Þessa dagana er ég að prófa mig áfram á morgnana í smoothy gerð. Ég hef verið að reyna að finna íslenskt orð yfir smoothy en mér hefur ekki dottið neitt í hug. Ég fletti því upp í tölvuorðabókinni minni og þá kom upp þýðingin “stimamjúkur”. Það er nú líklega ekki verri þýðing en hver önnur en mér finnst það eitthvað óþjált. En sem sagt, minn stimamjúki drykkur í morgun samanstóð af geisilega hollum og næringarríkum fæðutegundum sem allir ættu að reyna að koma inn í sitt mataræði á einn eða annan hátt.
Avokadó og spínat eru grunnurinn að súperhollustunni í þessum drykk. Avókadó er ein af þeim fæðutegundum sem kallað hefur verið superfood og t.d. David Wolfe fjallar mikið um í bókunum sínum. Avókadó er uppfullt af hollri fitu auk þess að vera ríkt af fólísýru, K-vítamíni, trefjum og fleiri nauðsynlegum næringarefnum. Spínat er að sama skapi líka algjört súperfæði (sjá nánar hér).
Hvað varðar jógúrtið þá er á bls 101 í bókinni Bragð í baráttunni fjallað um krabbameinshamlandi áhrif jógúrts og kemur eftirfarandi fram:
,,Dagleg neysla matar sem inniheldur meltingargerla er auðveld og áhrifarík aðferð til að viðhalda háu gildi mjólkurbaktería í ristlinum og fyrirbyggja þannig þróun krabbameins”.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: banani, avókadó, goji ber, sítrus ávextir
Grænmeti: spínat
Fræ og kornmeti: chia fræ, hafrar
Jógúrt
Uppskrift
1 dós lífrænt ræktað kókosjógúrt frá Bíóbú
1 bolli haframjólk
1 lítið avókadó
1 banani
1 lúka spínat
10 goji ber
1 msk chia fræ
safi úr hálfu lime
1 tsk. agavesíróp (má sleppa)
5-6 klakar
Allt sett í blandara og hrært þar til drykkurinn er orðinn stimamjúkur. Hellt í glas og drukkið með bros á vör.
Filed under: bananar, chia fræ, Drykkir, goji ber, haframjöl, Jógúrt, Morgunmatur, sítrus ávextir, spínat, Uppáhalds, Uppskriftir, avokadó, chia seeds, Fólínsýra, Goji ber, K-vítamín, morgundrykkur, spínat


