Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir, trönuber
Krydd og kryddjurtir: Svört sinnepsfræ, engifer, túrmerik, kanill, kóríander
Kornmeti: rauðar linsubaunir
Grænmeti: laukur, tómatar, sellerí
Uppskrift
fyrir 4-6
2 msk kókosolía
1 1/2 tsk kúmin fræ
1 1/2 tsk svört sinneps fræ
2 laukar
2 sellerístilkar
1 msk ferskt engifer smátt saxað
2 tsk túrmerik
Smá nýmalaður svartur pipar
2 tsk malað kúmin
1/2 tsk salt
2 bollar niðurskornir tómatar (2-3 tómatar)
8 bollar gott grænmetissoð
2 bollar rauðar linsubaunir
1 kanilstöng
1 tsk sítrónusafi
1/4 bolli ferskt kóríander saxað
1/2 bolli þurrkuð trönuber
Hitið kókosolíu á pönnu og bætið kúminfræjum og sinnepsfræjum á pönnuna. Maukið lauk og sellerí í matvinnsluvél eða saxið smátt og hafið tilbúið. Bíðið þar til fræin byrja að springa og hellið þá laukblöndunni út í og hrærið vel. Steikið í 3-4 mínútur við miðlungshita. Bætið þá engiferi, túrmeriki, svörtum pipar, kúmini og salti út í og hrærið. Steikið í um 2 mínútur til viðbótar. Bætið þá tómötum út í og hrærið saman við. Bætið því næst 1 bolla af soðinu út í og hrærið saman við. Látið suðuna koma upp og sjóðið í 4-5 mínútur til þess að töluvert að vökvanum gufi upp. Bætið þá linsubaununum og kanilstönginni út í og afganginum af soðinu (7 bollum). Hrærið vel. Látið suðuna koma upp og látið malla í 30 mínútur. Hellið svo í matvinnsluvél/blender eða notið töfrasprota til að mauka súpuna. Hellið aftur í pottinn og bætið fersku kóríander, sítrónusafa og trönuberjum út í og látið malla í um 10 mínútur til viðbótar. Saltið eftir smekk. Berið fram með góðu brauði og hummus.
Filed under: Baunir, kóríander, laukur, Rauðar linsubaunir, Rauðar linsubaunir, sítrus ávextir, Súpur, sellerí, svartur pipar, svört sinnepsfræ, tómatar, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, C-vítamín ríkt, engifer, Fólínsýra, Indversk súpa, járnríkt, Kanilstöng, kókosolía, kóríander, Rauðar linsubaunir, sítrónusafi, Sellerí, Sinnepsfræ, tómatar, túrmerik, Trönuber, trefjaríkt

