Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Steikt lúða með indversku masala

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Grænmeti: tómatar, laukur
Krydd: hvítlaukur, cayenne pipar, sinnepsfræ, karrýlauf, cumin, kóríander, negull

Uppskrift
fyrir 4 

Marinering fyrir lúðu
1 kg. smálúða skorin í bita
¼ bolli ólífuolía eða repjuolía
¼ tsk. cayenne pipar
1 tsk. salt
1 tsk. svört sinnepsfræ möluð í mortéli
1 bolli brauðmylsna (notaði 4 hrökkbrauðssneiðar, malaðar í matvinnsluvél)

Masala

2 msk. ólífuolía
10 karrýlauf
1 ½ tsk cumin
1 ½ tsk. malað kóríander
¼ tsk cayenne
2 maukaðir rauðlaukar
3 hvítlauksrif
3 negulnaglar
1/2  tsk. salt
1 dós af niðurskornum tómötum í dós
1 lítil dós af kókosmjólk (160 ml.)
160 ml. vatn

Blandið öllum innihaldsefnum í marineringunni saman og komið fyrir í ísskáp. Látið marinerast í 2 klst. (ekkert stress þó ef það er minna eða meira).

Maukið rauðlauk og hvítlauk saman í matvinnsluvél.

Hitið ólífuolíu í potti þar til hún er orðin nokkuð heit, bætið þá karrýlaufum út í og látið steikjast í olíunni í um 30 sekúndur. Gott er að loka pottinum á meðan þetta gerist til að fá ekki slettu framan í sig. Hellið svo maukaða lauknum á pönnuna og steikið í um 5 mínútur við miðlungshita. Blandið því næst kryddunum saman við og síðan tómötunum. Látið malla við miðlungshita í 5-8 mínútur eða þar til vökvinn hefur minnkað talsvert. Blandið þá kókosmjólkinni saman við auk þess að fylla dósina einu sinni af vatni og blanda saman við (u.þ.b. 160 ml.). Látið malla í 10 mínútur.

Veltið fiskinum upp úr brauðmylsnunni/hrökkbrauðsmylsnunni. Hellið afganginum af marineringunni á pönnuna og steikið fiskinn í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Berið fram með brúnum hrísgrjónum og naan brauði.

About these ads

Filed under: chili, Fiskur, hvítlaukur, karrýlauf, kóríander, kúmin, laukur, Meðlæti, negulnaglar, sinnep, svartur pipar, tómatar, Uppáhalds, Uppskriftir, , , , ,

Kjúklingur í karrý frá Sri Lanka

Í þessari uppskrift nota ég sérstakt karrý sem ég bý til sjálf. Það inniheldur frekar margar tegundir af kryddum sem eru ristuð og svo möluð. Þetta gerir það að verkum að maður fær sérstaklega gott karrý. Það er þó ekki nauðsynlegt að nota heimatilbúna karrýið. Ég mæli þó eindregið með því. Það er vel hægt að nota karrý eins og Hot Madras Curry frá Rajah eða þess vegna Mild Madras Curry frá Rajah. Þetta eru indversk karrý og gefa þau því aðeins annað bragð. Ég myndi þó mæla með því að bæta smá cayenne pipar út í ef notað er milt eða venjulegt karrý frá Pottagaldri, svona eins og 1/4-1/2 tsk, allt eftir smekk. Ég setti sjálf 1/4 tsk af cayenne pipar út í uppskriftina með heimatilbúna karrýinu, þannig að ef að fólk er mikið fyrir sterkan mat þá er það mjög gott. Annars er þetta frekar léttur karrý réttur sem auðvelt er að leika sér með útfærslur á.

Uppskriftina að karrýinu er að finna hér.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: Laukur, tómatar
Ávextir: Epli
Krydd: Chili, ferskt kóríander, hvítlaukur, túrmerik, sinnep, fennel, fenugreek fræ, kardimommur, negulnaglar, kanill, svartur pipar.

Uppskrift
Fyrir 4
2 msk ólífuolía
1 rauðlaukur
3 hvítlauksrif
2 tómatar
½ bolli ferskt kóríander
1 tsk grófkorna Dijon sinnep
1 gult epli
1 msk kókosolía
Nokkur fenugreek fræ (má sleppa)
1 msk og 1 tsk heimatilbúið karrý frá Sri Lanka
1/2 bolli sjóðandi vatn
1 tsk salt eða eftir spekk
Nýmalað salt og pipar
8-9 kjúklingaleggir eða heill kjúklingur í bitum

Setjið ólífuolíu, rauðlauk, tómata, kóríander og hvítlauk í matvinnsluvél og maukið vel. Skolið kjúklinginn undir köldu vatni og skerið frá sem mesta húð og fitu. Setjið kjúklinginn í skál og kryddið með maldon salti og svörtum pipar. Hellið blöndunni úr matvinnsluvélinni yfir kjúklinginn og hrærið saman við. Bætið grófkorna sinnepinu út í og hrærið vel. Setjið plastfilmu yfir og látið standa í að minnsta kosti tvær klukkustundir.

Setjið karrýið í skál og hellið sjóðandi vatni út og hrærið saman við. Hitið því næst kókosolíu og nokkur fenugreek fræ í potti þar til olían er orðin vel heit. Bætið þá karrývökvanum út í pottinn, lækkið undir, og steikið þar til karrýið er orðið vel þykkt á pönnunni. Bætið þá kjúklingnum ásamt marineringunni út í og hrærið vel.

Setjið þá saltið út í og hrærið saman við. Hækkið aftur undir. Bætið 2 og 1/2 bolla af vatni út og látið suðu koma upp. Sjóðið í 30-40 mínútur. Þegar 10-15 mínútur eru eftir af suðutímanum er eplunum bætt út í og þau soðin með afganginn af tímanum.

Hentar vel með hrísgrjónum og léttu salati.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: chili, epli, fennel, fenugreek, hvítlaukur, kanill, kardimommur, Karrý, kóríander, laukur, negulnaglar, sinnep, svartur pipar, tómatar, túrmerik, Uppskriftir, , , , , , , , , , , , ,

Bragðmikið pastasalat með eplum og sólþurrkuðum tómötum

Þetta salat er eitthvað alveg nýtt fyrir mér, spagetti, epli, sólþurrkaðir tómatar, maís og laukur í grunninn og svo hellt yfir það sósu sem hljómar ansi furðulega en passar einhvern vegin fullkomlega með eplunum og lauknum. Það er alltaf svo gaman þegar maður lærir að blanda eitthverju nýju saman í matargerðinni.

Þetta salat er tilvalið sem hádegismatur eða léttur kvöldverður. Þó svo að það sé spagetti í salatinu þá gera eplin og maísinn það frekar létt og brakandi.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: epli, límóna
Grænmeti: maís, laukur, tómatar,
Krydd: hvítlaukur, sinnep, ferskt kóríander, svartur pipar

Uppskrift
Fyrir 4-6
450 gr spagetti
2 tsk ólífuolía
8 stk sólþurrkaðir tómatar skornir í litla bita
350 gr maís
3 græn epli niðurskorið
1 rauðlaukur smátt skorinn
2 msk ferskt kóríander smátt saxað
Nýmalað salt og pipar

Sósan:
1/4 bolli majones
1/4 bolli sýrður rjómi
2 msk grófkorna dijon sinnep
2 msk safi úr límónu
1 og 1/4 tsk chili krydd
1 og 1/4 tsk malað cumin krydd

Sjóðið spagettíið í samræmi við leiðbeiningar á pakka. Skolið spagettíið með köldu vatni þegar búið er að sjóða það svo það haldið ekki áfram að eldast. Færið í salatskál.

Blandið saman innihaldefnum í sósuna og geymið í ísskáp þar til salatið er tilbúið.

Hellið ólífuolíunni yfir pastað og blandið saman við. Bætið sólþurrkuðu tómötunum, maísnum, eplunum, lauknum og kóríanderinu saman við og blandið vel. Saltið og piprið eftir smekk. Hellið sósunni yfir í smá skömmtum og blandið saman við. Skreytið með fersku kóríander og berið fram.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: epli, hvítlaukur, kóríander, laukur, maís, Pasta, Salöt, sítrus ávextir, sinnep, svartur pipar, tómatar, Uppskriftir, , , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: