Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Heilafóður…

grænn smoothie

Þessa dagana er ég að berjast, og þá meina ég berjast, í gegnum regluverk Evrópusambandsins á einkaleyfum í líftækniiðnaði og það eina sem hjálpar mér er grænn smoothie. Ég ætla þess vegna að gefa mér smá tíma frá bókunum og skrifa örlítið um þennan smoothie og fleira skemmtilegt sem ég hef komist í kynni við síðan ég skrifaði síðast. Fyrst ber líklega að nefna nýju bókina hennar Kris Carr. Hún kom út í lok október og ég gat auðvitað ekki beðið þar til ég færi næst til Bandaríkjanna, og pantaði bókina á Amazon (fyrir ykkur sem fallið líka fyrir freistingum – hér). Bókin er eins falleg og upplífgangi eins og annað sem komið hefur frá Kris Carr í gegnum tíðina. Hún fékk til liðs við sig Chad Sarno, og saman töfra þau fram einfaldar og góðar uppskriftir. Það er þó þess virði að taka fram að allar uppskriftirnar eru án allar dýraafurða, sem er að sjálfsögðu hið besta mál, en fyrir þá sem eru nýir á þeirri braut getur bókin virst á köflum flókin. Uppáhaldið mitt í bókinni er misó- og engiferdressing sem ég gæti líklega borðað í heilan mánuð án þess að fá leið á. Hún er ekki ósvipuð misó dressingunni sem ég birti með kínóasalatinu á sínum tíma, nema með engifer og appelsínusafa í staðin fyrir mirin.

Hvað annan lestur varðar hef ég því miður ekki verið afkastamikil. Það eru tvær nýjar kokkabækur í hillunni hjá mér þessa dagana sem ég fletti mikið í gegnum, les og dáist af myndunum í. Önnur þeirra er íslensk og kom út fyrir jólin og mér finnst ég knúin til að fjalla aðeins um, því hún er hreint listaverk. Hún heitir Eldað og bakað í ofninum heima, góður matur – gott líf og er eftir hjónin Ingu Elsu Bergþórsdóttur og Gísla Egil Hrafnsson. Þvílíkt sem þetta fólk er myndalegt og smekklegt. Bókin er algjörlega til fyrirmyndar hvað auðvitað fegurð og útfærslu varðar þó svo að uppskriftirnar séu kannski ekki allar alveg á minni línu. En girnilegar eru þær þó og alveg klárt mál að margar verða prófaðar hér á hátíðisdögum.

Hin bókin heitir Dinner, a love story og er eftir Jenny Rosenstrach. Ég keypti hana þegar ég var í New York núna í janúar en það má segja að myndskeiðið inni á Amazon af höfundinum hafi alveg náð að selja mér bókina.  Bókin segir frá því hvernig höfundinum tekst að vera útivinnandi tveggja barna móðir sem samt sem áður tekst að elda alltaf kvöldmat fyrir fjölskylduna og virkja börnin í að hafa áhuga á matargerðinni. Þetta hljómaði allt eins og verkefni sem mig langaði heldur betur að tileinka mér. Ég hef enn ekkert eldað upp úr henni og verð að viðurkenna að uppskriftirnar eru ekki þannig að ég hleyp út í búð til að kaupa í þær, en það kemur vonandi að því. Ég er ekki frá því að kjúklingur í apríkósu og sojamarineringu verði á boðstólnum á mínu heimili á morgun.

En hvað græna smoothie-inn varðar þá er þetta mín leið til að stæla grænu þrumuna í Lifandi Markaði. Ég verð þó alveg að viðurkenna að það væri voða þægilegt að losna við uppvaskið á bæði djúsvélinni og blendernum, en útkoman er þó þess virði. Ég hef lagt það í vana minn að gera töluvert ríflega að djúsnum og setja í flösku inn í ísskáp sem ég geymi, stundum til morguns, en drekk þó yfirleitt þegar líður á daginn. Maður þarf aðeins að hafa í huga að næringargildið rýrnar þegar djúsinn oxast. Þetta tekur drottning grænu djúsanna, Kris Carr, endurtekið fram. Ég fór á frábæran stað í New York sem heitir Organic Avenue og keypti mér grænan djús. Þeir eru seldir í sérlega fallegum glerflöskum sem eru tilvaldar til þess að geyma djús í inni í ísskáp, flaskan er ekki of stór og lokast vel. Mikilvægt er þó að reyna að fylla hana sem mest þannig að sem minnst súrefni sé í flöskunni við geymslu.

organic avenue

Og svona lítur flaskan út í ísskápnum hjá mér. En smoothie-inn geri ég á eftirfarandi hátt:

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: mangó, límóna, döðlur
Grænmeti: avókadó, spínat/klattasalat, sellerí
Hnetur og fræ: chia fræ, hampfræ (hamp prótein)
Krydd: engifer, cayenne pipar (chili)
Annað: macha te

Í djúsvél set ég:

2-3 epli – má líka vera 2 epli og 1 pera eða mögulega ananas
3 sellerístilkar
Engiferbútur
1/2 agúrka
1 límóna

Helmingurinn af djúsnum fer yfir í blenderinn með:

lúku af spínati/klettasalati
1/2-1 tsk. af macha te-i
1 tsk. hemp prótein
1 tsk. chia fræjum
4 mjúkum döðlum
frosnu mangó
smá cayenne pipar.

Síðan blanda ég þessu vel saman. Að lokum blanda ég saman við þetta avokadó. Best er að blanda því bara í stutta stund saman við, en þó nægilega lengi til að ekki verið kekkir í drykknum. Avokadó getur orðið dálítið leiðinlegt ef það blandast of lengi.

En ætli sé ekki best að ég blandi mér einn í hvelli og leggist svo aftur yfir bækurnar.

About these ads

Filed under: avokadó, Bækur, chia fræ, chili, döðlur, Drykkir, engifer, epli, hemp fræ, klettasalat, mangó, matcha grænt te, pera, sítrus ávextir, sellerí, spínat, Uppáhalds, Vegan

Ein stór hollusta!

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: banani, mangó
Grænmeti: gulrætur
Hnetur og fræ: sesamfræ (tahini), hampfræ (hamp prótein)
Krydd: engifer

2/3 bolli hrísmjólk með kókos
2/3 bolli gulrótasafi
1 tsk. tahini
smá bútur af engiferi
1 tsk. bee pollen
1 bolli frosið mangó
1 banani
1-2 msk. hemp prótein

Allt sett í blender og drukkið með bros á vör.

Filed under: bananar, Drykkir, engifer, gulrætur, mangó, Morgunmatur, sesamfræ, Vegan

Smoothie – Pure Ebba og sætuefni

Ég er voða hrifin af pure Ebbu og hef gaman af að horfa á þættina hennar á mbl sjónvarpi. Í einu myndbrotinu hennar þá gerir hún goji sjeik með kasjúahnetum og fleira góðgæti. Ég er að sjálfsögðu búin að prófa að gera hann og ég get ekki sagt annað en að hann hafi vakið mikla lukku á mínun heimili. Dóttir mín fékk að fara með sinn í bað og drakk hann upp til agna. Mér finnst æðislegt að setja tahini í hann. Loksins finnur maður leið til að nota þetta næringarríka mauk sem ég hef hingað til einungis notað í hummus og einstaka salatdressingu.Ég hef svo aðeins þróað þennan sjeik eftir mínu höfði. Ég er rosalega hrifin af hamp fræjunum og nota þau eins mikið og ég mögulega get. Þess vegna setti ég 2 msk. af hamp fræjum í staðin fyrir kasjúahneturnar. Þetta gerði mér lífið aðeins auðveldara þar sem ekki þarf að leggja flysjuð hamp fræ í bleyti. Síðan gerði ég uppskriftina nánast alveg eins og Pure Ebba nema ég bætti 1 tsk. af macha te-i út í hann, til að gera hann enn meira ofurfæði og gefa mér smá kickstart fyrir daginn því ég átti langan dag framundan.

Mín útgáfa af sjeiknum er þá ríkur af bæði omega 3 og omega 6, en í góðum hlutföllum þökk sé hamp fræjunum. Hann inniheldur mjög mikið af andoxunarefnum bæði vegna goji berjanna og mangósins en ekki síður vegna macha te-sins. Mér finnst alltaf gott að setja smá matcha te út í sjeika sem innihalda vanillu og mangó. Eins og ég hef fjallað um áður þá er macha te hreinasta tegundin af grænu te-i sem fyrirfinnst. Matcha te kemur í fíngerðu dufti og er talið innihalda margfalt meira magn andoxunarefna en venjulegt grænt te. Ég panta mitt græna te hjá Mountain Rose Herbs en það á hefur hins vegar fengist í Te og kaffi og einhverjum heilsubúðum hér á landi.

Í þriðja skiptið sem ég gerði þennan sjeik þá setti ég líka golden berries út í hann. Þau eru súr og mjög rík af a-vítamíni. Ég er hrifin af súru þannig að mér fannst þau gera sjeiknum gott. Ég prófaði líka að setja stevíu í staðin fyrir yacon duftið en ég var ekki sérlega hrifin af því. Ég hef lítið notað stevíu en er aðeins að prófa mig áfram með hana. Mér finnst eiginlega hálfgert gervibragð af henni og svo verð ég eiginlega að viðurkenna að allt sem hljómar of gott til að vera satt er eitthvað spúkí að mínu mati. Stevía á að vera 100-200 sinnum sætari en sykur og hækka blóðsykurinn ekki neitt. Ótrúlega magnað ef að það er rétt og ef þessi jurt hefur engin önnur áhrif á líkamann til hins verra. Ég held ég haldi mig samt bara við hunangið, maple sírópið og döðlurnar í bili. Er kannski pínu íhaldsöm þegar kemur að sætuefnum en maple sírópið er í mestu uppáhaldi hjá mér vegna þess hve næringarríkt það er. Ég reyni alltaf að borða mat með það í hug að ég sé að næra líkama minn. Þettta lærði ég í Vancouver, þar sem fólk hugsar meira um að nærast en að mettast. Maple síróp og hunang eru líklega næringarríkustu sætuefnin. Mig langar að mæla sérstaklega með einu hunangi sem heitir Guardian Angel Honey og er frá fyrirtækinu Sonnentor. Þetta hunang er rosalega næringarríkt. Það inniheldur bæði bee pollen og royal jelly sem eru hvor um sig alveg sérstaklega næringarrík. Bee pollen á að innihalda öll þau næringarefni sem líkaminn þarf til að starfa eðlilega. Royal jelly er síðan efnið sem býflugnadrottningar lifa á og gerir þær sérstaklega frjósamar. Royal jelly er sérstaklega ríkt af b-vítamínum og amínósýrum. Royal jelly er talið vinna gegn fjölda sjúkdóma, m.a. krabbameini, vera sérstaklega gott við ófrjósemi og fyrirtíðarspennu. Royal jelly er bólgueyðandi og má því ætla að sá þáttur hafi einnig áhrif á fyrirbyggjandi virkni þess gegn krabbameinsmyndun.

Þessi færsla verður nú seint kölluð lífleg en ég mun bæta úr því von bráðar með færslum með uppskriftum og myndum. Þangað til, borðum hollt og brosum.

Filed under: Drykkir, goji ber, mangó, matcha grænt te, sætindi, Vegan

Grænn ofurdjús

 

Af því ég hef svo mikið að gera þessa dagana við að skrifa mastersritgerðina mína þá ætla ég bara að hafa þetta stutt í dag. Ég læt Kris Carr um að tala. Endilega kíkið á þetta video um djúsa.

En hér kemur uppskrift af einum góðum djús frá mér. Stútfullur af virkjum næringarefnum.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: kiwi, pera
Grænmeti: sellerí, agúrka
Kryddjurtir:  engifer, steinselja

Uppskrift
fyrir 1-2

3/4 agúrka
1 kiwi
1 pera
2 sellerístilkar
smá engifer
handfylli af steinselju

Allt sett í djúsvél og drukkið með bros á vör.

Filed under: Drykkir, engifer, kíwí, pera, sellerí, steinselja, Uppáhalds, Vegan

Matcha smoothie

Í þessum smoothie er ofur-ofur holla te-ið matcha, sem er tegund af grænu te-i sem á uppruna sinn í Japan. Þessi tegund af grænu te-i er talin sú allra hreinasta og er það skærgrænt á lit. Matcha hefur margfalt öflugri virkni en venjulegt grænt te. Í 1/2 tsk af matcha fæst um það bil sama virkni og í 8-10 bollum af venjulegu grænu te-i. Matcha er mjög fínmalað duft sem Japanir notuðu upprunalega sem hefðbundið te en hefur nú aukist neysla þess í allskyns annarri matargerð. Trufflur heilsugúrúanna er gjarnan velt uppúr matcha, matcha er bætt út í soba núðlur og ýmislegt annað og verður maturinn þá yfirleitt fallega grænn á lit.

Þegar ég bjó í Vancouver var ég vön að fá mér smoothie sem kallast Matcha monsoon og hugmyndin að þessum smoothie kemur frá honum. Ég er búin að reyna ýmsar tegundir en tókst ekki fyrr en nú að gera hann sérstaklega góðan. Svo ákvað ég fyrir um það bil viku síðan að hætta að drekka kaffi þar til ég er búin með mastersritgerðina mín og matcha te er því að gera góða hluti fyrir mig þessa dagana. Annað te sem ég er gjörsamlega fallin fyrir er svo Chai te. Ég hef alltaf kunnað vel að meta það en núna þegar ég átta mig á hve góð áhrif það hefur á einbeitinguna mína þá drekk ég það enn meira. Chai te inniheldur mikið af frábærum kryddum sem hafa mikil anti cancer áhrif. Þetta eru krydd eins og kardimommur, engifer, anís, svartur pipar og negull. Hreinlega lovely!


Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Ávextir: banani
Fræ: hörfræ/chia fræ
Te: matcha grænt te
Annað: ab-mjólk

Uppskrift
fyrir 1 

80 ml kókosmjólk (1/2 lítil dós)
1/2 bolli létt ab mjólk
1 tsk. matcha grænt te duft (eða venjulegt grænt te duft)
1/4 tsk. vanilluduft
2 tsk. hörfræ eða chia fræ
1 frosinn banani
klakar

Allt sett í blender og drukkið með bros á vör.

Filed under: bananar, chia fræ, Drykkir, hörfræ, Jógúrt, matcha grænt te, Te, Uppáhalds, , , , , , ,

Life over cancer og uppbyggjandi smoothie

Þessa dagana er ég að lesa einstaklega athyglisverða og fræðandi bók sem heitir Life over Cancer og er eftir Keith I. Block, MD. Bókin kom út árið 2010 og fjallar um þær aðferðir sem Block og starfsfólk hans í Block Center for Integrative Cancer Treatment notar í meðferðum gegn  krabbameini. Block leggur mikla áherslu á heildarjafnvægi líkamans, þ.e. andlegt og líkamlegt, og kemur mataræði þar mikið við sögu. Hann fjallar mikið um ástand sem nefnist cachexia og þýðir ástand þar sem einstaklingur tapar umtalsverðri líkamsþyngd án þess að vera að reyna að léttast. Þetta ástand er algengt meðal krabbameinssjúklinga og leiðir í mörgum tilvikum til þess að viðkomandi verður alvarlega vannærður og er afleiðingin oft á tíðum verri útkoma úr meðferðinni. Í bókinni kemur fram að krabbameinssjúklingar eru næstalgengasti hópurinn til þess að upplifa næringarskort meðal sjúklinga, á eftir alnæmissjúklingum. Block leggur miklar áherslu á að neyta hollrar fæðu til að vinna gegn ástandi sem þessu og þá sérstaklega bólguhamlandi fæðu sem er rík af omega 3, andoxunarefnum og forðast fæðu sem inniheldur mikið magn af omega 6. Hann mælir sérstaklega með efnum sem finnast í góðri ólífuolíu, te-i og granata epli. Einnig leggur hann miklar áherslu á próteinríka fæðu, og þá að próteinin komi úr jurtum, feitum fiski, lífrænum kjúklingi eða eggjum. Read the rest of this entry »

Filed under: acai ber, bananar, Bækur, Drykkir, granata epli, hemp fræ, jarðaber, Morgunmatur, sojabaunir, Vegan, , , , , , , ,

Engifer- og gojisafi

Þessa dagana virðist fólk vera með algjört æði fyrir bæði engifersafa og gojisafa. Það er að sjálfsögðu mjög gott mál og þess vegna ákvað ég að setja inn uppskriftina að þeim safa sem drukkinn er á þessu heimili. En fyrst smá um krabbameinshamlandi áhrif engifers.

Engifer inniheldur virka efnið gingerol sem er bólguhamlandi og andoxandi. Ég hef lengi ætlað mér að skrifa smá færslu um andoxunarefni og hvað í raun felst í orðinu andoxun. Til að skýra það í stuttu máli er andoxunarefni efni sem gerir sindurefni stöðug (e. free radicals) með því að veita þeim þær aukarafeindir sem á vantar til að fylla ysta hvel þeirra. Áhrif sindurefna hafa verið tengd við fjölmarga sjúkdóma, s.s. krabbameins, sykursýki, hjartasjúkdóma og Parkinsons sjúkdóm. Andoxunarefni geta þannig komið í veg fyrir skemmdir á frumum og stökkbreytingar á DNA vegna sindurefna, sem getur verið upphafið að krabbameinsmyndun. Ýmis efni teljast andoxunarefni s.s. C-vítamín, A-vítamín og E-vítamín og er því auðvelt að finna fæðu sem er rík af andoxunarefnum.

Rannsóknir benda til þess að neysla engifers geti haft hamlandi áhrif á myndun krabbameins og þá sér í lagi í maga og ristli (sjá t.d. þessa grein). Mér hefur þótt mjög gott að byrja daginn á litlu glasi af þessum safa, ef til vill með safa úr hálfri límónu. Hann er líka mjög góður, ef ekki betri, heitur beint úr pottinum, sérstaklega á köldum vetrardögum.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: goji ber
Krydd:
engifer, cayenne pipar

Uppskrift
gerir um 1,5 lítra

2 lítrar vatn
Ferskt engifer (12-15 cm) afhýtt og skorið i bita
4 msk. goji ber
1/4 tsk. cayenne pipar (má sleppa)
1-2 tsk. agave síróp eða eftir smekk

Setjið allt saman í pott og látið suðuna koma upp. Sjóðið við vægan hita í 45 mínútur. Slökkvið þá undir og látið standa í pottinum áfram í nokkrar klst. Hellið þá í blender og blandið saman. Sigtið því næst hratið frá og hellið í könnu. Drekkist heitt eða kalt.

Filed under: Drykkir, engifer, goji ber, , , , , , , , , , , , ,

Súkkulaðismoothie

Þessi smoothie er sérstaklega vinsæll á þessu heimili. Hráar kakóbaunir, eða raw cacao nibs, eru virkilega hollar bæði fyrir hjartað og heilann og innihalda mikið magn andoxunarefna. Kakóbaunin inniheldur, eins og allt súkkulaði, koffín og er því gott að skipta kaffinu út fyrir súkkulaðismoothie á morgnanna. Þessi veitir manni meiri orku, næringu og vellíðan en kaffibollinn, þó svo að hann geti stundum verið algjörlega ómótstæðilegur.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: banani, avókadó
Kornmeti: hafrar

Uppskrift
fyrir 1

1 bolli haframjólk eða möndlumjólk
1 msk. cacao nibs (fæst í heilsubúðum)
1 tsk. malað hreint kakó
1 banani
½ avókadó
klakar
örlítið agavesíróp

Blandið saman í blender og drekkið með bros á vör.

Filed under: avokadó, bananar, Drykkir, haframjöl, Morgunmatur, Vegan, , , , , ,

Orkusmoothie

Þessa dagana er ég að prófa mig áfram á morgnana í smoothy gerð. Ég hef verið að reyna að finna íslenskt orð yfir smoothy en mér hefur ekki dottið neitt í hug. Ég fletti því upp í tölvuorðabókinni minni og þá kom upp þýðingin “stimamjúkur”. Það er nú líklega ekki verri þýðing en hver önnur en mér finnst það eitthvað óþjált. En sem sagt, minn stimamjúki drykkur í morgun samanstóð af geisilega hollum og næringarríkum fæðutegundum sem allir ættu að reyna að koma inn í sitt mataræði á einn eða annan hátt.

Avokadó og spínat eru grunnurinn að súperhollustunni í þessum drykk. Avókadó er ein af þeim fæðutegundum sem kallað hefur verið superfood og t.d. David Wolfe fjallar mikið um í bókunum sínum. Avókadó er uppfullt af hollri fitu auk þess að vera ríkt af fólísýru, K-vítamíni, trefjum og fleiri nauðsynlegum næringarefnum. Spínat er að sama skapi líka algjört súperfæði (sjá nánar hér).

Hvað varðar jógúrtið þá er á bls 101 í bókinni Bragð í baráttunni fjallað um krabbameinshamlandi áhrif jógúrts og kemur eftirfarandi fram:

,,Dagleg neysla matar sem inniheldur meltingargerla er auðveld og áhrifarík aðferð til að viðhalda háu gildi mjólkurbaktería í ristlinum og fyrirbyggja þannig þróun krabbameins”.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Ávextir: banani, avókadó, goji ber, sítrus ávextir
Grænmeti: spínat
Fræ og kornmeti: chia fræ, hafrar
Jógúrt

Uppskrift

fyrir 2 fullorðna og eina litla 19 mánaða orkubombu

1 dós lífrænt ræktað kókosjógúrt frá Bíóbú
1 bolli haframjólk
1 lítið avókadó
1 banani
1 lúka spínat
10 goji ber
1 msk chia fræ
safi úr hálfu lime
1 tsk. agavesíróp (má sleppa)
5-6 klakar

Allt sett í blandara og hrært þar til drykkurinn er orðinn stimamjúkur. Hellt í glas og drukkið með bros á vör.

Filed under: bananar, chia fræ, Drykkir, goji ber, haframjöl, Jógúrt, Morgunmatur, sítrus ávextir, spínat, Uppáhalds, Uppskriftir, , , , , , ,

Grænn kókos-, ananas- og spínatdrykkur

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: ananas
Grænmeti: spínata

Uppskrift
fyrir 2

1 bolli kókosvatn
1 bolli ferskur ananas skorinn í bita
2 troðnir bollar spínat

Setjið allt saman í blender og blandið þar til orðinn er til grænn og girnilegur súperholl hreinsisafi. Bætið klökum við eftir smekk.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: ananas, Drykkir, Morgunmatur, spínat, Uppskriftir, , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 366 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 366 other followers

%d bloggers like this: