Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Nýtt ár með ramen súpu

Jæja, þá er nýtt ár gengið í garð. Ég er með mikið samviskubit eftir erfiða ritstíflu. Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég fékk algjört ógeð á tölvunni minni þann 14. desember síðastliðinn, þegar ég skilaði ritgerðinni minni, og hef bara nánast ekki tekið hana fram síðan þá. En með nýju ári hef ég hug á að vera duglegri en nokkru sinni fyrr, því að nú eru námsbækurnar ekki lengur að þvælast fyrir mér fram eftir nóttu og um allar helgar. Það má eiginlega segja að árið 2011 hafi verið ár stöðnunar hjá mér. Þegar ég lít yfir árið þá finnst mér ég hafa lært ansi fátt nýtt þegar kemur að heilsu og efni þessarar síðu. Það er að sjálfsögðu ekki rétt því ég las margar góðar bækur og borðaði margt nýtt og ljúffengt. Auk þess jókst fjöldi lesenda mikið og vonandi fleiri vaknað til meðvitundar um mikilvægi þess að borða holla fæðu.

Í fyrra skrifaði ég lista yfir helstu nýjungarnar sem ég kynntist á árinu. Ég hef hugsað mér að gera það líka núna. Svo í framhaldinu langar mér að benda ykkur á nokkrar góðar bækur sem ég mæli sérstaklega með. En við skulum byrja á nýjungunum.

Það sem kemur fyrst upp í hugann er mísó. Þrátt fyrir að hafa notað mísó aðeins í Vancouver  má eiginlega segja að ég hafi uppgötvað misó á nýjan hátt á þessu ári. Gwyneth Paltrow hafði nokkuð með það að gera þar sem mísó dressingin hennar er alveg æðisleg. Hana hef ég gert ansi oft á þessu ári og sett mitt handbragð á hana eins og sjá má í rauðrófusalatinu sem ég birti hér fyrir nokkrum mánuðum. Eini ókosturinn við misó er að það er ansi dýrt, og kvarta ég nú sjaldan yfir verði á mat svo lengi sem gæðin eru til staðar. Það furðulega við það er að í Vancouver er misó mjög ódýrt en þegar ég bjó þar kunni ég ekki að nota það. Kínóa er hins vegar mjög dýrt í Vancouver en á nokkuð viðráðanlegu verði hér á landi, þökk sé Sollu snillingi. Þannig að önnur nýjungin á árinu verð ég að segja að sé kínóa. Kínóa er algjört ofurfæði, sem hægt er að nota í óteljandi rétti. En það sem ég hef mest notað það í eru salöt, grautar og súpur. Á nýja árinu ætla ég mér hins vegar að þróa gott kínóanammi og fleira úr þessu einstaka undrafræi.

Hvað bætiefni varðar langar mig að nefna grænt duft sem ég byrjaði að taka á árinu. Það kallast pHion Green Superfood og inniheldur gríðarlega mikið magn af þurrkuðum fræjum, grænmeti, spírum, höfrum o.fl. sem inniheldur ógrynni af krabbameinshamlandi plöntuefnum. Þessi vara held ég að sé algjörlega einstök hvað gæði og innihald varðar. Ég hef yfirleitt blandað einni teskeið út í safa eða smoothie á morgana og drukkið. Annað bætiefni sem mig langar að nefna en ég hef þó tekið í nokkur ár er Chlorella. Þegar kemur að forvörnum gegn krabbameini og bætiefnum í meðferð hef ég tekið eftir því að Chlorella er mjög oft nefnd. Chlorella er grænn þörungur sem inniheldur mikið magn andoxunarefna á borð við C-vítamín og Beta karótín. Chlorella inniheldur einnig mjög mikið magn blaðgrænu, sem er grundvöllur ljóstillífunar í plöntum.  Auk þess benda rannsóknir til þess að chlorella bindist við efni sem geta valdið krabbameini og komi í veg fyrir eða minnkað virkni þeirra (heimild). Þriðja bætiefnið sem ég ætla að nefna og var nýjung á árinu 2011 var Royal Jelly. Royal Jelly er afurð býflugna og inniheldur gríðarlega mikið magn næringarefna og amínósýra. Rannsóknir benda til þess að Royal Jelly sé bólguhamlandi og geti haft hamlandi áhrif á vöxt krabbameins. Ég fann að vísu ekkert mjög mikið af efni um þetta en endilega googlið og lesið ykkur til um þetta merkilega bætiefni. Að lokum vil ég benda ykkur á bætiefni sem heitir Liver blend og er frá Solaray. Bækur sem fjalla um mataræði og forvarnir gegn krabbameini leggja yfirleitt mikla áherslu á neikvæð áhrif sykurs á vöxt og myndun krabbameins. Í því sambandi er yfirleitt alltaf talað um mikilvægi lifrinnar þegar kemur að því að vinna úr sykri í líkamanum (endilega skoðið frábæra grein um þetta sem birtist á heimasíðu New York Times, sjá hér). Þetta bætiefni er frábært fyrir þá sem detta stundum í sykurinn (eða áfengið) og aðstoðar líkamann þá við að vinna úr honum. Liver blend er blanda af mjólkurþistli (milk thistle) og fíflum (dandelion), en einnig eru jurtirnar burdock, ætiþistlar, þari og piparmynta í blöndunni. Ég mæli með smá lifrardetoxi núna eftir jólatörnina og þá er þessi blanda alveg tilvalin.

En mig langar einnig að birta holla og næringarríka súpu sem ég er orðin mjög hrifin af. Þetta er mín útfærsla á japanskri ramen súpu. Ramen súpur eru japanskar núðlusúpur sem oft á tíðum innihalda misó. Ég á minn uppáhaldsramenstað í Seattle sem heitir Samurai Noodles. Þegar ég kom til Seattle í ágúst var það nánast mitt fyrsta verk að fara á þennan stað og fá mér ramen súpu með misó og chili. Súpan mín er nú kannski ekki alveg eins háþróuð og sú sem fæst á Samurai noodles en hún er góð og krefst mjög lítillar fyrirhafnar. Hér kemur uppskriftin.

Uppskrift
fyrir 4

1,5 l vatn
3 rapunzel grænmetisteningar
4 msk. misó (bæði hægt að nota ljóst og dökkt misó)
½ púrrulaukur skorinn í þunnar sneiðar
½-1 dl. engifer, skorið í strimla eða eftir smekk
3-4 msk. kryddlegin söl frá íslenskri hollustu
1-2 tsk. chili olía eða eftir smekk (má sleppa)
1 msk. tamari sósa – eða soja sósa
1 bakki baunaspírur
chili flögur eftir smekk
2 kjúklingabringur skornar í munnbita eða 1 kubbur af tófú skorinn í ferninga

Soba núðlur fyrir 4 (má líka nota udon núðlur eða hrísgrjónanúðlur)

Sjóðið soba núðlurnar í potti í aðeins styrri tíma en segir á pakkanum (um tveimur mínútum styttri tíma). Ef þið notið soba núðlur er mjög mikilvægt að láta kalt vatn renna yfir þær strax og vatninu er hellt af þeim, til þess að þær haldi ekki áfram að eldast. Þetta er góð regla með allar núðlur en sérstaklega mikilvægt með soba núðlur.

Hellið vatni í pott. Blandið teningum, misó, púrrulauk, engiferi, chili olíu og tamari sósu saman við. Látið suðuna koma upp. Bætið sölum og kjúklingi/tófú saman við. Látið sjóða í 5 mínútur eða þar til kjúklingurinn er soðinn í gegn eða tófúið heitt í gegn.

Deilið soba núðlunum í skál, hellið súpunni yfir og skreytið með baunaspírum og chiliflögum.

Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu.

About these ads

Filed under: chili, engifer, kínóa, Kjúklingur, laukur, Rannsóknir, Söl, Súpur, Sjávargróður, Tófú, Uppáhalds, Vegan, , , , , , , , ,

Kjúklingur með sítrónu og kóríander

Þessi uppskrift er æðisleg. Ég hef gert hana ótalsinnum og hún stendur alltaf fyrir sínu. Upphaflega er hún úr bók eftir Madhur Jaffrey, eins og svo margar af indversku uppskriftunum sem ég elda, en ég hef hins vegar þróað hana með mér með tímanum og þannig gert talsverðar breytingar á upphaflegu uppskriftinni. Madhur Jaffrey bækurnar eru góðar fyrir þá sem eru að byrja að elda indverskan mat, þær eru frekar einfaldar og flestar mjög góðar. Eitt sem ég hef þó orðið vör við hjá henni er það að hún notar alveg ógrynni af salti, og ég nota yfirleitt þá þumalputtareglu þegar ég elda upp úr bókunum hennar að minnka saltið um helming.

Þessi uppskrift inniheldur nánast eingöngu fæðutegundir sem teljast krabbameinshamlandi. Mig langar aðeins að fjalla nánar um hvítlauk núna, þar sem ég á að vera löngu búin að leggja áherslu á mikilvægi þessarar yndislegu kryddjurtar sem ég finn einhverja leið til þess að nota í nánast allt sem ég elda. Hvítlaukur er ein elsta lækningarjurtin sem þekkist. Vegna sýkladrepandi eiginleika hvítlauks hefur hann verið notaður í hundruðir ára til að vinna gegn sýkingum. Í síðari heimstyrjöldinni var hvítlaukur notaður í miklu mæli á særða hermenn til að koma í veg fyrir sýkingar og einnig þegar skortur var á sýklalyfjum (sjá Anti Cancer bls 121). Read the rest of this entry »

Filed under: chili, engifer, hvítlaukur, kóríander, kúmin, Kjúklingur, sítrus ávextir, svartur pipar, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, , , , , , , , , ,

Kjúklingapottréttur með mangó og döðlum

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Ávextir: mangó, döðlur
Grænmeti:
laukur
Krydd og kryddjurtir: hvítlaukur, cayenne pipar, garam masala (kóríander, kúmin, engifer, negull, lárviðarlauf,)

Uppskrift
fyrir 6

6 kjúklingabringur
2 msk ólífuolía
2 rauðlaukar niðurskornir
3 hvítlauksrif marðir
1 tsk cayenne pipar
1 tsk garam masala
1 tsk túrmerik
nýmalaður svartur pipar
1 tsk paprikukrydd
1 stórt þroskað mangó smátt skorið
1 dós kókosmjólk
1 bolli döðlur niðurskornar
1 tsk salt
2 msk ferskt kóríander saxað

Hitið olíuna í potti og steikið laukinn í 5-7 mínútur, bætið þá hvítlauknum út í og steikið áfram í 2-3 mínútur. Bætið því næst cayenne pipar, garam masala, túrmeriki, svörtum pipar, paprikukryddi og kjúklingi og steikið í 5 mínútur til viðbótar. Hrærið nokkuð stöðugt svo að ekkert festist við pottinn. Bætið svo mangói, kókosmjólk, döðlum og salti út í og hrærið. Látið suðuna koma upp og lokið pottinum. Látið malla í 30 mínútur. Takið lokið af pottinum  og bætið fersku kóríander út í og látið sjóða og þykkna í 10-15 mínútur til viðbótar. Berið fram með soðnum hrísgrjónum og naan brauði.

Filed under: döðlur, hvítlaukur, Karrý, kóríander, kúmin, Kjúklingur, laukur, mangó, negulnaglar, svartur pipar, túrmerik, Uppskriftir

Hnetufusion

Þegar ég fór að hugsa um það hvað ég ætti að kalla þennan rétt datt mér fyrst í hug orðið “fusion” af því að fæðutegundirnar sem hér eru settar saman koma úr matargerð frá mörgum löndum. Mangó chutney og karrý koma frá Indlandi, sojasósa og tófú koma upprunalega frá Kína og kókosmjólk frá Suðaustur Asíu og Suður Ameríku. Þessi samsuða kom skemmtilega út, karrýið gefur réttinum fyllingu og mangó chutneyið vinnur vel á móti hnetusmjörinu og gefur örlítið sætt bragð. Eins og áður er vel hægt að nota kjúkling í staðin fyrir tófú. Einnig er mikilvægt að nota gæða hnetusmjör því að sumar tegundir hnetusmjörs innihalda mikið af aukaefnum. Ágætis þumalputtaregla varðandi innkaup á matvælum er að kaupa ekki mat sem hefur endalausan líftíma, þ.e.a.s. getur setið árum saman uppi í hillu án þess að skemmast.

Eitt að lokum. Ég nota Bengal Spice Mango Chutney frá Sharwood. Mér finnst það besta chutneyið. Það inniheldur chili og er því bragðsterkara en hefðbundin mango chutney. Ef þið notið venjulegt mango chutney mæli ég með að þið saxið hálfan rauðan chili og bætið út í sósuna, eða setjið ef til vill 1/4 tsk af cayenne pipar.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: gulrætur, laukur,
Krydd og kryddjurtir: karrý (kóríander fræ, fennel fræ, chili, sinnepsfræ, svartur pipar, fenugreek fræ, túrmerik, karrýlauf)
Kornmeti: sojabaunir

Uppskrift
fyrir 4

1 pakki þétt tófú þerrað og niðurskorið í teninga/4 kjúklingabringur niðurskornar
2 msk. kókosolía
3 msk. hnetusmjör
2 msk. mango chutney
1 msk. sojasósa
1/2 tsk. madras karrý (t.d. sterkt madras karrý)
nýmalaður svartur pipar
1/3 bolli heitt vatn
5 gulrætur skornar í ræmur
1 laukur niðurskorinn
2 skarlottulaukar smátt skornir
1 lítil dós kókosmjólk
sesamfræ til skrauts (má sleppa)

Blandið hnetusmjöri, mangó chutney, sojasósu, karrýi, svörtum pipar og heitu vatni saman í skál.

Hitið helminginn af kókosolíunni á wokpönnu og steikið tófúið þar til það hefur brúnast vel. Takið tófúið af pönnunni og leggið til hliðar. Bætið hinum helmningnum af olíunni á pönnuna og steikið gulræturnar og laukinn á háum hita í 3-4 mínútur. Bætið hnetusósunni og kókosmjólkinni á pönnuna og hrærið saman við. Bætið því næst tófúinu á pönnuna og látið suðuna koma upp. Lækkið þá hitann niður og látið malla í 2-3 mínútur. Berið fram með brúnum hrísgrjónum.

Filed under: fennel, fenugreek, gulrætur, Karrý, karrýlauf, kóríander, Kjúklingur, laukur, sojabaunir, svartur pipar, svört sinnepsfræ, Tófú, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , ,

Einfaldur grillaður kjúklingur með indverskri marineringu

Þetta er einföld og fljótleg marinering. Hún er frekar bragðsterk, sérstaklega ef notað er sterka madras karrýið, en til að milda hana er hægt að minnka cayenne piparinn. Ég borðaði sætar kartöflur með döðlum og pekanhnetum með kjúklingnum og það kom mjög skemmtilega út. Ekta fyrir fallegan sumardag.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir
Krydd og kryddjurtir: karrý (kóríander fræ, fennel fræ, chili, sinnepsfræ, svartur pipar, fenugreek fræ, túrmerik, karrýlauf), chili, engifer, hvítlaukur

Uppskrift
fyrir 4

1 bolli hreint jógúrt
1 msk malað cumin
1 msk madras karrý (t.d. sterkt madras karrý)
1/2-1 tsk cayenne pipar
1 msk og 1 tsk ferskt engifer rifið
7 hvítlauksgeirar marðir
1 tsk salt
nýmalaður svartur pipar
safi úr 1 sítrónu
1 tsk fljótandi hunang
4-5 kjúklingabringur

Blandið saman innihaldsefnum í marineringuna og látið kjúklingabringurnar liggja í henni í 2 klst. Grillið og berið fram.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: engifer, fennel, fenugreek, hvítlaukur, Karrý, karrýlauf, kóríander, Kjúklingur, sítrus ávextir, svartur pipar, svört sinnepsfræ, túrmerik, Uppskriftir, , , , ,

Karrýpottréttur með kjúklingi, kartöflum og rauðum linsubaunum

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, kartöflur, gulrætur, paprika
Krydd og kryddjurtir: fenugreek fræ, kanill, kardimommur, cayenne pipar, túrmerik, karrýlauf, kóríander
Kornmeti: rauðar linsubaunir

Uppskrift
fyrir 4-6

2 msk kókosolía
1/2 tsk fenugreek fræ
1 kanilstöng
6 kardimommur marðar
1/2 tsk cayenne pipar
1/2 tsk túrmerik
svartur pipar
12 karrýlauf
1 laukur
niðurskorinn
1 kg kjúklingalæri
10 litlar kartöflur
niðurskornar
2 gulrætur
niðurskornar
1 rauð paprika
niðurskorin
1 dós kókosmjólk
1/2 bolli rauðar linsubaunir
1 bolli vatn
1 tsk salt
1 tsk hrásykur
1 msk ferskt kóríander

Hitið olíuna í potti og hellið fenugreek fræjum út í. Steikið fræin í 2-3 mínútur eða þar til þau eru farin að hendast til í olíunni. Bætið þá kanilstönginni, kardimommunum, cayenne pipar, túrmeriki, svörtum pipar, karrýlaufum og lauk út í og steikið í 5 mínútur eða þar til laukurinn hefur brúnast vel. Bætið þá kjúklingnum út í og steikið hann í 3-4 mínútur. Bætið því næst kartöflum, gulrótum, papriku, kókosmjólk, rauðum linsubaunum, vatni, salti og hrásykri út í og hrærið saman við. Látið suðuna koma upp og látið malla í 15 mínútur með lokið á pottinum. Takið lokið af pottinum, bætið fersku kóríander út í og látið malla í aðrar 15 mínútur. Berið fram með naan brauði og mangó chutney.

Filed under: Baunir, fenugreek, gulrætur, kanill, kardimommur, Karrý, karrýlauf, kartöflur, kóríander, Kjúklingur, laukur, paprika, Rauðar linsubaunir, Rauðar linsubaunir, svartur pipar, túrmerik, Uppskriftir, , , ,

BBQ kjúklingasalat með jarðaberjum og kotasælu

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: jarðaber
Grænmeti: klettasalat, laukur,

Uppskrift
fyrir 4

4 kjúklingabringur
1 bolli bbq sósa
1 poki klettasalatsblanda
1 agúrka niðurskorin í þríhyrninga
1 stór rauðlaukur smátt skorinn
1 askja jarðaber, skorin í bita
hálf stór dolla kotasæla
salt og pipar

Hitið ofninn upp í 180 gráður. Marinerið kjúklingabringurnar í bbq sósunni og bakið í eldföstu móti í ofni í 30 mínútur. Skerið í bita og leggið til hliðar

Hellið klettasalatsblöndunni í skál. Blandið lauk, agúrku og jarðaberjum saman við. Saltið og piprið örlítið. Bætið kjúklingnum út í og hellið kotasælunni yfir í smáskömmtum, eins og 1 msk í einu. Berið fram.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: jarðaber, Kjúklingur, klettasalat, laukur, Salöt, , , ,

Kjúklingaréttur með ólífum, fetaosti og tómötum

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, tómatar,
Krydd: hvítlaukur, ferskt kóríander, rósmarín, svartur pipar
Kornmeti: hveiti

Uppskrift
fyrir 4

4 kjúklinabringur skornar í munnbita
1/2 bolli hveiti
1 teskeið paprikukrydd
1 teskeið ítölsk kryddblanda
1/4 bolli ólífuolía (ekki extra virgin)
1 laukur smátt skorinn
2 hvítlauksgeirar marðir
1 og 1/2 bolli mjólk
3 tómatar
200 gr. fetaostur (í vatni) þerraður
1/2 bolli ólífur niðurskornar
(helst grænar og kalamata)
Ferskt kóríander saxað
Salt og pipar eftir smekk

Veltið kjúklingnum upp úr hveiti og steikið á pönnu upp úr helmingnum af olíunni. Geymið afganginn af hveitinu. Steikið kjúklinginn þar til hann er orðinn ljósbrúnn. Takið hann af pönnunni og leggið til hliðar. Hellið afgangnum af olíunni á pönnuna og steikið laukinn og hvítlaukinn þar til hann hefur mýkst, í 2-3 mínútur. Bætið paprikukryddi, ítölsku kryddblöndunni og 2 tsk af hveiti á pönnuna og hrærið saman við og steikið í um 2 mínútur. Bætið mjólkinni út í og látið suðu koma upp. Bætið kjúklingnum í og látið malla í 8-10 mínútur eða þar til kjúklingur er eldaður í gegn og sósan er orðin þykk. Hrærið reglulega í. Bætið tómötunum og feta ostinum saman við og eldið í um mínútu í til viðbótar. Saltið og piprið eftir smekk. Stráið niðurskornum ólífum og fersku kóríander yfir réttinn. Berið fram með hrísgrjónum og salati.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: hvítlaukur, Kjúklingur, korn, laukur, rósmarín, tómatar, Uppskriftir, , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: