Krabbamein er sjúkdómur sem varðar okkur öll. Talið er að 1 af hverjum 5 einstaklingum muni einhvern tíman á lífsleiðinni greinast með krabbamein. Þessar tölur eru yfirþyrmandi, en staðreyndin er sú að með hinu svokallaða vestræna mataræði, sem er að verða æ vinsælla með hverju árinu sem líður og samanstendur að stórum hluta á skyndibitafæði, rauðu kjöti og steiktum mat, mun krabbameintíðni aðeins aukast. Þess vegna er mikilvægt að grípa inn í þessa alvarlegu þróun með því að kynna fyrir fólki hversu gríðarlega mikilvægt mataræði og heilbrigður lífstíll er. Máttur matarins er síða sem er tileinkuð umfjöllun um mikilvægi mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Krabbamein er eitt stærsta heilbrigðisvandamálið í heiminum í dag og greinast á hverju ári yfir 12 milljónir manns með sjúkdóminn. Rannsóknir benda til þess að hægt sé að koma í veg fyrir stóran hluta krabbameinstilvika með réttu mataræði og heilbrigðum lífstíl. Þessari heimasíðu er ætlar að auka vitund fólk og þekkingu á hollu mataræði sem hefur langvarandi fyrirbyggjandi áhrif sem forvörn gegn krabbameini samhliða því að auka vellíðan og alhliða heilsu fólks. Af gefnu tilefni er mikilvægt að árétta að síðan er fyrst og fremst ætluð sem forvörn, en ekki lækning. Umfjöllun hér á síðunni beinist ekki að því að fólk muni geta læknast af krabbameini ef það fer eftir þeim ráðum sem hér eru rædd. Síðunni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um þá fæðu sem það neytir og auka þekkingu fólks á þeim fæðutegundum sem geta minnkað líkurnar á því að það þrói með sér krabbamein.
Á síðunni eru birtar uppskriftir sem innihalda þær fæðutegundir sem sýnt hefur verið fram á að vinni gegn krabbameini. Auk þess verður fjallað um bækur, greinar og heimasíður sem taka á efninu.
