Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Pasta með pestó, spergilkáli og goji berjum

Þá er maður loksins sloppinn úr prófageðveikinni og farinn að lifa eðlilegu lífi. Ótrúlegt hvernig maður lætur í próflestri, gleymir öllu sem tengist manns eigin vellíðan og heilbrigði og einbeitir sér eingögnu að lestri og utanbókarlærdómi. En nú tekur heilbrigt líferni við með öllu tilheyrandi, jóga, te drykkju, hollum mat og hvíld.

En fyrir svona mánuði síðan, áður en törnin byrjaði, fór ég í æðislega afmælisveislu hjá þriggja ára frænku minni. Þar var á boðstólnum pastasalat sem ég hugsaði um í marga daga á eftir og setti saman uppskriftir að í huganum. Salatið var með grænu pestó, spergilkáli og goji berjum. Alveg frábær blanda.

Svona til að bæta smá fróðleik inn í færsluna þá rakst ég á þessa grein á síðunni Food for Breast Cancer og í henni er fjallað um þann mat sem konur sem greinast með ákveðna tegund brjóstakrabbameins ættu að borða. Þar er spergilkál meðal annars tiltekið sem og basil. Ég geri ráð fyrir að sama gildi um aðra einstaklinga sem vilja vera heilbrigðir og koma í veg fyrir sjúkdóma.

Hér kemur svo mín útgáfa af salatinu góða.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: goji ber
Grænmeti: spergilkál, spínat
Krydd og kryddjurtir: hvítlaukur, basil

Uppskrift
fyrir 4-6

500 gr. penne pasta

Pestó
1/2 stykki parmesan ostur
1 bakki ferskt basil
1 dl. extra virgin ólífuolía+2-3 msk pistasíuolía (má sleppa)
1 poki ristaðar furuhnetur (70 gr.)
2 hvítlauksrif
1/2 tsk salt

1 stór spergilkálshaus brotinn í bita
1/2-1 poki spínat (magn eftir smekk)
1 dl. goji ber
Salt og nýmalaður pipar eftir smekk

Sjóðið pastað í samræmi við leiðbeiningar. Kælið niður í stofuhita.

Hitið vatn í potti með smá salti. Hellið spegilkálsbitunum út í þegar suðan er komin upp og látið sjóða í 2-3 mínútur. Hellið vatninu af spegilkálinu, bætið goji berjunum saman við og hrærið. Látið kólna. Á þennan hátt mýkjast gojiberin.

Setjið öll innihaldsefnin í pestóinu í matvinnsluvél og maukið vel. Bætið smá aukaolíu við ef pestóið er of þurrt. Það á ekki að vera fljótandi, en þó ekki algjört mauk, s.s. hæfilega mjúkt.

Blandið pasta, pestói, spergilkáli, gojiberjum og spínati saman í skál. Gott er að láta pastað kólna aðeins í ísskáp, í 10-15 mínútur. Skreytið með goji berjum og berið fram.

About these ads

Filed under: basil, goji ber, hvítlaukur, Pasta, Pestó, Salöt, spínat, spergilkál, Uppskriftir, , , , , , ,

Bragðmikið pastasalat með eplum og sólþurrkuðum tómötum

Þetta salat er eitthvað alveg nýtt fyrir mér, spagetti, epli, sólþurrkaðir tómatar, maís og laukur í grunninn og svo hellt yfir það sósu sem hljómar ansi furðulega en passar einhvern vegin fullkomlega með eplunum og lauknum. Það er alltaf svo gaman þegar maður lærir að blanda eitthverju nýju saman í matargerðinni.

Þetta salat er tilvalið sem hádegismatur eða léttur kvöldverður. Þó svo að það sé spagetti í salatinu þá gera eplin og maísinn það frekar létt og brakandi.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: epli, límóna
Grænmeti: maís, laukur, tómatar,
Krydd: hvítlaukur, sinnep, ferskt kóríander, svartur pipar

Uppskrift
Fyrir 4-6
450 gr spagetti
2 tsk ólífuolía
8 stk sólþurrkaðir tómatar skornir í litla bita
350 gr maís
3 græn epli niðurskorið
1 rauðlaukur smátt skorinn
2 msk ferskt kóríander smátt saxað
Nýmalað salt og pipar

Sósan:
1/4 bolli majones
1/4 bolli sýrður rjómi
2 msk grófkorna dijon sinnep
2 msk safi úr límónu
1 og 1/4 tsk chili krydd
1 og 1/4 tsk malað cumin krydd

Sjóðið spagettíið í samræmi við leiðbeiningar á pakka. Skolið spagettíið með köldu vatni þegar búið er að sjóða það svo það haldið ekki áfram að eldast. Færið í salatskál.

Blandið saman innihaldefnum í sósuna og geymið í ísskáp þar til salatið er tilbúið.

Hellið ólífuolíunni yfir pastað og blandið saman við. Bætið sólþurrkuðu tómötunum, maísnum, eplunum, lauknum og kóríanderinu saman við og blandið vel. Saltið og piprið eftir smekk. Hellið sósunni yfir í smá skömmtum og blandið saman við. Skreytið með fersku kóríander og berið fram.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: epli, hvítlaukur, kóríander, laukur, maís, Pasta, Salöt, sítrus ávextir, sinnep, svartur pipar, tómatar, Uppskriftir, , , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: