Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Bananabrauð með fíkjum og valhnetum

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: bananar, fíkjur
Hnetur:
valhnetur

Uppskrift

3 brún egg
1/8 tsk. vanilluduft (frá Rapunzel)
½ bolli hrásykur
6 fíkjur niðurskornar
½ bolli valhnetur niður skornar
2 bananar maukaðir
6 msk. repjuolía
½ bolli kókosmjólk
2 bollar heilhveiti eða spelt
2 tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
¼ tsk. eðalsalt frá pottagaldri

Hitið ofninn í 180°C.

Hrærið eggjum og hrásykri vel saman í skál (gott að nota handþeytara á miðlungshraða). Bætið því næst banana, valhnetum, fíkjum og kókosmjólk saman við. Bætið svo þurrefnunum rólega saman við. Hellið í smurt form og bakið í 40 mínútur eða þar til brauðið er bakað í gegn.

About these ads

Filed under: bananar, Brauð, pekanhnetur, sætindi

Bleikt rauðrófubrauð með amaranth

Í tilefni af bleikum mánuði aukinnar meðvitundar um brjóstakrabbamein ákvað ég að búa til eitthvað virkilega bleikt. Bleikt brauð fannst mér sniðugt. Sérstaklega af því ég keypti amaranth nýlega og mig langaði að nota það í brauð. Amaranth er próteinríkt og næringarríkt korn sem inniheldur efnið lysine. Lysine er efni sem rannsóknir benda til að geta unnið gegn krabbameini. Hingað til hef ég notað malað amaranth, en ég hef enn ekki fundið það hérna heima. Þess vegna læt ég það sjóða með höfrunum og standa aðeins, til þess að láta það mýkist upp. Deigið var alveg rosalega bleikt í pottinum en kom hins vegar ekki eins bleikt út úr ofninum. En þá er bara að setja meira af rauðrófum næst.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: rauðrófur
Fræ og kornmeti: hafrar, amaranth

3 dl. vatn
2 dl. haframjöl (fínt)
3 msk. amaranth
1 msk kókosolía
1 troðinn dl. rauðrófur rifnar
1 1/2 tsk þurrger
1 tsk salt
1 dl. kotasæla
1 msk agavesíróp
2 dl. spelt
3 dl. hveiti + sirka 1 dl. til að hnoða upp úr
1 tsk maldon salt til að strá yfir

Setjið vatn, haframjöl, amaranth, salt, agavesíróp, rauðrófur og kókosolíu saman í pott og látið suðuna koma mjög hægt upp. Strax og suðan kemur upp er slökkt undir, hrært í pottinum, lokið sett á og látið bíða í 15-20 mínútur. Þá er kotasælu bætt út í og síðan geri og hrært saman við. Þvínæst er spelti og hveiti bætt saman við og hnoðað í nokkrar mínútur. Setjið deigið í skál, breiðið yfir og látið á volgan stað í um eina klukkustund og látið hefast. Takið deigið úr skálinn og komið fyrir í smurðu bökunarformi og látið hefast áfram í 15-20 mínútur. Stráið maldon salti yfir og bakið við 200 gráður í 30 mínútur.

Filed under: amaranth, Brauð, haframjöl, rófur, Uppskriftir, , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: