Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Bragðmikil afrísk súpa með hnetum og kjúklingabaunum

Þessi súpa er mjög vel næringarfræðilega samsett. Hún inniheldur próteinríkar, trefjaríkar, fólínsýruríkar og járnríkar kjúklingabaunir, a vítamínríkar sætar kartöflur og gulrætur, prótínríkt gæðahnetusmjör, tómatarnir eru svo ríkir af lycopene og í rauða chilipiparnum er að finna capsaicin sem talið er vinna gegn krabbameini m.a. í blöðruhálskirtli. Hún er bragðmikil og matarmikil en í senn létt í maga og auðmeltanleg. Hún inniheldur einnig heila kanilstöng sem látin er sjóða í súpunni allan tímann og svo tekin úr áður en súpan er maukuð. Kanill er öflugt krydd sem er blóðsykurjafnandi og rannsóknir sýna einnig að vinni gegn ýmsum tegundum krabbameins (sjá t.d. hér).

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, gulrætur, sætar kartöflur, tómatar
Krydd og kryddjurtir: engifer, rautt chili, hvítlaukur, kóríander, kúmin, ferskt kóríander, kanill
Hnetur: jarðhnetur

Uppskrift
fyrir 4-6

2 msk. kókosolía
2 laukar niðurskornir
1 msk ferskt engifer saxað
4 hvítlauksgeirar marðir
1 stór rauður chili niðurskorinn
1 kanilstöng
1 ½ tsk malað kúmin
1 ½ tsk malað kóríander
1 tsk salt
4 tómatar niðurskornir
2 meðalstórar sætar kartöflur niðurskornar
3 meðalstórar gulrætur niðurskornar
5 bollar vatn
4 msk gróft hnetusmjör
1 dós kjúklingabaunir
3 msk ferskt saxað kóríander

Hitið olíuna í potti og steikið laukinn í 5-7 mínútur eða þar til hann er farinn að brúnast. Bætið þá hvítlauk, engiferi, chili, kanilstöng, kúmini, möluðu kóríander og salti í pottinn og steikið áfram í um 3 mínútur. Bætið næst tómötunum út í og steikið áfram í 2-3 mínútur. Bætið þá sætum kartöflum, gulrótum og vatni út í og látið suðuna koma upp. Sjóðið súpuna í 40 mínútur við vægan hita eða þar til allt grænmetið er orðið mjúkt. Maukið þá með töfrasprota eða í blandara. Komið aftur fyrir í potti á hellunni og bætið hnetusmjöri saman, kjúklingabaunum og kóríander saman við. Látið allt blandast vel saman á vægum hita. Smakkið og bætið við salti og nýmöluðum pipar eftir smekk. Skreytið með fersku kóríander og berið fram með góðu brauði.

About these ads

Filed under: chili, engifer, gulrætur, hvítlaukur, kanill, kartöflur, Kartöflur, kóríander, kúmin, Kjúklingabaunir, laukur, Súpur, svartur pipar, tómatar, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , ,

Karrýpottréttur með kjúklingabaunum og sætum kartöflum

Þetta er virkilega mildur karrýréttur. Sætu kartöflurnar fara mjög vel með karrýinu og kókosmjólkinni. Í réttinn á að nota indverskt karrý eða svipað uppbyggt karrý, þ.e. karrý sem inniheldur kóríander, kúmin, túrmerik og cayennepipar (eða chili pipar), ekki tælenskt karrý. Ég notaði Sri Lanka karrýblönduna mína. Mér finnst hún alveg sérstaklega góð, auk þess að innihalda mikið magn af hollum kryddum. Það eru hins vegar til fínar karrýblöndur í búðunum sem vissulega er hægt að nota.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, kartöflur, gulrætur
Krydd og kryddjurtir: karrý (inniheldur chili, kóríander, fennel, kardimommur, negulnagla, túrmerik, kanil), ferskt kóríander, svartur pipar

Uppskrift
fyrir 4-6

1 1/2 tsk kókosolía
1 1/2 bolli laukur niðurskorinn (um 2 laukar)
2 hvítlauksrif marin
1 stór græn paprika niðurskorin
3 gulrætur niðurskornar
1 1/2 tsk karrý
1/2 tsk malað kúmin
1/4 tsk cayenne pipar
1/2-1 tsk salt
3 bollar grænmetissoð
4 bollar sætar kartöflur (um 2 stórar)
2 bollar soðnar kjúklingabaunir (eða í dós, um 1 dós)
1 bolli kókosmjólk
1/4 bolli ferskt kóríander smátt saxað
nýmalaður svartur pipar

Hitið olíuna í potti og steikið laukinn í um 3 mínútur, bætið þá  hvítlauknum, paprikunni og gulrótunum út í og steikið í um 5 mínútur. Bætið karrýi, kúmini, cayenne pipar og 1/2 tsk af salti út í og steikið í um 2 mínútur. Hrærið vel svo að kryddið festist ekki við botninn á pottinum. Bætið því næst grænmetissoði og sætu kartöflunum út í og náið upp suðu. Sjóðið í um 15 mínútur eða þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Takið um helminginn af sætu kartöflunum upp úr réttinum og maukið annað hvort með gaffli eða í matvinnsluvél og hellið svo aftur út í réttinn og hrærið vel. Bætið þá kjúklingabaununum, kókosmjólkinni, kóríanderi og svörtum pipar út í og látið sjóða í nokkrar mínútur. Smakkið og saltið eftir smekk. Berið fram með hrísgrjónum og naan brauði.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Baunir, fennel, gulrætur, hvítlaukur, kanill, kardimommur, Karrý, kartöflur, kóríander, Kjúklingabaunir, laukur, negulnaglar, svartur pipar, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , , , , , ,

Chana Masala – Kjúklingabaunaréttur frá Norður Indlandi

Þetta er vinsæll grænmetisréttur frá Indlandi og þá sérstaklega Norðurhluta Indlands.  Hann inniheldur margar tegundir af kryddum og er virkilega bragðmikill, án þess að vera of sterkur. Kjúklingabaunir, sem einnig eru kallaðar garbanzo baunir, eru próteinríkar og mjög hollar. Þær eru einnig trefjaríkar og innihalda talsvert magn af járni, b vítamínum auk annarra vítamína og steinefna.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrónu
Grænmeti: laukur, tómatar
Krydd: hvítlauk, engifer, kóríander, túrmerik, engifer, garam masala (kardimommur, negulnaglar, svartur pipar, kóríander)

Uppskrift
fyrir 4

1 msk kókosolía
2 laukar niðurskornir
2 hvítlauksgeirar marðir
1 msk malað kóríander
2 tsk malað kúmin
½ tsk malaður cayenne pipar
1 tsk malað túrmerik
6 msk niðurskornir tómatar
1 bolli vatn
4 bollar soðnar kjúklingabaunir (eða í dós)
2 tsk ristuð kúminfræ
1 msk mango krydd/amchoor (má sleppa)
2 tsk paprikukrydd
1 tsk garam masala
½ tsk salt
safi úr hálfri sítrónu
1 ferskur grænn chili pipar
2 msk ferskt engifer smátt saxað

Hitið kókosolíu á pönnu og bætið lauk út í og steikið í um 3 mínútur. Bætið þá hvítlauknum á pönnuna og steikið í aðrar 3 mínútur og hrærið vel á meðan. Lækkið hitann aðeins niður. Bætið út í kóríander, kúmin, cayenne og túrmeriki og hrærið í. Bætið tómötunum út í og steikið í 3-4 mínútur og bætið þá vatni og kjúklingabaunum út í. Bætið ristuðu kúmin fræjunum, mango kryddinu, garam masala, salti og sítrónusafa saman við og látið malla í 10 mínútur með pönnuna lokaða. Takið lokið af og bætið chili og engiferi saman við. Hrærið í og látið mallað í nokkrar mínútur, eða þar til vökvinn eru að miklu leyti gufaður upp. Berið fram með naan brauði og chutney.

Ef afgangur er af uppskriftinni er virkilega gott að nota réttinn kaldan á vefju með grænmeti, chutney og sýrðum rjóma.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Baunir, chili, engifer, hvítlaukur, kardimommur, Karrý, Kjúklingabaunir, laukur, mangó, negulnaglar, sítrus ávextir, svartur pipar, tómatar, túrmerik, Uppskriftir, , , , , , , , , , , , , , , ,

Hummus með kóríander og chipotle “pestó”

Þetta er mexíkanskur hummus. Ég er ekki viss um að mexíkanir borði mikið af hummus en ef þeir gera það þá er þetta klárlega útfærslan. Þessi hummus er gerður með því að blanda saman grunnuppskriftinni minni að hummus og kóríander- og chipotle “pestói”. Chipotle er mikið notað í mexíkanskri matargerð og er í raun þurrkaður rauður jalapeno pipar. Í þennan hummus nota ég chipotle sósu sem á að vera hægt að nálgast í stórmörkuðum (að minnsta kosti í Hagkaup í Skeifunni).

Þessi pestóuppskrift er hæfileg í um 1/4 af grunnuppskriftinni að hummus (sem er mjög stór uppskrift).

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítróna
Krydd: hvítlaukur, kóríander
Hnetur: sesam fræ (tahini)

Uppskrift
hæfilegt í um 1 bolla af hummus

Hér er grunnuppskriftin að hummus.

Kóríander- og chipotle pestó

2 msk ólífuolía
1 msk chipotle sósa
1 stór hvítlauksgeiri
1 msk ferskt kóríander

Setjið allt saman í matvinnsluvél og hrærið vel. Hellið svo saman við hummusinn og berið fram.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Ídýfur, chili, Hummus, hvítlaukur, kóríander, Kjúklingabaunir, Pestó, sítrus ávextir, , , , , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 366 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 366 other followers

%d bloggers like this: