Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Grillaður hlýri með ferskum aspas og salati

Í gær gerðum við okkur glaðan dag. Ég rölti út í Melabúð og keypti hlýra, ferskan aspas og nóg af brakandi fersku klettasalati í matinn. Ég er enginn sérstakur talsmaður þess að borða mikið grillaðan mat en stóðst ekki mátið í fallega veðrinu í gær. Ég held líka að svo lengi sem maður passar að maturinn brenni ekki á grillinu ætti þessi munaður að vera í lagi stöku sinni. En þessi umfjöllun er nokkuð góð um krabbameinsvaldandi áhrif grillaðs matar. Samkvæmt henni er mun betra að grilla fisk, og langbest að grilla grænmeti, og mikilvægt að hafa hitann ekki of háan og gott að halda áfram að pensla með marineringu eftir að grillun hefst.

Ég horfði fyrir tilviljun á þáttinn Grillað í sjónvarpinu í gær og þar var einn kokkanna að grilla fisk með misó marineringu. Þar sem ég er sérstakur aðdáandi misó varð ég að sjálfsögðu að prófa þetta strax. Ég notað svo afganginn af marineringunni yfir steikta aspasinn. Það kom mjög vel út.

En af því ég ætla ekki að skrifa mikinn fróðleik í þessari færslu þá ætla ég að pósta þessu myndskeiði  sem er frábært. David Servan-Schreiber var algjörlega magnaður maður. Hann skrifaði bókina Anti Cancer sem ég hef svo oft fjallað um áður og breytti algjörlega mínu viðhorfi til matar og annarra umhverfisþátta. Hann lést í fyrra úr krabbameini en hafði þá lifað í um 20 ár eftir að greinast í annað skiptið með heilaæxli. Eftir að hann lést kom út bókin Not the Last Goodbye sem segir frá tímanum frá því að krabbameinið tók sig upp í þriðja skiptið og þar til hann lést. Hann er líklega besta dæmið um það að þrátt fyrir allt er stundum ekki hægt að stöðva mjög erfið og aggressív krabbamein. Hann fór alla leið í hefðbundnum meðferðum sem og óhefðbundnum. Ég er þó algjörlega sannfærð um það eftir að lesa bækurnar hans að hann hefði ekki lifið í öll þessi ár nema af því hann lagði sig fram á öllum vígstöðvum – þ.e. borðaði rétt, var í mikilli líkamsrækt og passaði að lágmarka snertingu sína við krabbameinsvaldandi efni og aðra umhverfiþætti sérstaklega vel.

En yfir í uppskriftina

Grillaður hlýri

500 gr. hlýri

Marinering:

3 msk. ljóst mísó
2 msk. tamari sósa eða soja sósa
2 msk. mirin
2 msk. hrísgrjónaedik
1 msk. hunang
1 msk. chili olía eða repjuolía

Öllu blandað saman í matvinnsluvél eða á annan hátt. Fisknum velt uppúr marineringunni og hann látinn marinerast í 1-2 klst.

Grillið í 3-4 mínútur á hvorri hlið, eða eftir þykkt bitanna.

Ferskur aspas

1 búnt ferskur aspas
2 msk. repjuolía eða önnur bragðlítil olía
1 msk. sesamolía
salt og pipar

Hitið olíuna á pönnu og steikið aspasinn í um 4 mínútur. Saltið og piprið og berið fram.

Salat

1 poki klettasalat
5 kirsuberjatómatar niðurskornir
1/4 rauðlaukur smátt skorinn
2-3 msk. þurrkuð trönuber
2-3 msk. ristaðar furuhnetur

Öllublandað saman í skál.

Dressing
4 msk. sýrður rjómi (10 %)
2-3 msk. dijon sinnep
1 msk. hunang
2 msk. lime safi
3 msk. góð extra virgin ólífuolía – ég notaði A deo1 msk. söxuð steinselja
salt og pipar

Blandið öllu saman í skál og hellið yfir salatið – eða hafið til hliðar fyrir hvern sem er til að hella yfir eftir vild.

About these ads

Filed under: aspas, Bækur, Fiskur, klettasalat, laukur, Meðlæti, Myndskeið, Rannsóknir, Salöt, sítrus ávextir, Sósur, sesamfræ, steinselja, svartur pipar, trönuber, Uppáhalds, , , , , , , ,

Nýársfærsla

Ég hef aðeins verið að veigra mér við það að setjast niður og skrifa þessa færslu. Einfaldlega vegna þess að það ár sem við vorum að kveðja var einstaklega viðburðarríkt og stefnumarkandi fyrir mitt líf. Það má eiginlega segja að árið 2010 hafi verið ár áhugamálanna hjá mér. Ég fann mér svo ótrúlega mörg áhugamál sem ég er einstaklega þakklát fyrir að geta stundað. Ég ákvað í mars að opna þessa síðu í kringum stærsta áhugamálið og miðla þeirri þekkingu sem ég afla mér um áhrifamátt mataræðis á vöxt og myndun krabbameins í líkamanum til þeirra sem áhuga hafa á efninu. Áhugi fólk á þessu efni virðist vera að aukast mikið og ég finn fyrir aukinni trú fólks á áhrif heilbrigðs mataræðis á heilsu þess og andlega líðan. Read the rest of this entry »

Filed under: avokadó, bananar, Bækur, chia fræ, Fæðutegundir, Jógúrt, kíwí, Morgunmatur, Rannsóknir, sítrus ávextir, sojabaunir, Tófú, , , , , , , , , , , , , , , , , ,

Anti cancer

Kafli 6 í bókinni Anti Cancer, A New Way of Life heitir The Anticancer Enviroment og fjallar um umhverfisþætti sem hafa áhrif á myndun krabbameins. Kaflinn hefst á því að fjalla um mann að nafni Michael Lerner, sem á sjöunda áratugnum hætti að kenna við Yale háskóla og flutti til Kaliforníu þar sem hann opnaði miðstöð að nafni Commonweal, með það að markmiði að lækna bæði líkamlega og andlega fólk með alvarlega sjúkdóma. Svo er sagt frá því að starfsfólk Commonweal fái á hverju ári til sín aukinn fjölda ungs fólks með krabbamein og að eitthver dulin skýring sé fyrir því að tíðni krabbameins hjá ungu fólki hækki svo ört sem raun ber vitni. Tölfræðin sýnir að frá árinu 1940 hefur tíðni krabbameins aukist í öllum iðnvæddum ríkjum. Þessi þróun tók síðan augljósan kipp í kringum 1970 þar sem á árunum 1975-1994 jókst tíðni krabbameins hjá ungum konum (yngri en 45 ára) um 1,6% á hverju ári og enn meira í hjá ungum körlum, eða um 1,8% [sjá nánar heimild]. Í sumum löndum Evrópu, eins og til dæmis í Frakklandi, hefur tíðni krabbameins svo aukist um 60% á síðustu 20 árum [sjá nánar heimild]. Þetta vekur upp spurningar um það hvort við stöndum frammi fyrir krabbameinsfaraldri. Í kaflanum er því haldið fram að svo sé og að ekki sé hægt að skýla sér bak við röksemdir á borð við þær að eðlilegt sé að krabbameinstilvik aukist þegar fólk lifir lengur þar sem tölfræðin sýnir að tilvik hjá börnum og ungu fólki hafa aukist gríðarlega.

Kaflinn heldur svo áfram að fjalla um aukningu krabbameinstilvika og ber til að mynda saman tíðni krabbameins meðal kínverskra kvenna sem fluttust til San Francisco annars vegar og hins vegar kínverskra kvenna sem að bjuggu áfram í Kína. Graf á bls. 58 í bókinni sýnir svart á hvítu hve mikill munur er á þessum tveimur hópum. Þær konur sem fluttu til San Francisco voru margfalt líklegri til þess að fá krabbamein en þær sem bjuggu áfram í Kína. Af þessu (auk annarra atriða í kaflanum) er svo dregin sú ályktun að krabbamein sé sjúkdómur hins vestræna lífstíls, þ.e. mataræðis og annarra umhverfisþátta sem til staðar eru á vesturlöndum.

Í framhaldið eru dregnar fram þær breytingar sem hafa orðið á okkar umhverfi á síðastliðnum 50 árum og eru þær eftirfarandi:

1. Mikil aukning á neyslu unnins sykurs: Á bls. 60 í bókinni er að finna graf þar sem sýnt er hversu feiknarleg aukning hefur orðið á neyslu sykurs, þ.e. fór úr því að vera um 5 kg á ári í kringum árið 1830 í það að vera um 70 kg ár ári um síðustu aldamót. Í dag koma 56% af þeim hitaeiningum sem við innbirgðum úr unnum sykri (e. refined sugar), hvítu hveiti (e. bleached flour) og grænmetisolíum (e. vegetable oils). Þessar þrjár fæðutegundir innihalda engin af þeim próteinum, vítamínum, steinefnum eða omega 3 fitusýrum sem líkaminn þarf til þess að vinna á heilbrigðar hátt. Á hinn bóginn innihalda þær nákvæmlega það sem krabbamein þarf til þess að vaxa, þ.e. sykur og omega 6 fitusýrur. Næsti kafli fjallar svo nánar um það hvernig krabbamein nærist á sykri. Þar er sagt frá því að þýski líffræðingurinn og nóbelsverðlaunahafinn Otto Heinrich Warburg hafi uppgötvað að efnaskipti illkynja æxla væri að miklu leyti háð sykurneyslu (e. glucose consumption) og í framhaldið er útskýrt hvernig krabbamein er yfirleitt fundið í líkamanum með skanni (e. PET scan) sem nemur sykur í líkamanum, þ.e. leitar uppi þá líkamsparta sem neyta mests sykurs. Ef að ákveðin líkamshluti sker sig úr hvað varðar sykurneyslu er krabbamein mjög líklega skýringin. Ég ætla ekki að fara mikið nánar út í þennan hluta kaflans. Hann er virkilega athyglisverður og ég mæli eindregið með því að fólk lesi hann ef það hefur áhuga á efninu. Hann er hins vegar fræðulegur og því ekki auðvelta að bæði þýða og gera grein fyrir.

2 Miklar breytingar á ræktun og meðhöndlun dýra sem leitt hefur til breytinga á þeim mat sem við borðum. Á bls 66 hefst kafi sem fjallar um þær breytingar sem hafa orðið á næringarinnihaldi þeirrar fæðu sem við borðum. Þar er sagt frá því að áður fyrr, þegar náttúrulögmálin voru enn það sem stjórnaði fjölgun dýranna, áttu kýrnar kálfana á vorin, þegar grasið var allra grænast og næringarríkast og framleiddu einungis mjólk yfir sumarmánuðina. Græna grasið á vorin er sérstaklega ríkt af omega 3 fitusýrum og var þessi mjólk, og aðrar mjólkurafurðir hennar, því mjög rík af þessum mikilvægu fitusýrum. Aukin eftirspurn eftir mjólk og kjöti á 5. áratugnum varð þó til þess að bændur fóru að fæða dýrin á kornmeti og sojaafurðum, sem eru algjörlega snauð af omega 3 fitusýrum en eru hins vegar rík af omega 6 fitusýrum. Þessi breyting á fóðri dýranna hefur orðið til þess að jafnvægið milli omega 3 og omega 6 fitusýranna í okkur mannfólkinu hefur raskast gífurlega á síðastliðnum árum, þar sem það er beintengt við næringarinnihald dýranna, sem við jú borðum afurðir af. Þessar fitusýrur eru því nú til dags yfirleitt í miklu ójafnvægi hjá fólki, þ.e. í kringum 1/15 og allt upp í 1/40 [sjá nánar heimild]. Það er okkur mjög mikilvægt að halda sem mestu jafnvægi á þessum tveimur tegundum fitusýra þar sem mikið ójafnvægi veldur bólgumyndun í líkamanum auk þess að raska storknun á blóði og valda auknum frumuvexti.  Þessir þættir eiga allir þátt í myndun krabbameins í líkamanum.

Omega 3 fitusýrur og omega 6 fitusýrur eru báðar líkamanum nauðsynlegar. Líkaminn framleiðir þær ekki sjálfur og þarf því að fá þær úr fæðunni. Omega 3 fitusýrur hafa þann eiginleika að vera bólguhamlandi á meðan omega 6 fitusýrur eru bólgumyndandi. Fræðimenn á þessu sviði telja þann faraldur krabbameins og offitu sem við upplifum nú vera tilkominn vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á mataræði á síðastliðnum áratugum og þá sérstaklega aukinnar neyslu omega 6 fitusýra sem þeir staðfesta að sé beintengt ákveðnum tegundum krabbameins [sjá nánar bls 71 í Anti Cancer og heimild]

3 Mikil aukning á snertingu okkar við efni sem ekki voru til staðar fyrir 50 árum. Meindýraeitur er stór þáttur í þeim eiturefnum sem við komumst í snertingu við í náttúrunni. Þau efni sem við notum í dag voru í flestum tilvikum ekki til staðar fyrir árið 1930. Evrópusambandið er meginframleiðandi meindýraeiturs í heiminum og 72% af þeirri framleiðslu er til neyslu innan Evrópusambandsins.

Á bls 73 hefst kafli sem heitir Detoxifying Food eða Matur sem afeitrar og þar kemur fram að hvar sem er í heiminum séu bein tengsl milli neyslu á kjöti og mjólkurafurðum og krabbameini. Á hinn bóginn er fylgni milli mikillar grænmetis- og baunaneyslu og lágrar tíðni krabbameins. Því næst er settar fram tvær aðferðir fyrir fólk til að minnka líkurnar á krabbameini og útbreiðslu þess í líkamanum. Þær eru eftirfarandi:

1. Minnka neyslu sykurs og hvíts hveitis. Nota agave síróp í stað sykurs og borða heilhveitipasta, gróft brauð og gerlaus súrdeigsbrauð í stað brauðs með hvítu hveiti.

2. Forðast allar tegundir smjörlíkis og unninnar fitu auk dýrafitu sem rík er af omega 6. Mælt er með neyslu ólífuolíu, smjörs og osts sem er í góðu omega3/omega6 jafnvægi.

Við Íslendingar erum að mörgu leyti heppin þegar kemur þessum efnum þar sem stór hluti þess matar sem við borðum hefur verið fóðraður með grasi, en ekki korni og sojaafurðum. Íslensku lömbin fá að bíta grasið úti í náttúrunni, og gerir það þá afurð sérstaklega næringarríka, þó svo að um rautt kjöt sé að ræða. Ég vil þó ekki fullyrða nánar um nautgriparækt né um það fóður sem hænurnar fá en ég hefði virkilega gaman af að vita meira um þau mál. Endilega sendið mér tölvupóst ef þið þekkið þau mál nánar eða skrifið inn athugasemd við færsluna.

Ég mun halda áfram að fjalla um bókina Anti Cancer á næstkomandi vikum. Eins og ykkur er líklega farið að gruna þá á þessi bók stóran þátt í því að ég stofnaði þessa síðu. Það eru ekki margar bækur um þetta efni sem eru skrifaðar af fræðimönnum á borð við David Servan Schreiber, sem persónulega hefur gengið þá götu sem hann talar fyrir. Ég fékk þó póst um daginn þar sem mér var bent á bókina The China Study og í framhaldið fór ég að kynna mér hana. Ég er einstaklega þakklát þeim sem hafa haft samband við mig og bent mér á bækur eða fræðimenn á sviðinu. Ég er þó ekki enn komin með eintak af bókinni, en hún er í pöntun, og það sem ég hef lesið um hana lofar góðu. Auk þess mælir Kris Carr með henni, og hún getur ekki haft rangt fyrir sér. Meira um það síðar.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Bækur, , , , , , , , , , , ,

Anti Cancer, a new way of life

Anti Cancer, a new way of life er bók eftir David Servan-Schreiber M.D. Ph.D., geðlækni sem greindist 31 árs að aldri með illkynja heilaæxli þegar þátttakandi í rannsókn hjá honum mætti ekki og David ákveður að leggjast sjálfur í heilaskannann og taka þátt í rannsókninni. Eftir að heilaæxlið var komið í ljós gekk hann í gegnum skurðaðgerð, þar sem æxlið var fjarlægt, og svo í kjölfarið lyfjameðferð og geislameðferð. Eftir að hafa jafnað sig hélt hann áfram að lifa sínu lífi eins og ekkert hefði í skorist, þ.e. gerði lítið sem engar breytingar á lífstíl sínum, hélt áfram að borða mikið magn af sykri og rauðu kjöti, hreyfði sig lítið og gleymdi að hugsa um andlega vellíðan. Tæplega tíu árum síðar tók meinið sig upp aftur. David gekk sömu götu aftur, meinið var tekið með skurðaðgerð og svo tók við lyfjameðferð og geislameðferð. Í þetta skiptið ákvað hann að kynna sér þær rannsóknir sem til staðar voru á sviðinu til þess að gera það sem hann gæti til að koma í veg fyrir að meinið tæki sig upp í þriðja skiptið. Hann las bókstaflega allan þann fróðleik sem fáanlegur var og hefur gert róttækar breytingar á sínu lífi eftir það. Hann skrifaði þessa bók um þær aðferðir sem hann notar til að vinna gegn því að meinið hans taki sig upp aftur. Hann leggur einnig áherslu á að þetta sé sú bók sem hann hefði viljað hafa við hendina þegar hann greindist fyrst með krabbamein.

Þetta er án efa allra besta bókin sem ég hef lesið um efnið. David Servan-Schreiber er virtur  fræðimaður sem hefur djúpa innsýn inn í efnið. Hann lítur á forvarnir gegn krabbameini frá öllum sjónarhornum, þ.e. leggur áherslu á heilbrigt mataræði, hreyfingu, huglægu hliðina, umhverfið og fleiri atriði sem öll skipta máli.

Ég mun á næstu vikum fjalla um valda kafla úr bókinni, þ.e. þá kafla sem fjalla um mataræði og ég hef talið fróðlega og áhugaverða.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Bækur, , , , ,

Anti Cancer: A New Way of Life


Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Bækur, Myndskeið, , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 365 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 365 other followers

%d bloggers like this: