Djúsar og detox virðist vera aðalmálið þessa dagana. Það byrjuðu margir árið á nokkurra daga detoxi þar sem drukkið var mikið af nýpressuðum söfum. Ég er lítil kúramanneskja og hef því aldrei prófa að drekka bara djúsa í nokkra daga. Ég verð þó að viðurkenna að mig langar pínulítið að prófa það, meira forvitninnar vegna heldur en það að ég þurfi endilega á hreinsuninni að halda. Ég held því fram að maður geti vel haldið sé “hreinum” með vægari hreinsunaraðgerðum en þessum, t.d. með því að drekka vel af rauðrófusafa, sérstaklega á fastandi maga. Mér finnst ótrúlega gott að setja 2-3 msk. af eplaediki út í rauðrófusafann minn og svo vel af klökum. Þannig drekk ég hann yfirleitt og fæ held ég nokkuð góða hreinsun með því.
Ég hef þó aðeins verið að fikra mig áfram með djúsana. Mér finnst ég einnig heyra mikið talað um súrt og basískt fæði og bólguhvetjandi áhrif súra fæðisins. Eins og ég hef oft fjallað um hér á síðunni þá er myndast krabbamein mjög gjarnan í bólgum og er þetta efni því viðeigandi hér. Djúsarnir eru yfirleitt basískir og þannig bólguhamlandi og því er gott að drekka talsvert af þeim. Ég hef reynt að nota steinselju og aðrar ferskar kryddjurtir í mína djúsa vegna þess hve mikið af öflugum plöntuefnum er að finna í þeim. Steinseljan er ótrúlega öflug og ferska kóríanderið líka. Read the rest of this entry »
Filed under: Bækur, engifer, epli, gulrætur, sítrus ávextir, sellerí, steinselja, agúrka, djúsar, engifer, epli, kóríander, Kris Carr, sítrus ávextir, steinselja

