Anti Cancer, a new way of life er bók eftir David Servan-Schreiber M.D. Ph.D., geðlækni sem greindist 31 árs að aldri með illkynja heilaæxli þegar þátttakandi í rannsókn hjá honum mætti ekki og David ákveður að leggjast sjálfur í heilaskannann og taka þátt í rannsókninni. Eftir að heilaæxlið var komið í ljós gekk hann í gegnum skurðaðgerð, þar sem æxlið var fjarlægt, og svo í kjölfarið lyfjameðferð og geislameðferð. Eftir að hafa jafnað sig hélt hann áfram að lifa sínu lífi eins og ekkert hefði í skorist, þ.e. gerði lítið sem engar breytingar á lífstíl sínum, hélt áfram að borða mikið magn af sykri og rauðu kjöti, hreyfði sig lítið og gleymdi að hugsa um andlega vellíðan. Tæplega tíu árum síðar tók meinið sig upp aftur. David gekk sömu götu aftur, meinið var tekið með skurðaðgerð og svo tók við lyfjameðferð og geislameðferð. Í þetta skiptið ákvað hann að kynna sér þær rannsóknir sem til staðar voru á sviðinu til þess að gera það sem hann gæti til að koma í veg fyrir að meinið tæki sig upp í þriðja skiptið. Hann las bókstaflega allan þann fróðleik sem fáanlegur var og hefur gert róttækar breytingar á sínu lífi eftir það. Hann skrifaði þessa bók um þær aðferðir sem hann notar til að vinna gegn því að meinið hans taki sig upp aftur. Hann leggur einnig áherslu á að þetta sé sú bók sem hann hefði viljað hafa við hendina þegar hann greindist fyrst með krabbamein.
Þetta er án efa allra besta bókin sem ég hef lesið um efnið. David Servan-Schreiber er virtur fræðimaður sem hefur djúpa innsýn inn í efnið. Hann lítur á forvarnir gegn krabbameini frá öllum sjónarhornum, þ.e. leggur áherslu á heilbrigt mataræði, hreyfingu, huglægu hliðina, umhverfið og fleiri atriði sem öll skipta máli.
Ég mun á næstu vikum fjalla um valda kafla úr bókinni, þ.e. þá kafla sem fjalla um mataræði og ég hef talið fróðlega og áhugaverða.
Filed under: Bækur, a new way of life, Anti Cancer, Bók, David Servan-Schreiber, Krabbameinsforvarnir
