Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Blómkálssúpa með smjörbaunum

Þessi súpa er ekkert nema bara hollusta. Allt sem að í hana fór var hollt og nærandi fyrir líkamann auk þess að vera einnig gott. Þetta er hins vegar ekki hin hefðbundna blómkálssúpa sem þið þekkið og hafið fengið áður. Þessi er bragðmikil og virkileg matarmikil.

Mig langar að fjalla aðeins um blómkál og næringargildi þess. Blómkál flokkast sem eitt af hinu svokallaða cruciferous grænmeti sem eru þær grænmetistegundir sem alltaf er talað um í sambandi við forvarnir gegn krabbameini. Spergilkál hefur þá yfirleitt fengið hvað mesta athygli, en blómkálið er ekki síður gott og næringarríkt. Blómkál inniheldur mikið af C-vítamíni, K-vítamíni og fólínsýru auk þess að innihalda fjöldann allan af öðrum næringarefnum sem eru góð fyrir líkamann. Það inniheldur omega 3 í formi ALA fitusýru og vinnur það með K-vítamíninu gegn bólgum í líkamanum. Túrmerikið vinnur svo auk þess líka gegn bólgum og má því segja að þessi súpa sé eiginlega alveg sérstök þegar litið er til samspils innihaldsefnanna og áhrifa þeirra á líkamann.

Ég er svolítið gjörn að meta næringargildi matar út frá litum vegna þess að litsterkur matur er yfirleitt sérstaklega hollur fyrir líkamann. Sumir vilja helst ekki nota rauðrófur, tómatvörur eða túrmerik af því það er gjörsamlega vonlaust að ná þeim blettum úr fötum, en þetta eru hins vegar þær fæðutegundir sem innihalda hvað mest af plöntuefnum (phytochemicals) sem eru svo ótrúlega mikilvæg fyrir varnir líkamans gegn ýmsum kvillum, t.d. krabbameini. Til dæmis er plöntuefnið sem finnst í tómötum, þ.e. lycopene, sérstaklega virk forvörn gegn blöðruhálskirtilskrabbameini og yfirleitt er hvað mest af lycopene í unnum tómatvörum, þ.e. tómatmauk og sólþurrkuðum tómötum. Ég mun fljótlega birta grein hér sem ég er að vinna í sem fjallar um plöntuefnin og mismunandi tegundir þeirra.

En þrátt fyrir að blómkálið sé nánast litlaust þá er það langt frá því að vera næringarsnautt. Sama er að segja um hvítlaukinn og laukinn sem er ekki sparaður í þessari uppskrift og gera einstakt bragð. Ekki hafa áhyggjur af því að kæfa næsta mann eftir þessa máltíð, vegna þess að hvítlaukurinn er það mikið eldaður að hann á ekki að finnast mikið. Smjörbaunirnar eru svo algjört ofurfæði, einstaklega ríkar af trefjum, járni, magnesíum, fólínsýru og fleiri mikilvægum næringarefnum. Smjörbaunir eru fitusnauðar og kólesteróllækkandi og því góðar fyrir þá sem eru með hátt kólesteról sem og þá sem eru með sykursýki. Það ættu allir að reyna að komast upp á lagið með að elda úr smjörbaunum. Þær eru heppilegar í buff, súpur, pottrétti og margt fleira.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: mangó
Grænmeti: blómkál, laukur
Krydd: hvítlaukur, túrmerik, svartur pipar, cumin, paprika, chili, steinselja
Braunir og kornmeti: smjörbaunir


Blómkálssúpa
6-8 manns

2 blómkálshausar
2 laukar
1 heill hvítlaukur
3 msk. kókosolía
2 msk. grænmetiskraftur frá Himneskri hollustu
2 tsk. salt – herbamare með kryddjurtum
½ tsk. túrmerik + svartur pipar
½ tsk. cumin
1 tsk. paprikukrydd
1,5 l vatn
½ – 1 tsk. þurrkaðar chiliflögur
2 dósir smjörbaunir – skolaðar
2 msk. mangó chutney
salt og pipar eftir smekk
fersk steinselja til skrauts (má sleppa)

Merjið hvítlaukinn og látið anda. Hitið olíuna í stórum potti og steikið laukinn og hvítlaukinn í 2-3 mínútur. Bætið þá túrmeriki, svörtum pipar og chiliflögum á pönnuna og steikið í aðrar 2 mínútur. Bætið blómkálinu næst í pottinn og svo vatninu, grænmetiskraftinum og saltinu. Látið suðuna koma upp og sjóðið í um 10 mínútur eða þar til blómkálið er orðið mjúkt í gegn. Maukið súpuna þá með töfrasprota og kryddið með paprikukryddi,cumini og mangó chutney. Bætið að lokum smjörbaunum saman við og látið þær hitna í gegn. Skreytið með paprikukryddi og ferskri steinselju. Berið fram með nýbökuðu brauði.

About these ads

Filed under: blómkál, chili, hvítlaukur, laukur, mangó, paprika, Súpur, smjörbaunir, smjörbaunir, steinselja, svartur pipar, túrmerik, , , , , , , , , , , , ,

Sætar kartöflur með karrý og grænkáli

Þessi kom skemmtilega á óvart. Ótrúlega einfaldur og fljótlegur réttur, stútfullur af mikilvægum og öflugum næringarefnum. Grænkálið er algjört ofurfæði sem allir ættu að reyna að koma inn í mataræðið hjá sér. Það er næringarríkasta cruciferous grænmetið, uppfullt af A-vítamíni, C-vítamíni, K-vítamíni, kalki, járni og fleiri steinefnum. Það er bólguhamlandi og inniheldur mikið magn andoxunarefna. Þessir eiginleikar grænkáls gera það afar krabbameinshamlandi. Fyrir þá sem ekki geta nálgast grænkál er örugglega fínt að nota spínat í þennan rétt í staðin fyrir grænmálið (nota heilan poka).

Næringarinnihald grænkáls minnkar við suðu og þess vegna er best að elda það sem allra minnst (að sjálfsögðu best að borða það hrátt). Þess vegna vil ég benda á að það er mikilvægt að setja grænkálið ekki útí réttinn fyrr en kartöflurnar eru næstum því tilbúnar, svo að næringarinnihald grænkálsins haldist sem best.

Næst á dagskrá er svo að byrja að drekka græna drykki á morgnanna með grænkáli. Ég leyfi ykkur að fylgjast með raunum mínum á þeirri vegferð þegar þar að kemur.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti
: sætar kartöflur, grænkál
Krydd og kryddjurtir: hvítlaukur, chili,  cumin, túrmerik, svartur pipar

Uppskrift
fyrir 4 með mat

1-2 msk. kókosolía
1 msk. madras curry paste – cumin og chili hot (frá Pataks)
2 meðalstórar sætar kartöflur skornar í bita
1/2 búnt grænkál niðurskorið
4 stór hvítlauksrif marin
1/4 tsk. túrmerik
svartur pipar
1 lítil dós kókosmjólk + dósin fyllt 1 sinni með vatni
1 tsk salt

Byrjið á því að merja hvítlaukinn og leyfið honum að anda.

Hitið olíuna á pönnu og bætið hvítlauknum, karrýmaukinu, túrmerikinu og svörtum pipar á pönnuna og steikið í 1-2 mínútur. Bætið þá kartöflunum á pönnuna og steikið í 3-4 mínútur. Bætið því næst kókosmjólkinni, vatninu og salti saman við og hrærið. Lokið pönnunni og látið sjóða í um 10-15 mínútur eða þar til kartöflurnar eru næstum því mjúkar í gegn. Bætið þá grænkálinu saman við og hrærið. Sjóðið í nokkrar mínútur með opna pönnuna þar til kartöflurnar eru alveg tilbúnar og aðeins hefur gufað upp af vökvanum. Berið fram.

Filed under: chili, grænkál, hvítlaukur, Karrý, kartöflur, Kartöflur, kúmin, Meðlæti, svartur pipar, túrmerik, Vegan, , , , , , , , ,

Linsubaunasúpa með sætum kartöflum

Ég fór í Melabúðina í dag og fann hvað ég hef saknað hennar mikið. Ekki það að hráefnið sem fæst í Melabúðinni fáist ekki í Vancouver heldur er það frekar þessi sérstaki fílingur sem maður finnur í þessari gömlu kaupmannsbúð á horninu á Hofsvallagötu og Hagamel. Mér finnst alltaf gaman að versla þar. Maður finnur líka að það er lögð vinna í að velja besta hráefnið sem völ er á á hverjum tíma. Ég dag keypti ég ótrúlega ferskan hvítlauk, sem minnti mig einna helst á hvítlaukinn sem við keyptum á bændamörkuðunum úti í Vancouver og auk þess keypti ég íslenska fjallasteinselju, sem er líka mjög fersk þessa dagana. Ég var búin að ákveða að búa til kraftmikla súpu með rauðu linsubaununum sem ég keypti í gær. Þannig að þá var bara að koma sér að verki.

Ég ætla að eyða smá púðri í að fjalla um rauðar linsubaunir áður en ég dembi mér í uppskriftina. Rauðar linsubaunir eru nefnilega sérstaklega hollar og góðar. Mér finnst þær bestar í súpur. Ég hef reynt að nota þær í grænmetispottrétti, en þá finnst mér hann alltaf verða hálfgert mauk, sem ég er ekki hrifin af. Aðrar baunategundir eru betri í það. Ég nota rauðu linsubaunirnar samt stundum til að þykkja pottrétti, t.d. tælenska karrýrétti sem ég læt sjóða í talsverðan tíma og hefur það komið vel út. Enn þá að næringargildi rauðra linsubauna. Rauðar linsubaunir eru trefjaríkar, járnríkar og magnesíumríkar auk þess að vera ríkar af fólínsýru (b9 vítamín) og Tíamíni (b1 vítamín). Þær lækka einnig kólesterol auk þess að jafna blóðsykur. Það er vert að minnast á að allt sem hér á undan er talið er ótrúlega gott fyrir ófrískar konur og ég vildi óska þess að ég hefði vitað hversu hollar rauðar linsubaunir eru og kunnað að elda úr þeim þegar ég var ófrísk. Þá hefði ég kannski sloppið við að taka járntöflurnar. En aftur að efninu. Read the rest of this entry »

Filed under: engifer, fennel, fenugreek, graskersfræ, hvítlaukur, Karrý, karrýlauf, kartöflur, Kartöflur, kóríander, kúmin, laukur, Rauðar linsubaunir, Rauðar linsubaunir, Súpur, svartur pipar, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , , , ,

Goji ber

Maður Lifandi birti fyrir nokkru umfjöllun á facebook um goji ber. Það vill svo til að ég keypti goji ber fyrir nokkrum vikum og hef ekki vitað hvað ég á að gera við þau. Ég las umfjöllunina og fannst hún virkilega skemmtileg og fróðleg. Ég hef því ákveðið að birta hana hér í heilu lagi þannig að þeir sem eru ekki vinir Maður Lifandi eða eru ekki á facebook, geta lesið hana hér:

,,Goji ber eru Hamingjuber

Þessi eldrauðu og krafmiklu ber hafa verið notuð um aldir í austurlenskum lækningum. Goji berin eru upprunalega frá Tíbet og eru ræktuð þar í miklum mæli, og einnig eru þau ræktuð um allt sunnanvert Kína og norðanvert Indland. Berin eru ræktuð á sígrænum runna sem vex í 1-3metra hæð eftir vaxtaskilyrðum. Þegar berin eru fullþroska eru þau mjög mjúk og eru hrist af trjánum til að koma veg fyrir að þau springi. Það er margra alda hefð hjá íbúum Himalya fjalla og Tíbet að fagna uppskerutíma Goji berja og er þau kölluð hamingjuber vegna áhrifa þeirra á heilsu og heilbrigði, andlega og líkamlega.

Goji-berin hafa mjög háan andoxunarstuðul og andoxunarefnið, polysaccharides í Goji berjunum er talið sérlega afkastamikið, styrki frumurnar hratt og örugglega og styrki þar með ónæmiskerfið á undrahraða. Einnig eru þau talin gefa mikla orku og draga úr þreytueinkennum, auka á almenna vellíðan og eru sögð draga úr matarlyst og ofáti.
Þau auka á framleiðslu svokallaðra T-fruma og hvetja hvítu blóðkornin til hreinsunarstarfa. Þau eru talin mjög góð fyrir sjónina, vernda lifrina, styrkja blóðrásina , auka kynhvöt, örva sæðismyndun hjá karlmönnum, viðhalda æsku og lífsþrótti.og eru talin stuðla að betri svefni.

Goji berin innihalda flest þau næringarefni sem við þurfum til að halda góðri heilsu. Þau innihalda 500 sinnum meira C-vítamín en appelslínur, mjög hátt magn af karótíni og fjölda B-og E vítamína. Einnig innihalda þau a.m.k. 18 amínósýrur og mikið mafn af steinefnum, s.s. sink, járn, kopar, kalk, selen og fosfór.

Mælieiningin ORAC stendur fyrir “oxygen radical absorbance capacity” og mælir heildar andoxunarmælikvarða bætiefna og annarra fæðutegunda. Goji berin mælast á ORAC skalanum með 25.300 einingar á meðan bláber hafa 2.400, jarðarber 1.540, spinat 1.540, appelsínur 750. Það er því óhætt að segja að þessi vara er óvenjuleg.

Goji berjasafinn smakkast mjög vel og er mælt með því að taka 1-2 matsk. af honum á dag. Það er líka sniðugt að blanda honum í morgundrykkinn sinn. Af berjum er mælt með ca. 20-40 berjum á dag og er hægt að nota þau líka í matreiðslu ýmiss konar, s.s. í salöt og súpur.

Safi úr Goji berjum er mjög vinsæll meðal íbúa Austurlanda og víðast í Evrópu má nú sjá Goji ber og Goji safa í hillum heilsuverlana og nú fást einnig bæði ber og Goji safi á Íslandi í heilsuvöruverlunum og í sumum apótekum.

Þetta er því rétti tíminn til að hressa upp á líkama og sál með einni af heimsins mestu hollustu afurð.”

Ég vaknaði svo í morgun og bjó til hafragraut með goji berjum. Hann var virkilega góður. Ég notaði þurrkuð goji ber og sauð þau allan tímann með grautnum. Mæli með því að fólk prófi það.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: goji ber, Greinar, Morgunmatur, , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: