Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: appelsínur
Grænmeti: rauðlaukur,
Krydd: karrý, kanill
Hnetur og fræ: valhnetur
Baunir: linsubaunir
Uppskrift
fyrir 4-6
1-2 msk. repjuolía
3 rauðlaukar – litlir
2 litlar appelsínur niðurskornar
2 tsk. hot madras karrý + svartur pipar
1,5 lítrar vatn
2 msk. grænmetiskraftur frá himneskri hollustu
2 tsk. maldon salt (minna ef maður notar venjulegt salt)
5 cm langur bútur af fersku engiferi, niðurskorið (eða eftir smekk
1 bolli rauðar linsubaunir
kanill á hnífsoddi
Grískt jógúrt
Hunangsristaðar valhnetur
Steikið laukinn upp úr repjuolíunni í 3-5 mínútur eða þar til hann hefur linast vel. Bætið þá karrýi, engiferi, kanil og appelsínum saman við og steikið í 1-2 mínútur. Hellið vatninu saman við og bætið krafti og salti saman við. Látið suðuna koma upp og lækkið undir. Látið malla í 25 mínútur. Maukið og berið fram með grísku jógúrti og hunangsristuðum valhnetum.
Filed under: Jógúrt, kanill, laukur, Rauðar linsubaunir, Rauðar linsubaunir, sítrus ávextir, Súpur, svartur pipar, túrmerik, Uppskriftir, valhnetur, appelsínur, engifer, hunangsristaðar valhnetur, Karrý, sítrus ávextir, súpa




