Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Mjúkar smákökur með grófu haframjöli, banana og aprikósum

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávexti: banana, aprikósur
Kornmeti: hveiti, haframjöl

Uppskrift
Um 30 stk

1 bolli hveiti
1 tsk lyftiduft (helst vínsteinslyftiduft)
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
2 tsk mjúkt smjör
1/2 bolli sykur
1/2 bolli púðursykur
1 egg
1/4 bolli maukaður banani
1 tsk vanilludropar
1 og 1/3 bolli gróft haframjöl
1/2 bolli þurrkaðar aprikósur niðurskornar

Hitið ofninn upp í 180 gráður.

Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti.

Þeytið í annarri skál smjörið og hvíta sykurinn saman. Bætið svo púðursykrinum, egginu, banananum og vanilludropunum saman við. Blandið þurrefnunum saman við og að lokum haframjölinu og aprikósunum.

Notið teskeið við að setja kökurnar á bökunarplötu (á bökunarpappír) og passið að hafa bil og milli þeirra. Bakið í 10-12 mínútur eða þar til kökurnar eru orðnar “golden” á litinn, en eru ennþá mjög mjúkar.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

About these ads

Filed under: aprikósur, bananar, korn, , , ,

Kjúklingaréttur með ólífum, fetaosti og tómötum

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, tómatar,
Krydd: hvítlaukur, ferskt kóríander, rósmarín, svartur pipar
Kornmeti: hveiti

Uppskrift
fyrir 4

4 kjúklinabringur skornar í munnbita
1/2 bolli hveiti
1 teskeið paprikukrydd
1 teskeið ítölsk kryddblanda
1/4 bolli ólífuolía (ekki extra virgin)
1 laukur smátt skorinn
2 hvítlauksgeirar marðir
1 og 1/2 bolli mjólk
3 tómatar
200 gr. fetaostur (í vatni) þerraður
1/2 bolli ólífur niðurskornar
(helst grænar og kalamata)
Ferskt kóríander saxað
Salt og pipar eftir smekk

Veltið kjúklingnum upp úr hveiti og steikið á pönnu upp úr helmingnum af olíunni. Geymið afganginn af hveitinu. Steikið kjúklinginn þar til hann er orðinn ljósbrúnn. Takið hann af pönnunni og leggið til hliðar. Hellið afgangnum af olíunni á pönnuna og steikið laukinn og hvítlaukinn þar til hann hefur mýkst, í 2-3 mínútur. Bætið paprikukryddi, ítölsku kryddblöndunni og 2 tsk af hveiti á pönnuna og hrærið saman við og steikið í um 2 mínútur. Bætið mjólkinni út í og látið suðu koma upp. Bætið kjúklingnum í og látið malla í 8-10 mínútur eða þar til kjúklingur er eldaður í gegn og sósan er orðin þykk. Hrærið reglulega í. Bætið tómötunum og feta ostinum saman við og eldið í um mínútu í til viðbótar. Saltið og piprið eftir smekk. Stráið niðurskornum ólífum og fersku kóríander yfir réttinn. Berið fram með hrísgrjónum og salati.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: hvítlaukur, Kjúklingur, korn, laukur, rósmarín, tómatar, Uppskriftir, , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: