Ég virðist vera með æði fyrir tvennu þessa dagana, þ.e. tælenskum mat og hindberjum. Ég rúlla milli tælensks og indversks æðis og geri ráð fyrir að indverski maturinn fari að detta inn á næstunni þar sem ég var að fá fjórar bækur um indverska matargerð í póstinum rétt í þessu.
Mig langar að deila með ykkur tveimur góðum uppskriftum að tælenskum mat.Sú fyrri er uppskrift sem ég geri mjög reglulega og hef í raun fjallað áður um hér á síðunni. Ég er enn að þróa hana og langar þvi að deila með ykkur nýjustu útgáfunni. Ég er svo yfir mig hrifin af pak choy þessa dagana og tel Garðyrkjustöðina Engi eiga skilið sérstakt hrós fyrir að framleiða þetta stórkostlega ofurfæði. Pak choy er mikið notað í kínverska og tælenska matargerð, sem og aðra asíska matargerð, og er einnig oft kalla bok choy. Pak choy er sérlega ríkt af C vítamíni sem og A og K vítamíni en einnig mjög ríkt af kalki, kalíumi og magnesíumi. Það er einnig talið hafa eiginleika til að vinna gegn myndun og vexti krabbameins (sjá til dæmi hér og hér). Ég tók stuttan netrúnt og fann ýmislegt í þá áttina. Endilega kíkið á:
Umfjöllun Dr. Oz um 5 krabbameinshamlandi fæðutegundir, m.a. Pak choy.
Umfjöllun á heimasíðu Lance Armstrong um pak choy
Ég býst við að pak choy fáist í flestum heilsubúðum. Ég keypti það í Melabúðinni – þar er alltaf gott úrval. Ég notaði pak choy í báðar uppskriftirnar. Hér kemur fyrri uppskriftin. Byrjum samt á einni mynd af pok choy, íslenskri papriku og tælensku basil sem allt fóru í réttinn.
Ég er nýbyrjuð að nota tælenskt basil. Það er allt öðruvísi en hin hefðbundna basilika sem við setjum á caprese salatið með mozarella ostinum og tómötunum. Þessi lyktar eins og lakkrís og minnir því óneitanlega á fennel og anís. Ég þorði nú ekki að setja mikið en mun án efa þróast í þessu með tímanum.
Næst var það engifer og hvítlaukur, já og nóg af báðu. Í uppskriftinni eru 3 msk. af sökuðu fersku engiferi og 2 msk. saxaður hvítlaukur. Ég fæ að sjálfsögðu ekki nóg af því að tala um jákvæða eiginleika bæði hvítlauks og engifers en ég geri þó ráð fyrir að flestum lesendum síðunnar sé orðið nokkuð ljóst að hér eru ofurkrydd á ferð. Fyrsta innleggið á facebook veggnum mínum var um engifer núna þegar ég opnaði tölvuna og ætla ég því að láta það duga sem innlegg í hvítlauks- engiferumræðuna þessu sinni. Kíkið á umfjöllunina hér.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: pak choy, paprika
Krydd: hvítlaukur, engifer, chili, túrmerik, rautt karrý
Baunir: sojabaunir
Uppskrift
fyrir 4
1 pakki tófú – vel þerrað með eldhúspappír og skorið í bita
1-2 msk. hágæða olía til steikingar (t.d. repjuolía frá Rapunzel)
1/2 poki pak choy frá Engi
1 stór græn paprika niður skorin
1 stór rauður chili pipar smátt saxaður
3 msk. saxað ferskt engifer
2 msk. saxaður hvítlaukur
1 tsk. túrmerik + svartur pipar
2-3 msk. rautt karrýmauk
1 dós kókosmjólk
2 msk. fiskisósa
4 lime lauf (fást þurrkuð úr sömu línu og tælenska basilið á myndinni hér að ofan)
1 msk. hunang
1/4-1/2 tsk. tælenskt basil
Byrjið á því að hita olíuna og steikið tófúið þar til það hefur brúnast á öllum hliðum. Gætið þess að vera búin að þerra tófúið vel áður en byrjað er að steikja – annað gerir steikinguna erfiða. Takið tófúið af pönnunni og bætið hvítlauk, engiferi, papriku og chili á pönnuna og steikið í 2-3 mínútur. Bætið því næst rauðu karrýi, túrmeriki og svörtum pipar og steikið áfram í tæpa mínútu. Hellið þá kókosmjólk og fiskisósu saman við og hrærið vel. Bætið lime laufum, pak choy og hunangi saman við og látið malla í 5-7 mínútur. Bætið tófúinu saman við sem og basili. Saltið örlítið eftir smekk og berið fram með hrísgrjónum.
Og síðan er komið að seinni uppskriftinni. Hún var ekki verri. Ég notaði líka tófú í hana en að sjálfsögðu er hægt að nota kjúkling eða bara grænmeti ef ykkur hugnast það frekar. Ég notaði aftur pak choy en auk þess hnúðkál. Ég held að minnsta kosti að það sé íslenska þýðingin. Þetta kallast romanesco á ensku og er notað í eina af mínum uppáhalds uppskriftum á 101cookbooks heimasíðunni sem ég er svo hrifin af (sjá uppskriftina hér). Ég get ekki talið öll skiptin sem við gerðum þessa uppskrift í Vancouver. En aftur að efninu. Það sem er einnig sérstakt við þessa uppskrift er að ég notaði ferska shitake sveppi í hana. Þá fékk ég, eins og pok choy, í yndislegu Melabúðinni. Hér kemur mynd af þessum flottu sveppum sem ég nældi mér í.
Shitake sveppir eru taldir hafa einstakan lækningamátt. Bandaríska krabbameinstofnunin fjallar um krabbameinshamlandi áhrif shitakesveppsins á mjög athyglisverðan hátt þar sem fram kemur að shitake sveppurinn styrki ónæmiskerfi líkamans og þannig vinni gegn myndun krabbameins. Sjá nánar um þetta hér. En nú held ég að ég sé að setja lengdarmet og ætla því að koma uppskriftinni frá mér.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: pak choy, hnúðkál, laukur
Sveppir: shitake sveppir
Krydd: hvítlaukur, chili
Baunir: sojabaunir
Uppskrift
fyrir 4
1 pakki tófú – vel þerrað og skorið í bita
sesamolía til steikingar
1 blaðlaukur skorinn í mjóar ræmur
1 haus hnúðkál/romanesco skorinn í bita
1 pakki shitakesveppir – 150 gr.
2 msk. soja sósa
(ég átti ekki til gulrætur en mun án efa setja þær með næst)
Hnetusósan
1 msk. sesamolía
2 hvítlauksrif smátt söxuð
1-2 rauðir chili fræhreinsaðir og saxaðir
3/4 bolli jarðhnetur
2/3 bolli kókosmjólk
2 msk. hoisin sósa
1 msk. soja sósa
1 msk. hunang
Gott er að byrja á því að gera hnetusósuna og láta hana standa á meðan allt annað er gert ready. Hitið olíuna og steikið hvítlauk og chili þar til það er farið að brúnast. Bætið þá hnetunum saman við og látið þær krauma í 2-3 mínútur á pönnunni. Bætið síðan afgangnum af innihaldsefnunum saman við og látið malla í nokkrar mínútur – eða þar til sósan er orðin þykk og girnileg.
Næst er að steikja tófúið. Steikið tófúið þar til það hefur brúnast á öllum hliðum. Tófústeikingarsérfræðingurinn á mínu heimili tók þetta að sér og það leit svona út eftir steikingu – frekar flott hjá honum.
Eins og sést á myndinni er tófúið steikt og því næst tekið af pönnunni og lagt á eldhúsbréf. Næst er að steikja grænmetið. Notið áfram sesamolíu til steikingar og byrjið á að steikja hnúðkálið og sveppina, síðan blaðlaukinn og pak choy-ið. Hellið því næst sojasósunni yfir. Bætið tófúinu á pönnuna og blandið saman við. Hellið hnetusósunni yfir og berið fram með hrísgrjónum.
Verði ykkur að góðu!
Filed under: basil, chili, chili pipar, engifer, hnúðkál, hnetur, hvítlaukur, laukur, paprika, Sósur, sojabaunir, svartur pipar, Sveppir, Tófú, túrmerik, Uppáhalds, Vegan, bok choy, engifer, hnúðkál, Hnetusósa, hvítlaukur, pak choy, rautt karrý, romanesco, shitake sveppir, tælenskur matur












