Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Steikt lúða með indversku masala

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Grænmeti: tómatar, laukur
Krydd: hvítlaukur, cayenne pipar, sinnepsfræ, karrýlauf, cumin, kóríander, negull

Uppskrift
fyrir 4 

Marinering fyrir lúðu
1 kg. smálúða skorin í bita
¼ bolli ólífuolía eða repjuolía
¼ tsk. cayenne pipar
1 tsk. salt
1 tsk. svört sinnepsfræ möluð í mortéli
1 bolli brauðmylsna (notaði 4 hrökkbrauðssneiðar, malaðar í matvinnsluvél)

Masala

2 msk. ólífuolía
10 karrýlauf
1 ½ tsk cumin
1 ½ tsk. malað kóríander
¼ tsk cayenne
2 maukaðir rauðlaukar
3 hvítlauksrif
3 negulnaglar
1/2  tsk. salt
1 dós af niðurskornum tómötum í dós
1 lítil dós af kókosmjólk (160 ml.)
160 ml. vatn

Blandið öllum innihaldsefnum í marineringunni saman og komið fyrir í ísskáp. Látið marinerast í 2 klst. (ekkert stress þó ef það er minna eða meira).

Maukið rauðlauk og hvítlauk saman í matvinnsluvél.

Hitið ólífuolíu í potti þar til hún er orðin nokkuð heit, bætið þá karrýlaufum út í og látið steikjast í olíunni í um 30 sekúndur. Gott er að loka pottinum á meðan þetta gerist til að fá ekki slettu framan í sig. Hellið svo maukaða lauknum á pönnuna og steikið í um 5 mínútur við miðlungshita. Blandið því næst kryddunum saman við og síðan tómötunum. Látið malla við miðlungshita í 5-8 mínútur eða þar til vökvinn hefur minnkað talsvert. Blandið þá kókosmjólkinni saman við auk þess að fylla dósina einu sinni af vatni og blanda saman við (u.þ.b. 160 ml.). Látið malla í 10 mínútur.

Veltið fiskinum upp úr brauðmylsnunni/hrökkbrauðsmylsnunni. Hellið afganginum af marineringunni á pönnuna og steikið fiskinn í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Berið fram með brúnum hrísgrjónum og naan brauði.

About these ads

Filed under: chili, Fiskur, hvítlaukur, karrýlauf, kóríander, kúmin, laukur, Meðlæti, negulnaglar, sinnep, svartur pipar, tómatar, Uppáhalds, Uppskriftir, , , , ,

Blómkálssúpa með smjörbaunum

Þessi súpa er ekkert nema bara hollusta. Allt sem að í hana fór var hollt og nærandi fyrir líkamann auk þess að vera einnig gott. Þetta er hins vegar ekki hin hefðbundna blómkálssúpa sem þið þekkið og hafið fengið áður. Þessi er bragðmikil og virkileg matarmikil.

Mig langar að fjalla aðeins um blómkál og næringargildi þess. Blómkál flokkast sem eitt af hinu svokallaða cruciferous grænmeti sem eru þær grænmetistegundir sem alltaf er talað um í sambandi við forvarnir gegn krabbameini. Spergilkál hefur þá yfirleitt fengið hvað mesta athygli, en blómkálið er ekki síður gott og næringarríkt. Blómkál inniheldur mikið af C-vítamíni, K-vítamíni og fólínsýru auk þess að innihalda fjöldann allan af öðrum næringarefnum sem eru góð fyrir líkamann. Það inniheldur omega 3 í formi ALA fitusýru og vinnur það með K-vítamíninu gegn bólgum í líkamanum. Túrmerikið vinnur svo auk þess líka gegn bólgum og má því segja að þessi súpa sé eiginlega alveg sérstök þegar litið er til samspils innihaldsefnanna og áhrifa þeirra á líkamann.

Ég er svolítið gjörn að meta næringargildi matar út frá litum vegna þess að litsterkur matur er yfirleitt sérstaklega hollur fyrir líkamann. Sumir vilja helst ekki nota rauðrófur, tómatvörur eða túrmerik af því það er gjörsamlega vonlaust að ná þeim blettum úr fötum, en þetta eru hins vegar þær fæðutegundir sem innihalda hvað mest af plöntuefnum (phytochemicals) sem eru svo ótrúlega mikilvæg fyrir varnir líkamans gegn ýmsum kvillum, t.d. krabbameini. Til dæmis er plöntuefnið sem finnst í tómötum, þ.e. lycopene, sérstaklega virk forvörn gegn blöðruhálskirtilskrabbameini og yfirleitt er hvað mest af lycopene í unnum tómatvörum, þ.e. tómatmauk og sólþurrkuðum tómötum. Ég mun fljótlega birta grein hér sem ég er að vinna í sem fjallar um plöntuefnin og mismunandi tegundir þeirra.

En þrátt fyrir að blómkálið sé nánast litlaust þá er það langt frá því að vera næringarsnautt. Sama er að segja um hvítlaukinn og laukinn sem er ekki sparaður í þessari uppskrift og gera einstakt bragð. Ekki hafa áhyggjur af því að kæfa næsta mann eftir þessa máltíð, vegna þess að hvítlaukurinn er það mikið eldaður að hann á ekki að finnast mikið. Smjörbaunirnar eru svo algjört ofurfæði, einstaklega ríkar af trefjum, járni, magnesíum, fólínsýru og fleiri mikilvægum næringarefnum. Smjörbaunir eru fitusnauðar og kólesteróllækkandi og því góðar fyrir þá sem eru með hátt kólesteról sem og þá sem eru með sykursýki. Það ættu allir að reyna að komast upp á lagið með að elda úr smjörbaunum. Þær eru heppilegar í buff, súpur, pottrétti og margt fleira.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: mangó
Grænmeti: blómkál, laukur
Krydd: hvítlaukur, túrmerik, svartur pipar, cumin, paprika, chili, steinselja
Braunir og kornmeti: smjörbaunir


Blómkálssúpa
6-8 manns

2 blómkálshausar
2 laukar
1 heill hvítlaukur
3 msk. kókosolía
2 msk. grænmetiskraftur frá Himneskri hollustu
2 tsk. salt – herbamare með kryddjurtum
½ tsk. túrmerik + svartur pipar
½ tsk. cumin
1 tsk. paprikukrydd
1,5 l vatn
½ – 1 tsk. þurrkaðar chiliflögur
2 dósir smjörbaunir – skolaðar
2 msk. mangó chutney
salt og pipar eftir smekk
fersk steinselja til skrauts (má sleppa)

Merjið hvítlaukinn og látið anda. Hitið olíuna í stórum potti og steikið laukinn og hvítlaukinn í 2-3 mínútur. Bætið þá túrmeriki, svörtum pipar og chiliflögum á pönnuna og steikið í aðrar 2 mínútur. Bætið blómkálinu næst í pottinn og svo vatninu, grænmetiskraftinum og saltinu. Látið suðuna koma upp og sjóðið í um 10 mínútur eða þar til blómkálið er orðið mjúkt í gegn. Maukið súpuna þá með töfrasprota og kryddið með paprikukryddi,cumini og mangó chutney. Bætið að lokum smjörbaunum saman við og látið þær hitna í gegn. Skreytið með paprikukryddi og ferskri steinselju. Berið fram með nýbökuðu brauði.

Filed under: blómkál, chili, hvítlaukur, laukur, mangó, paprika, Súpur, smjörbaunir, smjörbaunir, steinselja, svartur pipar, túrmerik, , , , , , , , , , , , ,

Tómatsalat með kóríander og cayenne pipar

Þetta salat er eitt af mínum uppáhalds. Upphaflega fann ég það í bók eftir Madhur Jaffrey, sem ég elda mikið úr, en með tíð og tíma hefur uppskriftin breyst lítillega eftir mínu höfði. Salatið passar fullkomlega með bragðsterkum indverskum pottréttum og er rosalega fljótlegt, hollt og einfalt. Allar fæðutegundirnar í salatinu hafa eiginleika sem vinna gegn krabbameini. Tómatarnir innihalda lycopene sem ég hef áður talað um hér á síðunni. Ferskt kóríander hefur eiginleika sem hjálpa líkamanum að losa sig við þungamálma. Það hefur einnig bólguhemjandi áhrif á líkamann auk þess að vera gott fyrir meltinguna. Að lokum langar mig að nefna það að ferskt kóríander hefur eiginleika sem jafna/stilla(e. regulate) NF-kB í líkamanum. NF-kB er prótein samstæða sem þjónar grundvallarhlutverki þegar líkaminn bregst við sýkingum og hefur einnig verið tengt við myndun krabbameins, þ.e. þegar um óeðlilega virkni NF-kb eða stillingu þess er að ræða (sjá nánar um þetta hér). Ég ætla hins vegar ekki að hætta mér dýpra ofan í þessi mjög svo flóknu fræði. Hér kemur uppskriftin að þessu skemmtilega salati.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir
Grænmeti: tómatar, laukur
Krydd og kryddjurtir: ferskt kóríander, cayenne pipar

Uppskrift
fyrir 4-6 með mat

2 öskjur kirsuberjatómatar skornir í tvennt
2-3 msk. ferskt kóríander saxað
1 laukur smátt skorinn
1/2 tsk. salt
1/8 tsk. cayenne pipar
2 msk. sítrónusafi
1 msk. extra virgin ólífuolía

Blandið öllu saman í skál og berið fram með mat.

Filed under: kóríander, laukur, Salöt, sítrus ávextir, tómatar, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , ,

Vatnsmelónu- og tómatsalat með fetaosti og myntu

Þetta salat birtist á heimasíðu Dr. Weil fyrir stuttu og mér fannst það ákaflega girnilegt. Það inniheldur mikið af lycopene, sem gefur bæði tómötum og vatnsmelónum rauða litinn. Ég fjallaði um lycopene í færslunni um tómata fyrir stuttu og er skemmst frá því að segja að þetta máttuga plöntuefni er karlmönnum virkilega hollt og vinnur á fyrirbyggjandi hátt gegn myndun krabbameins í blöðruhálsi, sem er jú algengasta krabbameinið meðan karlmanna. Þó svo að flestar rannsóknir tengdar lycopene beinist að áhrifum þess gegn krabbameini í blöðruhálskirtli þá er þetta efni konum einnig mjög hollt. Nýlegar rannsóknir sýna að það hefur einnig fyrirbyggjandi áhrif gegn krabbameini í brjóstum [sjá nánar hér]

Með tómötunum og vatnsmelónunni í salatinu er rauðlaukur, fetaostur og fersk mynta, sem rannsóknir hafa sýnt að geti minnkað blóðflæði til æxla í líkamanum [sjá nánar hér]. Myntan gefur salatinu ferskan og skemmtilegan tón og fallegan grænan lit.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: vatnsmelóna
Grænmeti: tómatar, laukur
Krydd og kryddjurtir: mynta

Uppskrift
fyrir 4 með mat

1 lítil vatnsmelóna eða hálf stór niðurskorin
1 bakki kirsuberjatómatar niðurskornir
10 stór mintulauf niðurskorin
1/2 rauðlaukur smátt saxaður
1/2 – 1 bolli fetaostur (eftir smekk)
Smá maldonsalt
Nýmalaður svartur pipar eftir smekk

Vinegrette:
2 msk extra virgin ólífuolía
1 msk balsamikedik

Blandið innihaldsefnum í salatið saman og hellið vinegrette yfir. Skreytið með myntulaufum og berið fram.

Sjá hér uppskriftina á heimasíðu Dr. Weil.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: laukur, mynta, tómatar, Uppskriftir, vatnsmelóna, , , , , , , , , , , ,

Tómatar

Fyrirbyggjandi áhrif tómata gegn krabbameini hafa lengi verið þekkt. Rannsóknir sýna að útbreiðsla blöðruhálskirtilskrabbameins er minni í löndum þar sem neysla tómata og annarra tómatafurða er mikil [sjá Bragð í baráttunni bls. 108]. Einnig hefur verið sýnt fram á að menn sem fengið hafa blöðruhálskirtilskrabbamein lifa lengur en ella ef þeir borða tómatsósu að minnsta kosti tvisvar í viku [sjá Anti Cancer bls 122/heimild]. Rannsóknir sýna þó ekki einungis fyrirbyggjandi áhrif tómata gegn krabbameini í blöðruhálskirtli heldur einnig í brjóstum, ristli og brisi.

Tómatar innihalda plöntuefnið lycopene en það er efnið sem gefur þeim rauða litinn. Lycopene er öflugt andoxunarefni sem fellur undir flokk karotínoida. Lycopene finnst í mestu mæli í unnum tómatafurðum og elduðum tómötum. Þær fæðutegundir sem innihalda hve mest af lycopene eru eftirfarandi: sólþurrkaðir tómatar, tómatpúrra, tómatsósa, tómatar í dós og tómatsafi. Til að gefa hugmynd um hve mikill munur er á unnum tómatafurðum og hráum tómötum er hægt að bera sólþurrkaða tómata saman við hráa tómata. Sólþurrkaðir tómatar innihalda að meðaltali 40750 míkrógrömm af lycopene í hverjum 100 gr. á meðan hráir tómatar innihalda að meðaltali 2570,6,-2575 míkrógrömm í hverjum 100 gr. Munurinn er gífurlegur. Einnig er talið að efni sem einungis finnst í tómötum sem hafa verið þurrkaðir og nefnist FruHis hafi hamlandi áhrif á krabbamein í blöðruhálskirtli [heimild].  Þrátt fyrir þetta er alls ekki ástæða til að hætta að borða hráa tómata, þeir eru næringarríkir og innihalda talsvert magn af c-vítamíni, a-vítamíni og k-vítamíni (sjá frekari upplýsingar um næringarinnihald hér). Til að auka fyrirbyggjandi virkni gegn blöðruhálskrabbameini hefur einnig verið mælt með að blanda tómötum og spergilkáli saman í matargerð [heimild], og þá helst með ólífuolíu.

Ég mæli sérstaklega með eftirtöldum uppskriftum sem innihalda tómata:
Indversk linsubaunasúpa
Kjúklingur í karrý frá Sri Lanka
Bragðmikið pastasalat með eplum og sólþurrkuðum tómötum
Kjúklingaréttur með ólífum, fetaosti og tómötum

Sjá einnig umfjöllun um þátt tómata í forvörnum gegn krabbameini hér.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: tómatar, , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 366 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 366 other followers

%d bloggers like this: