Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur
Baunir: svartar baunir, nýrnabaunir eða pinto baunir (í refried baununum)
Uppskrift
fyrir 4
4 stórar tortillakökur (ég notaði spínatkökur)
1 dós refried baunir
1 dós svartar baunir
1/2 rauðlaukur smátt saxaður
1 búnt alfalfaspírur
1 græn paprika niður skorin
2 bollar rifinn ostur
Berið 1/4 af refried baununum á hverja tortilla köku. Stráið síðan osti, rauðlauk, alfalfa spírum og papriku ofan á. Setjið því næst um 1/2 bolla af svörtum baunum ofan á og stráið að lokum osti yfir og lokið kökunni. Bakið í ofni við 200 gráður í 10-15 mínútur eða þar til kökurnar hafa náð að hitna vel í gegn og eru aðeins farnar að brúnast. Berið fram með fersku salati, guacamole, salsa og sýrðum rjóma.
Filed under: Baunir, laukur, nýrnabaunir, Quesadillas, svartar baunir, Uppáhalds, alfalfa spírur, græn parika, Quesadillas, svartar baunir

