnig að birta holla og næringarríka súpu sem ég er orðin mjög hrifin af. Þetta er mín útfærsla á japanskri ramen súpu. Ramen súpur eru japanskar núðlusúpur sem oft á tíðum innihalda misó. Ég á minn uppáhaldsramenstað í Seattle sem heitir Samurai Noodles. Þegar ég kom til Seattle í ágúst var það nánast mitt fyrsta verk að fara á þennan stað og fá mér ramen súpu með misó og chili. Súpan mín er nú kannski ekki alveg eins háþróuð og sú sem fæst á Samurai noodles en hún er góð og krefst mjög lítillar fyrirhafnar. Hér kemur uppskriftin.
Uppskrift
fyrir 4
1,5 l vatn
3 rapunzel grænmetisteningar
4 msk. misó (bæði hægt að nota ljóst og dökkt misó)
½ púrrulaukur skorinn í þunnar sneiðar
½-1 dl. engifer, skorið í strimla eða eftir smekk
3-4 msk. kryddlegin söl frá íslenskri hollustu
1-2 tsk. chili olía eða eftir smekk (má sleppa)
1 msk. tamari sósa – eða soja sósa
1 bakki baunaspírur
chili flögur eftir smekk
2 kjúklingabringur skornar í munnbita eða 1 kubbur af tófú skorinn í ferninga
Soba núðlur fyrir 4 (má líka nota udon núðlur eða hrísgrjónanúðlur)
Sjóðið soba núðlurnar í potti í aðeins styrri tíma en segir á pakkanum (um tveimur mínútum styttri tíma). Ef þið notið soba núðlur er mjög mikilvægt að láta kalt vatn renna yfir þær strax og vatninu er hellt af þeim, til þess að þær haldi ekki áfram að eldast. Þetta er góð regla með allar núðlur en sérstaklega mikilvægt með soba núðlur.
Hellið vatni í pott. Blandið teningum, misó, púrrulauk, engiferi, chili olíu og tamari sósu saman við. Látið suðuna koma upp. Bætið sölum og kjúklingi/tófú saman við. Látið sjóða í 5 mínútur eða þar til kjúklingurinn er soðinn í gegn eða tófúið heitt í gegn.
Deilið soba núðlunum í skál, hellið súpunni yfir og skreytið með baunaspírum og chiliflögum.
Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu.
Filed under: chili, engifer, kínóa, Kjúklingur, laukur, Rannsóknir, Söl, Súpur, Sjávargróður, Tófú, Uppáhalds, Vegan, chili, detox, engifer, Gwyneth Paltrow, krabbameinshamlandi, lifrarhreinsun, ramen súpa, súpa, sykur


