Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: tómatar, laukur
Krydd: hvítlaukur, cayenne pipar, sinnepsfræ, karrýlauf, cumin, kóríander, negull
Uppskrift
fyrir 4
Marinering fyrir lúðu
1 kg. smálúða skorin í bita
¼ bolli ólífuolía eða repjuolía
¼ tsk. cayenne pipar
1 tsk. salt
1 tsk. svört sinnepsfræ möluð í mortéli
1 bolli brauðmylsna (notaði 4 hrökkbrauðssneiðar, malaðar í matvinnsluvél)
Masala
2 msk. ólífuolía
10 karrýlauf
1 ½ tsk cumin
1 ½ tsk. malað kóríander
¼ tsk cayenne
2 maukaðir rauðlaukar
3 hvítlauksrif
3 negulnaglar
1/2 tsk. salt
1 dós af niðurskornum tómötum í dós
1 lítil dós af kókosmjólk (160 ml.)
160 ml. vatn
Blandið öllum innihaldsefnum í marineringunni saman og komið fyrir í ísskáp. Látið marinerast í 2 klst. (ekkert stress þó ef það er minna eða meira).
Maukið rauðlauk og hvítlauk saman í matvinnsluvél.
Hitið ólífuolíu í potti þar til hún er orðin nokkuð heit, bætið þá karrýlaufum út í og látið steikjast í olíunni í um 30 sekúndur. Gott er að loka pottinum á meðan þetta gerist til að fá ekki slettu framan í sig. Hellið svo maukaða lauknum á pönnuna og steikið í um 5 mínútur við miðlungshita. Blandið því næst kryddunum saman við og síðan tómötunum. Látið malla við miðlungshita í 5-8 mínútur eða þar til vökvinn hefur minnkað talsvert. Blandið þá kókosmjólkinni saman við auk þess að fylla dósina einu sinni af vatni og blanda saman við (u.þ.b. 160 ml.). Látið malla í 10 mínútur.
Veltið fiskinum upp úr brauðmylsnunni/hrökkbrauðsmylsnunni. Hellið afganginum af marineringunni á pönnuna og steikið fiskinn í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Berið fram með brúnum hrísgrjónum og naan brauði.
Filed under: chili, Fiskur, hvítlaukur, karrýlauf, kóríander, kúmin, laukur, Meðlæti, negulnaglar, sinnep, svartur pipar, tómatar, Uppáhalds, Uppskriftir, cumin, hvítlaukur, karrýlauf, Lycopene, rauðlaukur




