Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Ristaðar möndlur og valhnetur með jólakryddum

Þá er þessi yndislegi tími senn á enda. Ég ætla nú samt að ná að setja inn eina jólauppskrift til viðbótar. Við systkinin hittumst á annan í jólum og spiluðum en þar sem allar búðir voru lokaðar þurfti ég að vinna úr því sem til var í skápunum. Það var nú ekki margt og þá sérstaklega ekki margt sem hentaði sem möns yfir fimbulfambi. Ég átti þó möndlur og valhnetur og ákvað því að reyna að gera eitthvað gott úr þeim. Úr varð bara mjög skemmtilegt jólasnakk, jól í munnbita eins og einhver sagði. Það frábæra við þetta snakk er að það er svona nánast eins hollt og snakk getur orðið. Ég vildi óska þess að ég gæti sleppt hrásykrinum, en hann heldur þessu öllu saman, þannig að hann er ómissandi.

Valhnetur eru ríkar af omega 3 fitusýrum, sem koma sér vel eftir allt bólguhvetjandi reykta kjötið sem flestir borðuðu yfir hátíðirnar. Ég verð þó að viðurkenna að ég slapp einstaklega vel þetta árið, fékk hreint út sagt frábærar rjúpur á aðfangadagskvöld og svo verður kalkúnn á gamlárskvöld þannig að það var lítið um reykt og saltað á mínum bæjum. En aftur að valhnetunum. Rannsóknir sýna að valhnetur geta hægt á vexti krabbameins, bæði i brjósti og blöðruhálskirtli, og er það bólguhemjandi þátturinn sem hefur áhrif sem og þær tegundir af próteinum sem finnast í valhnetum auk annarra næringarefna. Í valhnetum er að finna efni sem kallast phytosterol, sem binst estrogen viðtökum og þannig hægir á myndun estrogentengdra meina.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Hnetur og fræ: valhnetur
Krydd: kardimommur, negull, cayenne pipar, kanill

Uppskrift
gerir rúmlega 2 bolla

2 msk. hrásykur
1 tsk. kókosolía eða góð ólífuolía
1 tsk. kanill
1/4 tsk. malaðar kardimommur
1/4 tsk. negull
1/4 tsk. cayenne pipar
1 tsk. maldon salt (minna ef notað er venjulegt salt)
1 bolli möndlur
1 bolli valhnetur

Blandið sykri og kryddum saman í skál. Bræðið kókosolíuna á pönnu og hellið kryddblöndunni saman við. Látið sykurinn bráðna saman við olíuna og bætið þá valhnetum og möndlum á pönnuna. Passið að hafa hitann ekki of háan, því þá brennur allt við. Ristið á pönnunni í nokkrar mínútur, eða þar til hneturnar hafa ristast léttilega og kryddin náð að setjast á þær. Látið kólna og berið fram.


About these ads

Filed under: kanill, kardimommur, möndlur, negulnaglar, sætindi, Smáréttir, valhnetur, Vegan

Hummus með marineruðum rauðrófum

Ég hef verið að fikra mig áfram í meðlæti með hummus. Mér finnst hummus mjög góður, en hef verið að leita að meðlæti með örlitlu “twisti”. Mér datt í hug að rauðrófur gætu verið góðar, þær eru sætar, hollar og fallegar á litinn. Þannig að ég byrjaði twistsmeðlætisferðalagið mitt á því að rífa niður rauðrófur og marinera þær. Það kom vel út. Næst ákvað ég að bæta smá fersku engiferi út í og í þriðja skiptið bætti ég gulrótum og mintu með í “twistið”. Hér koma allar útfærslurnar.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: rauðrófur, gulrætur
Krydd og kryddjurtir: engifer, minta

Uppskrift að hummus er að finna hér. Það er ágætt að minnka sítrónusafann niður í 1/4 bolla og cayenne piparinn niður í 1/4 tsk til að hummusinn yfirgnæfi ekki bragðið af rauðrófunum.

1. rauðrófu”twistið”

1 meðalstór rauðrófa rifin
1 tsk ólífuolía
1 tsk balsamik edik
svartur pipar
örlítið salt

Blandið ólífuolíu, ediki, svörtum pipar og salti saman í skál og hellið yfir rauðrófurnar. Berið fram með hummus og niðurskornu súrdeigsbaguette brauði.

2. rauðrófu”twistið” með engiferi

1 meðalstór rauðrófa rifin
1 tsk ólífuolía
2 tsk balsamikedik
1 tsk ferskt engifer
svartur pipar
örlítið salt

Blandið ólífuolíu, ediki, engiferi, svörtum pipar og salti saman í skál og hellið yfir rauðrófurnar. Berið fram með hummus og niðurskornu súrdeigsbaguette brauði.

3. rauðrófu”twistið” með gulrótum og mintu

1 lítil rauðrófa rifin
1 gulrót rifin
1 tsk ferskt engifer
1 tsk ólífuolía
2 tsk balsamik edik
10 mintulauf söxuð

Blandið saman engiferi, ólífuolíu, balsamik ediki og mintu í skál og hellið yfir rauðrófurnar og gulræturnar. Berið fram með hummus og niðurskornu súrdeigsbaguette brauði.

Filed under: engifer, gulrætur, Hummus, rófur, Smáréttir, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , ,

Laxamauk með þistilhjörtum og kapers

Þegar ég stofnaði þessa síðu setti ég mér ákveðnar óformlegar grunnreglur. Til að mynda var ég ákveðin í því að skrifa ekki um það sem má ekki, þ.e.a.s. vera ekki með áróður um það að fólk verði að hætta að borða hitt og þetta til þess að koma í veg fyrir að það fái krabbamein. Ég setti mér einnig nokkrar reglur um þær uppskriftir sem ég ætlaði að birta á síðunni. Ein af þeim reglum var sú að ekki mætti vera reyktur matur í uppskriftunum. Ástæðan fyrir því er sú að mikil neysla reykts matar er talið auka líkurnar á krabbameini í vélinda, maga og ristli. Þegar ég var að vafra um á netinu fyrir nokkru síðan og lesa mig til um áhrif reykts matar á líkurnar á að fá krabbamein rambaði ég niður á gamla grein frá 1958 sem birtist í British Journal of Cancer. Í greininni (sem finnst hér á síðunni undir greinar) kemur fram að há tíðni magakrabbameins á Íslandi, á árum áður, var hægt að rekja til mataræðis þess tíma, sem samanstóð að miklu leyti á reyktu kjöti og reyktum fisk auk þess að innihalda lítið af ávöxtum og grænmeti.

Fyrrgreinda reglu verð ég þó að brjóta í þetta sinn. Það eru tvær ástæður fyrir því, annars vegar að þetta er reyktur lax, sem inniheldur mikið magn af omega 3 fitusýrum sem eru hvað áhrifaríkasta vörnin gegn krabbameini, þ.e.a.s. með því að vinna á bólgum í líkamanum og koma því í veg fyrir að krabbamein myndist í bólguvefjum, eins og algengt er. Hin ástæðan er einfaldlega sú að stundum eru hlutirnir það góðir að maður þarf að leyfa sér að njóta þeirra, þótt sjaldan sé. Það á við um þennan rétt. Hann er þó ekki alslæmur heilsulega séð. Hann inniheldur graslauk, capers, þistilhjörtu, rauða pariku og klettasalat sem ættu að geta unnið á móti þeim reykta laxi sem uppskriftin inniheldur. Allt snýst þetta jú um jafnvægið.

Tilvist þessarar uppskriftar má rekja til heimsóknar okkar fjölskyldunnar á stað í Vancouver sem heitir Medina og er á Beatty street. Þetta er æðislegur staður til að fara í hádegismat á, eða í brunch á laugardegi eða sunnudegi. Medina er staðsettur við hliðina á stað sem heitir Chambar og er líka alveg frábær. Hann er þó töluvert fínni og dýrari, en algjörlega þess virði þegar tilefnið er við hæfi. Við fórum í hádegismat á Medina og pöntuðum m.a. Ciaböttu með rjómaostsblöndu sem samanstóð af reyktum laxi, capers og þistilhjörtum. Okkur fannst graslaukurinn passa virkilega vel með og svo smá sítrónusafi til að kalla fram bragð og búa til ferskleika.

Hér kemur okkar uppskrift:

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir,
Grænmeti: klettasalat, laukur, þistilhjörtu, paprika

Uppskrift
gerir 8-10 snittur

1 1/2 bolli reyktur lax smátt skorinn
3 msk capers
200 gr. rjómaostur (philadelphia eða sambærilegur)
2 msk þistilhjörtu í marineringu/olíu smátt skorin
1 msk ferskur graslaukur niðurskorinn
safi úr 1/2 sítrónu
nýmalaður svartur pipar
1 rauð paprika niðurskorin
2 bollar klettasalat
1 súrdeigsbaguettebrauð niðurskorið

Blandið saman laxi, rjómaosti, capers, þistilhjörtum, graslauk, sítrónusafa og svörtum pipar í skál. Skerið baguettebrauðið í sneiðar og berið laxamaukið á hverja sneið. Setjið klettasalatið ofan á laxamaukið og á endanum paprikubitana. Berið fram.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Þistilhjörtu, Fiskur, klettasalat, laukur, paprika, sítrus ávextir, Smáréttir, svartur pipar, Uppáhalds, Uppskriftir, , , , , , , ,

Bruschetta með tómötum og basil

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: tómatar
Krydd og kryddjurtir: hvítlaukur

Uppskrift
fyrir 6 í forrétt eða sem smáréttur

1 súrdeigsbaguette brauð niðurskorið
Gæða extra virgin ólífuolía
6 tómatar fræhreinsaðir og niðurskornir í teninga
4 hvítlauksrif
10-12 basillauf niðurskorin
salt og pipar

Skerið brauðið í sneiðar og veltið upp úr ólífuolíu. Raðið á ofnskúffu og bakið við 180 gráður þar til brauðið hefur brúnast á köntunum,  u.þ.b. 10 mínútur. Takið út og nuddið hvítlauk á hverja sneið. Setjið því næst rúmlega matskeið af tómötum á hverja sneið og stráið niðurskornum basil yfir. Malið salt og pipar yfir eftir smekk. Berið fram.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: hvítlaukur, Smáréttir, svartur pipar, tómatar, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , ,

Rauðrófusalat með eplum, fetaosti og valhnetum

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: epli
Grænmeti: rauðrófur
Hnetur: valhnetur

Uppskrift
fyrir 6 með mat

6 rauðrófur
4 græn epli
2 bollar fetaostur (í vatni) þerraður
2 bollar niðurskornar valhnetur
1 bolli hreint jógúrt eða ab mjólk
5 msk sýrður rjómi
salt og pipar

Skrælið rauðrófurnar og leggið í pott með botnfylli af sjóðandi vatni. Sjóðið í um 15 mínútur eða þar til rauðrófurnar eru orðnar dálítið mjúkar, en þó ekki eins mjúkar og soðnar kartöflur. Einnig er hentugt að sjóða þær í gufusuðupotti. Munið að geyma soðið fyrir seinni not, það er einkar næringarríkt.

Skerið rauðrófurnar og eplin í bita og setjið í skál. Bætið fetaosti, niðurskornum valhnetum, jógúrti/ab mjólk og sýrðum rjóma úr í og hrærið saman. Malið örlítið salt og pipar eftir smekk yfir og skreytið með valhnetum. Berið fram með mat eða sem forréttur.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: epli, rófur, Salöt, Smáréttir, svartur pipar, Uppáhalds, Uppskriftir, valhnetur, , , , , ,

Guacamole

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: límóna
Grænmeti: avókadó, tómatur
Krydd og kryddjurtir: kóríander, chili

Uppskrift
gerir um 2 bolla

2 avókadó
1 límóna
1/3 bolli saxað ferskt kóríander
1/2 grænn chili
1/2 tsk salt
1 stór tómatur niðurskorinn

Takið kjötið innan úr avókadóinu og setjið í matvinnsluvél með safanum úr límónunni, græna chiliinu og ferska kóríanderinu. Blandið þar til allt er orðið að mjúku mauki, í um 1-2 mínútur. Færið yfir í skál og bætið salti út í og tómötum og hrærið. Berið fram með tortilla flögum, mexíkóskum mat eða bara hverju sem er.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: avokadó, Ídýfur, chili, Guacamole, sítrus ávextir, Smáréttir, Uppáhalds, Vegan, , , , , ,

Tapas með beluga baunum og geitaosti

Þetta er alveg tilvalinn forréttur eða smáréttur þegar gesti ber að garði. Þetta er líklega eitthvað alveg nýtt fyrir flestum, beluga baunir og geitaostsblanda, og mun koma skemmtilega á óvart. Baunirnar eru sérlega hollar, trefjaríkar og prótínríkar.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Krydd: hvítlaukur
Baunir: beluga baunir

Uppskrift
gerir um 20 snittur

Baunirnar
¾ bolli beluga baunir, skolaðar
vatn
3 hvítlauksgeirar skornir í tvennt
½ tsk salt

Brauðið
1 súrdeigsbaguette brauð (eða venjulegt)
Extra virgin ólífuolía
Maldon salt

Geitaostsblandan
100 gr mjúkur geitaostur
smá mjólk
2 msk smátt skorið dill
Dill til að skreyta með

Hitið ofninn upp í 180 gráður.

Setjið baunirnar í pott og hellið vatni í pottinn þannig að það nái um 4 cm yfir baunirnar. Skerið tvö hvítlauksrif í tvennt og bætið út í pottinn. Látið suðuna koma upp og sjóðið í 15-20 mínútur á vægum hita, eða þar til baunirnar eru orðnar mjúkar, en ekki þannig að þær maukist. Bætið salti út í pottinn til þess að baunirnar haldi sig betur. Hellið vatninu af og látið baunirnar ná stofuhita.

Skerið snittubrauðið í mjóar sneiðar. Hellið ólífuolíu í skál og blandið brauðsneiðunum saman við olíuna. Raðið brauðinu á ofnplötu og bakið í ofni í 10 mínútur eða þar til brauðið er orðið ljósbrúnt. Látið brauðið kólna aðeins.

Blandið saman geitaostinum og mjólkinni í skál. Mjólkin á eingöngu að þynna ostinn þannig að gott sé að smyrja hann, um 2 tsk. Hrærið vel. Bætið dillinu út í og hrærið vel.

Áður en snitturnar eru búnar til er mikilvægt að allt sé við stofuhita. Smyrjið þá geitaostsblöndunni á hverja snittu, stráið örlitlu maldonsalti yfir og bætið svo góðri skeið af baunum ofan á. Einnig er hægt að hafa baunirnar og geitaostsblönduna í tveimur skálum á borði þannig að fólk geti fengið sér eftir hentisemi.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Baunir, Beluga baunir, hvítlaukur, Smáréttir, svartar beluga baunir/svartar linsubaunir, Uppskriftir, , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: