Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Kartöflusúpa með balti karrý

Ég er alveg sérstaklega hrifin af kartöflum, hvort sem það eru venjulegar kartöflur eða sætar. Ég næ þó yfirleitt að halda mig frá frönsku kartöflunum, enda algjör óþarfi að drekkja kartöflum í óhollri rjúkandi olíu til að gera þær góðar. En í þetta skiptið gerði ég kartöflusúpu. Þó svo að veðrið sé búið að vera einstaklega gott síðustu daga þá er voða gott að fá heita og saðsama súpu þegar farið er að dimma svona mikið. Ég hef haft lítinn tíma uppá síðkastið til að elda og dúlla mér í eldhúsinu svo að súpa eins og þessi var alveg kjörin, ótrúlega fljótlega og einföld. Ég notaði karrý mauk sem ég keypti í Lifandi markaði og heitir Organic Balti Curry Paste og er indverskt karrýmauk. Þar reyndist mjög gott og mæli ég því sérstaklega með því.

Ég skoða alltaf samsetningu kryddanna í því karrý sem ég kaupi. Mig langar að lista upp samsetninguna í þessari tegund til þess að varpa ljósi á hve margar krabbameinshamlandi tegundir er að finna í henni. Þetta eru öll efnin sem finnast í maukinu:

  • Tómatmauk – inniheldur mikið magn af lycopene sem er eitt öflugasta og mest rannsakaða krabbameinshamlandi efnið sem finnst í plöntum. Lycopene gefur tómötum rauða litinn og magn þess er margfalt meira í unnum og elduðum tómatvörum en í hráum tómötum.
  • Hvítlauksmauk – inniheldur diallyldisulfide sem hamlar vexti og útbreiðslu margra tegunda krabbameins, m.a. brjósta- og ristilkrabbameins, og ýtir undir frumudauða (e. apoptosis). [heimild] Virkni hvítlauks eykst við það að leyfa honum að anda áður en hann er notaður í matargerð, þannig að ráðlagt er að merja hvítlaukinn og láta hann standa í 2-3 mínútur áður en hann er notaður í matargerð.
  • Engifermauk – inniheldur efnið gingerol sem hefur andoxandi áhrif, er bólguhamlandi og hindrar framleiðslu á cox-2, sem er aðalensímið sem krabbameinsfrumur nota til að mynda bólgur [heimild: Bragð í baráttunni bls. 88 og hér].
  • Túrmerik – Mjög öflugt og mikið rannsakað krabbameinshamlandi efni sem yfir 3000 birtar rannsóknir sýna fram á virkni þess til að vinna gegn bólgum og vexti og myndun krabbameins [heimild]
  • Garam masala – inniheldur kóríander, kanil, engifer og negul – allt krabbameinshamlandi kryddtegundir
  • Chili, cumin, túrmerik, kóríander negul og kanil – allt krabbameinshamlandi kryddtegundir. Sjá nánar hér sem og undir greinar.
  • Auk þess: sólblómaolíu og hvítvínsedik

En aftur yfir í kartöfluumræðuna. Kartöflur eru ein þeirra fæðutegunda sem rannsóknir sýna að hafi krabbameinshamlandi áhrif. Raunar eru það ekki kartöflurnar sjálfar, heldur hýðið sem hefur krabbameinshamlandi áhrif. Svo ég hvet alla til að borða hýðið af kartöflunum. Í súpu eins og þessari er ekkert mál að hafa hýðið með. Þegar súpan er maukuð í lokinn maukast hýðið með og maður tekur ekkert eftir því. Í bókinni Bragð í baráttunni er fjallað um krabbameinshamlandi áhrif kartöfluhýðis og þar segir eftirfarandi:

,,Allur matur úr jurtaríkinu er mjög mikilvægur í krabbameinsforvörnum og án vafa eitt beittasta vopnið gegn öllum tegundum krabbameins, sérstaklega í meltingarfærum. Sumar jurtir geta jafnvel komið okkur á óvart! Til dæmis hin hógværa kartafla, sér í lagi mjölvamiklar tegundir. Henni er oft raðað í flokk með fæðu sem hefur ekki mikið næringargildi en miklu síður litið á hana sem mikilvæga krabbameinsforvörn! Við könnuðum samt möguleika hennar á að hafa áhrif á vöxt einangraðra magakrabbameinsfrumna. Þó svo að kartaflan sjálf hafi ekki sýnt nein krabbameinshamlandi áhrif tókum við eftir því að kartöfluhýðið reyndist hafa öflug, hamlandi áhrif á vöxt krabbameinsfrumna (mynd 15 [sjá bls. 53 í bókinni]. Þessi óvænta niðurstaða sýnir hversu krabbameinshamlandi sameindir eru sterkur eðlisþáttur fæðu úr jurtaríkinu og mikilvægi þess að neyta sem allra flestra tegunda fæðu úr þessum flokki til að koma í veg fyrir krabbamein.“

Þetta er ótrúlega merkilegt. Kartöfluhýðið inniheldur sem sagt mikið af krabbameinshamlandi efnum og myndin sem birtist með þessum texta sýnir þetta á skýran hátt. Merkilegt!

En áður en ég fer í uppskriftina langar mig að benda öllum á sérblað um umhverfismál og umhverfisvænar vörur í Fréttablaðinu í dag. Fullt af góðum upplýsingum um mikilvægt málefni.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: mangó
Grænmeti: kartöflur, púrrulaukur
Krydd: engifer, hvítlaukur, chili, túrmerik, cumin, kóríander, negull, kanill, steinselja
Annað: jógúrt

Uppskrift
fyrir 4

2 msk. repjuolía eða ólífuolía
6 stórar kartöflur niðurskornar með hýðinu
1 lítri vatn
2 msk. balti curry paste
1 tsk. herbamare original
¼ tsk. túrmerik + svartur pipar
½ púrrulaukur niðurskorin
3 hvítlauksrif niðurskorin
1 lítri af vatni
1 dós kókosmjólk
1 grænmetisteningur
2 msk. sætt mangó chutney
steinselja smátt söxuð (má líka vera ferskt kóríander)
Sýrður rjómi (má sleppa)

Skerið púrrulauk og hvítlauk niður og látið anda í nokkrar mínútur.  Hitið olíuna í potti og steikið laukinn í nokkrar mínútur við vægan hita. Bætið karrý mauki, túrmeriki og svörtum pipar saman við og haldið áfram að steikja í 1-2 mínútur. Bætið kartöflum saman við, vatni og kókosmjólk og látið suðuna koma upp. Bætið herbamare og grænmetisteningi saman við og látið sjóða í 30-40 mínútur eða þar til kartöflurnar eru mauksoðnar. Maukið súpuna með töfrasprota. Bætið mangó chutney og steinselju saman við og berið fram. Dropið smá sýrðum rjóma yfir eftir smekk.

About these ads

Filed under: chili, chili pipar, engifer, Greinar, hvítlaukur, kanill, kartöflur, kóríander, kúmin, laukur, negulnaglar, Rannsóknir, Súpur, steinselja, svartur pipar, Tímarit, túrmerik, Umhverfismál, Uncategorized, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , , ,

Fyrirlestur Dean Ornish hjá MD Anderson Cancer Center

Mig langar að benda öllum áhugasömum á þennan hreint frábæra fyrirlestur Dean Ornish hjá MD Anderson Cancer Center. Þetta er einhver besti fyrirlestur sem ég hef séð um mikilvægi heilbrigðs lífstíls á líkamslegt og andlegt heilbrigði. Ég ætlaði mér að lista upp helstu atriðin sem fram komu en hætti við vegna þess að fyrirlesturinn er í raun allur merkilegur. Mæli eindregið með því að fólk gefi sér tíma í að horfa á hann.

Fyrirlesturinn er aðgengilegur HÉR.

Filed under: Greinar, Myndskeið, Rannsóknir, Umhverfismál, ,

Núðlur með grænu og góðu

Ég er einstaklega hrifin af núðluréttum og þessi heppnaðist sérstaklega vel. Það er einhvern vegin allt í þessum rétti sem gerir góðan núðlurétt, spergilkál, engifer, spínat, sesamfræ, sojasósa og tófú. Þetta eru allt fæðutegundir sem eru í miklu uppáhaldi hjá mér og vonandi hjá ykkur líka því þær eru sérstaklega hollar. Áður en ég held áfram með umfjöllunina um núðlurnar langar mig að skrifa nokkrar línur til að koma mér af stað í umhverfisspjallinu sem ég lofaði í nýársfærslunni. Ég er að spá í að skrifa eins og eina málgrein (sem verða örugglega alltaf þrjár) af og til um það hvernig við getur dregið úr mengun og þannig aukið gæði andrúmsloftsins í kringum okkur. Ég ætla hins vegar ekki að fjalla um það að kaupa íslenskt í þessari færslu því það tónar ekkert sérlega vel við þessa uppskrft, því miður. Það er hrikalegt hallæri í búðunum þessa dagana þegar kemur að íslensku grænmeti. Ég fór í Bónus í dag og það eina sem var íslenskt í grænmetisdeildinni voru gulrætur, án gríns. Enn hvað um það.

Það er oft erfitt að átta sig á því hvað við íslendingar getum gert til að draga úr mengun, því við erum jú svo heppin að nánast öll okkar raforka kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Þegar maður les sig til um þessi mál er rafmagnssparnaður yfirleitt eitthvað sem mikil áhersla er lögð á, því annarstaðar í heiminum er rafmagn oft á tíðum búið til með brennslu jarðefnaeldsneytis (kola), sem er mjög mengandi. En hvaðan kemur mengunin hér á landi? Hér kemur mynd sem gefur svar við því (heimild bls. 30).

Af myndinni sjáum við að iðnaðarferlar eru sá geiri sem mengar mest, þ.e. stórfyrirtækin. Ég ætla mér nú lítið að ræða um þau hér, því það er á annarra forræði að stjórna og takmarka útblástur stórfyrirtækjanna hér á landi. En af myndinni sýnist mér að almenningur geti aðallega haft áhrif á þrjá flokka, þ.e. samgöngur, landbúnað og úrgang. Þetta eru samtals 40% af útblæstri gróðurhúsalofttegunda og því nokkuð stór hluti. En hvernig höfum við áhrif? Hér eru nokkur atriði sem gætu komið ykkur af stað: Read the rest of this entry »

Filed under: chili, engifer, núðlur, sesamfræ, spínat, spergilkál, Tófú, Umhverfismál, Uppáhalds, Vegan

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 366 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 366 other followers

%d bloggers like this: